Morgunblaðið - 01.02.1940, Síða 3
M0RGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 1. febrúar 1940.
Samkomulag um
kauphækkun versl-
unarfólks
IGÆR var gengið frá ákveðnu samkomulagi um
kaup verslunarfólks milli Verslunarmannafjelags
Reykjavíkur og hinsvegar Fjelags ísl. stórkaup-
manna, Fjelags matvörukaupmanna, Fjelags vefnaðar-
▼örukaupmanna, Fjelags búsáhaldakaupmanna.
í samkomulagi þessu er gerður greinarmunur á kaupi skrifstofu-
fólks og afgreiðslufólks í búðum. Stafar hann af því, að skrifstofu-
fólk hefir styttri vinnutíma en afgreiðslufólkið og því að öðru jöfmi
hærra tímakaup. Vinnutími skrifstofufólksins er talinn að jafnaði
yfir árið 180 stundir á mánuði, en vinnutími afgreiðslufólksins
nytV^ívs ■samnmg-
ur Breta við Svía !
AÐ V ORU SVÍAR, sem urðu fyrstir til þess aðj
fá góða verslunarsamninga við báðar ófrið-
arþjóðirnar, Breta og Þjóðverja. Samningur-
inn við Þjóðverja var gerður rjett fyrir jólin og samning-
urinn við Breta milli jóla og nýárs.
Litlar upplýsingar hafa borist um efni þessara samninga.
Meiri athygli beinist að sjálfsögðu að bresk-sænsku samninguit-
um, því að vitað er, að undirstaðan undir sænsk-þýsku samning-
unum er svipuð og \ærið hefir: þ. e. „clearing".
205 klst.
*
Launahækkunin, sem menn háfa
orðið ásáttir um, er frá 6—9%,
og er það í samræmi við ákvæði
gengislaganna og hækkun vísitöl-
unnar.
Kauphækkunarflokkar eru sem
hjer segir fyrir skrifstofufólk:
Á alt að 270 kr. kaup 9%
Á 220—360 kr. kaup 8%
Á kaup yfir kr. 360 6%
En fyrir afgreiðslufólk verður
kauphækkunin þessi:
Á alt að kr. 307.50 9%
Á kr. 307.50—410 8%
Á kaup yfir kr. 410 6%
Er hjer miðað við mánaðarkaup.
Samkomulag þetta nær yfir
mánuðina jan.—mars í ár, og er
gert ráð fyrir, að í marslok verði
nýtt samkomulag gert fyrir næsta
ársfjórðung.
Þess er vænst, að þau fyrirtæki,
sem eru ekki í ofangreindum
fjelögum, og ákvæði gengislag-
anna um kaupgreiðslur ná ekki til,
fari eftir þessu samkomulagi, sem
hjer hefir verið gert.
Verslunarmannafjelag
Reykjavlkur ráðgerir
húsakaup
T mörg ár hefir Verslunar-
mannafjelag Reykjavíkur
safnað fje í sjóð til þess að
koma upp fjelagsheimili. Sjóð-\
ur þessi er orðinn svo öflugur
að ráð var svo fyrir gert, að .hús
þetta yrði bygt í ár4 !
En vegna styrjaldarinnar og
vandræða með byggingarefni
hefir stjórn fjelagsins horfið
frá þvi, og ráðgerir í þess stað
að festa kaup á húsi, sem svo á
að nokkru leyti að takast til af-
nota fyrir fjelagið.
Á . fundi fjelagsins annað
kvöld, verður þetta mál til um-
ræðu.
Aðalfundur Sveinasambands
byggingamanna var haldinn í
gær. Forseti var kjörinn Gunnar
Leo Þorsteinsson málari, ritari
Magnús Árnason múrafi, fyrsti
fjehirðir Þorbergur Guðlaugsson
▼eggfóðrari; varaformaður og ann
ar fjehirðir Sigurður Jónasson
pípulagningarmaður.
Islendirigur
ferst með
dönsku skipi
E' ÍNN Islendingur, Robert
_ Bender, var á danska skip-
inu „Fredensborg“, sem sökt
var með tundurskeyti við norð-
urströnd Skotlands s.l. mánu-
dag. Robert var bryti á skipinu.
öll skipshöfnin fórst er sltipinu
var sökt.
