Morgunblaðið - 05.12.1939, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Þriðjudagur 5. des. 1939.
Alþingi er misboð-
ið með þingsetu
Reikningur
Reykj avíkurbæ j ar.
kommúnista
Yfirlýsing 42 þingmanna
lesin úr forsetastól
FXJNDUR var boðaður í Sameinuðu Alþingi kl.
2 e. h. í gær. Á dagskrá var: Forseti les upp
yfirlýsingu.
Er forseti, Pjetur Ottesen hafði sett fundinn, las hann upp
yfirlýsingu, er 42 þingmenn höfðu undirritað. (Þrír þingm., Jó-
! hann Jósefsson, Haraldur Guðmundsson og Gísli Guðmundsson
eru fjarverandi). Yfirlýsing sú, er forseti las, er svohljóðandi:
„Vegna þeirrar afstöSu er kommúnistaflokkurinn, sem hjer
starfar undir nafninu Sameiningarflokkur alþýðu — sósíalista-
flokkurinn, þingmenn þess flokks og málgögn hafa markað sjer
til frelsis, rjettinda og lýðræðis smáþjóðanna síðustu vikurnar, og
alveg sjerstaklega viðvíkjaridi málefnum Fjnnlands, lýsa undir-
ritaðir alþingismenn yfir því, að þeir telja virðingu Alþingis mis-
boðið með þingsettt'fulltrua slíks flokks.
Alþingi, 4. desember 1939.
Árni Jónsson. Ásgeir Ásgeirsson. Bergur Jónsson. Bernharð Ste-
fánsson. Bjarni Ásgeirsson. Bjarni Bjarnason. Bjarni Snæbjörns-
son. Einar Árnason. Eiríkur Einarsson. Emil Jónsson. Erlendur
Þorsteinsson. Eysteinn Jónsson. Finnur Jónsson. Garðar Þorsteins-
son. Gísli Sveinsson. Helgi Jónasson. Hermann Jónasson. Ingvar
Pálmason. Jakob Möller. Jón Ivarsson. Jón Pálmason. Jónas Jóns-
son. Jörundur Brynjólfsson. Magnús Gíslason. Magnús Jónsson.
Ólafur Thors. Páll Hermannsson. Páll Zophoníasson. Pálmi
Hannesson, Pjetur Halldórsson. Pjetur Ottesen. Sigurður E. Hlíð-
'ar. Sigurður Kristjánsson. Sigurjón Á .Ólafsson. Skúli Guðmunds-
son. Stefán SfefánSson. Steingrímur Steinþórsson. Sveinbjörn
Högnason. Thor Thors. Vilmundur Jónsson. Þorsteinn Briem.
Þorsteinn Þorsteinsson".
Fðtækrafram-
færið lang-
stærstl gjalda-
liðnrinn
Rvikningur Reykjavíkurkaup-
staðar fyrir árið 1938 er
kominn út. Eru heildargjöldin á
rekstrarreikningi 7.087 þús. kr.,
eða rúmlega 600 þús. kr. hærri
en árið 1937.
Hjer skulu nefndir nokkrir
stærstu gjaldaliðirnir:
F ramfærslukostnaður bæ j ar-
ins nam á árinu alls 1.737 þús.
kr., en þar af var endurgreitt
105 þús., svo að bein útgjöld
bæjarins vegna fátækrafram-
Tærisins voru 1,631 þúsund kr.;
er það um 70 þús. kr. meira en
1937. Útgjöld bæjarins samkv.
alþýðutryggingarlögunum námu
alls 811 þús. kr., en þar af frá
Tryggingarstofnuninni 146 þús.
kr.; útgjöld bæjarins því 665
þús. kr. Þessir útgjaldaliðir bæj-
arjns til samans (fátækrafram-
færið og til trygginga) nema því
um 2,3 milj. kr. og er það um
300 þús. kr. hækkun frá 1937.
Þessir tveir gjaldaliðir eru ná-
,lega þriðjungur allra útgjalda
bæjarins.
Aðrir stórir útgjaldaliðir eru
hinir sömu og áður: Barnaskól-
arnir 639 þús., almenn styrktar-
starfsemi 456 þús., ýms starf-
ræksla 426 þús., vextir af lánum I
436 þús., löggæsla 365 þús.,|
stjórn kaupstaðarins 365 þús.,
heilbrigðisráðstafanir 330 þús.
kr.
Reykjavíkurbær átti í árs-
byrjun 1938 útistandandi hjá
öðrum sveitarfjelögum um 115
þús. kr., en í árslok um 125 þús.
krónur.
Til atvinnubóta var varið á ár-i
inu úr bæjarsjóði alls 525 þús.
kr. ; af þessu greiddi ríkissjóður
aðeins um 10 þús., til vinnu og
námskeiða fyrir æskumenn. —
Fyrir alt það fje, sem ríkið lagði
til atvinnubóta fyrir reykvíska
verkamenn var unnið í þágu rík-
iöstjórnarinnar sjálfrar, undir
umsjón vegamálastjóra.
Eignir bæjarsjóðs Reykjavík-
ur, án fyrirtækja, voru í árslok
1938 taldar 16.174.175.88 (þar
af 9,8 milj. kr. arðberandi og
seljanlegar eignir); í árslok
1937 voru eignirnar 15,232,287,-
78. Aukning því um 842 þús. kr.
Skuldir bæjarsjóðs voru í árs-
lok 1938 7,132,098,45, en voru
6,138,331,11 í árslok 1937. —
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Ágætt skauta-
svell á Tjörninni
Gott skautasvell hefir verið á
Tjöminni undanfama daga
og f jöldi manns notað tækifærið
tá,l að iðka þessa skemtilegu og
góðu íþrótt.
