Morgunblaðið - 24.12.1939, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 24.12.1939, Blaðsíða 5
;Sunnudagur 24. des. 1939. 5 = IjHorgmtMafóft = Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Rltatjörar: Jön Kjartanaaon og Valtyr Stefánaaon (ábyrgOarmaeur). Auglýsingar: Árnl Óla. Ritstjörn, auglýsingar og afgrelOsla: Austurstrœti 8. — Slml 1800. Áskriftargjald: kr. 3,00 & mánuOl. f lausasölu: 1B aura elntakiO — 25 aura meO Leabök. Háfíð lióssins Einhverntíma aftur í grárri forneskju hafa menn ekki vitað hvað biði þeirra, er skamm- ■ degið skall yfir, ekki vitað fyrir víst, að á eftir vetri kemur vor og sumar. Það hlýtur að vera skelfileg tilhugsun, er grípur menn, sem sjá dagana styttast, veður s'pillast, grös sölna og alt færast í myrkur, klakadróma og geta búist við þvi að slíkur verði heimurinn alt upp frá þessu. Úttinn þessi, sem einhverntíma hefir leynst í hugskotum manna, hefir geymst í sögninni gömlu fimbulveturinn, sem mann- kynið gæti átt von á, er sól og sumar hætti að vimna bug á vetr- inum. Það er ekki að undra, þótt vetrarsólhvarfahátíð hafi verið norðlægum þjóðum kær. Og þeg- ar þessi hátíð Ijóssins gagnvart ■ skammdegismyrkrinu verður um leið Ijóssins hátíð í hinum and- lega skilningi, þá nær hún þeim tökum í hugum manna, að hún verður engri annari hátíð lík. ★ Óttinn við fimbulvetur, frost og skammdegi er löngu úr sög- unni. En kuldar geta lýst sjer í fleiri myndum á vegum mann- kynsins. Hægt er að hugsa sjer annarskonar fimbulvetur en þann, sem goðafræðin lýsir — og það er fimbulvetur hjartans. Er það sú hörmung, sem heim- urvnnn á nú í vændum? Er sól rjettlætis og sanngirni að síga í sæ, til þess að hækka ekki á lofti að nýju? Er mannkyn að tortím- ■ ast í sjálfselsku, efnishyggju hlekkingum og glæpagirni? Það er óttinn um þenna firnb- ■vlvetur, sem liggur eins og mara ■á hjörtum margra manna nú. Þess verður mest vart á sjálfum Jólunum. ★ Hvað eru jól í löndum þar sem ■enginn getur verið óhultur um líf sitt neitt augnablik sólarhrings- ins, alt frá barni við móðurbrjóst til örvasa gamalmennis. Hvernig ■verður haldin þar friðarhátíð? Og hvar er mannkyn á vegi statt, •>«/ áfram verður haldið á þeirri hraut að stórvaldar halda upp á tyUidaga sína, með því að senda hertýgjaðar flugvjelar til árása m sjúkrahús og vöggustofur? ★ Við íslendingar njótum fjar- lægðar okkar frá vígstöðvum stórþjóðanna, svo að við getum motið jólahátíðarinnar sem fyrr í þetta sinn. En enginn getur nokk- tim dag, hvorki hjer á landi, nje tinnars staðar, og allra síst á hélgum jólum komust hjá því að finna til kvíða um framtíð Ev- rópu. Okkur hefir verið gjarnt á <að tala um miðaldamyrkur og hverskonar kúgun, ranglæti og <ofstopa sem ríkti hjer áður fyrr. En hefír ómenningin, öfgarn- ar og blekkingarnar nokkru sinni verið reknar með meira offorsi en nú. Nægir í því efni að benda á framkomu Asíuþjóðarinnar gagnvart Finnum. Samúðin með Finnum, sem sennilega hefir komið í Ijós í flestöllum löndum heims er máske helsti sólskins- bletturinn í þvif„miðaldamyrkri“ sem nú grúfir yfir álfu vorri. ★ Hvar er björgunar að leita út úr þeim ógöngum styrjaldanna? Hvergi annars staðar en í breyttu hugarfari. Valdaþjóðir heimsins, hverju nafni, sem nefn- ast, verða að setja rjettlætið of- ar sjerhagsmunum, og leggja rækt við meginkjarna þess boð- skapar sem höfðingi jólanna færði mönnunum. Þessvegna. Þar sem hægt er að halda jól í ár, fyrir vítisvjelum hernaðarins, þar er meiri ástæða en nokkru sinni áður til þess að leggja áherslu á, að biðja þess af alhug að sannkristnir menn, boð- berar rjettlætis og friðar, fái völd í heiminum til þess að forða mannkyninu frá fimbulvetri of- stopa, haturs og kúgunar. ★ | Við íslendingar, vopnlausa 1 þjóðin hér úti í hafinu, getum ekkert það aðhafst, sem áhrif hefir á viðureign þjóða í milli. En við gætum,~ ef eigi vantaði viljann, eflt hjer á meðal vor, [hófsemi og friðarhug, sem í því ' smáa gæti orðið fordæmi fyrir j þá, sem stærri eru og meiri máttar. Jólin eru rjetti tíminn til að hugleiða þau mál. Með þeirri ósk, að þjóð vorri mætti auðnast, að leiðast inn á þessa braut, óskum vjer öllum lesendum vorum gleðilegra jóla. Gleðileg jól! •. Alexandrine drotn- ing sextug í dag A lexandrine drotning ís- lands og Danmerkur á sextugsafmæli í dag. Hún er fyrsta drotning íslands, sem stigið hefir fæti sínum á frónska grund, sú fyrsta, sem hefir látið sig skifta ís- lands mál sjerstaklega og lært íslensku, en málið skil- ur hún