Morgunblaðið - 21.01.1940, Page 2

Morgunblaðið - 21.01.1940, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ 2 1 ■ lv Sunnudagur.21. janúar 1940 Finnum bregst hjálp frá Bandaríkjamönnum Dauðþreyltir hermenn Einangrunar- stefnunni vex fylgi í U. S. A. Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. AMERÍSKA BLAÐIÐ „Washington Post“ ritar í dag um hjálp Bandaríkjamanna til Finna. Tel- ur blaðið, að litlar líkur sjeu fyrir því, að Bandaríkjamenn geti komið því við að hjálpa Finnum svo um muni. Blaðið segir, að Fínnar megi gera ráð fyrir að Banda- ríkjaménn sjeu þeim hlyntir og standi í raun og veru með þeim í stríðinu. Bandaríkjamenn beri virðingu fyrir hetju- skap Finna og virði þjóðina í heild fyrir skilvísi og heið- arleik. 1 En þar með sje það búið. Meðal þingmanna á þjóðþingi Bandaríkjamanna vex einangrunarstefnunni stöðugt meira fylgi. Sagt er, að þingmennirnir telji, að það standi Frökkumj og Bretum næst, að koma Finnum til hjálpar, þessi ríki tapi hvort sem er mest á því, að Finnland líði undir lok. Lundúnablaðið „Daily Tele. graph“ skrifar ,í forustugrein um Finnlandsmálin í dag að hin hetjulega vörn Finna gegn inn- rás harðstjórnarríkisins í austri eje virðingarverð og muni í minnum höfð meðan jörðin er bygð. Hersveitir Finna hafi gefið heiminum meira heldur. en hægt flje að meta eða greiða. Afstaða áhrifamanna í Banda ríkjum til Finnlands er talin stafa af innanríkispólitískum á- fltæðum. Kosningar eiga að fara fram í U.S.A. á þessu ári og þing- menn og aðrir óttast að ofmikil hjálp til handa Finnum geti haft áhrif á kjósendur þeirra. BENSÍNKAUP RÚSSA I U. S. A. Blaðið New York Times skýr- ir frá því, að Rússar sjeu stöð- ugt að auka bensínkaup sín í Bandaríkjunum. Síðan í september í haust hafa Rússar keypt 1.300.000 tunnur af bensíni í U. S. A. og býst blaðið við að bensínkaup þessi standi í sambandi við stríð- ið í Finnlandi. Bensínkaupin jukust úr 60 þús. tunnur í september, upp í 400 þús. tunnur í nóvember. RÁÐSTEFNA UM FINNLANDSHJÁLP I PORTÚGAL. Forseti Al-evrópiska sam- bandsins hefir skýrt frá því í Genf, að hann hafi falið forsæt- isráðherra Portúgal að kalla gaman ráðstefnu í Lissabon, til þess að ræða hvernig skuli sam- ræma þá aðstoð, sem Finnlandi verður ve.itt. Forseti sambands- ins tók þ.að fram, að best skiL yrði væri til þess að halda slíka ráðstefnu í Portúgal m. a. vegna landifræðilegrar legu Portúgal og vegna þess, að sambúð Portú- gals væri góð bæði við lýðræðis- og einræðisríkin. Af þessum orsökum o. fl. væri heppilegra að Portúgal hafði mgönguna en Þjóðabandalagið eða hin hlutlausu nágrannaríki Finnlands. HLUTLEYSI NORÐURLANDA. Koht, norski utanríkismálaráð- herrann, hefir 'kojbaist svo að orði, varðandi orðsendingu Rússa út af aðstoð N'orðmanna og Svía við Finna, að engin þjóð gæti komið í veg fyrir, að Norðmenn ljetu samúð sína í ljós. En, bætti hann við, Noregur verður að vera hlut- laus áfram, eins og Danmörk og Svíþjóð, og norræn samvinna verð ur að hvíla áfram á þeim grund- velli. Það var aldrei til þess ætl- ast, sagði hann, að samvinna þeirrá væri á sviði hernaðarmála. r ' Oðinn bjargar vjelbáti Varðbátrurinn „Óðinn“ kom í gær til Hafnarfjarðar með vjelbátinn „Vonina“ í eftir- dragi. Vonin hafði bilað í róðri. Vonin er frá Akureyri, en gerð út frá Hafnarfirði í vetur. 1 fyrrakvöld rjeri báturinn, en í fyrrinótt, þegar verið var að draga línuna, hrökk stýrisásinn í sundur við sveifina. Bátnum var nú siglt upp í vindinn og stýrðu bátverjar með því að halda úti lóðastömpum, ýmist á stjórn- eða bakborða. Þannig var haldið áfram til kl. 2 í gær, er „Óðinn“ kom til hjálpar. Óttast er að „Vohin“ hafi tapað öllum sínum veiðarfærum. Sökum þess hve Rússar hafa miklúm mannafla á að skipa, hafa þeir stöðugt. getað teflt fram óþrevtt um hersveitutn. Finnar haf« aftur á móti orðið að leggja á sig miklar og langar vökur til að biða ertii- að þeir yrðu levstir af hólrni. — Iljer