Morgunblaðið - 21.05.1940, Side 7

Morgunblaðið - 21.05.1940, Side 7
Þriðjudaginn 21. maí 1940. MORGUNBLAÐIÐ 3 Ræða Churchills Þjóðverjar taka Laon VÖT FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. jafnvel mánaða bardögum, þótt um voldugan árásarher væri að ræða. Mætist herir Þjóðverja og Frakka, maður gegn manni, undir jöfnum kringumstæðum, þá þurfum við ekki að óttast úr- slitin. Við verSum að varpa fyrir borS þeirri hugmynd, að aetla að sigra með því að berjast á bak við steinsteypt ar hindranir eða hindranir frá náttúrunnar hendi. Það sem við verðum að gera, er áköf og hlífðarlaus árás. Mr. Churchill sagði að aðeins lítill hluti af franska hernum hefði tekið þátt í bardögunum fram til þessa og sýnt hinn mesta vaskleika. Hann sagði að þótt Þjóð- verjar hefðu enn yfirburði um flýtir, þá væri aðstaða Banda- manna þrisvar til fjórum sinn- um betri en hún var þegar orustan byrjaði. Breski flugherinn hefir gert loftárásir á hernaðarlega mik- ilvæga staði í Þýskalandi og sjerstaklega unnið tjón á olíu- vinsluverksmiðjum Þjóðverja. TIL ENGLANDS Síðan sagði Mr. Churchill: Strax og meiri stöðugleiki er kominn á vestur-vígstöðvunum, mun meginhlutinn af liði því sem óð yíir Holland, verða sendur gegn voru landi. En við erum tilbúnir að taka á móti þeim. Eftir orustuna í iFrakklandi, mun koma orustan um vort land. Mr. Churchill sagði að al- menningur í Englandi myndi taka þv| gel,: að verða sjálfur að líða þær hörmungar, sem nú gengju yfir bandamenn þeirra í Frakklandi. En til þess að bera sigur úr býtum, verð- um við að leggja fram hverja únzu og hvern þumlung af .getu okkar. Við verðum að framleiða fleiri flugvjelar, fleiri fallbyssur, fleiri fallbyssukúlur. Jeg hefi fengið ótvíræð svör um það frá forsætisráðherra Frakka, hinum óbeigjandi Reyn aud, að franska þjóðin væri staðráðin í að berjast þar til yfir lyki, ,,hvort sem endirinn ^verður bitur eða glæsilegur, nei, hann getur ekki orðið annað en glæsilegur", sagði Churchill. fýrir þá undirokuðu Frakkar og Bretar munu berjast hlið við hlið íyrir allar þjóðir gegn þeirri ógurlegustu harðstjórn og harðýðgi, sem sögur fara af. Ef við ekki berð umst nú, eins og við gerum, þá væri enginn ljósgeisli til fyrir þær þjóðir, sem undirok- aðar hafa verið, enginn vonar- neisti fyrir þær, sem hið svarta myrkur kúgunarinnar hefir þyrmt yfir. Á bak við okkur, á bak við bandamenn okkar, stendur röð af tvístruðum þjóðum, Tjekkar, Pólverjar, Norðmenn, Danir og Hollendingar, sem eiga ekki von neinnar björgunar „nema að við sigrum, eins og sigra við munum, eins og sigra við skul- um“. FRAMH. AF ANNARI Sfi)U. í breskum fregnum segir að orusturnar á þessum slóðum í gær, hafi verið mjög ruglingslegar og að ekki væri um neina samanhangandi víglínu að ræða. Brynvagnasveitir Frakka og Þjóðverja hefðu oft barist að baki víglínu hvors annars. TIL PARÍS. En þótt