Morgunblaðið - 21.01.1940, Síða 3
Stmnudagur 21. janúar 1940
MORGUNBLAÐIÍ)
Komiiiúiiistar láta af
stjórn fjelagsins ■ dag
Fjölmennið i aðalfundinn
lýOræðisveikamenn!
Hefst kl. 1 í Gamla Bíó
LÝÐRÆÐISVERKAMENN gengu með sigur af
hólmi í stjórnarkosningu Dagsbrúnar, og er
veldi Hjeðins og kommúnista þar með brotið á
bak aftur í fjölmennasta og öflugasta verklýðsfjelagi
landsins. Þessi sigur lýðræðisverkamanna markar straum-
hvörf í verklýðsmálunum.
Talning atkvæða fór fram í gær. Hófst talningin kl.
2 og var lokið um kl. 5 síðdegis. Niðurstöðutölurnar verða
ekki birtar fyr en á aðalfundi Dagsbrúnar, sem haldinn
verður í Gamla Bíó í dag og hefst kl. 1 e. h.
En þótt engar tölur hafi enn verið birtar, fjekk Morg-
unblaðið í gær áreiðanlega vitneskju um, að lýðræðisverka-
menn hafa sigrað í kosningunni, með um 90 atkvæða meiri-
hluta.
imi'iniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiinuL
] Selvogsbændur)
I bera lík Einars (
] Benediktssonar |
| 10 km, leið ]
iiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiur iimiiiiiiiimiiiiiiiíir
Utför Einars Benedilttssonar
skálds, fer að líkindum
fram seint í þessari viku; hefir
heyrst talað um föstudaginn.
Ákvörðun um daginn og eins um
jþað, hvort jarðað verður á
Þingvöllum eða hjer í Reykja.
vík, verður tekin á mánudag-
inn.
Líkið var flutt frá Herdísar-
vík síðastliðinn miðvikudag og
stendur nú uppi í Rannsóknar-
stofu Háskólans.
Það voru bændur úr Selvogn-
um, sem báru líkið úr Herdís-
arvík að Vo'gsósum, en þaðan var
það flutt í bifreið til Reykja-
víkur. Jón Jónsson frá Laug fór!
hjeðan austur og annaðist kistu
lagningu með heimafólki í Her-
dísarvík.
Jón frá Laug las bæn og síð-
an sungu Selvogsbændur sálm.
Frá Herdísarvík til .Vogsósa
eru tæpir 10 km. Bændurnir
lögðu af stað með kistuna frá
Herdísarvík á þriðjudagskvöld j
kl. 8 og voru komnir til Vogs-j
ósa kl. 11 um kvöldið. Nokkurn'
hlúta leiðarinnar var yfir hraun
að fara.
Ffá Vogsósum var bifreiðin
8 klst. áður en hún kom á <
upphleypta veginn í Ölvesi.
Selvogsbændurnir sem báru
lík Einars Benediktssonar fyrsta
spölinn úr heimahúsum, 10 km
leið, voru: Guðni Gestsson, Þor-
kelsgerði, Ólafur Bjarnason,
Þorkelsgerði, Árni Bjarnason,
Þorkelsgerði, Sveinn Halldórs-
son, Bjargi, Helgi Guðnason,
Þorkelsgerði, Bjarni Jónsson,
Guðnabæ, Óskar Þórarinsson,
Bjarnastöðum, Jón Þórarinsson,
Sólheimum og Guðmundur Hall-
dórsson, Þórðarkoti. Auk þess
voru tveir menn úr Herdísarvík,
annar þeirra, Jón, sonur Hlífar
Johnson. tJr Reykjavík voru
tveir menn, Jón Jónsson frá
Laug og Ásvaldur Þorgilsson.
„Valsakóngurinn“ heitir hljóm-
listarkvikmynd, sem Gamla Bíó
sýnir í fyrsta skifti í kvöld, og
fjallar myndin uin Jóhann Strauss,
hin vinsælu valsalög hans og hina
rómantísku Vínarborg. Aðalleik-
endur eru Luise Rainer, Fernand
Gravey og Miliza Korjus. — Góð
kvikmynd og skemtileg.
Eins og getið var í blaðinu í
gær, tóku alls 1397 þátt í kosn-
ingunni að þessu sinni, af 1730,
er voru á kjörskrá. Var kosn-
ingaþátttaka því um 81%.
Við síðustu stjórnarkosningu
í Dagsbrún, í janúarmánuði í
fyrra, voru 3 listar í kjöri. Úr-
slitin voru þá þessi:
Listi Hjeðins og kommúnista
hlaut 659 atkv., listi Sjálfstæð
ismanna hlaut 426 atkv. og listi
Alþýðuflokksmanna hlaut 408
atkvæði.
í fyrra voru alls á kjörskrá
1783 menn, en 1730 nú, eða
rúmlega 50 færra. Þetta stafar
af því, að kommúnistar, sem
öllu hafa ráðið í Dagsbrún, hafa
undanfarið ár verið að „hreinsa
til“ innan Dagsbrúnar, strikað
menn út og svift þá þar með
öllum rjettindum í fjelaginu.
Þessi ,,hreinsun“ fór fram að
hætti þeirra í Moskva, yfirboð-
ara kommúnistanna hjer. Þess
vegna var það, að nú þegar
var gengið kosninga í stjórn
Dagsbrúnar, þóttust kommúnist
ar öryggir um sigurinn. Þeir
þóttust hafa ,,hreinsað“ svo
rækilega til í fjelaginu, að ekk
ert þyrfti framar að óttast. En
þetta fór alt á annan veg.
Það er ekki viðhöfð hlut-
fallskosning í Dagsbrún og af
því leiðir, að sá listinn, sem
flest fær atkvæðin, fær alla
mennina kosna. Aðrir listar fá
engan.
★
í dag verður Hjeðinn að af->
henda stjórnina á Dagsbrún í
hendur lýðræðisverkamanna.
Þetta verður honum sár von-
brigði, því að í Dagsbrún þótt-
ist hann hafa svo örugt og
traust fylgi, að sigurinn væri
honum vís, hvdr sem á móti
sækti.
Ósigur Hjeðins og kommún-
ista í fjölmennasta og sterkasta
vérklýðsfjelagi landsins markar
tímamót í sögu verklýðsfjelág-
anna hjer á landi. Lýðræðis-
verkamenn geta nú farið' að
byggja verklýðsfjelagsskapinn
upp á nýjum grundvelli, þar
sem Týðræði, frelsi og jafn-
rjetti verða þeir hornstéinar,
seni fjelagsskapurinn verður
reistur á í framtíðinni.
★
ASalfundur Dagsbrúnar hefst
kl. 1 e. h. í Gamla Bíó í dag.
Er áríðandi að lýðræðisverka-
menn fjölmenni á fundinn, því
að kommúnistar munu, ef að
vanda lætur, gera alt sem þeir
fá áorkað, til þess að spilla
fundinum og gera hann óstarf-
hæfann.
Nemendasamband Verslunar
skóla íslands hjelt aðal-
fund sinni í fyrrakvöld. Fund-
urinn var f jölmennur og talsvert
harðar umræður á köflum.
Á árinu sem leið hefir nem-
endasambandið m. a. látið gera
spjaldskrá yfir alla nemendur,
sem útskrifast hafa úr skólanum
frá stofnun hans. Einnig var á
árinu gefið út ársrit og á þessu
ári yerður gefið út annað árs-
rit, sem helgað verður 35 ára
afmæli Verslunarskólans nú á
þessu ári.
Stjórnar noiðurher
Finna
Vallenius herforingi, sem stjórnar
finska hernum á norðurvígstöðv-
unum.
Flnnar hafa
fengið frð Islandi
350 þús. mörk
Finnlandssöfnunin var í gær
orðin tæpar 126 þús. kr.
Þar af hafa þegar verið sendar
til Finnlands 47 þús. krónur,
eða í finnskum gjaldeyri um
350 þús. mörk.
Söfnunin ér nu orðin meiri
en króna á hvert mannsbarn í
landinu. En í sumum kaupstöð-
um og hjeruðum hefir söfnunin
orðið talsvert' meiri en króna ú
hvert mannsbarn.
Á Siglufirði hafa t. d. sgfnast
9 þús. krónur.
Prjónles hefir borist víða ut-
an af landi. Ýmsir hafa líka
boðist til að taka finsk börn t.ill
fósturs. Spurst hefir verið fyrir
um það í Finnlandi, hvort ósk
að væri eftir að íslendingar
tækju börn. Hefir nú borist
svar og þakka Finnlendingar
fyrir, en óttast flutningaörðug-
leika.
Ætlar nemendasambandið
einnig að gangast fyrir móti fyr-
ir eldri og yngri nemendur skól
ans, í tilefni af afmælinu.
í stjórn voru kosnir: Konráð
Gíslason, formaður, og með-
stjórnendur: Guðmundur Ófeigs
son, Adolf Björnsson, Guðjón
Einarsson og Haraldur Leon-
ardsson.
Ritnefndin var endurkosin.
Hana skipa: Árni Óla, Hjálmar
Blöndal og Óskar Gíslason.
Verslunarskólinn 35 ára
Erindl um Island
I breska
útvarpinu
Annað kvöld, kl. 21.15 eftir
íslenskum tíma verður
útvarpað frá breskum stöðv-
um (North Regional, öldul.
449 m.) efni varðandi Is-
land. Nánari tildrög þessa
útvarps eru rakin í grein
þeirri, sem hjer fer á eftir.
Svokallað „Repbrtáge“, sem
mjer skilst að á íslensku niegi vel
kalla landkynning, er orðinn rík-
ur og vinsæll þ.áttur í útvarps-
starfsemi víða í nágrannalöndun-
urn. Þessi landkynning verður til
með þeim hætti, að þar til valdih
starfsmenn útvarpsins taba sjer
ferð á hendur til nágrannaland-
anna, kynna sjer landið, lands-
háttu alla, þjóðina og meun-
ingu hennar. Ur efni því,
er þeir á þann hátt safna,
semja þeir síðan þætti í ÚU
varpsdagskrá síns heimalands.
Er þar ekki eingöngu um frjetta-
frásagnir að ræða, heldur lýsing-
ar, þar sem náttúmfegurð ]ands-
ins, náttúruviðburðum, þjóðinrii og
sögu hennar eru gerð skil. Er þá
alloft inn í frásagnirnar fljettað*
þjóðkvæðum og þjóðsöngvum. 1
. Síðastliðið sumar kom liingað
til lands, frá breska útvarpinn,
maður að nafni D. G. Bridaon,; *
þeim erindum, sem að framan hef-
ir verið lýst.
Hafði Ríkisútvarpið ’ undirbúið
för hans að nokkru, og greiddi
fyrir henni á ýmsan hátt. Til-
gangur Mr. Bridson var, auk þess-
að hljóta almenna kynningu af
landi og þjóð, einkum sá, að rekja
sögulegt samband milli Bfeta og
Isléndingá alt frá landnámsöld. Af
þessum ástæðuni' sneri Ríbisút-
varpið sjer til Guðna Jónásonar
magistérs, og samdi hanri ágæta
yfirlitsgrein um þetta efnii er síð-
an var sriúið á ensku ög látin Mr.
Bridson í tje. Meðal þéirra atriða,
sem Guðni Jónsson rekur Sögnlága
í vfirliti sínu, óg sein til gamans
má nefna, var það, að breska
konnngsættin verður rakiii beirit
til Auðunns skökuls, ér la'ndnáriis-’
maður var í Víðidal og bjó á
Auðumiárstöðum. Þötti Mr. Brid-
son þetta all-merkileg uppgötvun,
Mr. Bridson hafði að vísri hraða
ferð, en ferðaðist þó og heixnsótti
alla merka sögustaði 4 svæðinu
frá Fljótshlíð vestur og norður nm
land alt að Jökulsá á Fjöllum.
Var hann að piestu heppinn með
veður og mjög ánægðnr yfir för-
inni.
Til viðbótar þessu má geta þess,
að frændþjóðir okkar á Norður-
löndum hafa ráðgert að senda
hingað næsta sumar menn með
nauðsynleg tæki í þessnm sama til-
gangi, en vegna hins ömurlega á-
stands, sem nú ríkir í heiminum,
er það enn í nokkurri óvissu, hvort
af þeirr för getur orðið.