Robert Bender var sonur
Carls Bender kaupmanns. Hann
var fæddur 9. júlí 1909 í Borg-
arfirði eystra. Robert fór fyrst
til sjós 14 ára gamall og var
lengst af á skipum Eimskipafje-
lags fslands við veitingastörf.
Hann var seinast búrmaður á
Lagarfossi, en harrm fór af La^-i
arfpssi j haust og ,ýj eðist-þá á
hið dansk^a skip.,
Robert Bender var vinsæll
maður og vellátinn af fjelögum
sínum.
Nýar kolanám-
ur á Svalbarða
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn t gær.
ýjar auðugar kolanámur
hafa fundist á Svalbarða
í landareign Norðmanna. Er
talið að þessi nýi kolanámu-
fundur tryggi Norðmönnum ár-
lega kolaframleiðslu, sem nem-
ur 300,000—500,000 smálestum.
Sr. Rögnvaldur
Pjetursson
látinn
1 gær barst sú fregn hingað til
*• bæjarins, að sr. Rögnvaldur
Pjetursson væri látinn. Hann and-
aðist vestur í Winnipeg í fyrra-
dag.
Með sr. Rögnvaldi er hniginn
að velli einn af atkvæðamestu ts-
lendingum, er lifað hafa vestan-
hafs. En jafnframt var hann sá
maður, sem lengst og með mest-
uiíi skörungsskap og fyrirhjrggju
hefir unnið að þjóðræknismálum
vestra og samhygð milli íslend-
inga austan hafs og. vestan. Mun
ótvírætt mega rekja vaxandi á-
huga hjer heima fyrir á máléfnúm
Vestur-íslendinga að miklu leyti
til álirifa frá honum. Á því sviði
á starf hans vonandi eftir oð bera
mikla og heillaríka ávexti.
Sr. Rögnvaldur verður jarð-
sunginn á laugardaginn kemur.
Þann dag birtast hjer í blaðinu
minningarorð um hann, eftir einn
þeirra manna hjer í Reykjavík,
sém höfðu af honum lengst og
best kynni.
Sjálfsfæðisflokk-
urinn á Akureyri
Akureyri, miðvikudag.
StarfSemi Sjálfstæðisflokksins
hefir sett svip sinn á Ákur-
eýfarbæ undanfarið. Jóhann Haf-
stein erindreki flokksins hefir
dvalið hjer hálfsmánaðartíma og
haldið stjórnmálanámskeið á veg-
um „Varðar“, fjelags ungra Sjálf-
stæðismanna. Námskeiðið sóttu 20
neméndur.
Einnig hafa verið mikil funda-
höld hjá fjelögunum. Á laugardag
hjelt, „Vörður“ mjög fjölmennan
skemtifund og í gærkvöldi hjeldu
fjelög Sjálfstæðismanna opinber-
aíi í'und í sámkomuhrísi bæjarins,
við mikla aðsókn. Ræður fluttu:
Sigurður Hlíðar, Sig. Eggerz,
Arnfinna Björnsdóttir, Jónheiður
Eggerz, Jón Sólnes, Jakob Pjet-
ursson og Jóhann Hafstein.
Ræðumönnum var prýðileg tek-
ið og ríkti meðal fundarmanna
mikill áhugi um málefni Sjálf-
stæðisflokksins.
Svíar eiga mikla innstæðu á
þýska clearingrmm. Mun sam-
anlögð innstæða þeirra nema
um 850 miljón sænskum krón-
um. Hafa þeir því skilyrði til
að kaupa allmikið meira af
Þjóðverjum, en þeir selja þeim.
Af þeim fáu upplýsingum,
sem birtar hafa verið um bresk-
sænska samninginn, er það að-
allega eitt atriði, sem vekur
sjerstaka athygli, þar sem það
felur í sjer, að viðskifti Svía
og Breta komast í raun og veru
á alveg nýjan grundvöll. Hefir
verið búið til sjerstakt „clearing
pund“, eða „sjerstöðu-pund“
eins og það er kallað. Bank-
arnir í Svíþjóð og London byrj-
uðu að skrá gengi þessa sjer-'
stöðu punds strax eftir jólin,
cg hefir síðan verið skrásett á
16.95 sölugengi og 16,85 kaup_
gengi; en um sama leyti hefir
alment gengi sterlingspundsins
verið um 16.50.