Skautafjel Reykjavíkur hef-
ir sjeð um að halda svellinu í
eins góðu lagi og hægt er vegna
veðurs, og hefir nú músík á
hverju kvöldi,
Hefir fjelagið komið sjer upp
sínum eigin tækjum til að senda
út músík á kvöldin, þegar fólk
er að skemta sjer við skauta-
hlaup.
Það eru tilmæli Skautafjelags
stjórnarinnar og þeirra, sem
yndi hafa af skautahlaupi, að
krakkar sjeu ekki með sleða á
svellinu, því það getur hæglega
stafað slys af sleðaferðum á
þessum stöðum.
Hhitaveltu heldur Stúkan Yerð-
andi í G- T. húsinu í kvöld. Þar
eru margir eigulegir munir, en alt
á að dragast upp á stuttum tíma.
Þess vegna kostar aðgangurinn
ekki neitt, og gestum er skemt
með músik. St. Verðandi á svo
marga vini í bænuím, að ekki er
að efa að þeir fylla húsið sam-
stundis og það verður opnað.
Kveðja til
ísleifs Hðgna-
sonar
Almennur fundur var haldinn
í Nýja Bíó í Vestmannaeyj-
um í gærkvöldi, og voru Finn-
landsmálin og kommúnistar um-
ræðuefnið.
Þessi fundur var sá fjölmenn-
asti, sem haldinn hefir verið i
Eyjum um langt skeið.
Samþyktar voru nokkrar á-
lyktanir, þar sem lýst var dýpstu
samúð með Finnlandi og and-
stygð á framferði Rússa og kom-
múnistanna hjer.
Skorað var á þingmenn kom-
múnista þ. á. m. alveg sjerstak-
Iega á ísleif Högnason (upp-
bótarþingmann úr Eyjum), að
leggja niður þingmensku.
Þegar kommúnistar ætluðu að
láta til sín heyra á fundinum,
voru þeir umsvifalaust píptir
niður. Var hótað að kasta þehp
út, ef þeir ljetu nokkuð á sjer
bera.
U. M. F. Velvakandi heldur fund
í Kaupþingssalnum kl. 8.30 í kvöld
Tunúurduflalagnir úr flugvjelum
Þess hefir verið getið í skeytum, að Þjóðverjar notuðu flug-
vjelar til þess að dreifa út tnndurduflum við strendur Englands;
ljetu þau síga niður í fallhlífum. Myndin (teikning) á að sýna að-
ferðina.
Þaðr var kl. 12 aðfaranótt mánudags, 4. þ. sem til fram-
kvæmda kom sú ákvörðun Breta og Frakka, að svara tundurdufla-
hernaði Þjóðverja með því að gera upptækar allar vörur af þýskum
uppruna, er þeir kæmust yfir.
1lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll!llllllllllllllillllllllilll!llllliHlllllllllllllllltllllll!llllllllllll!l!lllllllll!llll||||||||||||||||||||tir
| Þingmenn kommúnista )
I reknir úr Þingmannasam- |
1 banúi Norðurlanda I
iiiiiiiiimiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiniiiiiii
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniit
AÐ afloknum fundi í Sameinuðu Alþingi í gær
var haldinn fundur í íslandsdeild norræna
þingmannasambandsins. Formaður, Hermann
Jónasson, setti fundinn og las upp tillögu þá til fundar-
ályktunar, sem fer hjer á eftir:
„Vegna þeirrar afstöðu, er kommúnistaflokkurinn, sem hjer
starfar undir nafninu Sameiningarflokkur alþýðu — sósíalista-
flokkurinn, þingmenn þess flokks og málgögn hafa markað sjer
til frelsis, rjettinda og lýðræðis smáþjóðanna síðustu vikurnar, og
alveg sjerstaklega viðvíkjandi málefnum Finnlands, er ekki við
það hlítandi, að þingmenn kommúnistaflokksins sjeu meðlimir
Þingmannasambands Norðurlanda, þar sem hyrningarsteinn þess
f jelagsskapar er lýðræði og markmið hans meðal annars að styðja
að alþjóðlegri friðarhreyfingu og samvinnu þjóða í milli. — Þess
vegna ályktar fundurinn að víkja alþingismönnunum Brynjólfi
Bjarnasyni, Einari Olgeirssyni, Hjeðni Valdimarssyni og Isleifi
Högnasyni úr fslandsdeild Þingmannasambands Norðurlanda".
Fyrstur tók til máls Hjeðinn
Valdimarsson. Talaði hann ó-
venju rólega, en aðalefni ræðu
hans var það, að hjer væri eng-
inn kommúnistaflokkurin til
(hlátur), heldur bara samein-
ingarflokkur alþýðu — sósíal-
istaflokkurinn (meiri hlátur),
sem hefði mjög hóflega stefnu-
skrá (nú nenti enninn lengur að
brosa). Hann sagði að Alþingi
hefði ekki mótmælt „innrásinni
á Spáni“, en enginn kannaðist
við, hvað H. V. átti við með
þessu, því að það er alkunnugt,
að þar áttust Spánverjar við
innbyrðis, en ekkert stórveldi
skarst þar í leikinn, þó að ýmsir
sjálfboðaliðar væru með báðum.
Þá stóð Brynjólfur Bjarnason
upp og var heldur lakari. Hann
sagði að allur þingheimur aðrir
en kommar væru „klíka“, sem
hann skammaðist sín fyrir að
vera með. Innrásin í Finnland
væri alveg sjálfsögð ráðstöfun
ti. þess að velta úr völdum kúg-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU