Morgunblaðið - 16.01.1940, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.01.1940, Blaðsíða 8
8 awiUaiiÍ Þriðjudagur 16. janúar 19401 iimiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiti Sið. h uíí Liil.i píslarvottsiná iiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiii áiii 4 % i v fiw »li tik liiiunnar Sir Percy þrýsti einu brjefinu í hönd hennar og horfði í augu hennar með brennandi augna ráCi. „Þetta brjef er til Pfoulkes", sagði hann. „Það er viðvíkjandi hinum síðustu varúðarráðstöfun-i um, sem verður að gera til örygg- is prinsinum. I því eru líka fyrir- skipanir til fjelaga minna, sem eru nú í nágrenni Parísarborgar. Guð blessi Ffoulkes fyrir trygg- iyndi hans. Jeg vissi, að hann myndi ekki lát'a þig fara eina hingað. Páðu honum það strax í kvöld og segðu honuón, að það sje minn einlægi vilji, að hann og aðrir fjelagar mínir fari í öllu eftir þessum fyrirskipunum mín- um“. „En prinsinum er vonandi ó- hætt núna“, sagði hún. „Ffoulkes og fjelagar hans eru hingað komn ir til þess að hjálpa þjer“. „Til þess að hjálpa mjer, ynd- iÖ mitt?“ tók hann alvarlega fram í fyrir henni. „Það getur nú eng- inn gert úr þessu, nema guð al- máttugur og sú heilbrigða skyn- aemi, sem mjer tekst að varðveita fyrir þessum föntum næstu tíu daga“. „Tíu daga?“ „Jeg hefi beðið þessarar stund- ar í eina viku. Eftir tíu daga verður prinsinn kominn úr Prakk- landi, og þá sjáum við til“. „Percy!‘ ‘ hrópaði hún skelfd. „Þú þolir ekki þetta líf í tíu daga enn !“ „Jú“, svaraði hann ákveðnum róm, sem var næstum stærilátur og stoltur. „Það er fátt, sem mað- ur ekki getur gert, ef maður á annað borð er búinn að ákveða það. Annars legg jeg þetta alt í guðs hönd“, bætti hann við í blíð- legri róm. „En lofaðu mjer því, vina mín kær, að vera hughraust. i Etui O czy bajoíiGssu Prinsinn er enn í Frakklandi, en hann er ekki ömggnr, meðan hann dvelur hjer. Vinir hans vildu láta' hann vera hjer, en jeg hefði ekki leyft það, hefði jeg verið frjáls maður. En þetta ágæta fólk í Nantes mun nú láta að fyrirmæl- um mínum og bænum Pfoulkes og leyfa fjelögum okkar að fara með barnið af landi burt. En jeg bíð hjer, þangað til jeg veit að barnið er komið í örugga höfn. Ef jeg reyndi að strjúka núna, og tækist það — þá má hamingjan vita, hvað þeir tækju til bragðs. Þeir myndu kannske finna barnið, áð- ur en jeg kæmist því til hjálpar! Þú skilur það, kæra vina mín! Heiður minn er undir því kominn, að barninu sje b.orgið. En jeg lofa þjer því, að hugsa um sjálfan mig, eða það sem eftir verður af mjer, þegar jeg veit, að barnið er úr allri hættu“. „Perey!“, sagði hún alt í einu örvæntingarfull. „Þú svíkur sjálf- an þig. Hver dagur, sem þú dvel- ur innan þessara fjögurra veggja, kvalinn af svefnleysi og pynting- um, sem þessir djöflar leggja þjer á herðar, hver dagur, já, hver stund, mun draga úr þjer afl, svo að þú verður ófær til þess að bjarga þjer. Hvers virði er líf þessa afkomanda úrkynjaðrar kon- ungsættar, í samanburði við, þitt líf? Hvers vegna skyldir þú fórna lífinu, til þess að frelsa dreng, sem er einskis virði fyrir heiminn, fyrir land sitt eða þjóð!?