Morgunblaðið - 14.04.1940, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.04.1940, Blaðsíða 8
s Sunnudagur 14. aprfl 1340» ÓFRÍÐA STÚLKAN 30 „Klukkustund áSur en þjer fcoinuð var sent hingað umslag meS pen- ingum og þar vár sagt að þetta væri greiðsla fyrir stúLku sem kœmi í dag eða einhvern næstu daga i«.tíð meðmæli frá frú Ray- mo»d“. Jeg hristi höfuðið .„Jeg skil þetta alls ekki. Þetta hlýtur að vera á misskilningi bygt“. Herra Franoois kaliáði á aðal- vitnið í þessu máli, frú Thilisch. Hún endurtók ummæli Francois. Það hafði komið sendill með um- slag sem í voru 50 krónur. „Já, það er alveg rjett; það hafði fylgt brjef með til ungfrú- arinnar. Augnablik“, sagði frú Thilisch. Hún kom með lítið umslag, sem nafn mitt var skrifað á. Jeg reif brjefið upp. Á litlu korti stóð ef tirfarandi; „Enn einu sinni hjartanlega til hamingju. Blóm og konfekt er einskis virði á móti permanent- hárliðun. Kær kveðja frá C. P.“. .... Frá C. P. Jeg sat sem steini lostín með kortið, í hend- inni og rankaði ekki við mjer fyr en frú Thilisch mælti: „Snúið kortinu við, ungfrú; nafnið stend- ur prentað hinum megin á því“. Gáfuð kona þessi frú Thilisch. Jeg sneri kostinu við. C. P. var Claudio Pauls. Mjer vöknaði um augu. Svona var Cian góður! Þó að hann væri í sorg og hefði drukkið mikið af koníaki hugsaði hann um mig. Blóm og konfekt var einskisvirði. Clau gaf mjer permanentliðun í afmælisgjöf! Jeg bi'á ekki svip. Frú Thiliseh og Francois urðu bæði undrandi á svipinn. Það gat ekki verið, að þau hefðu lesið á kortið, því þau stóðu fjarri mjer á meðan jeg las það. „Það er alveg rjett; nú man jeg það“, sagði jeg eins kæruleysis- lega og mjer var unt. Klukkan var orðin rúmlega 7. Til allrar hamingju var laugar- dagur og hárgreiðslustofurnar voru opnar til 8. „Verðið þjer mikið lengur“, vog- aði jeg mjer að segja við Francois og hann sagði að það tæki tölu- verðan tíma í viðbót. Með hálfum huga bað jeg um að fá að síma og hinn strangi Francois leyfði að Efflir ANNEMARIE SELINKO jeg stæði upp í tvær mínútur og fylgdi mjer að símanum. Jeg hringdi heimj og sagði að jeg myndi koma seint til kv@ltl- verðar. „Það er verið að perma- nentliða hárið á mjer“, sagði jeg. Síðan flýtti jeg mjer að hringja af, kærði mig ekki um að heyra hverju Inga svaraði. Francois hjelt áfram með lista- verkið sitt. Jeg get ekki lýst því nákvæmlega, sem skeði þarna á hárgreiðslustofunni, en það skeði margt. Það var settur fjöldinn allur af pinnum í hár mitt og þeir voru allir í sambandi við raf- magn. Það var sjálfsagt verið að hlaða hár mitt rafmagni. Jeg sat með lokuð augu og beið þess þol- inmóð að þesSu yrði lokið. „Þetta er einskonar rafmagns- stóll“, sagði jeg við Francois er hann kom inn í herbergið, eftir að hafa látið mig vera eina um stund, Hann var altaf að koma og fara og í hvert skifti, sem hann kom inn, athugaði hann hvort alt væri í lagi . Á meðan verið var að perma- nentliða hár mitt hugsaði jeg um Claudio Pauls. Mjer flaug ekki eitt augnablik í hug að það væri neitt ljótt við það að taka á móti gjöf hans. Jeg hafði að vísu heyrt að fínar dömur hefðu það fyrir aðalreglu að taka ekki við öðr- um gjöfum en konfekti og blóm- um frá karlmönnum. Ef að svo stendur á, er einnig hægt að þigg-ja skartgripi. Jeg býst við að ákaflega fínar dömur myndu fitja upp á trýnið, ef karlmaður byðist til að gefa þeim permanenthár- liðun. En í fyrsta lagi var karl- maðurinn í þessu tilfelli Claudio Pauls og í öðru lagi var Claudio besti