svo vel að hún les íslensk blöð viðstöðulaust. Alexandrine drotning er fædd í Neustadt í Mecklenborg 24. des. 1879. Hún er dóttir Frið- riks Franz III. hertoga af Mecklenborg-Schwerin. —Faðir hennar var frjálslyndur maður og ól upp börn sín að enskum sið, vandi þau við ferðalög og úti vist, er mjög var að skapi hinn- ar ungu prinsessu Hún var að upplagi alþýðleg í viðmóti, hneigð fyrir hljómlist og hljóð- færaslátt og átti mjög auðvelt með að læra mál. Foreldrar hennar voru á hverjum vetri í Suður-Frakk- landi, í Cannes. Þar kyntust þau Krfstján Danaprins og hún árið 1897, og feldu hugi saman. Og þar syðra hjeldu þau brúðkaup sitt vorið 1898. Þann 16. maí komu þau til Danmerkur og var þeim tekið þar með mikilli við- höfn og fögnuði. Þau settust að í „Sorgenfri“-höll í Lyngby. Þar var heimili þeirra næstu árin. Þar fæddust synir þeirra tveir, » þeim árum var Kristján IX. lifandi, Friðrik konungur VIII. krónprins, og gátu þau prins- hjónin því notið heimjlisánægj- unnar án þess að þurfa að gegna miklum opinberum skyldustörfum. Alexandrjne prinsessa notaði þessi ár til þess að fá hinn nán- asta kunnleik á sögu þjóðar sinnar og tungu og á högum al- mennings og hugsunarhætti. En þegar Kristján Níundi dó 1906 og núverandi konungur og drotning urðu að taka á sig skyldur og kvaðir ríkiserfingja, breyttist þetta mjög. Þá varð hin tilvonandi drotn- ing að taka í sínar hendur ýms störf, er áður hvíldu á herðum tengdamóður hennar, Lovísu drotningar. En alt frá þeim tíma hefir álit hennar og vin- sældir farið mjög vaxandi. — Síðan hefir hún verið fremst allra kvenna Danmerkur í því að örfa hjálpar- og styrktar- starfsemi, barnavernd, hjúkrun og hjálp til fátækra. Hefir hún í þessum margháttuðu störfum sínum haft samstarf við og kynni af miklum fjölda fólks í landinu. En svo mikla rækt leggur hún við þessi störf sín, og það fólk, sem hún umgengst, að hún gleymir aldrei neinum karli eða konu, sem einhverntíma hafa verið á vegi hennar og stutt áhugamál hennar á sviði líknarstarfsemi. Alþýðleg framkoma henn- ar var naumast eftir smekk þeim sem ríkjandi var í Dan- Alexandrine drotning í skautbúningi þeirn er íslenslcar leonur fcer'ðu henni a<S gjöf árið 1921. mörku á fyrstu þarvistarárum hennar. Hún var að því leyti á undan sínum tíma. En nú er það af öllum skilið og metið rjett, þegar Alexandrine drotning sýn- ir að hún er eigi yfir það hafin að rjetta bágstöddum hjálpar- hönd í baráttu og erfiðleikum lífsins. I mörg undanfarin ár hafa konungshjórfin haft það að fastri reglu að vera um tíma á sumrin á „Skagen“ í sumarbú- stað sínum þar. í þessum út- kjálkabæ Danmerkur skifta þau við allasem kunningja sína. En umhyggja drotningar fyrir því, að setja engan hjá lýsi^ sjer m. a. í því atviki, er hún eitt sinn bauð til sín allmörgum kon- um úr kaupstaðnum, en gömul kona ein treysti sjer ekki til að koma í konungsgarðinn. Er leið á kvöldið kom drotning í vagni sínum með veislumat og annað og bjó upp borð heima hjá gömlu konunni og settist þar sjálf um stund, svo þessi gestur hennar, sem átti að verða, yrði ekki fyrir vonbrigð- um. Alexandrjne drotning hefir ávalt fylgt konungi á ferðum hans bæði utan lands og innan. Hingað hefir hún komið fjórum sinnum með honum, sumarið 1921, ’26, ’30 og síðast sumarið 1937. Hvar sem hún hefir farið um landið hefir hún lagt mikla áherslu á að fá sem mestan kunnleik og vitneskju um alt sem fyrir augu hennar hefir borið. Eitt sinn, er þau kon- ungshjónin höfðu í besta veðri. farið í bíl um Suðurlandssveitir og hún var spurð að því> að kvöldi, hvernig henni hefði geðjast að því, sem fyrir augun bar, komst hún að orði á þá leið, að hún hefði „notið hvers kílómeters“ af leiðinni. Viðkynning íslendinga af Al- exandrine drotningu hefir reynst vera í góðu samræmi við þær hugmyndir, sem lifað hafa í endurminning þjóðarinn- ar um drotningar og þjóðhöfð- ingja, þar sem hið tiginborna fólk fjarlægir sig ekki fjöld- anum, en finnur til ábyrgðar af skyldustörfunum og vex af henni. Því, eins og Hörup rit- stjóri róttækra Vinstrimanna sagði, er Kristján prins kom heim með brúði sína. „Þetta er merkisdagur þjóðarinnar, því margt er það í hverju konungs- ríki, sem háð er konungi og drotningu. Þau eiga sinn þátt í örlögum landsins, hlutdeild í heiðrinum, bera hluta af á- byrgðinni“. Frá Islendingum berast hinni íslensku drotningu í dag, hinar bestu afmælis og jólaóskir um hamingju og farsæla framtíð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.