Morgunblaðið - 21.05.1940, Blaðsíða 7
Þriðjudaginn 21. maí 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Ræða Churchills
Þjóðverjar taka Laon
VÖT
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
jafnvel mánaða bardögum, þótt
um voldugan árásarher væri að
ræða.
Mætist herir Þjóðverja og
Frakka, maður gegn manni,
undir jöfnum kringumstæðum,
þá þurfum við ekki að óttast úr-
slitin.
Við verSum að varpa fyrir
borS þeirri hugmynd, að
aetla að sigra með því að
berjast á bak við steinsteypt
ar hindranir eða hindranir
frá náttúrunnar hendi. Það
sem við verðum að gera, er
áköf og hlífðarlaus árás.
Mr. Churchill sagði að aðeins
lítill hluti af franska hernum
hefði tekið þátt í bardögunum
fram til þessa og sýnt hinn
mesta vaskleika.
Hann sagði að þótt Þjóð-
verjar hefðu enn yfirburði um
flýtir, þá væri aðstaða Banda-
manna þrisvar til fjórum sinn-
um betri en hún var þegar
orustan byrjaði.
Breski flugherinn hefir gert
loftárásir á hernaðarlega mik-
ilvæga staði í Þýskalandi og
sjerstaklega unnið tjón á olíu-
vinsluverksmiðjum Þjóðverja.
TIL ENGLANDS
Síðan sagði Mr. Churchill:
Strax og meiri stöðugleiki er
kominn á vestur-vígstöðvunum,
mun meginhlutinn af liði því
sem óð yíir Holland, verða
sendur gegn voru landi. En
við erum tilbúnir að taka á
móti þeim. Eftir orustuna í
iFrakklandi, mun koma orustan
um vort land.
Mr. Churchill sagði að al-
menningur í Englandi myndi
taka þv| gel,: að verða sjálfur
að líða þær hörmungar, sem
nú gengju yfir bandamenn
þeirra í Frakklandi. En til þess
að bera sigur úr býtum, verð-
um við að leggja fram hverja
únzu og hvern þumlung af
.getu okkar. Við verðum að
framleiða fleiri flugvjelar, fleiri
fallbyssur, fleiri fallbyssukúlur.
Jeg hefi fengið ótvíræð svör
um það frá forsætisráðherra
Frakka, hinum óbeigjandi Reyn
aud, að franska þjóðin væri
staðráðin í að berjast þar til
yfir lyki, ,,hvort sem endirinn
^verður bitur eða glæsilegur, nei,
hann getur ekki orðið annað en
glæsilegur", sagði Churchill.
fýrir þá undirokuðu
Frakkar og Bretar munu
berjast hlið við hlið íyrir allar
þjóðir gegn þeirri ógurlegustu
harðstjórn og harðýðgi, sem
sögur fara af. Ef við ekki berð
umst nú, eins og við gerum,
þá væri enginn ljósgeisli til
fyrir þær þjóðir, sem undirok-
aðar hafa verið, enginn vonar-
neisti fyrir þær, sem hið svarta
myrkur kúgunarinnar hefir
þyrmt yfir.
Á bak við okkur, á bak við
bandamenn okkar, stendur röð
af tvístruðum þjóðum, Tjekkar,
Pólverjar, Norðmenn, Danir og
Hollendingar, sem eiga ekki
von neinnar björgunar „nema
að við sigrum, eins og sigra við
munum, eins og sigra við skul-
um“.
FRAMH. AF ANNARI Sfi)U.
í breskum fregnum segir að orusturnar á þessum slóðum
í gær, hafi verið mjög ruglingslegar og að ekki væri um neina
samanhangandi víglínu að ræða. Brynvagnasveitir Frakka og
Þjóðverja hefðu oft barist að baki víglínu hvors annars.
TIL PARÍS.
En þótt höfuðathyglin beinist að orustunni hjá
Somme, sem þannig er að hef jast, þá vekur sókn þýskrar
herdeildar, sem sækir nokkuð sunnar, allmikinn kvíða,
þar sem hún stefnir til París. Þessi hersveit náði Laon á
sitt vald í gær, um 100 km. frá París.
