Morgunblaðið - 21.05.1940, Side 3
Þriðjudaginn 21. maí 1940*
M#RGUNBLAÍI9
3
Handrítasafn
Landsbóka-
safnsins verður
fiutt úr bænum
S dag verður handritasafn Lands-
bókasafnsins flutt úr bænum.
Tar verið að búa um það í gær í
einum 100 kössum. Fenginn er
tryggur geymslustaður fyrir það
mtanbæjar.
Hinn íslenski hluti bókasafns-
ins verður sennilega settur á
jtryggari stað en hann er nú, og
einnig mikið af þjóðskjalasafninu.
Þá er og unnið að því, að koma
dýrgripum Þjóðminjasafnsins í
sem öruggasta geymslu.
Sénnilega verður ekki um að
ræða að hafa Landsbókasafnið
opið, nema þá að litlu leyti, eftir
að þessar ráðstafanir hafa verið
gerðar.
Safnaðar-
fundurinn á
sunnudag
A Salsafnaðarfundur dóm-
-^^-kirkjusafnaðarins í Reykja-
vík var haldinn s.I. sunnudag
og var hann óvenjulega fjöl-
mennur.
Á fundinum lagði sóknar-
nefnd fram ýmsar skýrslur um
fjárhag safnaðarins og kirkju-
garðanna. Kosnir voru 9 full-
trúar og 12 til vara, til þess að
mæta á hinum almenna kirkju-
fundi í Reykjavík, 2.—4. júlí.
Þá voru rædd kirkjumál
Reykjavíkur. Síra Friðrik Hall-
grímsson flutti erindi um hin
nýju lög um afhending Dóm-
kirkjunnar í hendur safnaðar-
ins og skifting Reykjavíkur um
sóknir. Var það mál nokkuð
rætt, en vegna þess hve liðið var
á fundartímann, var umræð-
unni frestað, en ákveðið að
halda framhaldsfund mjög
fljótlega.
Með því að á fundinum gætti
nokkurs skoðanamunar um nýju
lögin og framkvæmd þeirra,
verður birt hjer í blaðinu erindi
síra Friðriks Hallgrímssonar,
svo að menn geti betur áttað
sig á málinu fyrir framhalds-
fundinn.
^ ^ ^ v
Launauppbót
starfsmanna
ríkisins
Lil jármálaráðuneytið liefir til-
kynt, að frá og með degin-
um í dag verði greidd launaupp-
bót á laun opinberra stárfsmanna
ríkisins, fyrir fyrstu 4 mánuði árs-
ins.
Beykjavíkur
I I
Fyrstu kappleikir
lótilB:
á sumrinu
Belgíukonung-
ur með herfor-
ingjum sinum
Valur vann Frara 4:0
Víkingur vann
K: R. 3:0
FYRSTU tveir knattspyrnukappleikir Reykja-
víkurmótsins fóru þannig, að Valur sigraði
Fram með 4 mörkum gegn 0 og Víkingur vann
K. R. með 3 mörkum gegn 0.
Á fyrri ieiknum, á sunnudaginn, milli Víkings og K. R. var
bráslagalegt veður og leiðinlegt til kepni. ÁhorfendUr voru þó um
2000 á vellinum. í gærkvöldi var
álíka margir.
Eftir leikinn á sunnudag freist-
aðist maður til að halda, að kapp-
leikirnir væru látnir bvrja of
jsnemma í ár vegna þess hve kapþ-
liðsmenn liafa baft lítinn tíma til
útiæfinga, en leikurinn í gær-
lcvöidi sýndi aftur á móti, að bæði
Valsmönnum og Framurum hefir
tekist að komast í ágæta æfingu.
Leikurinn í gærkvöldi var fjör-
lega leikinn á báða bóga og oft
bráðskemtilegur, sjerstaklega var
leikur Valsmanna góður. Þeir
hafa þá yfirþurði yfir hin fjelög-
in, að vera samstiltir og liðið alt
jafngott. í Valsliðinu er ekkert
„gat“ og hraðinn er með hesta
móti. Einstaka maður í liðinu á
til að vera hrekkjóttur, en sá á-
galli hefir þó minkað mikið frá
því sem var hjer áður fyr.
Vörnin er sami múrinn, sem
undanfarin ár, enda skipuð sömu
mönnum. Hermann er í ágætri
æfingu. Framarar flöskuðu á því
í gærkvöldi að spyrna stórum
hæðarboltum fram, en „loftvarn-
irnar“ hjá Val eru í svo góðu
lagi, að þeir verða ekki sigraðir
með slíkum árásum. Einasta
ráðið til að sigra Val er hárfínt
stutt samspil, en þá þurfa send-
ingarnar líka að vera nákvæmar.
í frafnlínu Vals voru Snorri og
Ellert ágætir.
Fram-liðið er götótt mjög, en
virðingarvert er það hjá Framur-
um, að þeir missa ekki kjarkinn
þó illa horfi, fjörið er óbilandi.
Fram á síðustu stundu gerðu þeir
stórhættuleg upphlaup að marki
Vals, þó engin von væri um sig-
ur. Það er ekki liægt annað en að
bera virðingu fyrir þeim íþrótta-
anda, sem kemur fram í þessu.