Fyrirkomulagið er þannig, að
þær upphæðir í Svíþjóð, sem
Svíar eignast fyrir vörur, farm-
gjöld, vátryggingar og ákveðn-
ar fjárkröfur, verða greiddar
sem sjerstöðu-pund inri á reikn-
mg Svía í Englandi, en jafnvirði
þeirra í krónum verður síðan
útborgað í Svíþjóð með því
kaupgengi, sem þjóðbankinn
greiðir fyrir sjerstöðu-pund. —
Þessi nýju pund verða einskon-
ar „lokuð“ pund, þar sem hægt
verður aðeins að nota þau til
greiðslu frá Svíþjóð innan
breska heimsveldisins, með
þeirri undantekningu, að ekki
má nota þau til greiðslu í Kan-
ada, Nýfundnalandi eða Hong-
Kong. Særiski þjóðbankinn á-
kveður gengið og miðar það við
gengi dollars, eins og það er
opinberlega skrá í London.
tJm sjálfa verslunina er álitið
að samnirigarnif hafi aðalíéga
snúist um kol og vefnaðarvörur,
sem Svíar vildu geta keypt í
Englandi 'ög trjáv'Örur og málm,
sem Bretaf vilja fyrir sitt leyti
kaupa í Svíþjóð. Til þess, að
tryggja það, að samningurinn
verði framkvæmdur á seái hag-
feldastan hátt, hefir verið sett
á laggirnar sjerstök nefnd,
skipuð 3 Svíum og 3 Englend-
ingum og koma þeir saman á
fund ýmist í Svíþjóð eða Lon-
don.
Talið er að Bretar hafi átt
mestan þátt í því, hvemig samn
ingurinn var gerður, og er Jitið
svo á, að fyrir þeim vaki að
koma í veg fyrir að Svíar not-
uðu þau pund, sem þe,ir kynnu
að eignast, umfram það, eem
FHAMK. A f«l
NJ verðhækkun
á smjðrlfki
og brauði!
-... v
Samkvæmt fregnum, sem Morg-
unblaðið fjekk seint í gær-
kvöldi, mun nú von á nýrri hæklfc*
un á smjörlíki og brauði.
Hækkunin á smjörlíkinu stafar
af þeirri fyrirskipun landbúnað-
arráðherra, að blanda skuli smjör-
líkið með smjöri. Heyrst hefir, a3
smjörlíkið hækki í útsölu úr kr.
2.34 upp í kr. 2.52.
Ilækkun brauðverðsins stafar
af hækkun mjölvörunnar. En hvað
mikið brauðin liækka, gat MbL
ekki fengið vitneskju um í gær-
kvöldi. ,
Skákþíng
Norðurlands
Skákþingi Norðurlands lauk
síðastliðið föstudagskvöld.
Úrslit í fyrsta flokki urðu þessi:1
Jafnir urðu með 4 vinning#
hvor, Þráinn Sigurðsson, Siglu-
firði og Jóhann Snorrason. —
Tefldu þeir tvær úrslitaskákir
og vann Jóhann báðar. Hlaút
hann fyrstu verðlaun og nafn-
bótina skákmeistari Nórðúr-
lands. nistl
Önnur verðlaun hlaut Þrá,inn
Sigurðsson og þriðju verðlaun
Júlíus Bogason á Akureyri.
I öðrum flokki urðu jafnp
Otto Jörgensen á Siglufirði og
Guðmundur Jónsson á Akurpyj^
og skiftu með sjer fyrstu og
þðrum verðlaynum.. .
Þriðju verðlaun hlaut Kristj-
án Stefánsson, Siglufirði. FÚ.
Kosningar til færeyska
Lögþingsins
Urslit eru nú kunn í kosn-
ingunum sem nýlega fór»
fram til færeyska lögþingsins.
Sambandsflokkurinn fekk 8
þingmenn kosna, Færeyski
Vinnuflokkurinn 6, Jafnaðar-
menn 6 og Sjálfstæðisflokkur-t
inn 4 þingmenn kosna.
Færeyski Alþýðuflokkurinö
hefir unnið á frá Sjálfstæði*-
flokknum og er það þakkað þtS
að Jóannes Patursson kóug»-
bóndi var í framboði fyrit
‘ Vinnuflokkinn.