höfuðathyglin beinist að orustunni hjá Somme, sem þannig er að hef jast, þá vekur sókn þýskrar herdeildar, sem sækir nokkuð sunnar, allmikinn kvíða, þar sem hún stefnir til París. Þessi hersveit náði Laon á sitt vald í gær, um 100 km. frá París. I aukatilkynningu, sem þýska hérstjórnin gaf út í gærkvöldi, segir að Laon hafi verið tekin í áhlaupi, og að þýsku hersveitirnar, sem sækja þarna fram, sjeu nú komnar að skurðinum milli Oise og Aisne, í suðvestur frá Laon. Á þriðju vígstöðvunum í Norður-Frakklandi, hjá Montmedy, virð ist Þjóðverjuin hinsvegar ekki hafa orðið ágengt, þrátt fyrir látlaus áhlaup. Öllum þessum áhlaupum hefir verið hrundið, segir í hernað- artilkynningu Frakka í gær. Það er þó viðurkent, að í fyrradag hafi Þjóðverjar þó náð einu virkinu í hinni raunverulegu Maginotlínu hjá Montmedy á sitt vald. Dagbók I.O.O.F. = O.b. l.P. = 1225218l/4 Næturlæknir er í nótt Eyþór Gunnarsson, Laugaveg 98. — Sími 2111. ' Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. Hjónaband. Gefin voru saman í hjónaband 11. maí Ásta Vigfús- dóttir og Hreiðar G'uðnason. — Heimili þeirra er á Túngötu 18, Siglufirði. Hjúskapur. Hinn 18. þ. mán. voru gefin saman í hjónaband a£ síra Jóni Auðuns Grjeta Líndal (dóttir Björns Líndals á Sval- barði) og Guðmundur Árnason bókhaldari í Rafha, Hafnarfirði. Hjónaefni. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sína ungfrú Þór- dís Sigurðardóttir frá Patreksfirði og Bjarni Sveinsson múrari í Hafnarfirði. Hjónaefni. í gær opinberuðu trúlofun sína ungfrú Asta Lárus- dóttir, Leifsgötu 25 og Hans P. Christiansen yfirumboðsmaður, Ás- vallagötu 5. Fulltrúaráðsfundur Sjálfstæðis- fjelaganna verður í kvöld kl. 8V2 á venjulegum stað. — Ölafur Thors atvinnumálaráðherra talar. — Reglugerð fulltrúaráðsins (síð- ari umræða). — Undirbúningur aðalfundar Varðarfjelagsins. Full- trúarnir eru ámintir um að mæta stundvíslega. Skátablaðið kemur út í dag. í j blaðinu eru m. a. greinar um loft- , varnir, sem almenningur mun hafa gagn af að lesa og kynna sjer. Greinar þessar eru um æf- ingar þær, sem skátar ei'u látnir gera til að undirbúa sig undir að veita aðstoð ef til loftárása kemur. Revýan Forðum í Flosaporti verður sýnd annað kvöld kl. 8V2 (ekki kl. 8 eins og venjulega). IJefir leikurinn nú verið endur- bættur á ýmsan hátt. Nýjar vís- ur sitngnar um atburði dagsins. Verða þær sungnar af þeim Al- freð Andrjessyni og Ævari Kvar- an. Aulc þess mikið af nýjum bröndurum. Nokkrar prentvillur voru í grein Jakobs Kristinssonar um tímaritið Jörð, sem birtist hjer í blaðinu 18. þ. m. Þessar voru helstar,- „besti vegsauki“ fyrir: besti vegsagnari • „þróttmikil og kjarkmikil“ f.: þróttmikil og kjarnyrt. Tvær leiðinlegar prentvillur hafa slæðst inn í „Kvæði um vor- ið1* eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson, sem birtist í seinustu Lesbók. í fjórðu ljóðlínu þriðja