vinur minn. Jeg reyndi að gleyma atburðunum, sem skeð höfðu í litlu vínstofunni þenna sama dag. Reyndi.að gleyma hin- um ástsjíika Mopp, og Ijóshærðu og dökkhærðu kvenmönnunum. Og eínnig reyndi jeg að hugsa ekki um Claudio í galsaskapi hans. Jeg hugsaði um að hann hafði kyst mig, og að ef kossinn hefði lent á vörum mjer í staðinn fyrir á enni, þá hefði verið koníaksbragð að kossinum þeim. En nú fann jeg aðeins fyrir köldum vörum Clau- dios á enni mjer. Aðeins eitt augnablik að vísu, en það hlaut að vera yndisiegt að kyssa Claudio í al'vöru. Til allrar blessunar kom Fran- cois á því augnabliki, senf ekki hefði verið holt fyrir mig að hugsa nánar um þetta. Francois tók rafmagnsstrauminn af og brátt losnaði jeg við hjálminn. Það var hræðilegt að sjá mig. Höfuð mitt x^ar þakið litlum bylgjum, sem1 stóðu beint upp í loft. Jeg var eins og negri. En hárið var þvegið og bylgjunar voru lagðar í listafína lokka. Það var búið að greiða liár mitt samkvæmt nýjustu tísku. „Yndislegt“, sagði frú Thilisch, sem kom inn til þess að sjá hvað mjer liði. „Chik“, sagði herra Thilisch. Anton, nýi kunninginn minn, sagði alls ekki neitt, bara glápti á mig með opinn munninn. Það mátti nú segja, sú hafði tekið stakkaskiftum. Já, jeg hafði tekið stakkaskift- VJELSTJÓRI óskar eftir 2 herbergja íbúð í nýtísku húsi. Sími 4704. 2 HERBERGI OG ELDHÚS óskast 14. maí sem næst Mið- bænum eða í Vesturbænum. 2— 3 í heimili. Uppl. í síma 5726. um’. í spfiglinúto. var jeg ung og barnsleg að sjp. Tvö eyru gægð- ust undan lokkunum og það gladdi mig, að minsta kosti eitthvað af mjer var vel skapað. Og svo hafði jeg altaf falið það eina, sem var fallegt á mjex’, frá náttúrunnar hexxdi, nefnilega litlu eyrun! Framh. J£aup&&apuc Otsæðiskartöflur rá Hornafirði. Garðáburður. — Einnir ágætar valdar matar- kartöflur og gulrófur í heilum )okum og smásölu. Þorsteinsbúð Grundarstíg 12, sími 3247, — Hringbraut 61, sími 2803. TIL SÖLU TVEIR DÍVANAR 78 cm. Annar nýr. Hinn lítið notaður. Tækifærisverð. Uppl. í síma 5192. SÓLRlK fjögra herbergja íbúð til leigu. Jppl. Eiríksgötu 13, efst. SÓLRÍK 3 HERBERGJA íbúð til leigu, 14. maí. Uppl. í síma 2745. VINNUSTOFA fyrir listamann óskast 14. maí. Húsnæðismiðlarinn. Sími 5510. IÐNAÐARPLÁSS óskast. Tilboð „Góður staður“, isendist blaðinu. (rwfywri Maður nokkur, Olem Patts að nafni, braust inn til Clad- wells bónda, sem bjó nálægt Was- hington Village í Pennsylvaníu. Hann skaut bóndann og fjekk síðan húsfreyjunni byssuna og skipaði henni að skjóta sig. Frú Clad-vvell átti ekki annars úrkostar en að hlýða, því Patts ögraði henni með annari byssu. Frú Cladwell særðist, er hún reyndi að koma manni sínum til hjálpar, en samt gekk hún 11 kílómetra með 3 börn sín ung, til næsta bæjar, til að segja þessi tíðindi. ★ Jensen kom seint heim til sín. Því verður ekki mótmælt. Þegar hann hafði læðst inn í svefnher- bergið heyrði hann að yngsta barn- ið grjet, og til þess að sýna að hann væri svo sem í besta lagi fór hann að rugga vöggunni ró- lega, svo að hann vekti ekki kon- una sína. Eftir hálftíma — barnið hjelt áfram að gráta — sagði kona hansi, rólega: — Svona, góði minn, farðu nú að hátta. Barnið er hjer í rúminu hjá mjer! - ★ Rama V., sem einnig gekk und- ir nafninu Chulalongkorn konung- ur í Síam, átti 3000 eiginkonur og 370 börn — 134 syni og 236 dætxir. Hann Ijest 1910. ★ Loroaster, hinn frægi löggjafi Persa og upphafsmaður trúar þeirra, borðaði ekkert annað en ost í 50 ár. ★ í þrumuveðri í Lapleau