Morgunblaðið - 07.02.1939, Qupperneq 7
Þriðjudagur 7. febr. 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Mataræðið og heiisan
Við vituni o.ll, að það er mat-
urinn, sem við lifum á. Bn nú á
tímum er önnur hlið á málinu,
sem menn reyna að kunngera
einnig', en það er það, að við
deyjum einnig áf matnum, eða a,ð
minsta kosti veiklumst af honum.
Þess veg-na ætti sjerhver okkar að
spyrja sjálfan sig: Lifi jeg heil-
brigðu lífif Því miður verða marg-
ir hjer á landi að játa, að svo er
ekki, eins og sjest á því, sem hjer
fer á eftir.
1. Sjúkdómar kosta landið meira
árlega en öll verkföll og verk-
bönn.
2. Mataræðissjúkdómar eru allra
sjúkdóma tíðastir.
3. % hlutar allra krabbameina
eru í meltingarfærunum.
4. Við erum ein af tannlausustu
þjóðum í heimi, af því að
mataræðið er yfirleitt rangt.
Þetta eru staðreyndir, sem tala
sínu greinilega máli, og vegna
þessa vinna læknar vorir og aðrir
að því að auka mjólkurneysluna.
ÍMjólkin er eitt af helstu nær-
ingarefnunum. Það er ef til vill
óþarfi að seg’ja þetta, því að allir
vita það.
En hvers vegna er mjólkin und-
irstöðuatriði í öllu heilnæmu mat-
aræði?
(Þýtt úr norsku).
Ymsir kunnir læknar og melt-
ingarfræðingar hafa svarað þess-
ari spurningu. Eitt af þeim svör-
um, frá prófessor E. Langfeldt,
var birt hjer í blaðinu nýverið,
undir yfirskriftinni: „Hversvegna
eigum við að drekka mjólk?“
Fleiri munu verða birt síðar.
(Augl.).
Húseign óskast.
Óska að kaupa hús eða hæð
í húsi, helst á Melasvæðinu
sunnan Hrin.e;brautar. Verð
til viðtals í skrifstofu minni
kl. 6—7 annað kvöld.
Símar 4990 oe; 2219.
Símar 1964 og 4017.
A UGAÐ hvílist
tneð gleraugum frá
THIELE
IITÍIIIIIIIIHIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIilllllllilllllllllillllilllMIIIIIIIIIIIII
= 55
Nokkur
| blárelaðíktnii |
| til sölu með tækifæris- |
1 verði. Uppl. í síma 4013. I
£ i
iÍíllHHHHHIIHIIHHmilHIIIIIIIHHHHIIIHIIIIHJHHHHHHHHIIIIil
47 krónurkosta
ódýrngtn koSin.
Minningarorð um
Valentínu Val-
geirsdóttur
Fædd 29. júní 1914.
Dáin 29. jan. 1939.
Eins og reiðarslag barst okk-
ur fregnin um að hún
væri dáin. Hress og glöð í hópi
vina sinna á laugardagskvöldi,
en horfin sýnum á sunnudags-
kvöld, skyndilega slegin til
jarðar eins og bióm, sem storm-
urinn brýtur af stöngli. Og eins
og brosandi blóm var hún með-
al okkar, meðan við máttum
njóta hennar, altaf glöð, gest-
risin, umhyggjusöm.
Ung stofnaði hún sitt litla heimili,
er húu giftist eftirlifandi manni sín-
um, Emil Jónssyni, sölustjóra Eggja-
sölusamlagsins, og fyrir heimili sitt
lifSi hún, og annaðist það vakin og
sofin. Þau hj’ón eignuSust tvo drengi,
og umhyggjusamari og elskulegri móð-
ir var ekki hægt að hugsa sjer. Það er
því stórt skarð fyrir skildi, þegai' hún
er skyndilega. kölluð burt, og þungur
harmur kveðinn að heimili hennar og
ástvinum. þn iimileg, hluttekning allra
sem þektu hana, knýr fram heita b;eu
til guðs, að hann styrki ástvinina í
missi þeirra og blessi þeim minning-
una um göfuga konu og móður uns
hann tengir aftur slitinn þráð sam-
vistanna handan við fortjaldið mikla.
