Morgunblaðið - 09.04.1940, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 9. apríl 194(L
ÓFRÍÐA STÚLKAN 25
Jeg var nærri búin að gleyma
J>ví, að Lilian hafði troðið ást
sinni á Plumberger. Pabbi og
mamma höfðu heimtað að fá að
yita, hversvegna hann hringdi til
min og Inga hafði grátið.
Jeg svaraði með kjánalegasta
svarinu, sem til var.
„Já, það er ekkert sjerstakt að
segja. Við Claudio röbbuðum
saman eins og við erum vön“.
Stúlkurnar litu hver á aðra og
Trude sagði:
„Það lítur út fyrir að þú hafir
þekt Pauls í mörg ár. Aldrei hef-
ir þú minst á þetta við okkur“.
Mig langaði til að segja stúlk-
unum, að það væri vegna þess að
þær hefðu aldrei talað við mig um
einkamál mín. Það hefði verið
gott tækifæri til að segja þeim
það nú. Kannske hefðu þær þá
ekki oftar farið með mig eins og
aðskotadýr. En mjer var ómögu-
legt að segja eitt einasta orð. Jeg
skammaðist mín fyrir að láta þær
vita að mjer hefði þótt þetta leið-
inlegt. Jeg flýtti mjer að fást eitt-
hvað við peningakassann þó jeg
hefði ekkert þar að gera í augna-
blikinu.
Þær sneru sjer frá mjer, Trude
%rst og hinar á eftir ,og jeg fann
á mjer að þeim var ennþá ver við
mig nú en nokkru sinni áður.
Þar sem jeg sat á láa stólnum
minum við peningakassann fanst
mjer jeg vera einmana eins og
jeg væri á eyðieyju.
í hádegisverðarhljeinu flýtti jeg
mjer til litlu vínstofunnar. Jeg
varð að ná í Clau og segja hon-
um að jeg syrgði með honum. Og
svo fann jeg ómótstæðilega löng-
nn til að spyrja hann að nokkru
—• sem jeg hafði verið að hugsa
um áður en jeg sofnaði. Clau —
ætlaði jeg að segja — Clau, hvern-
ig stendur á því að þjer eruð
svona góður við mig?
Alt var öðru vísi en jeg átti að
venjast á litlu vínstofunni. Við
stóra borðið í horninu, þar sem
venjulega sat fjöldi fólks — Lili-
an, Clau, Plumberger og margir
aðrir — voru nú bara Szekely og
Eftir ANNEMAKIE SELINKO
Mopp. Þessir tveir, sem ávalt voru
tryggustu fyligsveinar Clau, sátu
nú þögulir í hægindastólunum.
Szekely tugði hugsi vindil og
Mopp boraði í nefið á sjer. Þetta
var sannarlega sorgleg sjón.
Jeg gekk til þeirra og ætlaði að
spyrja um Clau. Án þess að mæla
eitt einasta orð bentu þeir með
augunum á vínborðið. Clau sat við
vínborðið.
Það var annar, gjörbreyttur
Clau, heldur en sá er jeg þekti.
Hann sat á háum stól við vín-
borðið og lá fram á hendur sjer.
Ósjálfrátt gekk jeg nær honum,
en hann tók ekki eftir mjer. Fyr-
ir framan hann á borðinu stóð
stórt koníaksglas; í hendinni hjelt
hann á spilateningum. Nú tók
þjónninn teningana. Claudio var
að spila við manninn í hvíta jakk-
anum.
„Jeg vann og á að fá.tvö koní-
aksglös“, sagði Pauls. Röddin var
óskýr. Hann hreyfði varla var-
irnar. Þetta var í fyrsta skifti,
sem jeg sá Claudio illa til fara.
Honum' var of heitt og hann hafðí
losað um hálslínið. Hárið lá niður
í augu. Andlitið var enn fölara en
venjulega og svitadropar voru á
enni hans.
Jeg gekk aftur að borðinu.
