Morgunblaðið - 21.01.1940, Blaðsíða 7
,Suniwidagur 21. janúár 1940
M OR Ö U M B t Á^Ðl Ð
h;:mr
7*
Minning Haraldar
frá Hrafnkelsstöðum
Hinn 12. þ. m. andaðist hjer í
Reyltjavík Haraldur Sigurðs-
ison, fyrv. bóndi á Hrafnkelsstöð-
nm í Hrunamannahreppi. Lík hans
Terður flutt austur í dag og jarð-
»ett 1 Hruna á morgun.
Haraldur var fæddur að Kóps-
Tatni í Hrunamannahreppi 20. ág.
1860. Poreldrar hans voru merkis-
íijónin Sigurður Magnússon hrepp-
»tjóri á Kópsvatni og Kristrún
Jónsdóttir, sem bæði voru komin
af merkumi ættum í Arnessýslu.
Árið 1888 giftist Haraldur
Guðrúmi Helgad. frá Birtingaholti,
hinni ágætustu konu. Yoru þau
íbræðrabörn. Reistu þau hú að
Hrafnkelsstöðum sama árið. Var
sú jörð þá smábýli, húsalaus að
kalla. En Haraldur var hinn mesti
athafnamaður í hvívetna og rak
Jbúskapinn með dugnaði og. fyrir-
hyggju. Reisti hvert, hús úr rúst
á jörð sinni og vann að allskonar
jarðabótum: Stækkaði og sljettaði
túnið, veitti vatni á engjar, girti
tún og engj-ar o. fl. o. fl. Eftir
tæplega 40 ára húskap þeirra
lijóna voru Hrafnkelsstaðir orðnir
stórbýli og heimilið alla tíð orð-
lagt fyrir myndarskap, gestrisni,
Ælúð og lijálpsemi við alla sem
þar dvöldu, eða bar að garði.
Hrafkelsstaðahjónin eignuðust
12 börn. Þrjú þeirra dóu í bernsku
og 3 uppkomin-. Þorgeir, efnispilt-
uf um tvítugt, Kristrún, kenslú-
kona í Reykjavík, og Magnús bíl-
stjóri er giftur var Höllu Guð-
mundsdóttur frá Eyði-Sandvík.
Sex lifa: Guðrún, ráðskona við
heimavistarskólann að Flúðum,
Helgi, bóíidi á Hrafnkelsstöðum,
Sigurður, efnisvörður við vjel-
smiðjuna „Hjeðinn“, giftur Helgu
Hannesdóttur frá Stokkseyri, Sig-
ríður, húsfreyja á Iírafkelsstöð-
Bm, gift Sveini bónda Sveinssyni
frá Efra-Langholti, Helga, gift
Éinari Kristjánssyni, verkamanni
í Reykjavík, og Elísabet, nú í
Reykjavík.
Þegar þau Haraldur og Guðrún
brugðu búi, vorið 1927, tóku tvö
börn þeirra og t.engdasonur við
jörðinni, en gömlu hjónin dvöldu
þar til æfiloka, nema hvað Har-
aldur dvaldi tvo síðustu veturna á
heimili Sigurðar sonar síns, hjer
í Reykjavík. Var lieilsa hans þá
mjÖg að þrotum komin. Naut hann
hiönar ágætustu aðbúðar og hjúkr
unar á heimili sonar síns og þar
andaðist hann. Guðrún andaðist
21. des. 1935, eftir 47 ára farsælt
hjónaband.
Haraldur gegndi ýmsum trún-
aðarstörfum fyrir sveit sína, svo
sem títt er um afburða bændur.
Hann var mörg ár í hreppsnefnd,
sóknarnefnd, sparisjóðsstjórn og
rjómabússtjórn. Hann stofnaði
fyrsta rjómabú hjer á landi, á-
samt fimm nágrönnum sínum.
Tvívegis fjekk Haraldur verðlaun
úr Ræktunarsjóði fyrir búnaðar-
framkvæmdir.
Sjálfsagt hefði Ilaraldur, sök-
nm ágætra liæfileika sinna, get-
að orðið fulltrúi sveitar sinnar út
á við, en hann var maður hlje-
drægur að eðlisfari og fórnaði
heimili sínu fyrst og fremst öllum
hröftum sínum. Þar var hann
Éóngur í ríki sínu og stjórnaði
Haraldur Sigmrðsson.
vel og viturlega, enda mjög hag-
sýnn fjármálamaður. Hann byrj-
aði búskapinn við lítil efni, komst
í skuldir um tíma, vegna marg-
víslegra framkvæmda og erfið-
leika, en þegar hann hætti bú-
skap hafði hann greitt allar skuld-
ir sínar, og átti'þó nokkurn af-
gang. Skilvísi hans og reglusemi
var viðbrugðið. Hann var snill-
ings verkmaður og hagur með af-
brigðum. Yar sem alt Ijeki í hönd-
um hans.