I aukatilkynningu, sem þýska hérstjórnin gaf út í gærkvöldi,
segir að Laon hafi verið tekin í áhlaupi, og að þýsku hersveitirnar,
sem sækja þarna fram, sjeu nú komnar að skurðinum milli Oise og
Aisne, í suðvestur frá Laon.
Á þriðju vígstöðvunum í Norður-Frakklandi, hjá Montmedy, virð
ist Þjóðverjuin hinsvegar ekki hafa orðið ágengt, þrátt fyrir látlaus
áhlaup. Öllum þessum áhlaupum hefir verið hrundið, segir í hernað-
artilkynningu Frakka í gær.
Það er þó viðurkent, að í fyrradag hafi Þjóðverjar þó náð einu
virkinu í hinni raunverulegu Maginotlínu hjá Montmedy á sitt vald.
Dagbók
I.O.O.F. = O.b. l.P. = 1225218l/4
Næturlæknir er í nótt Eyþór
Gunnarsson, Laugaveg 98. — Sími
2111. '
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Hjónaband. Gefin voru saman
í hjónaband 11. maí Ásta Vigfús-
dóttir og Hreiðar G'uðnason. —
Heimili þeirra er á Túngötu 18,
Siglufirði.
Hjúskapur. Hinn 18. þ. mán.
voru gefin saman í hjónaband a£
síra Jóni Auðuns Grjeta Líndal
(dóttir Björns Líndals á Sval-
barði) og Guðmundur Árnason
bókhaldari í Rafha, Hafnarfirði.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Þór-
dís Sigurðardóttir frá Patreksfirði
og Bjarni Sveinsson múrari í
Hafnarfirði.
Hjónaefni. í gær opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Asta Lárus-
dóttir, Leifsgötu 25 og Hans P.
Christiansen yfirumboðsmaður, Ás-
vallagötu 5.
Fulltrúaráðsfundur Sjálfstæðis-
fjelaganna verður í kvöld kl. 8V2
á venjulegum stað. — Ölafur
Thors atvinnumálaráðherra talar.
— Reglugerð fulltrúaráðsins (síð-
ari umræða). — Undirbúningur
aðalfundar Varðarfjelagsins. Full-
trúarnir eru ámintir um að mæta
stundvíslega.
Skátablaðið kemur út í dag. í
j blaðinu eru m. a. greinar um loft-
, varnir, sem almenningur mun
hafa gagn af að lesa og kynna
sjer. Greinar þessar eru um æf-
ingar þær, sem skátar ei'u látnir
gera til að undirbúa sig undir
að veita aðstoð ef til loftárása
kemur.
Revýan Forðum í Flosaporti
verður sýnd annað kvöld kl. 8V2
(ekki kl. 8 eins og venjulega).
IJefir leikurinn nú verið endur-
bættur á ýmsan hátt. Nýjar vís-
ur sitngnar um atburði dagsins.
Verða þær sungnar af þeim Al-
freð Andrjessyni og Ævari Kvar-
an. Aulc þess mikið af nýjum
bröndurum.
Nokkrar prentvillur voru í
grein Jakobs Kristinssonar um
tímaritið Jörð, sem birtist hjer í
blaðinu 18. þ. m. Þessar voru
helstar,- „besti vegsauki“ fyrir:
besti vegsagnari • „þróttmikil og
kjarkmikil“ f.: þróttmikil og
kjarnyrt.
Tvær leiðinlegar prentvillur
hafa slæðst inn í „Kvæði um vor-
ið1* eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson, sem
birtist í seinustu Lesbók. í
fjórðu ljóðlínu þriðja erindis
stendur: brakandi ilmur, en á að
vera: barkandi ilmur. — í fyrstu
ljóðlínu fimta erindis stendur:
kjólsælu lautunum, en á að vera
skjólsælu lautunum.