Markmaður Fram er ágætur, þó
ungur sje. Högni ög Sæmundur
yrðu taldir með bestu mönnum í
livaða liði seni' væri í hinum fje-
lögunum.
Valsmenn voru svo hepnir að
fá að kjósa mark og kusu þeir að
leika undan vindi og á nyrðra
markið, eða „betra markið“.
Framarar voru aftur á móti svo
óhepnir að setja fyrsta og einasta
markið í leiknum hjá sjálfum
sjer!
Hin þrjú mörkin gerðu Vals-
menn sjálfir, þar af setti Snorrí
tvö.
Dómari var Þorsteinn Einarsson
og dæmdi vel.
reðrið heldur betra og áhorfendur
Leikur Víkings og K. R.
Leikurinn milli K. R.. og Vík-
ings endaði með sigri Víkings, og
þó samleikur Víkinga. væri bfetri j
en K. R.-inga. hefðu þeir síðar-
nefndu verið vel að því komnir
að gera að miusta kosti eitt mark. 1
Annars má segja, að iirslitin hafi
verið rjettmæt.
Bæði lið vantaði útiæfingu, en
einstakir menn voru ágætir í báð-
um liðum.
Hjá Víkingum voru hestir:
Haukur Óskarsson, Þorsteinn Ól-
afsson, Brandur Brynjólfsson og
Edwald Berndsen markmaður. —
Björgvin Bjarnason, sem undan-
farin ár hefir leikið miðframherja,
ljek nú hægri útframherja og
virðist það vera hans staður. Hins
vegar var veikleiki liðsins vinstri
kanturinn og vantaði illa Ingólf
Isebarn, en hann var lasinn og
gat ekki leikið með.
t K. R. liðinu var Björgvin
Schram langbestur eins og und-
anfarið. En K. R. liðið var alt
imjög losaralegt og tókst aldrei
að ná neinu sjamspili. Einstaka
menn Ijeku altof mikið „sóló“ og
eyðilagði það allan leik.
Víkingar voru svo hepnir, að í
hlutkestinu kom upp þeirra hlut-
ur og kusu þeir að leika undan
vindi á nyrðra markið.
Lá allmikið á K. R. í fyrri liálf-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
L.v. Jarlinn
■ ■
skrúfuna
Línuveiðarínn Jarlinn, sem var
að koma frá Englandi, misti
skrúfuna, er skipið var statt milli
Vestmannaeyja og Reykjaness.
Togarinn Óli Garða frá Hafnar-
firði, sem einnig var á heimleið
frá Englandi, kom Jarlinum til
aðstoðar og kom með hann í eftir-
dragi hingað kl. 3 í nótt.
Leopold Belgíukonungur víð hátíðahöld í Brússel, ásamt æðstu her-
foringjum belgiska hersins.
B.v. Oli Garða bjarg-
ar breskum flugbát
Botnvörpungurinn Óli Garða frá Hafnarfirði bjarg-
aði enskum flugbát með 7 manna áhöfn, við vest-
urströnd Skotlands, í síðustu ferð sinni til Englands.
Flugbátnrínn hafði neyðst til að setjast á sjóinn vegna
vjelbilunar. Skipverjar á Óla Garða sáu flugeldaneyðar-
merki frá flugbátnum.
Töluverður sjór var og höfðu flugmennirnir hafst við á
sjónum í fjóra klukkutíma, er Óla Garða bar að.
Jón Stefánsson skipstjóri á Óla Garða sagði svo frá í
símtali við Mbl. í gærkvöldi, að flugmennimir hefðu verið
búnir að fá nóg af volkinu á sjónum og verið fegnir að kom-
ast til lands.
Óli Garða dró flugbátinn til Tiree Island við norðvestur-
strönd Skotlands.
Hefir þessi Englandsferð Óla Garða verið hin mesta
frægðarför, þar sem togarinn bjargaði fyrst lífi 7 manna og
dregur svo ósjálfbjarga skip til bafnar á heimleiðinni, en
frá því er sagt hjer á öðrnm stað í blaðinu.
§æn$ka fléltaskipilS
er fór hjeðan sokkið
f^au komu hingað tvö sænsk flutniugaskip stór, skömmu eftir
að innrásin var gerð í Danmörku og Noreg. Annað þeirra,
„Erik Frisell“ fjekk fyrirmæli um það frá eigendunum fyrir nokkr-
um dögum að leggja af stað hjeðan áleiðis til Englands.
í gær frjettist, að skipið hefði sokkið við Englandsströnd, en
allir skipverjar væru heilir á húfi. Ekki er vitað, hvort dufl hef-
ir grandað skipinu eða því veríð sökt.
Skip þetta var 7000 smálestir að stærð. Það kom liingað frá Suð-
ur-Ameríku og var á leið til Svíþjóðar, er siglingaleiðin lokaðist
þangað og skipið því leitaði liingað. Það var eign „Grángesberg“-fje-
lagsins. Yar það með fóðurkökum og annað kjamfóður innanborðs.