í æsku lærði hann bæði skó-
smíði og söðlasmíði, en stundaði
jafnframt trje- og járnsmíði. Þá
yar hann ög ágætur hleðsluínaður,
hvort sem byggja skyldi út torfi
eða grjóti. Þjóðkunnur maður, sem
eitt sinn kom að Hrafnkelsstöð-
um sagði: „Að jafnvel skánar-
hraukarnir á Hrafnkelsstöðum
væru listaverk".
Þá var og reglusemi Ilaraldar
með afbrigðum og snyrtirnenska í
allri umgengni, utan húss og inn-
an. Er það hjeraðsfleygt fyrir
löngu, hve snyrtilegt er umhorfs
á Hrafnkelsstöðum. Húsbóndinn
gekk svo ríkt eftir að hver hlutur
væri á sínum stað, að sumum
þótti nóg um, því að slík reglu-
semi er fágæt. En þótt Haraldur
væri maður örlyndur og vildi láta
vinna vel og hafa reglu á öllum
hlutum, þá þótti gott að vera á
Hrafnkelsstöðum, og voru þau hjón
hjúasaú með afbrigðum, enda
drógu þau ekki af sjer við vinn-
una. Haraldur sagði eitt sinn, að
enginn húsbóndi þyrfti að hugsa
sjer að komast áfram, nema að
vinna mest sjálfur, enda breytti
hann samkvæmt því til síðustu
stundar, þótt heilsa hans væri oft
á völtum fæti.
Haraldur sagðist hafa verið gæfu
maður. En sína mestu gæfu taldi
hann, að hafa átt þá konu, sem
stóð við hlið hans í nær liálfrar ald
ar starfi og stríði. Jeg veit að þess
vildi hann láta getið, um leið og
hans er minst. Það er öllum kunn-
ugum minnistætt, hve fagurlega
hann mintist konu sinnar látinn-
ar og hve innilega hann þráði
dauðann eftir andlát hennar.
Nú hefir hann fengið ósk sína
uppfylta. Hinni löngu og starf-
sömu æfi er lokið. Eftirlifandi
ættingjar og vinir þakka vináttu
og vel unnin störf.
Þess væri óskandi, að ísland
ætti jafnan marga jafnoka Har-
aldar á Hrafnkelsstöðum í bænda-
stjett.
Ingimar Jóhannessön.
Dagbók
□ Édda 59401237 — Fyrl.
I.O.O.F.3= 1211228 = 8Vt. O.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
NA-gola. Bjartyiðri.
Helgidagslæknir er í dag Kjart-
an Ólafsson, Lækjargötu 6 B. Sími
2614.
Næturlæknir er í nótt Daníel
Fjeldsted, Hverfisgötu 46. Sími
3272.
Bifreiðastöð íslands, áími 1540
annast næturakstur ! næstu nótt.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni ungfrú Jakobína Björns-
dóttir og Páll Guðbjartsson. Heim-
ili ungu hjónanna er á Vestur-
vallagötu 5.
Hjúskapur. Gefin voru saman í
hjónaband í gær í Hafnarfirðí af
síra Garðari Þorsteinssyni, ungfrú
Gertrud Abelmann frá Weser-
múnde og Gunnar H. Sigurjóns-
son loftskeytamaður, Hafn^rfirði.
„Prentarinn“, blað Ilins íslenska
prentarafjelags, 5.—6. tbl., er kom
ið út. Þar er grein um Hallgrím
Benediktsson prentara sextugan,
kvæði eftir Theodóru Thoroddsen,
frásögn af prentaranámslieiði, sem
tveir Islendingar sóttu í Höfn s.l.
sumar, eftir Yilhelm Stefánsson,
o. fl.
Sundhöllin verður lokuð dagana
22. til 28. þ. in„ vegna hreingern-
ingar og hins árlega eftirlits með
vjelum og tækjum. En í dag verð
ur opið til kl. 3%, og munu vafa-
laust margir baðgestir hagnýta
sjer það sem best.
Bæjarráð hefir samþykt að
leggja rafmagnsleiðslu að flug-
vjelaskýli Flugfjelags Akureyrar
við Skerjafjörð með því skilyrði,
að fjelagið greiði nú þegar helm-
ing kostnaðar.
Kvikmyndin Stanley og Living-
stone verður sýnd í Nýja Bíó á
þriðjudagskvöld. Gefur Nýja Bíó
allan ágóða til starfsemi mæðra-
styrksnefndarinnar,
Þakkir. í dag fjekk jeg heim-
sókn af vingjarnlegum eldri
sveitabónda, sem færði mjer kr.