“ n augu hans svöruðu ekki bón hennar. Hann sá fyrir sjer eyðilega þjóðbraut fyrir utan Par- ís, úðarigningu, sem smaug inn að holdi, meðan stormurinn feykti til óveðursskýjunum. „Veslings snáðinn", tautaði hann í blíðlegum róm. „Hann þrammaði hughraustur áfram við hlið mjer, meðan fæturnir gátu borið hann. Þá lijúfraði hann sig í faðmi mínum og sofnaði, uns Pfoulkes kom til móts við okkur með vagninn. Þá var hann ekki konungur Prakklands, heldur lít- ill vesalingur, sem mjer hafði með guðs hjálp tekist að bjarga“. „En nú er prinsinn öruggur“, sagði hún, eftir að henni hafði í þögulli fórnfýsi einnig tekist að sigra hjarta sitt og horfast í augu við þá miklu sorg, er virtist myndi eyðileggja líf hennar. „Já“, svaraði hann rólega. „Hon- um er óhætt sem stendur. En hann er öruggari, þegar hann er kom- inn frá Frakklandi. Jeg hafði gert mjer vonir u® að geta tekið hann með mjer til Englands, en þær vonir hafa brugðist. Fylgismenn hans hafa óskað þess, að hann komi til Vínarborgar, og það er best áð láta að ósk þeirra. Jeg hefi því í brjefi mínu til Ffoulkes hripað niður, með hvaða móti auð- veldast sje að haga ferðínni. Tony er best fallinn til þess að stjórna og jeg vil því, að hann fari þeg- ar í stað til Hollands. Norður- landamærin eru ekki eins hættu- leg og landainærin við Austurríki. í Delft á heima dyggur fylgis- maður Borbonanna. Og nafn hans og heimili mun vernda hinn land- flótta konung, uns hægt verður að flytja hann til Vínarborgar. Hann heitir Naundorff. Viti jeg barnið í hans vörslu, er þjer óhætt að treysta því, að jeg fer að hugsa um sjálfan mig úr því“. 'TruSr ^úiut Eftirfarandi saga er sögð um Poul Reumert leikara. Hann var einu sinni í fyrravet- ur staddur í dapska smábænum Tönder við þýsku landamærin, þar sem Pramarar keptu í Danmerk- urför sinni. Hann fór í þýskan banka, sem heitir „Tönder Bank“, tökufjelagi eða leikhúsi. Ungfrú Pipers er gædd þeirri einkenni- legu gáfu, að hún getur grátið þegar hún vill, og hún getur einn- ig skift um skap á augnabliki og skellihlegið, ef henni býður svo við að horfa. A hverju kvöldi situr hún í með ávísun, er hljóðaði upp á kvikmyndahúsi einu í New York nafn hans sjálfs. | og grætur hátt og af tilfinningu Bankamaðurinn, sem afgreiddi; þegar eitthvað sorglegt kemur Reumert, bað hann um að sanna j fyrir í myndinni, sem verið er að með vegabrjefi eða einhverju, að sýna, eða hlær innilega, þegar sá, er hann sagðist hann væri vera. Reumert leitaði í vösum sínum, en fann ekkert, hvorki brjef eða annað, til þess sína. eitthvað broslegt er á ferðinni. Þessi útrás tilfinninga hennar hef- ir alveg ótrúlega mikil áhrif á aðra áhorfendur. Kvikmyndahús- að sanna tilveru I ið hefir fengið orð á sig fyrir, hve það sýni framúrskarandi góðar Þekkið þjer mig ekki ? spurði myndir og þar er