„Herra Szekely — Clau er svo
skrítinn í dag“, hvíslaði jeg.
Szekely færði kæruleysislega
vindilinn yfir í hitt munnvikið.
„Hvað eigið þjer við með því að
hann sje skrítinn? Hann er bara
drukkinn“.
„Hann vildi sjálfur að það færi
svona. Það er líka best fyrir
hann“, muldraði jeg. „Herra
Szekely, hann getur ekki hafa
elskað Lilian mjög mikið?“
Þjónninn setti tvo full koníaks-
glös fyrir Claudio.
„Það er áttunda og níunda glas-
ið“, sagði Mopp og var ákaflega
sorgbitinn á svipinn. „Þetta Mar-
kovsky-dýr“, hvíslaði hann.
„Þetta hefir sært hann“, sagði
Mopp rólega. „Yitanlega vildi
hann sjálfur hafa það svona. Hann
telur sjer bara trú um að hann
elski frú Markovsky og vill ekki
viðurkenna að hann var fyrir von-
brigðum með hana. Þegar hann
kyntist* henni taldi hann sjer trú
um að hún væri sú kona, sem
hann hefði þráð alt sitt líf. Ann-
að hvert ár kynnist hann kven-
manni, sem hann er viss um að
sje sú eina rjetta. Og hann hjelt
það sama um Lilian. Það var ekki
nóg með að hann teldi henni trú
um þetta, heldur líka sjálfum
sjer. Skiljið þjer ? Og nú drekkur
hann sig fullan af því að hann
telur sjer trú um að hann sje
óhamingjusamur' ‘.
„Þjer sitjið þarna og skáldið
framhaldssögu, Mopp“, tók Szeke-
ly fram í fyrir honum. „Alt þetta
slúður ættuð þjer að geyma þar
í aukablaðið. Pauls telur sjer
alls ekki trú um neitt. Hann er
verulega sorgbitinn".
Claudio Pauls sorgbitinn.
Jeg stóð á fætur og gekk að
vínborðinu og settist á háan stól
við hliðina á Clau. Það var ekki
svo auðvelt að setjast á þessa háu
stóla og jeg var næstum dottin
er jeg hallaði mjer fram.
„Gættu að þjer, litla mín —
dettu ekki af stólnum!“ hrópaði
Mopp.
Clauio heyrði þetta, leit upp og
kom auga á mig.
Hann horfði á mig með undar-
legu augnaráði. Hann er drukk-
inn, hugsáði jeg. Jeg er venju-
lega hrædd við menn, sem hafa
drukkið of mikið, en jeg var ekki
hrædd við Clau. Jeg liefði meira
að segja getað faðmað hann að
mjer, eða strokið hárið frá enni
hans. Mig langaði líka til að
binda slifsi hans. En jeg þorði
ekki að gera neitt af þessu. Jeg
bar alt of mikla virðingu fyrir
Claudio Pauls, jafnvel þótt hann
hefði drukkið of mikið koníak.
Jeg ætlaði að reyna að fá hann
til að hætta að spila. Hinn frægi
Claudio Pauls spilaði við þjón.
'TwuJ
o
Agöturn Sydneyborgar gekk
nýlega maður og bauð
sterlingspundsseðla fyrir 10 shill-
inga.
Þetta þótti einkennilegt tiltæki,
sem og það var þegar tekið er
tillit til þess að 20 shillingar eru
í einu sterlingspundi. En það voru
ekki margir sem vildu versla við
manninn. Hinsvegar voru nokkrir
sem fóru til lögreglunnar og kröfð-
ust rannsóknar á þessu tiltæki
mannsins og hjeldu því fram, að
seðlarnir, sgm hann seldi, hlytu að
vera falskir.
Lögreglan rannsakaði málið og
kom þá í Ijós, að það var alt í
lagi með pundsseðlana. Maðurinn
sem seldi þá sagðist gera þetta að
gamni sínu í sambandi við veð-
mál.
