Morgunblaðið - 21.10.1939, Qupperneq 3
Laugardagur 21. okt. 1939.
3
MORGUN BLAÐIÐ
Maöur Öevr eftir bíl-Brak úr skipírekið
slys í Hafnarstræti a Meðal!andsfiörur
---- ------------ Einnig tveir björgunarhringir
Klemmist milli
húss og bíls
HRÆÐILEGT bílslys varð í gær um 6 leytið
í Hafnarstræti. 59 ára gamall maður, Guð-
mundur Gíslason fisksali, Framnesveg 25 A,
slasaðist svo, að hann andaðist tæpum þremur stundum
síðar á sjúkrahúsi.
Slysið orsakaðist af því, að bílstjórinn, Björn Guð-
mundsson, misti stjóm á bíl sínum í þröngri umferð og
ók upp á gangstjett. Lenti Guðmundur heitinn milli bíls-
ins og norðvesturhorns Hótel Heklu. Festíst bíllinn svo, að
imannsafnað þurfti til að bera hann til, áður en hægt var
að losa manninn, sem varð á milli.
Bílstjóranum varð svo mikið um að hann hágrjet er hann sá hyað
i*keð hafði.* Hami t'jekk or' taugaáfall (..shoek“)i að þvi er iæknir; sem
akoðaði hann skömmu eftír slysið, taldi. Björn Guðmunds&on er ineð
elstu bílstjórum í bænum og hefir stundað atvinnu sem bílstjóri síðan
J919, eða í 20 ár. _______•____. ____
með nafni á þýsku skipi
MORGUNBLAÐINU bárust í gær fregnir um
það, að rekið haf i talsvert af braki úr skipi
á Meðallandsfjörum, á svæðinu frá Skaft-
árósi og alla leið vestur að Kúðaósi. Óljósar fregnir hafa
einnig borist um samskonar reka í Álftaveri, vestan Kúða-
óss, en ekki fengist staðfesting á þeim.
Til þess að fá nánari fregnir af þessum reka, átti Morgunblaðið í
gær tal við Eyjólf Evjólfsson hreppstjóra að Hnausum í Meðallandi
og fekk hjó honum eftirfarandi upplýsingar:
Svo hagar til þar sem slysið
varð, að tröppur eru við norðvest-
urhorn Hótel Heklu. Mjór gailg-
stígur er þarna milli Ilaföarstræt-
is og Lækjartorgs og við tröpp-
urnar er gangur niður í kjallara
Hótel Heklu. Við húsið Hafnar-
stræti 18, sem er gegnt Heklu, er
grindverk.
Bílnum var ekið austur Hafn-
arstræti, en Guðmundur heitinn
kom gangandi austan götuna á
vinstra götukanti þg ók á undan
sjer hjólbörum.
Mun Guðmundur hafa ætlað að
forða sjer upp á gangstjettina og
kin í gangstíginn milli Heklu og
HafnarstrætiS: 18, en ekki náð að
komast það, áður en bíllinn ók
á hann og klemdi alveg fast upp
að húsinu.
Svo mikill var áreksturinn, að
stór dæld er í húshorinu á Heklu.
Bíllinn festist á vörupallinum í
grindverkinu við Ilafnarstræti 18,
og revndist ógjörningur að hreyfa
hann afturábak með vjelinni.
Múgur og margmenni safnaðist á
slysstaðinn á svipstundu og tókst
mönnum að bera bílinn til og losa
Guðmund heitinn.
Var hann fluttur á Landsspítal-
ann á svipstundu, þar sem þeir
læknarnir Eggert Steinþórsson og
Ólafur Þ. Þorstejnsson tóku við
honum. Hafði hann hlotið svo mikil
meiðsl, að hann ljest klukkan tæp-
lega 9, eins og fyr segir.
Frásögn bílstjórans.
Bílstjórinn segir lögreglunni svo
frá, að hann hafi lcomið í bíl sín-
um austur Hafnarstræti. Er hann
var kominn á *móts við Jnis Helga
Mangússonar & Co. var þar stræt-
isvagn fyrir framan verslunina.
Um leið og Björn ætlaði fram hjá
strætisvagninu var honum ekið af,
stað og beygt þvert út á götuna
til hægri vegna þess að annar bíll
stóð fyrir frarnan strætisvagninn.
Til þess að forðast iárekstur við
strætisvagninn beygði Björn bíl,
sínum til liægri. Varð liann ekki
var við Guðmund heitinn fyr en
hann var alveg kominn að honum.
Brá Birni þá svo að hann misti
alla stjórn á bíl sínum og sjálf-
um sjer. Ok upp á gangstjett, eh
getur svo ekki gefið neina skýr-
ingu á því sem fram fóf eftir það.
