Morgunblaðið - 28.12.1938, Page 4
4
MOKGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 28. des. 1938.
Tekfu- og
eignarskattur
Iljer með er vakin athygli
skaftgfaldenda á því, að
þeir þurfa að hafa greitt
tekju- og eignarskatt sinn
fyrir áirslok, til þess að
skatturinn verði dreginn
frá skattskyldum tekjum
þeirra, þegar skattar
þeirra á næsta ári verða
ákveðnir. Greiðsla ffyrir
áramát er skilyrdi ffyrir
neffndum ffrádrætti.
Toilstjórinn i Reykjavfk,
27, desember 1938.
ÚTSVOR.
Athygli gfaldenda hfer I
bænum skal vakin á því,
að við ákvörðun skatts
og útsvars á næsta ári
verða útsvarsgreiðslur því
aðeins teknar til grelna
til ffrúdráttar, að greitt sfe
ffyrir áramót.
Greiðið útsvarsskuldir
yðar þvi nú þegar og i
siðasta lagi ffyrir hádegi
á gamlúrsdag.
Borgarrilarino.
Utgerðarmenn.
Útvegum allar stærðir af mótorbátum.
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Eggert Kristjánsson & Co.
Sími 1400.
Kínverjar,
Útiblys, rauð og græn ljós. Lhombre spil á kr. 1.10.
Whistspil á kr. 1.50.
K. Einarsson & Björnsson
Minningarórð um
Geir Jón Jónsson
Vandamenn og vinir þessa
manns fjlgja honum til
grafar í dag, því hann ljest í
Landspítalanum 18. þ. m. eftir
innýflaskurð.
Geir Jón var fæddur á Hvarfi
í Ljósavatnshreppi 26. nóvember
1884. Yar hann yngstur af þrem
börnum þeirra Jóns Sigurgeirs-
sonar og konu hans Helgu Jóns-
dóttur frá Eyjardalsá.
Jón hreppstjóri á Hvarfi var
sonur Sigurgeirs Jónssonar Þor-
steinssonar frá Reykjahlíð. Sú ætt
er eigi aðeins kunn norður þar,
heldur um land alt, því þeir Reyk-
hlíðingar urðu víðfrægir fyrir af-
burða fræknleik. Geir Jón tók
þar arf, sem heinum karllegg bar.
Ilelga, móðir Geirs Jóns, var
gáfuð kona og þrekmikil. Hún var
dóttir Jóns Ingjaldssonar óðals-
bónda á Eyjardalsá. Yoru þeir
Eyjardalsárfeðgar miklir hreysti-
menn og fremstu búhöldar í sinni
sveit. !
Geir Jón misti föður sinn ung-
ur. En Helga móðir hans, sem
var mikil ágætis kona, hjelt þá
uppi búi með börnum sínum, og
kom báðum sonum sínum til
menta. Lauk Geir Jón námi við
Gagnfræðaskólann á Akureyri ár-
ið 1906. Var hann síðan fá ár á
Akureyri, en fór síðan til fsa-
fjarðar og var þar kennari nokk-
ur ár. Þrítugur að aldri gerðist
hann verslunarmaður hjá Edin-
borgarverslun á ísafirði. En árið
1918 flutti hann til Reykjavíkur.
Hann var því Reykvíkingur í 20
ár. Þar af 18 ár bókari og gjald-
keri ísafoldarprentsmiðju. Þar
vann hann hvern dag frá kl. 8 að
morgni, og oftast fram á kvöld,
mikið 'verk og vandasamt.
Þegar jeg skrifa þessar línur,
finst Ájer það ólíkindum, að jeg
riti þær eftir hann látinn, því
þótt við værum jafnaldrar, mátti
það líklegra þykja, að hann ætti
eftir raig að mæla, ef miðað var
við hreysti okkar beggja. Hann
var maður afrendur að afli og
frækinn. Var hann glímukonung-
Ur Vestfjarða mörg ár. Gleðimað-
ur mikill, en hóglátur og kurteis.
Kunningjar hans urðu vinir hans
Ilann var þess háttar maður, er
menn binda vináttu við meir en
um stundarsakir.
Geir Jón kvæntist árið 1913
Maríu Sigurbjarnardóttur skip-
stjóra á ísafirði. Þau áttu þrjú
börn, er öll lifa hann ásamt móð-
ur sinni. Elst barna þeirra er Sig-
urjón, er les læknisfræði í Há-
skólanum í Reykjavík, Aúður, gift
Hauk , Jóhannessyni loftskeyta-
manni, og Hulda, heima með móð-
ur sinni.
Sigurðui Kristjánsson.
Kennarafjelag
Mi ð bæ jarskólans
í Reykjavík •
30 ára
Geir Jón Jónsson.
Kveðja
Ef valmenni hverfur úr starfastól
er stundin döpur í ranni.
Og fjelögum er sem fjúki í skjól
þá færra er traustum manni.