jafnan húsfyllir. hann loks bankaþjóninn. Bíóeigandinn þakkar þetta einna Er bankaþjónninn svaraði spurn mest ungfrú Pipers, enda fær hún ingunni neitandi, sagði Poul Reu- mert: — Jeg er mesti glæpamaður Þýskalands! konungleg laun. ★ . Ameríkumenn hæla sjer af eft- irfarandi heimsmetum: Þar með gekk hann út úr bank-1 Á hverju ára farast um % milj- anum, eftir að hafa stungið ávís-' ón manna af völdum hvirfilvinda, uninni í vasann. flóða og annara náttúruhamfara, j ★ og tjón af völdum þess sama nem- . Ungfrú Pipers í New York ur 2.5 miljörðum dollara í U. S. A. hefir ofan af fyrir sjer með í Ameríku eru framleidd 60% því að gráta, og er þó ekki bein- af allri olíu heimsins, 45% af ó- línis starfandi hjá kvikmynda- unnu járni, helmingur stálfram- leiðslunnar, 58% af kornframr- leiðslu heimsins og 56% af bóm- ullarframleiðslunni. í New York eru um 100.000 manns heimilislausir og í sömu j borg eru stærstu almennings- svefnherbergi í heimi, með 1700 rúmum. í lyftusveinafjelagi New York borgar eru 102.000 meðlimir, sem allir hafa fasta atvinnu. 38 miljónir útvarpshlustenda eru í Bandaríkjunum og þeir eiga 46% af öllum útvarpstækjum í veröldinni. 2—3000 amerískir borgarar far- ast árlega í hita- eða kuldabylgj- um. ★ Skóframleiðandi einn í París tók nýlega upp á því að framleiða skó, sem voru þannig gerðir, að framan á tánni voru rafmagns- perur, en rafhlaða í hælnum. Gat sá, er í skónum var, lýst upp per- una er honum sýndist. Skór þess- ir voru bannaðir af yfirvöldun- um vegna þess að þeir komu í bága við algert myrkur, sem á að vera á götunum vegna loftárásahætt- unnar. Það hefir líka sjálfsagt ekki verið þægilegt að vera á þess um skóm í miklum þrengslum, því hætta er á að peran vildi brotna. Hann þagnaði, því kraftar hans voru að þrotum komnir. Hann hafði talað mjög lágt, en þó var hann orðinn hás, og á- reynslan við að tala var honum um megn. „Ef fantarnir hefðu aðeins neit- að mjer uim mat en ekki um svefn“, tautaði hann, „þá hefði jeg getað þolað það, uns--------“ Vu ins og hans var vandi breytti hann fljótt skapi og faðmaði Marguerite innilega að sjer. „Guð fyrirgefi mjer eigingirn- ina“, sagði hann og dauft broS lýsti upp andlit hans. „Það er eins og jeg hafi gleymt yndislegri nær- veru þinni, er jeg byrja að tala um mínar eigin áhyggjur, þegar jeg veit, að þú hefir þyngri byrði að bera en hjarta þitt getur af- borið. Hlustaðu nú á mig, Mar- guerite. Jeg á eftir að tala við þig um Armand---------“ „Armand!‘ ‘, hrópaði hún og fjekk samviskubit yfir því að hafa gersamlega gleymt bróður sínum. „Yið höfum ekkert heyrt af Armand“, sagði hún. „Sir And- rew hefir athugað alla fangelsis- listana, en árangursla.ust. Ef jeg væri ekki svona sorgbitin af við- burðum síðustu viku, væri jeg mjög kvíðafull út af Armand“. Einkennilegum skugga, sem ekki einu sinni hún skildi, brá fyrir á andliti hans. En skugginn hvarf fljótt, og hann brosti uppörfandi, er hann sagði: „Blessuð vertu! Armand er nokkurnveginn öruggur. Segðu Ffoulkes, að hann skuli ekki leita hans í fangelsunum, heldur reyna finna ungfrú Lange. Hún veit efa, hvar Armand er“. „Jeanne Lange!