Læknirinn, sem skoðaði Björn
bílstjóra, gat ekki fundið að B.jöru
hefði neytt áfengis.
Reykjavfk fekk
37 tonn af sykri
,#
Af sykursendingunni, sem kom
hingað með Dr. Alexandrine,
komu 37 t-onn til skifta milli versl-
ana í Reykjavík.
Þessi sykur er seldurH smásölu'
á kr. 1.20 kg. strásykur og kr.
1.40 kg. molasykur; verðuPvar áð-i
ur kr. 0.70 og kr. 0.80 kg. Þessi
verðhækkun stafar áf því, að!
kaupa varð sykurinn í Danmörku,
en þar er ekki hágkvæmt að gera
sykurkaup. Hinsvegar varð að
kaupa þéiiua slatta. þvf að sykur
A'ai’ gehgíhn til þítrðar hjer.
Sýkur þessi 'áííti að nægja til
þess að fullnægja októberskömtun-
inni. Svo er von á slatta með Gull-
fossi, sem ætti að nægja uns aðal-
birgðirnar koma með Goðafossi frá
Ameríku.
Vestmannaeyjar fengu um 5
tonn af syktírsendinguhni með Dr.
Alexandrine, Akranes 3 og Hafnar-
fjörður 5 tonn.
Eitthvað fór einnig til iðnaðar
lijer í bænum.
BENEDIKT WAAGE
HEIÐRAÐUR
fundi bæjarráðs í gær var
ákveðið, að forseti í. S. í.,
Benedikt G» AVaáge, skuli fá æfi-
langt ókfiypis aðgang að. Sundhöll-
.inui í viðarkenningárskyni fyrir,
langa forgöngu hans og. úhuga á
íþróttamálum.
Nýtt leikrit eftir
Lðrus Sigur-
r
„A heimleið“
nóv. næstkomandi hefir
^ • Leikfjelag Reykjavíkur
frumsýningu á nýju leikriti eft-
ir Lárus Sigurbjbrnsson rithöf-
und, „Á heimleiS —
Um sama leyti kemur leikrit-
ið líka út á prenti hjá forlagi
Guðmundar Gamalíelssonar.
Lárus hefir skýrt „Morgun-
blaðinu“ svfo frá um hið nýja
leikrit sitt.
Sjónleikur þessí er bygður á
skáldsögu eftir móður mína, frú
Guðrúnu heit. Lárusdóttur, sem
heitir „Á heimleið“ — og kom
út fyrir 26 árum, árið 1913.
Haustið 1937 unnum við móð-
ir mín og jeg saman og gerðum
frumdrög að sjónleiknum og
hafði móðir mín gengið frá
nokkrum atriðum hans. En eftir
fráfall hennar hefi jeg unnið
einn að samningu leiksins. Var
honum lokið fyrir jól í fyrra.
Leikurinn gerist í sveit, á
prestssetrinu Hvoli og leiðir
fram á sjónarsviðið helstu per-
sónur skáldsögunnar, Margrjetu
íi.túkrunai'konu og síra Björn,
sóknarprestinn, en þau greinir
á iliá undirstöðuatriði kristin-
dómsins. Leikurinn segir frá
baráttu þerira fyrir hugsjónum
sínum, — hugsjónum, sem varða
hvera hugsandi mann og konu.
Ýmsar aðrar persónur skáld-
sögunnar koma fram í leikn-
um, svo sem Þóra prestsmóðir,
Benni vinnumaður, Gvendur í
Múla hestamaður, Jóhann
barnakennarí o. fl.
Jeg treysti því-, segir Lárus
að mjer hafi tekist að draga
fram þann eiginleika skáldsög-
unnar að lýsa á lifandi hátt
persónum úr ísl. sveitalífi, bæði
kátlegum og alvarlegum.
Persónur leiksins eru samtals
tíu.
Leikurinn er í fjórum þáttum
og geríst í stofu á prestssetrinu
og fyrir . framan kirkjuna á
Hvoli.
Aðalhlutverkin fara þau með
Þóra Borg og Gestur Pálsson.
En aðrir leikarar eru: Frið-
finnur Guðjónsson, Gunnþórunn
Halldórsdóttir, Valur Gíslason,
Emilía Borg, Ingibjörg Steins-
dóttir, Ævar Kvaran, Hildur
Kalman og Þorsteinn Guðjóns-
son, sem ekki hefir komið fram
áður á leiksviði.
Lárus Sigurbjörnsson annast
sjálfur leikstjórnina.
Verða fjórir ÞjóB-
verjar settir á
„letigaröinn?"
