Morgunblaðið - 22.12.1938, Blaðsíða 3
Fimtudagur 22. des. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Minningarorð
um Jónas Jensson
Einar Magnússon
sextugur í dag
T dag fer fram á Akureyri
jarðarför Jónasar Jensson-
ar símritara, kjörsonar Friðjóns
Jenssonar læknis. Hann var
fæddur í Hafnarfirði 1. okt.
1905. Foreldrar hans voru Jón
Jónsson skólastjóri og Valgerð-
ur Jensdóttir, kennari, systir
Friðjóns. Jón faðir hans var
hinn mesti áhugamaður um
stjórnmál, en dó ungur.
Jónas lauk gagnfræðaprófi
á Akureyri 1922. Eftir það
sneri hann sjer að símritara-
starfi og var einn af fyrstu
mönnum, sem útskrifuðust af
Loftskeytaskólanum 1923. ■—
Líæstu þrjú ár gegndi hann sím
ritarastörfum á Akureyri, Siglu
firði og Vestmannaeyjum. Árið
1926 var hann skipaður símrit-
ari á Seyðisfirði og dvaldi þar
til ársins 1934, að hann fluttist
til Akureyrar. Á Seyðisfirði
kvæntist hann eftirlifandi konu
sinni, Idu Antonsdóttur, og
eignuðust þau eina dótttur.
Þeim sem til þekkja kemur
saman um að Jónas hafi reynst
hinn nýtasti starfsmaður, sök-
um samviskusemi sinnar og
hæfileika. En þótt Jónas gengi
að starfi sínu með mikilli alúð,
vanst honum engu að síður tími
til þess að leggja drjúgan skerf
til þjóðmálanna. Hann var,
Læði á Seyðisfirði og Akureyri,
í fylkingarbrjósti ungra Sjálf-
stæðsmanna og formaður fje-
iags þeirra á báðum þessum
stöðum.
Jónas Jensson var einarður
maður og hreinskilinn. Þek'
kyntust honum, munu allir á
einu máli um það, að með hon-
um sje hniginn í valinn ágætur
starfsmaður, óvenjulegur áhuga
maður og góður drengur.
Arni Jónsson.
Allir verða varir við jóla-
sveina fyrir jólin. Margir búð-
argluggar eru skreyttir með
jólasveinum, blöðin eru full að
myndum af þeim. Lifandi jóla-
sveinn hefir sjest hjer í búðar-
gluggum við og v;^, og hefir
þá altaf verið margt um mann-
inn þar fyrir utan til að horfa
á. ,
Þessi jólasveinn hefir annars
skapað saklausa jólagleði, og
nú þegar hinar ýmsu jólaskemt-
anir fara að byrja, þá ættu
menn að nota sjer aðstoð hans.
Nú ætlar hann einnig að taka
upp þá nýbreytni að ganga
milli manna á aðfangadags-
kvöld með jólagjafir sem menn
senda vinum sínum, og flytja
úskir um gleðileg jól.
Einar Magnússon skólastjóri í
Gerðum er sextugur í dag.
Hann er fæddur að Miðhúsum í
Garði, sonur merkis- og atorku-
hjónanna Magnúsar Þórarinssonar
og Guðrúnar Einarsdóttur.
Um tvítugsaldur byrjaði Einar
að kenna við barnaskóla Gerða-
hrepps og hefir haldið því starfi
síðan eða óslitið nm 40 ára skeið.
Munu þeir fáir er svo langan
kennaraferil hafa að baki sjer og
það við sama skólann. Hann hefir
alla tíð verið sjerstaklega vel lát-
inn sem kennari og skólastjóri,
skyldurækinn og vandvirkur í
starfinu. Hefir hann hlotið óskifta
virðingu nemenda sinna og minn-
ast þeir hans allir í dag með þakk-
læti og hlýjum liuga.
Fleiri hugðarefni -hefir Einar
Magnússon átt en kenslustarfið og
þá einkum bindindis- og kristin-
dómsmál. Gæslumaður barnast.
hjer í Garði hefir hann veriS í 30
á*r og jafnframt starfað ötulleg.a
í áratugi í st. „Framför". Yíð-
sýnum og frjálslyndum kristin-
dómi ann liann af hjarta og trúir
á mátt hans til þess að ummynda
og fegra mannlífið alt. — Vart
hefi jeg þekt kirkjuræknari mann
en hann og munu fjölmargir
kirkjugestir minnast þess með
þakklæti ásamt organleikurum
Utskálakirkju, að ávalt hefir hann
verið og er enn reiðubúinn til
þess að syngja í söngflokk kirkj-
unnar.
Ýms trúnaðarstörf hafa Einari
skólastjóra verið falin af hrepps-
búum. í hreppsnefnd Gerðahrepps
hefir hann setið, safnaðarfulltrúi
og sýslunefndarmaður er hann nú
og enn fleiri trúnaðarstörf hefir
hann með höndum.
Einar er kvæntur Matthildi
Finnsdóttur frá Kjörseyri í Hrúta-
firði, hinni ágætustu konu. Er
heimili þeirra vinsælt með af-
brigðum og gestrisni þeirra hjóna
fjölmörgum kunn. Hefir þaðan
breiðst út áhugi fyrir söng og
hljómlist, enda er frú Matthildur
lífið og sálin í sönglífi bygðar-
lagsins.