Vitanlega fór maðurinn frjáls
ferða sinna og hjelt áfram hinni
einkennilegu verslun sinni með að
selja pund fyrir hálfvirði. Fjöldi
fólks fór til lögreglunnar og
spurði hvort óhætt væri að kaupa
af manninum og lögreglan svar-
aði að þetta væri ekki svindlari,
heldur hálfvitlaus sjervitringur.
En það leið ekki á löngu þar
til fóru að berast kvartanir, og er
lögreglan fór í heimsókn til punda-
salans í annað sinn var hann horf-
inn, því hann hafði selt fölsk pund
alt frá því lögreglan fór að gefa
honum meðmæli.
★
— Hvað var þig að dreyma í
nótt? spurði ung kona mann sinn.
Þú sagðir oft „Rósa“ upp úr
svefninum..
— Æ já, sagði bóndi, það var
gott að þú mintir mig á það. Hjer
hefir þú 250 krónur. Jeg vann
500 á að veðja á „Rósu“ í gær
og var búinn að lofa þjer helm-
ingnum af vinningnum.
Frúin varð vitanlega harla glöð,
en nokkru seinna, er maður henn-
ar kom heim úr ferðalagi, var hún
í afar leiðu skapi.
— Hvað er að, vina mín? spurði
hann.
— He — hesturinn hefir skrifað
til þín!
Dómarinn: Skiljið þjer þýðingu
eiðsins?
Vitnið: Já, jeg verð að segja
sannleikann.
— Og ef þjer segið ekki sann-
leikann, hvernig fer þá?
— Þá vinnum við málið.
★
— Ef þú vei^ður ekki þægur
skal jeg lcalla á lögregluna.
— Já, gerðu það, þá skal jeg
segja lögreglunni að þú geymir
sykurkassa uppi á lofti!
★
— Fekstu margar gjafir á af-
mælinu þínu?
— Já, svo margar, að jeg gat
ekki haft þær á mjer allar í einu.
— Jæja, hvað fekstu.
— Tvö hálsbindi.
Jufiað-furuUð
KARLMANNSARMBANDSÚR
með gullarmbandi tapaðist á
götunum í gærkvöldi. Afreiðslan
'vísar á.
Ef Pauls vann fjekk hann tvö
koníaksglös, en ef hann tapaði
varð hann að borga þau. Mjer
þótti leiðinlegt að maðurinn í
hvíta jakkanum skyldi skemta sjer
svona prýðilega.
„Jeg er hjer með afrit af brjefi,
sem jeg ætla að fara með til Hótel
Imperial, herra Páuls“, sagði jeg.
Claudio tók brjefið og las hátt:
„Háæruverðuga frú Markovsky"
— las hann. „Mjer þykir mjög
miður, að jeg skyldi hegða mjer
svona illa í vínstofunni í fyrra-
dag. Iljer með bið jeg yður inni-
lega afsökunar. Með virðingu“.
Claudio fór að hlæja. HanD
blátt áfram hristist af hlátri.
„Með virðingu skrifar hún til
þessarar manneskju“.
Framh.
HREINGERNING
í fullum gangi. Fagmenn að
verki. Hinn ein,i rjetti Guðni
G. Sigurðsson, málari, Mána-
götu 19. Sími 2729.
Tek að mjer
HREINGERNINGAR.
Guðm. Holm. Sími 5133.
HREINGERNINGAR
Pantið í tíma. Guðni og Þrá-
inn. Sími 5571.
HREINGERNINGAR
önnumst allar hreingerningar.
Jón og Guðni. Símar 5572 og
4967.
OTTO B. ARNAR
löggiltur útvarpsvirki, Hafnar-
stræti 19. Sími 2799. Uppsetn-
ing og viðgerðir á útvarpstækj-
um og loftnetum.
DÖMUFRAKKAR
valt fyrirliggjandi. G'uðm,
luðmundsson, klæðskeri. —
Cirkjuhvoli.