Fjórir þýskir sjómenn, sem
strokið hafa hjer í land
af þýskum skipum eru nú hjer
í bænum og hafa yfirvöldin til
athugunar að hafa þá í gæslu í
fangelsinu á Litla-Hrauni (Leti-
garðinum). Ekkert mun þó end-
anlega ákveðið í þessu máli.
Þessir fjórir þýsku sjómenn
eru nú hjer í bænum og bua á
Herkastalanum. Þeim er gert að
skyldu að mæta einu sinni á
dag á lögregluvarðstofunni.
Þrír sjómannanna eru frá
skipinu „Erika Henrich Fis-
cher“, sem lá inni á sundum og
fór hjer um nóttina. Var
það næst síðasta þýska skipið,
af þeim, sem komu hingað í
stríðsbyrjun, sem fór burt að
næturlagi án þess að láta vita
r m ferðir sínar.
Hásetarnir þrír, sem eru hjer
í landi af skipinu struku í land
um kvöldið áður en skipið fór.
Stálu þeir einum skipsbátnum
til að komast á í land.
Fjórði maðurinn er af einu
hinna þýsku skipanna er hjer
var.
Kafbátsmaðurinn á
Landakoti heiðraður.
Þýski undirforinginn, sem
settur var í land hjer af kaf-
bátnum þýska vegna sára, hef-
ir verið sæmdur heiðursmerki.
Ilann er nú að verða algróin
sára sinna. Eins og kunnugt er,
verður hann að dvelja hjer þar
til ófriðnum lýkur. Er líklegt að
hann fái að ganga laus gegn
því að gefa drengskaparloforð
um að reyna ekki að strjúka-.
Alþingi kvatt
saman 1. nóv.
Alþingi hefir verið stefnt saman
til framhaldsfunda miðviku-
daginn 1. nóvember n.k.
Komingsbrjef um, þetta var gef-
ið út 16. þ. m. og birtist það í síð-
asta Lögbirtingablaði.
Fyrir nálega hálfum máilþði rak
á fjörurnar í Meðallandi falsvert
af braki úr skipi, sagði Eyjólfur
hreppstjóri. Meðal þess, sení;fánst,’
voru nokkrir heilir lúguHlérár,
sumir cá. 5 álnir að lengd," aðrií
styttri. Engin merki voru á hier-
'unum. Tálsvert af ýmiskonar braki
úr skipi rak einnig og virtist það
alt nokkuð nýlegt, þannig að það
mun ekki hafa legið lengi í sjé. !
Þá sagði hreppstjóri, að fundist
hefði spjald af hnrð með áletruii
'„2. offizier“ ■— á þýsku.
Ekki vissi hreppstjóri til þess,
að nein önnur merki hefði sjest á
brakinu, en hann hafði heyrt, að
bjarghringur hefði fundist á Steins
mýrarfjöru, en vissi þó ekki fqll
deili þess. , , j... r
Atti þá Morgunblaðið tal við
Halidór Davíðsson bónda á Syðri-
Steinsmýri og sagði hann það rjett
vera, að í brakinu sem fanst** • á
fjörunum hafi verið tveir bjarg-
hringir með áletruninni: „Minden
— Bremen' ‘.
Einnig fanst ár frá björgunar-
bát með sömu áletran. Aðrar áletr-
anir fundust ekki.
Virðist, því alt benda til þéss, að
rekald þetta sje úr þýska skipiiíú
,,Minden“ frá Bremen. Skip þetta
ér 4165 br. smálestir að stæfð ög
er farþega- og farmflutniiigaskip.
Bygt 1921, eign Nord Deufíeb#
Lloyd.
I Matsverð
erfðafestulanda
Abæjarráðsfundi í gær vóPla^t
fram inat yfirmatsnefúdar"á
kaupverði bletts 1 NorðurMýri, Sem
bæjarráð hefir ákveðið að táka úr-
erfðafestu undir byggingarlóðir.
Matsnefndin ákvað að inekka nnd-
irmatið um nálega lielming vegna
þess að bærinn sje skyldugur að
greiða þau erfðafestulönd sem ekki
er annað ákveðið um, sem bygg-
ingarlóðir, þegar þau eru tekin.
Hvílir mat þetta á Hæstarjett-
ardómi sem felcfur var síðastliðið
vor, sem skilja má þannig, að eigi
megi miða matsverðið við ræktun-
arkostnað eingöngu, en þeirri
reglu hefir verið fylgt* hjer urn
alllangt skeið.
Mál þetta hefir mikla fjárhags-
lega þýðingu fyrir Reykjavíkur-
bæ, og ákvað hæjarráð að.láta at-
huga hvort ekki væri rjett að hefja
nýja málsókn, til að reyna að. fá
þessum grundvelli matsins. hriutd-
ið. —