Morgunblaðið - 04.05.1940, Page 7
Laugardagur 4. maí 1940.
MORGUN8LABI0
7
Djóðverjar fagna sigri
Dagbók
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. /
hvern einn frekar en annan í stríðránuneytinu, um það, sem gerst
hefði, til þess að fá hann framseldan á hinn pólitíska aftökupall,
þá gæti hann upplýst þessa menn um, að þeir færu villir vegar.
Ábyrgð á ákvörðunum stríðsstjórnarinnar hefði stríðsstjórnin öll,
ekki aðeins samkvæmt stjórnarskránni, heldur hefðu allar ákvarð
anir verið teknar með einróma samþykki.
Fregninni um að Bandamenn hefðu hörfað burtu
með lið sitt frá Noregi, hefir auðvitað verið fagnað sem
glæsilegum sigri í Þýskalandi.
I ftalíu birta blöðin fregnina undir fyrirsögnum eins og
t. d. „Bretar hafa verið reknir á flótta“ og fleirum í svip-
uðum dúr.
I Róm eru stjórnmálamenn og hermálafræðingar þeirrar
skoðunar, að ósigri Breta í Noregi megi vel líkja við Gallipoli-
ósigurinn í heimsstyrjöldinni, en telja þó, að hjer sje um enn
meiri ósigur að ræða, því að Gallipolileiðangurinn hafi ekki haft
sömu ógurlegu afleiðingar sem herförin til Noregs. Nú sje hvorki
meira nje minna í veði en sjálft öryggi Bretlands.
í Svíþjóð sæta Bretar harðri gagnrýni fyrir að hafa yfir-
gefið Norðmenn. Kom þessi gagnrýni fram í öllum Stokkhólms-
blöðunum í gær.
Vopnahlje?
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
ar um vopnahlje stæði yfir
milli Þjóðverja og Norðmanna.
í London var í gærkveldi birt
tilkynning frá breska hermála-
ráðuneytinu, þar sem segir, að
yfirhershöfðingi norska hersins
hafi verið fluttur til nýrra bæki
stöðva, en sje það rjett, að
einhverjir vopnahljessamningar
milli Þjóðverja og Norðmanna
standi yfir, þá fari þeir áreiðan-
lega ekki fram með hans sam-
þykki.
í Þýskandi og á Ítalíu hafa
verið birtar þráfaldlega síðustu
dagana frjettir um að Hákon
konungur og fjölskylda hans
væri flúin, og hefir ýmist verið
sagt að konungsfjölskyldan
hefði flúið til Svíþjóðar eða með
herskipi til Englands. Einnig hef
ir verið sagt, að ríkisstjórn
Nygaardsvolds væri flúin til Sví
þjóðar.
En hvorttveggja þessum
frjettum er afdráttarlaust mót-
! mælt í Noregi.
gMllllllliillllllllllllllllllllllllitllllllllimHHIIllillllHllliMlllllllllllll!!IIIIIIIHIIIIIIHllii!llllílll3iHÍIIM!llllHl:lliill!‘Ji!
| CARIOCA |
| Dansleikiir |
verður haldinn í Iðnó í kvöld.
EUjómsveit F. Weisshappels.
jj P|á§ikoff (Lárus íngólfsson) og |j
M Sveisteinn Kolan (Alfr. Andrj.s.) jj
syngja gamanvísur úr skopleiknum
„Stundum og stundum ekki“.
AðgöngumiSar á. A verða seldir í Iðnó frá kl. 4 |=
■ _ n 1 til 9 í dag; eftir þann tima S
Kr« P venjulegt verð.
SKEMTIKLÚBBURINN „CARIOCA“. jj
lilllllllllllllllllllllllllilll
Stmdnðmske ID-Barnaf lokkar
hefjast mánudaginn 6. þ. mán. Þátttakendur gefi sig fram
í dag og á mánudag kl. 9—11 og 2—4.'Upplýsingar í síma
Verkafólk.
Ráðningarstofa Landbúnaðar-
ins í Alþýðuhúsinu er opin
kl. 6—9 síðd. alla virka daga
nema laugardaga. Sími 1327.
Fjöldi ágætra vista á boð-
stólum.
HótelBorg
I
Allir salirnir
opnir i kwold
Nseturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12. Sími
2234.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Messur í Dómkirkjunni á morg-
un. Kl. 11, síra Friðrik Hallgríms-
son (ferming). Kl. 2, síra Bjarni
Jónsson (ferming). Kl. 2, barna-
guðsþjónusta í Bænhúsinu. (S. Á.
Gíslason cand. theol.).
Messað í Fríkirkjunni á morg-
un kl. 12 (ferming), síra Árni
Sigurðsson.