GULRÓFUR
seljum við í heilum og hálfuro
pokum á kr. 6,50 og kr. 4,00.
Sendum. Sími 1619.
4—5 HERBERGJA
íbúð er til leigu 14. maí. Uppl
í síma 4188.
ÁGÆTT HÚSNÆÐI,
hentugt fyrir saumastofu, smá-
iðnað eða þess háttar, til leigu
frá 14. maí næstkomandi. Fr.
Hákansson, Laufásvegi 19. —
Sími 3387.
1 HERBERGI OG ELDHÚS
með rafmagnsvjel óskast 14.
maí. Má vera í góðum kjallara
Tvent í heimili. Uppl. í síma
4135 frá kl. 3—6.
SKRIFTARSKÓLINN
Skriftarnámskeið fyrir börn
-10 ára, maí, júní. Fjögur
flokk. Gjald kr. 15,00. Almenn
skriftarnámskeið og snarhönd.
Fagteikningarskrift. Jóhanna
Ólafson. Sími 5328.
Fjelagslíf
Síðasti skemtifundur f je- -
lagsins á þessum vetri,
verður haldinn í
kvöld kl. 8,30 í Oddfellowhús-
inu. Fundurinn er helgaður 25-
ára stjórnarafmæli Erlendar
Pjeturssonar formanns K. R. og
hefst með sameiginlegri kaffi—
drykkju. Auk ræðuhalda verð-
ur til skemtunar: Swing-tríóið
syngur öðru hvoru alt kvöldið.
13 ára telpa spilar og syngur.
Danssýning, nemendur frú Rig-
mor Hansson. MunnhörpuspiL
Sjómaður steppar. Dans. Afhent
verðlaun fyrir sundmót K. R.
Aðgöngumiðar seldir í versluro
Haraldar Árnasonar til kl. 6f
síðd. í dag og kosta kr. 2,50»
(kaffi innifalið). Fundurínn er~
aðeins fyrir K. R-inga.
I. O. G. T.
ST. VERÐANDI R. 9.
Fundur í kvöld kl. 8.
1. Inntaka nýrra fjelaga.
2. Um daginn og veginn: Pjetur-
Zophoníasson.
3. Erindi: Ólafur Friðriksson.
4. Karlakórsöngur.
5. Um fingrarím: Sigurþór*
Runólfsson.
GÓÐUR ERL. BARNAVAGN
óskast. Uppl. í síma 2654.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, wh$lffypelat.
íæsta verði. Nönnugötu 5, sími
3655. Sækjum. Opið allan dag-
nn.
ÞORSKALÝSI
frá Laugavegs Apóteki kostar
ðeins kr. 1,35 heilflaskan. Yi®
endum. Sími 1616.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypelap,
glös og bóndósir. Flöskubúðint
Bergstaðastræti 10. Sími 5395-
Sækjum. Opið allan daginn.
MEÐALAGLÖS og FLÖSKUR
keypt daglega. — Við sækjum...
Hringið í síma 1616. Laugaveg®-
Apótek.
EFTIRMIÐDAGSKJÓLAR
og blúaur i úrvali. Saumastofaifc
Uppsölum, Aðalstræti 18. —
Sími 2744.
SP ART A-DRENG JAFÖT
Laugaveg 10 — við allra hæfL
HARÐFISKSALAN,
Þvergötu, selur saltfisk nr. 1*.
2 og 3. Verð frá 0,40 au. pr..
kg. Sími 3448.
ÞAÐ ER ÓDÝRARA
að lita heima. Litina seliur
Hjörtur Hjartarson, Bræðra-
borgarstíg 1. Sími 4256.
KAUPUM
tóma strigapoka, kopar, blý og"
aluminium. Búðin, Bergstaða-
stræti 10.
FERMINGARKJÓLAEFNI
Iftirmiðdagskjólaefni í mörgum
litum nýkomið. Saumastofa Ó*-
línu og Bjargar, Ingólfsstræti 5^