Morgunblaðið - 02.11.1939, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 02.11.1939, Blaðsíða 7
Fimtudagur 2. nóv. 1939. MORGUNBLAÐIÐ 7 pniniiminimiiHiiiiiuiiiiMiiniwijj! | Nf bók | SiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiuiiiiiiuiiHmi Nokkur kvæði Guð- nundar Friðjónssonar 1 tilefni af sjötugsafmæli Guð- -*■ mundar skálds Friðjónssonar þan n 24. okt. síðastliðinn hefir ísafoldarprentsmiðja gefið út snotra^ bók með nokkurum úrvals- kvæðum skáldsins frá ýmsum tíma. Mun elsta kvæðið vera ort árið 1899, en hið vngsta á þessu ári. Þetta er vel valið sýnishorn, það sem það nær, af kvæðum Guð- mundar og gefur því góða hug- mynd um ljóðsnild hans. Kvæðin eru þessi: Páskamorgunn, Úti við sundin, Þórarinn Jónsson á Hall- dórsstöðum, Helsingjar, Hryn- henda um Jón í Múla, Um Rang- árþing, Sigurður Stefánsson prest- nr í Ögurþingum, Til Árdísar, Björn Jónsson ritstjóri, Yorharð- indi, Kristján Jóhannsson ferju- maður, Sólaruppkoma við Langa- nes, Hrærekur blindi, Leifur hepni finnur Vínland, Litið um öxl (til konu skáldsins) og Sendlingur. Úr flestum minningarljóðunum í bók- inni eru feld niður nokkur erindi. Alt eru þetta prýðileg kvæði og sóma sjer vel í slíku úrvali. Bn eini gallinn á bókinni er sá, hve hnn er stutt, aðeins 3 arkir. Mörg af öðrum úrvalskvæðum skáldsins hafa því orðið á hakanum og þar á meðal frægustu kvæði hans, eins o-g Ekkjan við ána og Brjef til yinax míns, auk margra ágætis- tvæða, sem síst standa að baki þeim, sem í bókinni eru. Kverið •©r því aðeins sýnishorn af nokkúr- 4m úrvalsljóðum skáldsins, en engu að síður er það þó góðra gjalda vert, því að það nægir til þess að sýna þeim, sém ekki hafa ljóðabækur Guðmundar Friðjóns- Sonar undir höndum, að hann er skáid, sem borgar sig að kynnast, orðsnjall, þróttmikill og rammís- lenskur. Má með rjettu heimfæra það til hans sjálfs, sem hann seg- ir í hinu snildarlega kvæði sínu om Kristján ferjumann: Málsnildin var móðurtungu mótað gull frá Sturlungum. Guðmundur Friðjónsson hefir fyrir löngu unnið sjer virðulegan aess í bókmentasögu vorri sem einn af svipmestu og kjamyrtustu skáldum vorum bæði í bundnu máli og óbundnu. Og hann er að minni hyggju meðal þeirra skálda, sem síst munu úr gildi faila, því að fáum hefir tekist sem honum að túlka íslenska menningu og hugsunarhátt í verkum sínum. Guðni Jónsson. Starfskrá Morgunblaðsins. Hún birtist í blaðinu á hverjum sunnu- degi. Er það samsafn smáauglýs- inga frá þeim, sem atvinnu sinnar vegna verða að ná til fjöldans, en hafa ekki ráð á að eyða miklu fje í auglýsingar. Þetta er þeim því langhagkvæmasta auglýsingarað- fei’ðin. Starfskráin kemur fyrir augu þúsunda manna, og hún er þeim handhægur leiðarvísir. Hún er því besti tengiliðurinn milli auglýsenda og almennings. Sendið auglýsingar í næstu Starfskrá í dag eða á morgun. Dagbót? I. O. O. F. 5= 121112802 = Veðurútlit í Rvík í dag: S-gola. Úrkomulaust að mestu. Veðrið (miðvikudagskv. kl. 5): Hæð er yfir Norðurlöndum, en grunn lægð fyrir vestan land. S- læg átt uni alt, land, víðast hæg. Bjartviðri á N- og NA-landi, en dálítil rigning sunnanlands. Hiti 4—10 stig. Næturlæknir <=/ í nótt Halldór Stefánsson, Ránargötu 12. Sími 2234. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabííðinni Iðunn. Hjónaband. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af síra Bjarna Jónssyni ungfrú Hanna Sandholt og Jóhann Sigurgeirsson verk- stjóri. Heimili þeirra er á Fálka- götu 9. Hjúskapur. Nýlega voru gefixi saman í hjónaband af síra Bjarna Jónssyni ungfrú Kristjana Einars- dóttir og Jóhann Sigurðsson rak- ari. Heimili þeirra er á Baldurs- götu 11. Bæjarstjórnarfundur verður hald inn í dag kl. 5 e. h. í Kaupþings- salnum. Sjö mál eru á dagskrá. Spegillinn kemur út á morgun. Kvöldskemtun heldur Samband íslenskra berklasjúklinga í Odd- fello’vvhöllinni í kvöld kl. 8Ú>. Verður þar margt til skemtunar og dans á eftir. Aðalfundur Knattspyrnufjelags- ins Vals var haldinn í fyrrakvöld. í stjórn fjelagsins voni kosnir: Sveinn Zoega formaður, og með- stjórnendur: Grímar Jónsson, Sig- urður Olafsson, Hólmgeir Jónsson, Hrólfur Benediktssoix og Þorkéll Ingvai'sson. Endurskoðendur voru kosnir Andrjes Bergmann og Torfi Guðbjörnsson. Á morgun kl. 4 e. h. verður hald- inh basar í Betháníu, Laufásveg 13, til ágóða fyrir starfsemi Kristni boðsfjelags kvenna. Um kvöldið kl. 8V2 flvtuir Ólafur Ólafsson kristniboði erindi í húsinu. Frjáls verslun, októberheftið, er komin út. Á forsíðu er að þessu sinni mynd af Sauðárkróki. Efni ritsins er að öðru leyti þetta: „Fjárlög ársins 1940“, eftir Sig- urð Kristjánsson alþm. ■ „Fyrsta hafnbannið", ,, Hö fð atöl ure gl an‘ ‘, „Myndir frá Finnlandi“, „Viku- legar launagreiðslur", „Innflytj- endasambandið“, „Saga Sir Thom-' as Lipton’s“, „Nýjung varðandi lánsverslun", eftir Pjetur Ó. John- son; „Gluggaauglýsingar' ‘, eftir Sveinbjörn Árnason“, og „Erlend- ar viðskiftafrjettir“. Skólanefnd Miðbæjai'skólans á- kvað á síðasta fundi sínum að ráða þessa stunda- og forfallakenn- ara fyrir veturinn; Björn Kristj- ánsson í smíðum, Ólöfu Jónsdóti-' ur í matreiðslu, Pálínu J. Karls- dóttur í söng og leikfimi, Þor- björgu Jónsdóttur í leikfimi, Herselíu Sveinsdóttur, Kristínu Þorláksdóttur, Tryggva Tryggva- son og Vilborgu Auðunsdóttur. Háskólafyiirlestur á þýskn. Dr. G. Will flytur næsta fyrirlestur sinn um. „Deutsche Dome“ í kvöld kl. 8, og er öllum heimill aðgang- ixr. Skuggamyndir verða sýndar til skýringar. Bára Sigurjónsdóttir, dans- og leikfimikennari, byrjar nýtt nám- skeið í dag. Kennir hún bæði dans og leikfimi og þar á meðal kven- leikfimikerfið þýska „Medau“, sem einkanlega er ætlað ungum stúlkum. Leikfimikerfi þetta var jsýnt í Olympíukvikmyndinni, er j sýnd var hjer á dögunum. Samtíðin. Nóvemberhefti þessa tímarits er nýkomíð út. Lárus Sig- urbjörnsson skrifar þar um leik- starfsemi hjer á landi nú á dög- um. Þá er snjöll smásaga, er nefn- ist Síðasti kjósandinn, eftir Hans klaufa. Grein er þar um norska skáldið Knut Hamsun áttræðan, eftir Albert Engström. Framhalds- grein um uppeldi og fræðslu, eftir Aðalstein Eiríksson skólastjóra. Ljóð til ástarinnar, eftir Evu Jans- son. En aúk þess er fjöldi smá- greina og bókafregna. Klúkkan 1—6 í dag getið þjer keypt aðgöngumiða á kvöldvöku Blaðamannafjelags Islands annað kvöld. Miðarnir eru seldir á afgr. Morgunblaðsins og afgr. Fálkans. í gær var dregið hjá bæjarfó- getanum í Hafnarfirði í liapp- drætti K. F. U. M. og K. 1 Hafn- arf irði og komu upp þessi númer: 702 reiðhjól, 2837 standlampi, 67 fatasaum og tillegg, 2053 skíði, stafir óg bindingar, 237 kaffidúk- ur, 2820 5 kr., 4936 5 kr., 3468 5 kr., 4347 5 kr. og 1981 5 kr. Vinn- inganna sje vitjað til Jóels Ingvars sonar, Strandgötu 21, Hafnarfirði. Póstferðir á morgun. Frá Rvík: Mosfellssveitar, Kjalarness, Revkja