erindis stendur: brakandi ilmur, en á að vera: barkandi ilmur. — í fyrstu ljóðlínu fimta erindis stendur: kjólsælu lautunum, en á að vera skjólsælu lautunum. Póstferðir á morgun. Frá Rvík: Mosfellssveitar, Kjalarn., Reykja- ness, Ölfuss og Flóapóstar, Laug- arvatn, Hafnarfjörður, Álftanes- póstur, Laxfoss til Vestmanna- eyja, Akranes. Til Rvíkur: Mos- fellssveitar, Kjalarness, Revkjíni., Ölfuss og Flóapóstar, Hafnarfj., Akranes. Gengið í gær: Sterlingspund 21.16 100 Dollarar 651.65 — Ríkismörk 260.76 — Fr. frankar 11.99 — Sv. frankar 139.45 Utvarpið í dag: j 12.Ö0—13.00 Hádegisútvarp. 19.30 Hljómplötur: Söngvar úr tónfilmum. , 20.00 Frjettir. i 20.25 Erindi: Frímerkið 100 ára (Magnús Jachúinssón póstfull- trúi). 20.50 Tónleikar Tónlistarfjelags- ins. Einleikur á píanó (Árni Kristjánsson) ; t) Bach-Liszt: Prelúdía og fúga í a-moll. b) Bach: Sicilienne. c) Bach-Rach- lew: Passacaglia. 21.10 Hljómplötur: Fiðlukonsert í d-moll, eftir Paganini. 21.45 Frjettir. Silki ísgarn Bómull. Dömu Herra Barna ; v^^MÍÍl Versl. Fram Klapparstíg. Morgunblaðið með morgunkaffinu. Sjálfstæðiskvennafjelagið heldur fund í Oddfellówhúsinu miðvikud. 22. maí kl. 8i/2 e. h. -DAGSKRÁ: ^ - 1. Fjelagsmál. — 2. Ungar stúlkur skemta, sem verður mjög gaman að hlusta á. — 3. Skuggamyndir úr Öræfum og Lóni. Kaffidrykkja. — Einnig verður dansað. Fjelagskonur fjölmennið og takið með ykkur gesti. STJÓRNIN. Tvær ferðir á dag kvölds og morgna, austur og að austan. Eyrarbakbi og Stokbseyri Sfeindér. Sími 1580. BEST AÐ AUGLYSA 1 MORGUNBLADINU. Skiifstotum vorum og vfirugeymsluhúsi veibuE lokað I dag frá kl. 12-4 vegna jarðarfarav. r Afengisverslun rikisims. Móðir mín SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR andaðist að kvöldi 20. þ. m. að heimili mínu, Hólum við Kleppsveg. Jens Bjamason. Hjer með tilkynnist, að CAMILLA HOWARD (fædd Sturludóttir) andaðist þ. 14. þ. m. í London. F. h. fjarstaddrar systur Rannveig Jónatansdóttir. Jarðarför MÓRITZ V. ÓLAFSSONAR verslunarmanns fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 22. maí kl. iy2 e. h. Aðstandendur. Sonur okkar og bróðir FRIÐRIK REYKJALÍN BJÖRNSSON, Freyjugötu 15, andaðist aðfaranótt 19. þ mán. Jarðarförin ákveðin n.k. laugardag kl. 1 frá dómkirkjunni og hefst með bæn að Hverfisðötu 16 A. Jarðað yerður í Fossvogi. Ólöf María Sigurvaldadóttir. Bjöm Friðriksson. Hallfríður Björnsdóttir. Faðir okkar og tengdafaðir MAGNÚS ÓLAFSSON frá Grindavík, sem andaðist 14. þ. m., verður jarðsunginn frá heimili sínu, Nönnugötu 1, Hafnarfirði, fimtudaginn 23. þ. m. kl. 1.30 e. h. Börn og tengdabörn. Útför mannsins míns og föður BJÖRNS ÞORSTEINSSONAR fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði n.k. miðvikudag og hefst með húskveðju að heimili hans, Langeyrarveg 9, kl. iy2. Pálína Þórðardóttir. Þorsteinn Björnsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.