“, sagði hún beiskjulega. „Það er stúlkan, sem Armand elskaði, að því er virðist með meiri ástríðu en heiður sinn og hollustu!‘ „Jeg kom Jeanne Lange á nokk- urnveginn öruggan stað“, sagði hann eftir nokkra þögn. „Síðar fjekk hún fult frelsi aftur?“ „Prelsi f ‘ Pramh. SAUMA I HOSUM Uppl. í síma 4183 milli kl, 6—8. SNlÐ OG MÁTA Dömukápur, dragtir, dag- kjóla, samkvæmiskjóla og alls tonar barnaföt. Saumastofan augaveg 12, uppi (inng. frá Bergstaðastræti). Símar 2264 og 5464. OTTO B. ARNAR, löggíltur útvarpsvirki, Hafnar stræti 19. Sími 2799. Uppsetn ing og viðgerðir á útvarpstækj um og loftnetum. FERÐAFJEL. ÍSLANDS heldur skemtifund að Hótel Borg í kvöld. Aðalsteinn Sig- mundsson kennari flytur fyrir- lestur um Færeyjar og sýnir skuggamyndir. Dansað til kl. 1. Aðgöngumiðar fást í dag í bókaverslunum Sigf. Eymunds- sonar og Isafoldar til kl. 6. i. o. G. T. ST. VERÐANDI NR. 9. Fundur í kvöld kl. 8. 1. Inntaka nýrra fjelaga. 2. Skýrsla árshátíðarnefndar. 3. Erindi: Hr. Pjetur Zophon- íasson, ættfræðingur. 4. Gamansögur og söngur. Hr. Alfred Andrjesson JeikarL Þeir, sem hugsa sjer að ger- ast meðlimir stúkunnar, fá all- ar upplýsingar þar um, kl. 1—- 8 e. h. í Góðtemplarahúsjnu., Æ.t. J£aups/Uipuc MANNBRODDAR af ýmsum stærðum til sölu & Bergþórugötu 29. DÖMUFRAKKAR ávalt fyrirliggjandi. Guðm. Guðmundsson, klæðskeri.---- Kirk-juhvoli. MEÐALAGLÖS, FLÖSKUR Fersólglös, Soyuglös og Tómat- flöskur keypt daglega. Sparilf' milliliðina, og komið beint til okkar, ef þið viljið fá hæsta verð fyrir glösin. Við sækjum heim. Hringið í síma 1616. — Laugavegs Apótek. GULRÓFUR seljum við í heilum og hálfum pokum á kr. 5.50 og kr. 3*0(L Sendum. Sími 1619. ÞORSKALÝSI Laugaveg Apoteks viðurkend*.- meðalalalýsi fyrir börn og full- orðna, kostar aðeins kr. 1,35« heilflaskan. Selt í sterflum (dauðhreinsuðum) flöskum. — Sími 1616. Við sendum um allan bæinn. KALDHREINSAÐ þorskalýsi sent um allan bæ.- Björn Jónsson, Vesturgötu 28, Sími 3594. HARÐFISKSALAN, Þvergötu, selur saltfisk nr. 1, 2 og 3. Verð frá 0,40 au. pr. kg. Sími 3448. VERÐLISTI YFIR ÍSLENSK FRlMERKI FYRIR ÁRIÐ 194% 16 síður með fjölda mynda.1 kostar kr. 0.50. íslensk frí- merki ávalt keypt hæsta verði. Gísli Sigurbjörnsson, Austurstr.. 12, 1. hæð. SPARTA DRENGJAFÖT Laugaveg 10 — við allra hæfl EFTIRMIÐDAGSKJÓLAR og blúsur í úrvali. SaumastofaHi Uppsölum, Aðalstræti 18. — 3ími 2744. Kaupum allskonar FLÖSKUR hæsta verði. Sækjum að kostn— aðarlausu. Flöskubúðin, Hafnar— stræti 21, sími 5333. KAUPUM FLÖSKUR stórar og smáar, whiskypela, glös og bóndósir. Flöskubúðiiv Bergstaðastræti 10. Sími 5395. Sækjum. 0pið allan daginn. KENNI SMÁBÖRNUM og les með skólabörnum. Við- talstími kl. 2—7. Kristjana< Benedikts, Bergþórugötu 23. — círv,; Kfini

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.