ness, Ölfuss og Flóapóstar, Hafn- arfjörður, Austanpóstur, Borgar- ness og Snæfellsnesspóstur, Stykk- ishólmspóstur, Norðanpóstur, Dala sýslupóstur. Til Rvíkur: Mosfells- sveitar, Kjalarness, Reykjaness, Öífuss og Flóapóstar, Laugarvatn, Hafnarfjörður, Borgarness og Norðanpóstar. Til Strandarkirkju, afh. Mbl.: G. G. 2 kr., G. G. 5 kr„ N. N. 5 kr., ónefndur (gamalt áheit) 10 kr., VII. 2 kr., N. N. 2 kr., Marie Westergaard 10 kr. Tónhendur, nýtt safn eftir Björg vin Guðmundsson, er nýkomið út. I því eru 12 lög fyrir einsöng, karlakór og blandaðar raddir. Út- gefandi er Bókaútgáfan Edda á Akureyri. ,, Starfsmannablað Eeykjavíkur“, 4. tbl., er komið út. Þessar greinar eru í blaðinu: „Launamálið enn“, eftii’ Jóhann Möller; „Starfs- mannafjelagið og framtíð þess“, eftir Lárus SigurbjÖrnsson; „Hvað nú“, „Byggingamálið“, eftir Árna J. I. Árnason; „Nóg er sofið —“, „Ráðhús eða þjóðleikhús“, eftir L. 5. ; Sumarbústaðir“ (með mynd- um). Þá eru afmælisgreinar um þessa starfsmenn . bæjarins: Ágúst Jósefsson, Kristófer Sigurðsson, Maríu Maack, Þórdísi J. Carlquist, Hans Hoffmann, Sigurð Gíslason og Kristján Þorsteinsson. Þá er greinabálkur um bækur, og einnig eru birt í blaðinu lög Starfsmanna fjelagsins. Gengið í gær: Sterlingspund 26.02 100 Dollarar 651.65 — Ríkismörk 260.76 — Fr. frankar 14.97 — Belg. 108.80 — Sv. frankar 146.53 — Finsk mörk 13.08 Gyllini 246.65 — Sænskar krónur 155.40 — Norskar krónur 148.29 — Danskar krónur 125.78 Útvarpið í dag: 18.15 Dönskukensla, 2. fl. 18.45 Enskukensla, 1. fl. 19.20 Lesin dagskrá næstu viku. 19.30 Þingfrjettir. 19.50 Fi-jettir. 20.15 Frá útlöndum. 20.40 Útvarpshljómsveitin: Laga- svrpa eftir Schubert. — Einleik- ur á píanó (Fritz Weisshappel): Konsei't-etude eftir Godard. 21.15 Hljómplötur: a) íslenskir söngvarar. b) Dægurlö?. ■ KUQtDUnKR AÐ HÓTEL BORG ANNAÐ KVÖLD. M.A. kvartettinn, ^UU^Ui. pjetur A Jóns. son og ungfrú Sigrún Magn- úsdóttir úr „Brosandi land“. Dans: Lárus Ingólfsson ogr Brynj. Jóhannesson. með daufum Ijósunrt: ^^*-****^*®”*®^*® Þorbergur Þórðarson UpplCStUr, Guðmundssoru Nýjar gaman- TÍsur: Másík: Jack Quinet, nokk- ur nýtísku lög, ung stúlka syngur viðlagið. 1 Alfreð Adrjesson. 1 Og Friðfinnnr Guðjónsson verður KYNNIR (konferencier). Að lokuili: Dans «il kl. 3. Skemfunin hefsf klukkan 9. Aðgöngumiðar á kr. 4.00 í dag kl. 1—6 e. h. á afgreiðslu Morgunblaðsins og afgreiðslu Fálkans. =iimiiiiiiiiiiiiminiiiiiiiiiiuiiininiiiiiiniiiHiiiiiiiumiiiinimniiiimiiiiiiiimiiiiuimiiiiiinmmHiiiiniiiiinmimHmmnni 1 Ritsafn Jðns Traiista - I SS s er lang besta, skemtileg- I asta og kærkomnasta | Fermingargjðfin. 1" 3S liilliliiiiniiJiiiiillliuiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiMiiiiyiiniiiHiinMiiiuiiiMiiiiiiiMiiiiiíiiiiiinBiTiiiniiiiiiiiiBiUBimB Aðalfunður ■'A Skipstjórafjelagsins Kári, Hafnarfirði, verður haldinn fimtudaginn 16. þ. m. kl 8..30 e. h. á Hótel Björninn. Dagskrá samkvæmt fjelagslögum. STJÓRNIN. Konan Tnín, GUDRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, yerður jarðsungTn frá Fríkirkjtmiii föstudaginn 3. þ. m. Athöfnin hefst á heimili okkar kL 1 e. h. Runólfur Magnússon. Jarðarför móður minnar, STFJNUNNAR HELGADÓTTUR, fer fram frá heimili irínu, Þórustöðum, laugardaginn 4. þ. m. Athöfnin byrjar kl. 12.i/2. Samúel Eyjólfsson. NB. Bifreiðarferð verðnr frá Steindóri kl. 11.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.