Vertu sæl, Valla, og' þökk fyrir alt.
ViS sjáumst aftur.
Vinur.
AFMÆLI ÁRMANNS
Dagbók.
□ Edda- 5939277 — 1. Atkv.
Veðurútlit í Rvík í dag: All-
hvass SA. Rigning öðru hvoru.
Næturlæknir er í nótt Eyþór
Gunnarsson, Laugaveg 98. Sími
2111.
Næturvörður er í Reykjavílmr
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Sextug vérður í dag frú Guðrún
Arnadóttir, Ási við Hafnarfjörð.
Silfurbrúðkaup eiga í dag Gísl-
anna Gísladóttir og Þórður Þórð-
arson trjesmiður, Baldursgötu 11.
Lík Árna Árnasonar sjómanns,
Öldugötu 24, verður flutt utan til
brenslu með Gullfossi í kvöld.
Kveðjuathöfn verður að heimili
hans kl. 2.
Gísli Sveinsson alþm. er ný-
kominn til bæjarins.
Víkingar, 1. og 2. fl., munið
æfinguna í kvöld í I. R.-húsinu
kl. 8.
ísfisksala. í gær seldi b.v. Geir
í Grimsby 1651 vætt fyrir 969
stpd. og Belgaum 2040 vættir fyr-
ir 1008 stpd.
Sænski sendikennarinn, frk
Ostermann, byrjar á ný háskóla
fyrirlestra sína kl. 8 í kvöld,
þriðjudag, og talar um Gustav
Fröding.
Skíðafæri var sæinilegt nm belg-
ina í nærliggjan di fjöllum, en
þátttaka lítil, sem mun hafa staf-
að af því að illa leit fit með veður
hjer í' bænurn. Snjór er þó álíka
mikill hjá Skíðaskálanum eins o
hann hefir verið undanfarið.
Skemtun verður haldin í Gamla
Bíó í kvöld kl. 7. Verður þar ým-
islegt til skemtunar og befs't með
því að hljómsveit leikur gömul og
ný danslög. Er það hljómsveit P.
Bernburgs. Guðbrandur Jónsson
prófessor talar um daginn og veg-
inn. Gísli Sigurðsson skemtir með
eftirhermum. Lilla Ármanns og
Lilla Halldórssou sýna plastik.
Friðfinnur Guðjónsson les upp, og
loks skemta Anna og Guðjón með
samspili á guitar og mandólín.
] Vetrarhjálpin stTndur fyrir þess-
ari skemtun og rennur állur á-
góði af lienni ,til Vetrarhjálpar-
innar. Ætti mönnum því að vera
tvöföld ánægja að sækja skemtun
þessa.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
af þeim fjölda heillaskeyta, sem
fjelaginu hafði borist.
Áður en risið var frá borðum
mælti Sigurjón Pjetursson nokk-
ur orð fyrir miuni formanns Ár-
manns og hyltu menn formanninn
með húrrahrópum.
Borðhaldinu var lokið um kl.
11. Voru þá borð rudd og. dans
stiginn til kl. rúmlega 3,
Árshátíð sína heldur stúkan
Verðandi nr. 9 í kvöld. Verður
þar mikill mannfagnaður og fjöl-
breytt skemtun. Jakob Möller al-
þingismaður heldur ræðu, kvartett
syngur undir stjórn Halls Þor-
leifssonar, Bjarni Björnsson syng-
ur gamanvísur, þar af sumar spán-
nýjar, sem ekki hafa heyrsf áður,
um dansinn hjá S. G. T. Eggert
Gilfer leikur á píanó, og svo verð-
ur sýndur kafli úr leikritinu Ný-
ársnóttin eftir Indriða Einarspon,
stjórnandi ungfrú Emilía Jndriða-
dóttir. Er þetta sá þáttur, sem
gerist í baðstofunni í Iloíti, þegar
Gvendur snemmbæri kemur. Margt
fleira verður til skemtúnar.