Póstferðir á morgun. Frá Rvík:
Mosfellssveitar, Kjalarn., Reykja-
ness, Ölfuss og Flóapóstar, Laug-
arvatn, Hafnarfjörður, Álftanes-
póstur, Laxfoss til Vestmanna-
eyja, Akranes. Til Rvíkur: Mos-
fellssveitar, Kjalarness, Revkjíni.,
Ölfuss og Flóapóstar, Hafnarfj.,
Akranes.
Gengið í gær:
Sterlingspund 21.16
100 Dollarar 651.65
— Ríkismörk 260.76
— Fr. frankar 11.99
— Sv. frankar 139.45
Utvarpið í dag:
j 12.Ö0—13.00 Hádegisútvarp.
19.30 Hljómplötur: Söngvar úr
tónfilmum.
, 20.00 Frjettir.
i 20.25 Erindi: Frímerkið 100 ára
(Magnús Jachúinssón póstfull-
trúi).
20.50 Tónleikar Tónlistarfjelags-
ins. Einleikur á píanó (Árni
Kristjánsson) ; t) Bach-Liszt:
Prelúdía og fúga í a-moll. b)
Bach: Sicilienne. c) Bach-Rach-
lew: Passacaglia.
21.10 Hljómplötur: Fiðlukonsert í
d-moll, eftir Paganini.
21.45 Frjettir.
Silki
ísgarn
Bómull.
Dömu
Herra
Barna
; v^^MÍÍl
Versl. Fram
Klapparstíg.
Morgunblaðið með
morgunkaffinu.
Sjálfstæðiskvennafjelagið heldur fund í Oddfellówhúsinu miðvikud.
22. maí kl. 8i/2 e. h. -DAGSKRÁ: ^ -
1. Fjelagsmál. — 2. Ungar stúlkur skemta, sem verður mjög
gaman að hlusta á. — 3. Skuggamyndir úr Öræfum og Lóni.
Kaffidrykkja. — Einnig verður dansað.
Fjelagskonur fjölmennið og takið með ykkur gesti.
STJÓRNIN.
Tvær ferðir á dag
kvölds og morgna, austur og að austan.
Eyrarbakbi og Stokbseyri
Sfeindér. Sími 1580.
BEST AÐ AUGLYSA 1 MORGUNBLADINU.
Skiifstotum vorum og vfirugeymsluhúsi
veibuE lokað I dag frá
kl. 12-4 vegna jarðarfarav.
r
Afengisverslun rikisims.
Móðir mín
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR
andaðist að kvöldi 20. þ. m. að heimili mínu, Hólum við
Kleppsveg.
Jens Bjamason.
Hjer með tilkynnist, að
CAMILLA HOWARD (fædd Sturludóttir)
andaðist þ. 14. þ. m. í London.
F. h. fjarstaddrar systur
Rannveig Jónatansdóttir.
Jarðarför
MÓRITZ V. ÓLAFSSONAR
verslunarmanns
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 22. maí kl. iy2 e. h.
Aðstandendur.
Sonur okkar og bróðir
FRIÐRIK REYKJALÍN BJÖRNSSON,
Freyjugötu 15, andaðist aðfaranótt 19. þ mán. Jarðarförin
ákveðin n.k. laugardag kl. 1 frá dómkirkjunni og hefst með
bæn að Hverfisðötu 16 A. Jarðað yerður í Fossvogi.
Ólöf María Sigurvaldadóttir. Bjöm Friðriksson.
Hallfríður Björnsdóttir.
Faðir okkar og tengdafaðir
MAGNÚS ÓLAFSSON
frá Grindavík, sem andaðist 14. þ. m., verður jarðsunginn frá
heimili sínu, Nönnugötu 1, Hafnarfirði, fimtudaginn 23. þ. m.
kl. 1.30 e. h.
Börn og tengdabörn.
Útför mannsins míns og föður
BJÖRNS ÞORSTEINSSONAR
fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði n.k. miðvikudag og
hefst með húskveðju að heimili hans, Langeyrarveg 9, kl. iy2.
Pálína Þórðardóttir. Þorsteinn Björnsson.