Sú hönd, er hvern dag lýkur dýrri
önn,
má daggeisli kallast, með sanni.
Þeir sakna hins prúða og mæta
manns,
er með honum verkin unnu.
Og sanntrúir menn eru sómi lands,
með sæmd þeirra lífsár runnu.
Og yfir gröf þeirra alt af bjart,
sem æfifrest nota kunnu.
Farvel! Eftir starfsins dýra dag
er dauðinn mildur og fagur.
Við jólanna helga hátíðalag
er hinstur þjer sunginn bragur.
Og ofar hverfulleik öllum skín
hinn eilífi Ijóssins dagur.
Hulda.
Islensk messa
í Khöfn
Khöfn 26. des. F.Ú.
Aannaii í jólum fór fram
íslensk jólaguðsþjónusta
í Nicolaikirkjunni í Kaup-
mannahöfn.
^ Síra Pjetur T. Oddsson, prest
ur að Djúpavogi, sem nú er
staddur í Kaupmannahöfn flutti
guðsþjónustuna.
Jólin á Norðurlöndum fengu alveg
svip sinn af hinum miklu snjókom-
um og hörkum. Samgönguvandræði
voru mikil og þó reyndi fjöldi manna
úr borgunum að komast til átthaga
og skyldmenna eins og venja er til
um jólaleytið.
í Hano í Svíþjóð voru snjóþyngsli
svo mikil og ísing, að fullkomin sam-
gönguteppa var. Ibúamir þar voru í
gær farnir að líða mikinn skort og
er fyrirlmgaö ,að kasta niður matvæl-
um til þeirra úr flugvjelum.
( érðbréfabankinrv RBIHITIðlÍStðr
Aostcrrstr. 3 simi 3652.Opið M.11-12oip,3^
annast kaup „g sölu allra hi"ir mar? ettirsl"'rSu
VERÐBRJEFA. kommr aftiir-
Guöm Ásbjörnsson
Laugaveg 1. Sími 4700.
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ
EKKI-----ÞÁ HVER?
Dað var stofnað 28. desem-
ber 1908. Var hjer þá og
lengi síðan aðeins einn opinber
barnaskóli, barnaskó í Reykja-
víkur og var fjelagið nefnt
Kennarafjelag barnaskóla
Reykjavíkur. Síðar, er skólum
fjölgaði hjer í bæ, hlaut barna-
skóli þessi nafnið Miðbæjar-
skóli og breyttist þá nafn fje-
lagsins samkvæmt því.
Stofnendur þessa fjelags
voru 19, allir starfandi kennar-
ar við skólann, og á næsta
fundi bættust við 5 fjelagar
og enn nokkrir skömmu síðar.
Á stofnfundinum voru sam-
þykt lög fyrir fjelagið. Tilgang-
ur fjelagsins er samkvæmt 2.
grein laganna: „að efla sam-
vinnu og samtök milli kennara
skólans og hlynna að velferð
hans“.
Þessari stefnu hefir fjelagið
reynt að fylgja. Það hefir látið
til sín taka öll helstu velferðar-
mál skólans, haldið marga um-
ræðufundi um þau, gert ýmsar
tillögur til umbóta því, sem af-
laga þótti fara og oft orðið all-
mikið ágengt. Verður þáð ekki
hjer talið. En þegar saga fje-
L gssamtaka kennara verður
skráð — og þess verður ekki
langt að bíða, mun saga þessa
fjelags rakin miklu nánar.
Fyrstu stjórn fjelagsins skip-
uðu þessir kennarar skólans:
Hallgrímur Jónsson, formaður,
en bann gekst fyrir stofnun fje-
lagsins; Sigurður Jónsson, fje-
hirðir, Laufey Vilhjálmsdóttir,
ritari, Bjarni Hjaltesteð og
Konráð Vilhjálmsson meðstjóm
endur. — Morten Hansen
skólastjóri baðst undan því, að
vera kosinn formaður fjelags-
ins.
Fjelagið telur nú um 40 fje-
laga. Núverandi stjórn þess er
þannig skipuð: Þorsteinn G.
Sigurðsson, formaður, Unnur
Briem, ritari, og Helga Þor-
gilsdóttir, fjehirðir.
Verksvið fjelagsins hefir
nokkuð þrengst á síðari árum
vegna breytinga, sem orðið hafa
á skólafyrirkomulaginu hjer í
.bæ, en enn sem fyr reynir þ^ð
eftir mætti að starfa sam-
kvæmt 2. gr. laganna, að því,
,,að efla samvinnu og samtök
milli kennara skólans og hlynna
að velferð hans“.
Kennari.
iiuiiuiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiniiiiimiimimiiiiiniiiimiiiiumiiiiiiH
| Hólsfjallahangikjðt
og ffrænar baunir. |
1 Jóh. Jóhannsson
I
1 Grundarstíg 2. Sími 4131.