150.00 — eitt hundrað og fimtíu
krónur — til reksturs björgunar-
skútunnar frá II. Ó„ bónda vestur
á Skógarströnd. Kveðst liann hafa
grætt dálítið í Happdrætti Háskól-
ans og vilja láta Slysavarnafje-
lagið njóta þess með sjer, — Um
leið og jeg kvitta fyrir þessa góðu
gjöf með miklu þakklæti, vil jeg
einnig nota þetta tækifæri til þess
að þakka kærlega hinar mörgu
góðu og stóru gjafir til reksturs
„Sæbjargar“, sem fjelaginu hafa
borist í yfirstandandi mánuði, og
gera okkur kleift að halda skip-
inu úti á vertíðinni. Rvík 20. jan.
1940. Þ. Þorsteinsson.
Ctvarpið í dag:
9.45 Morguntónleikar (plötur):
a) Píanókonsert, eftir Ravel.
b) Úr „Eldfuglinum“, eftir
Stravinsky. c) Fiðlukonsert í D-
dúr, eftir Prokoffieff.
14.00 Messa í Fríkirkjunni (síra
Árni Sigurðsson).
18.30 Barnatími: a) Barnasögur
(Stefán Júlíusson kennari). b)
Hljómplötur: Ýms lög.
20.15 Upplestur og söngur: Ætt-
jarðarkvæði (Vilhj. Þ. Gíslason.
-— Útvarpskórinn).
21.30 Tónleikar Tónlistarskólans:
dr. von Urbantschitsch leikur á
píanó: Tilbrigði eftir Paul Du-
kas við lag eftir Rameau.
Vegna lasleika get jeg ekki
komið að tala fyrir henni, en
treysti bænheyrslu. Virðingarfylst
Kr. Daníelsson.
Iðnráðið í Reykjavík.
Nýkosið iðnráð er hjer með kvatt saman til fyrsta fundar sunjru-
daginn 28. þ. m. Fundurinn verður á Fríkirkjuveg 11 (Bindindishöll-
in) og hefst kl. 2 e. h. Fulltrúar hafi með sjer kjörbrjef.
Á fundinum verður kosin framkvæmdarstjórn, flutt skýrsla nm
starfsemi fráfarandi iðnráðs og önnur mál rædd eftir þyí sem tilefni
gefast til.
Reykjavík, 20. jan. 1940.
PJETUR G. GUÐMUNDSSON.
Einar Gíslasos.
Samkvæmt reglum um „Gjöf Jóns Sigurðssonar“,
skal hjer með skorað á alla þá, er vilja vinna verðlaun úr
tjeðum sjóði, fyrir vel samin vísindaleg rit, viðvíkjándi
sögu landsins og bókmentum, lögum þess, stjórn eða
framförum, að senda slík rit fyrir lok desembermánaðar
1940 til undirritaðrar nefndar, sem kosin var á Alþingi
1939 til þess að gera að álitum, hvort höfundar ritanna
sjeu verðlauna verðir fyrir þau, eftir tilgangi gjafarinn-
ar. — Ritgerðir þær, sem sendar verða í því skyni að vinna
verðlaun, eiga að vera nafnlausar, en auðkendar með ein-
hverri einkunn. Þær skulu vera vjelritaðar, eða ritaðar
með vel skýrri hendi. Nafn höfundarins á að fylgja í lok-
uðu brjefi með sömu einkunn, sem ritgerðin hefir.
Reykjavík, 20. jan. 1940.
Þorkell Jóhannesson. Matthías Þórðarson.
Þórður Eyólfsson.
27298 Tölur á 5 aura
stykkið, seljum við meðan birgðir endast. Um 100 tegund-
um úr að velja. Einnig nokkur þúsund skelplötu- og tau-
tölur á 2 aura stykkið.
K. Einarsson & Björnsson
Bankastræti 11.
y'mx'
t
Okkar hjartkæri faðir
Arni Arenísson
Vatneyri, Patreksfirði,
andaðist aðfaranótt 19. þ. n?án.
Börn hins látna.
Jarðarför móður minnar
HELGU EIRÍKSDÓTTUR
fer fram frá heimili hennar, Hverfisgötu 61, þriðjudaginn 23.
þ. m. kl. 1 e. h.
Elín Thomsen.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við
andlát og jarðarför
GUNNLAUGS GUNNLAUGSSONAR
frá Syðri-Völlum.
Aðstandendur.
Alúðarþakkir til allra þeirra mörgu, sem auðsýndu samúð
•og hluttekningu við fráfall og jarðarför
GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR frá Hcjlukoti.
Aðstandendur.