Á þessum afmælisdegi Einars
skólastjóra munu þeim hjónum
berast kveðjur og þakkir víðsveg-
ar að fyrir vel unnið starf og
staðfasta vináttu ásamt einlægum
óskum um fagra og bjarta framtíð.
E. B.
Foreldrablaðið, sem gefið er út
af stjettarfjelagi barnakennara í
Rvík, er nýkomið út. Flytur marg
ar greinar um skóla- og uppeld-
ismál.
Árni Friðriksson
Ámi Friðriksson magister á fertugs-
afmæli í dag.
Hefir Sigfús Elíasson beðið blaðið
fyrir eftirfarandi afmæliskvæði til
hans:
Á þig vil jeg yrða,
Árni. Vilt þú beyra?
Störf þín vitrir virða,
vilja ljá þjer eyra.
Hugur hvarflar stundum
heim að bemsku slóðum,
þar með æsku undum
öldugjálfursljóðum. ?
Oft jeg sá þig einan
útá sjóinn líta,
sveininn hugarhreinan.
Hrönnin mjallahvíta
fjell og* flúðir stundu.
Fanginn varst af sænum,
meðan ærslum undu
ýmsir nærri bænum.
Þyrsklingurinn þráir
þaramiða-næði.
Jlafmey hörpu dáir.
Hafið geymir kvæði
skráð á skerjagróður
skímm rúnastöfum.
Lelndur lífsins óður
liggur dýpst í höfum.
Síst um þessa þætti
þig jeg mætti fræða.
Vissir hljóm og hætti
hafsins dýru kvæða
ungur öðram betur.
íslensk tunga geymi
fræðin færð í letur,
fram þótt árin streymi.
Með þjer Faxaflóa
friða gæfan ætti.
Mættu miðin gróa,
margra hag það bætti.
Arnfirðingur áður
afrek landi veitti,
djarfur, seinna dáður,
dýrrar orku neytti.
Vargar vilja ræna,
vjein dým brjóta.
Eyjan iðjagræna
argra geldur þrjóta.
Helga þó í hættu
hana ei mun saka.
Jón og Jónas mættu
jafnan hjá þjer vaka.
Dunar fossinn fagur
fjöllin bergmál óma,
roðna, rennur dagur,
röðull tendrar ljóma.
Fugl um fegurð syngur.
Frelsið þar á heima.
Enginn Arnfirðingur
ómum þeim skal gleyma.
Fertugum þjer, fróði,
'fagna jeg í kvæði,
því að litlu ljóði
lætur vökunæði.
Spakur lastar spanið.
Spekin há þig styðji.
Fyrirgef þú flanið,
fóstri, Dala niðja.
Sigfús Elíasson.
BlaS lýðræðissinnaSra stúdenta
er lcomið út. í blaðinu er m. a.:
Ræða Pjeturs Magnússonar flutt
af svölum Alþingishússins 1. des.
Ræða Sigurðar Bjarnasonar, for-
manns stúdentaráðs, flutt í út-
varpssal 1. des. og ræða Bárðar
Jakobssonar, flutt í Gamla Bíó
s. d. Ennfremur kvæði eftir Er-
lend Sigmundsson, o. fl. Blaðið
er hið vandaðasta og prýtt mörg-
um myndum. Blaðið verður selt á
götunum í dag og ættu bæjarbú-
ar að kaupa það og kynna sjer
málefni stúdenta.
Áramótadansleik heldur knatt-
spyrnufjel. Fram að Hótel ísland
á gamlárskvöld.
Jólatrjesskemtun
Skipstjóra og stýrimannafjelagsins
ALDAN
verður haldinn að Hótel Borg 27. desember kl. 5 e. hád.
Aðgöngumiðar seldir í Veiðarfæraversluninni Geysi og
hjá Guðmundi Sveinssyni, Bárugötu 17.
Sparisjóður Reykja-
víkur og nágrennis
verður lokaður laugardaginn 31. desember 1938 og mánu-
daginn 2. janúar 1939, vegna vaxtaútreiknings.
er besta og ódýrasta barna-
bókin. Gefið drengnum yðar
hana í jólagjöf.
Mikið úrval af
I útlendum ý oginnlendum |
Bókum
Jólagjafir við allra hæfi,
Bókaverslunir. Mímir
Austurstræti 1. Sími 1336.
Grtffar og' ódýrur f4]abæbnr:
VERALDARSAGA WELLS. Guðm. Finnboason íslensk-
aði. — 316 bls. þjettletraðar í Skírnisbroti. 20 upp-
drættir. Verð: 6 krónur. í vönduðu bandi 9 krónur.
SÁLKÖNNUNIN. Eftir Alf Ahlberg. — Jón Magnússon
þýddi. — 64 bls. þjettletraðar. Verð: 2 krónur.
UPPRUNIISLENDINGA SAGNA. Eftir Knut Liestöl. —
Björn Guðfinnsson íslenskaði. — 223+8 bls. Verð 5 kr.
Bókadeild Menningar«jóðs.
Bðinin
og <lýrin
snotur og ódýr myndabók
fyrir börn. — Hentug jóla-
Vjöf.
Unglingspiltur.
Ábyggilegur, duglegur og reglusamur piltur á aldr-
inum 15—18 ára getur fengið atvinnu við afgreiðslu frá
nýári við sjerverslun hjer í bænum. Umsóknir merktar
„ÁBYGGILEGUR", ásamt mynd og meðmælum, sendist
Morgunblaðniu fyrir fimtudðgskvöld.