á myndinni sjást finskir hermenn á Sallavígstöðvunum, sem hafa verið leystir af v.erði. og þeir hafa fleygt sjer- á gólfið í húsi einu og sofnað. Fínnar stöðva aðflutnlnga Rússa hjá Salla Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. ikill kuldi ríkir enn í Finn- landi og enn ber mest á hemaðaraðgerðum úr lofti. Finnar segjast hafa skotið niður 7 rúss- neskar sprengjuflugvjelar í gær. Rússneski flugherinn gerði loft- árásir á 27 staði í gær í Finnlandi og talið er að þeir hafi í þessum loftárásum varpað niður 1000 sprengjum. I tilkynniugu finsku herstjórn- arinnar er getið um fjögur áhlaup Rússa á Kirjálaeiði. Öllum áhlaup unum var hrundið og mikið mann- tjón varð í liði Rússa. Fjórum sinnum í dag voru gef- in viðvörunarmerki í Helsingfors um að loftárás væri í aðsigi, en rússneskar flugvjelar vörpuðu ekki niður sprengjum á sjálfa höfuðborgina, heldur á bæi og þorp utan við hana. Ókunnugt er um manntjón og eignatjón. Á Sallavígstöðvunum eru Rúss- ar á undanhaldi og hlutlausir frjettaritarar segja, að Finnum hafi tekist að stöðva aðflutninga til rússneska hersins á þessum vígstöðvum. Finska herstjórnin gat í fyrsta skifti í dag sænsku sjálfboðalið- anna í hernaðartilkynningu sinni. Er farið lofsamlegum orðum um frammistöðu þeirra. Tveir sænskir flugmenn hafa fallið. Þeir hÖfðu síðan 12. þ. m., er þeir komu til Sallavígstöðv- anna. skotið niður 6 rússheskar flugvjelar. —Nýtt „Emdem“— I Suður-Atiants- haíi? Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. regnir frá Suður-Am- eríku herma, aS vart hafi orðið við þýskt skip, sem eigi að elta uppi í Suður-Atlants- hafi. Skip þetta er talið vel búið vopnum, bæði stórum fallbyssum og loft varnabyssum. Það er hrað skreitt og Hefir þegar gert enskum og frönskum kaup skipum erfitt um siglingar á hafinu fyrir utan Suður- Ameríku. Skip þetta skiftir oft um nafn og siglir undir fánum ýmissa þjóða í það og það skiftið. Sumir telja, að Hjer sje . á ferðinni þýska birgðaskipið „UItmark“, sem birgði „Graf von Spee“ upp að vistum og olíu. I skipinu eru sagðir vera sjerstakir klefar fyr- ir áhafnir af Herteknum skipum. Ekki hafa enn verið birtar fregnir um að skip þetta hafi sökt kaup- förum bandamanna. Á fyrsta sundmóti ársins, 16. febr. n.k., verður kept í þessum sundum: 500 m. bringusundi karla, 4x100 m. boðsundi karla, 200 m. bringusundi kvenria, 50 rii. bringu sundi stúlkna innan 14 ára, 100 m. bringús. og 100 m. frjáls aðferð fyrir drengi innan 16 ára. Fundur í Hús- mæórafjelaginu TTúsmæðrafjelagið hjelt fyrsta " fund sinn á árinu 17. þ. m. í (Iddfellowhúsinu. Forniaður skýrði fjelagsmálin er lágu fyrir fundinum og liófust umræður úm þau. Frú Sigríður Sig urðardóttir hafði framsögu í mjólk urmálinu og tóku fleiri þar til mál. Þá var þjónustustúllmamálið t.ekið fyrir, og hafði orð þar fyrir frú Jónína Guðm.undsdóttir og rakti einnig húsmæðrastörfin. Til- laga frá frú Soffíu Ólafsdóttur þeim viðvíkjandi var samþykt og hljóðar svo : ,,Fundur Húsmæðrafjel. Reykja- víkur, haldinn 17. þ. m. 1940, styð- ur eindregið áskorun Bandalags kvenua tii þingmanna Reykjavík- ur um að beita sjer fyrir ])ví, ftð frumvarp um hússtjórnarskóla verði lagt fyrir næsta Al])ingi 1940 og fjárveiting til skólans samþykt“. Gunnar Thoroddsen bæjarfull- trúi flutti fróðlega og einkar skemtilega ræðu um rjettarafstöðu kvenna fyr og síðar. Mintist hann margra merkra fornkvenna í því sambandi, er vildu láta til sín taka. fór hann einnig miirgúm orð- um um hvað rjettarbætur kvenna á síðari tímum, er þó hefðu átt örðugt uppdráttar, hefðu aukið mannúðartilfinningarnar og því bætt kjör einstaklinganna stór- kostlega. Húsmæðrafjelagið hefði verið vakið upp með einu slíku velferðarmáli. Gskaði hann fjelag- inu góðs gengis í framtíðinni. Konur þökkuðu honum ræðuna og klöppuðu óspart. í 'fundarlok var kosin afmælis- nefnd; síðan sungið og dansað. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.