í Frakk- landi sló eldingu niður í fjárhóp. Allar svörtu kindurnar í hópnum drápust, en þær hvítu sakaði ekki. BETANÍA Vitnisburða samkoma í kvöld kl. 8% og sambænir. Barna- samkoma kl. 3. HJÁLPRÆÐISHERINN Samkomur í dag: Kl. 11 og 8Y>. Adj. Kjæreng o. fl. — Mánudag kl. 8l/2. Minningar- samkoma Þórodds Bjarnasonar. ZION Barnasamkoma í dag kl. 2. Almenn samkoma kl. 8, Hafn. arfirði, Linnetstíg 2. Samkoma kl. 4. Allir velkomnir. FILADELFIA Samkoma kl. 4 á Óðinstorgi, ef veður leyfir. KI. 8y2 á Hverfisgötu 44. Eric Ericson og Jónas Jakobsson tala. FYRIRLESTUR í Aðventkirkjunni í kvöld kl. 8,30. Efni: ,,1940 og spádómar ritningarinnar.“ Allir velkomn- ir. O. J. Olsen. REIÐHESTUR GÓÐUR til sölu. Upplýsingar gefur Sig. Ólafsson, Akurgerði við Brá- vallagötu. FERMINGARKJÓLAEFNI taft og satin, nýkomið. Einnig hvítir sokkar. Verslunin Man- chester, Aðalstræti 6. KAUPUM FLÖSKUR stórar og smáar, whiskypela, hæsta verði. Nönnugötu 5, sími 3655. Sækjum. Opið allan dag- MYNDARLEG STÚLKA getur fengið atvinnu á sauma- stofu hálfan daginn. Upplýsing- ar á Suðurgötu 2. mn. ÞORSKALÝSI frá Laugavegs Apóteki kostar .ðeins kr. 1,35 heilflaskan. Við sendum. Sími 1616. DAGLEGA ýhaklcað kjöt, nýtt böglasmjör, tólg, rúllupylsa, kæfa. Kjötbúð- in Herðubreið, Hafnarstræti 4. Sími 1575. MEÐALAGLÖS og FLÖSKUR eypt daglega. — Við sækjum. Iringið í síma 1616. Laugavegs \pótek. DÖMUFRAKKAR ,valt fyrirliggjandi. Guðm. juðmundsson, klæðskeri. — íirkjuhvoli. GULRÓFUR seljum við í heilum 0g hálfuir pokum á kr. 6,50 og kr. 4,00 Sendum. Sími 1619. GLÆNÝR RAUÐMAGI daglega. Sendum um altan bæ. Símar 2761 og 5292. VEGGALMANÖK og mánaðarda.ga selur Slysa- varnafjelag Islands, Hafnar- húsinu. ÞÚSUNDIR vita að ævilöng gæfa fylgir trúlof- unarhringunum frá Sigurþór, Hafnarstræti 4. KAUPI GULL hæsta verði. Sigurþór, Hafnar- stræti 4. BESTA FERMINGARGJÖFIN er ryk og vatnsþjettu úrin (dömu og herra) frá Sigurþór, Hafnarstræti 4. ^jelaqslíf FERÐAFJELAG ÍSLANDS heldur skemtifund að Hótel Borg þriðjudagskvöldið 16» apríl. Húsið opnað kl. 8%. — Pálmi Hannesson rektor flytur erindi um Fjallabaksveg og sýn- ir skuggamyndir. Dansað tií kL 1. Aðgöngumiðar seldir í bóka- verslunum Sigfúsar Eymunds- sonar og Ssafoldarprentsmiðju á*. þriðjudaginn til kl. 6. I. O. G. T. ST. FRAMTÍÐIN NR. 173. Fundur í kvöld kl. 8Y2. - 1. Inntaka nýrra fjelaga. 2. Ýms mál. 3. Erindi: Árni Óla. 4. Upplestur. 5. Templarakórinn syngur. BARNAST. ÆSKAN NR. 1. Fundur í dag kl. 3l/2, skemti— egur eins og vant er. Sýnið skír— teini við innganginn. TÖKUM HREINGERNINGAR Vanir menn. Sími 5649. Tek að mjer HREINGERNINGAR Guðm. Hólm. Sími 5133. HREINGERNING í fullum gangi. Fagmenn að verki. Hinn eini rjetti Guðni G. Jgurdson, málari. Mánagötu 19. Sími 2729. HREINGERNINGAR Pantið í tíma. Guðni og Þrá- inn. Sími 5571. HREINGERNINGAR önnumst allar hreingemingar. Jón og Guðni. Símar 5572 og: 4967. OTTO B. ARNAR löggiltur útvarpsvirki, Hafnar- stræti 19. Sími 2799. Uppsetn- ing og viðgerðir á útvarpstækj— um og loftnetum. GERI VIÐ saumavjelar, skrár og allskonar* heimilisvjelar. H. Sandholt,. Klapparstíg 11. Sími 2635. REYKHÚS Harðfisksölunnar við ÞvergötuP. tekur kjöt, fisk og aðrar vörur til reykingar. Fyrsta flokks vinna. Sími 2978. ftapxið-fundið TVEIR KROSSAR á silfurfesti töpuðust fyrir" íokkru síðan. Skilist Leifsgötw 2, 1. hæð. Fundarlaun. HRAÐRITUNARSKÓLINN Get bætt við nemendum. — Helgi Tryggvason. Sími 3703.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.