Meyjaskemman verður leikin í
kvöld. Allir aðgöngumiðar selcl-
ust upp á tæpum klukkutíma í
gær.
Eldsvarnafræðsla í Hafnarfirði.
Fyrir atbeina Slysavarnadeildar-
i-nnar og slökkviliðsstjórans í
Hafnarfirði fer þar fram elds-
varnafræðsla í þessari viku á svip-
aðan liátt og fram fór hjer í
Reykjavík á eldsvarnavikunni í
haust. Hefst fræðsla þessi á því,
að eldsvarnakvikmynd verður
sýncl ókeypis fyrir almenning kl.
8 í kvöld í bæjarþingsalnum.
Einnig verður þar flutt stutt er-
indi nm eldsvarnir. Þessi sama
mynd verður sýnd á morgun kl. 5
e. h. fyrir barnaskólahörn í leik-
fimissal skólaus.
Árshátíð rakara og hárgreiðslu-,
kvenna verður haldin að Hótel
Borg annáð kvöld og hefst með
borðhaldi kl. 8.30
Útvarpið:
17.30 Endurvarp frá Osló: Nor-
rænir alþýðutónleikar, II.: Nor-
egur.
19.20 Eriiidi Búnaðarfjelagsins:
Hm gafðl-ækt (Ragnar Ásgeirs-
son ráðúnautur).
20.15 Erindi: Þáttaka íslendinga
í heimssýningunhi í New York
(Thor Thors alþingism.).
20.50 Fræðsluflokkur: Sníkjudýr,
■ V (Árni Friðriksson fiskifr.).
21.10 Synifóníutónleikar:
a) Tónleikar Tónlistarskólans.
b) Orgelleikur (Páll ísólfsson).
Húsakaup.
Er kaupandi að nýju eða nýlegu steinhúsi nálægt
Miðbænum. Góð útborgun. Listhafendur sendi til-
boð til afsr. blaðsins, merkt „HÚSAKAUP“.
Stefnir
Fjelag ungra Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði,
heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 7. þ. mán.
kl. 8y2 í Hótel Björninn.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Morgunblaðið með morgunkaffinu
Sökui
jarðarfarar
verðnr skrifstofum lorum,
keildsölu og Eggjasölu-
samlagÍDU lokaö i dag frá
kl. 12-4.
Slðturfjelag Suðurlands.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum að dóttir og stjúp-
dóttir okkar,
Sæunn Ólafsdóttir,
andaðist þann 6. þ. m. í Landspítalanum.
Sæunn Jónsdóttir og Guðbjörn Þorleifsson,
Ásvallagötu 61.
Jarðarför konunnar minnar,
Kristínar Á. Guðnadóttur,
fer fram frá dómkirkjunni fimtudaginn 9. þ. m. og hefst með
húskveðju á heimili okkar, Marargötu 3, kl. 1 e. h.
Brynjólfur Stefánsson.
Kveðjuathöfn yfir líki
Jóns Guðmundssonar bónda
frá Möðruvöllum í Kjós fer fram miðvikudagsmorgun kl. 10
að Laugaveg 99 A.
Vandamenn.
Lík mannsins míns,
. Árna Árnasonar,
verður flutt hjeðan með Gullfossi til útlanda til brenslu,
Kveðjuathöfn fer fram kl. 2 í dag, 7. febr., frá heimili
okkar, Öldugötu 24.
Bjarnfríður Pálsdóttir.
Við þökkum hjartanlega öllum þeim sem sýnt hafa okkur
samúð og vináttu í veikindum og við fráfall 1
Magnúsar Aðalsteinssonar.
Jóhanna Aðalsteinsdóttir. Unnur Vilhjálmsdóttir.
Fanney Guðmundsdóttir.