Engin Guðsþjónusta nje barna-
guðsþjónusta í Laugamesskóla á
morgun, vegna sýningar í skólan-
um.
Messað í Lágafellskirkju á morg
un kl. 12.45, síra Hálfdan Helga-
son.
Próf í hattasaum. Nýlega liafa
lokið prófi í hattasaum: Fanney
Ófeigsdóttir, Dagný Hansen, Mar-
grjet Jónsdóttir og Svava Helga-
dóttir.
Starfskráin, sem er besti tengi-
liður milli þeirra, sem selja vinnu
síua, og hinna, sem kaupa vilja,
birtist í bláðinu á Inörgun. Tekið
á móti nýjum auglýsingum í dag.
Gagnfræðaskólanum í Reykjavík
var sagt upp í gær. í skólann
voru innritaðir í vet-ur 282 nem-
endur, þar af voru 58 í 3. bekk,
86 í 2. bekk og 138 í 1. bekk. í
öllum bekkjum vorn nemendur
eins margir og hægt var að koma
fyrir. Undir gagnfræðapróf gengu
50 nemendur úr skólanum og einn
utanskóla. Hæstu einkunn við
gagnfræðapróf hlaup Kristján G.
Hákonarson frá Rauðkollsstöðum,
til heimilis að Suðurgötu 3, og
var einkunnin 8.71. IIr 2. bekk
fekk hæstu einkunn Andrjes And-
rjesson frá Neðra-Hálsi, 8.97; en
úr 1. bekkjum hafði hæstu eiu-
kunn Halldóra Sigurðardóttir frá
Dilksnesi, og var einkunn hennar
8.77. Nemendur 3. bekkjar fara
skemtiför í kvöld til ísafjarðar.
Verkamannafj elagið Hlíf í Hafn
arfirði hjelt kvöldskemtun L maí.
Varð það fjölmennasta 1. máí-
skemtun, sem haldin hefir verið
i Hafnarfirði og tókst í alla staði
hið besta. — Kratar revndu að
halda skemtun petta. sama kvöld í
Hafnarfirði, en urðu að slíta henni
kl. 1 vegna fámennis.
Víðavangshlaup Hafnarfjarðar
fer fram á morgun og hefst við
harnaskólann. F. II. stendur fyrir
hlaupinu.
Skerríiklúbburinn „Gömlu dans-
arnir“ heldur lokadansleik sinn í
kvöld í Alþýðuhúsinu.
Utvarpið í dag:
20.15 Leikrit: „Einkaritarinn",
eftir Dagfinn bónda (Soffía
Guðlaugsdóttir, Alda Möller,
Brynjólfur Jóhannesson).
21.20 Utþarpshljómsveitin: Göm-
ul danslög.
21.50 Frjettir.
22.00 Danslög.
Skfp
hleður í Leith til Reykja-
víkur þann 11.—13. þ. m.
4059 á sömu tímum.
SUNDHÖLL REÝKJAVÍKUR.
H.f. Elmskipaffelag
fslands.
HESSIAN
(fiskumbúðastrigi), enn fremur þjettari tegundir.
Saltpokar væntanlegir í lok mánaðarins.
Sími 3642. Heildverslun L. ANDERSEN, Hafnarhúsinu.
ILokuð verður I
Ljósmyndastofa min I
í dag, laiagardagftnn
4. mai.
Loftur Guðmundsson I
Ljósmyndaslofur bæjarins
werlla lokaöar fift kl. 11 dag
wegna farlftarfarar.
Skrifstofur okkar
eru lokaðar til hádegls
fi dag wegna farðarfarar.
N.f. Smjðrlíkisgerðin Smári.
Hjartkær konan mín og móðir okkar,
INGIBJÖRG GÍSLADÓTTIR,
andaðist að kvöldi 2. maí að heimili sínu, Öldugötu 57..
Kolbeinn ívarsson og böm..
Móðir mín,
GUÐBJÖRG PÁLSDÓTTIR,
frá ísafirði, andaðist 26. apríl.
Líkið verður flutt vestur til greftrunar.
Kveðjuathöfn fer fram frá Elliheimilinu Grund laugardag-
inn 4. maí kl. ^x/2.
Páll Hannesson.
Jarðarför
SIGFRÍÐAR GUNNLAUGSDÓTTUR
fer fram mánudaginn 6. .mjaí kl. 1 frá heimili hennar, Vestur-
götu 15.
Aðstandéndur.
Hjer með tilkynnist að jarðarför
JÓHANNS SÆMUNDSSONAR,
er andaðist að Vífilsstaðahæli 23. apríl, fer fram frá Dómkirkj-
unni mánudaginn 6. n?aí kl. 11 árd.
Vinir hins látna.
Jarðarför
BJARNA SÍMONARSONAR trjesmiðs