Morgunblaðið - 26.05.1940, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 26. maí 1940..
Agætur árangur af
sundviku Blaða-
mannaf j elagsins
SUNDVIKU Blaðamannafjelagsins lauk í gær og
voru bæði nemendur og kennarar sammála um
að betri árangur hefði náðst á þessu námskeiði
en hægt var að gera sjer vonir um, á ekki lengri tíma.
Á fimta hundrað manns tóku. þátt í námskeiðinu. Nokkrir,
sem höfðu látið skrá sig gengu úr á síðustu stundu. Samstarf
kennaranna og nemenda var með ágætum. Hafa sundkennar-
arnir, ungfrú Sigríður Sigurjónsdóttir og Jón Pálsson sýnt frá-
baBran dugnað og áhuga fyrir starfi sínu.
Kennararnir sögðu mjer, að
best hafi verið að kenna ung-
lingum á aldrinum 10—14 ára
og hafi þessum aldursflokki
miðað einna lengst áfram í sun-
kunnáttu.
Allir, sem byrjuðu námskeið-
ið ósyndir, kunna nú sundtökin
á landi og margir geta fleytt
sjer og kunna til fullnustu fót-
tökin í vatninu. Allir hafa van-
ist vatninu og fengið nausyn-
legustu undirstöðu undir frek-
ara nám.
SKRIÐSUNDIÐ
í skriðsundi hefir náðst ágæt-
ur árangur. í flokki, sem 1 voru
í syntu 8 í gærmorgun 25 m.
skriðsund. Enginn þeirra kunni
nema bringusund í byrjun nám-
skeiðsins.
Nú er um að gera fyrír þá,
sem byrjað hafa á þessu nám-
skeiði að hætta nú ekki, heldur
halda áfram sundnáminu og
sundiðkunum.
Sundhöllin hefir sent öllum
þáttakendum námskeiðsins eft-
irfarandi brjef:
BRJEF SUNDHALLAR.
FORSTJÓRANS
Kæri sundnemandi.
Nú hafið þjer, sem þátttakandi í
wSundviku Blaðamannaf jelagsins“ ,
lært undirsteðuatriði sundíþróttar-
innar og fengið tækifæri til að venj-
ast því að vera í vatni, allflestir
kunna orðið mjög vel við sig í því.
. En sundíþróttin er list, sem ekki er
hægt að tileinka sjer fyrirhafnarlaust,
; það þarf æfingu og áhuga til að ná
góðum árangri.
Vjer viljum leyfa oss, nú þegar
námskeiði þessu er lokið, að ráð-
leggja yður að hætta nú ekki, þó þjer
hafið náð góðum árangri á „S'und-
tyikunni“ — heldur halda áfram að
æfa og iðka sundíþróttina. Óhætt er
að segja að námskeið þetta hafi tekist
ágætlega, framar öllum vonum, og
hefír veríð ánægjulegt að sjá þann
. mikla áhuga er þáttakendgr hafa sýnt.
Að sjálfsögðu verður það ávalt mis-
jafnt hvað fólk þarf mikla tilsögn í
sundi.
Almenn sundnámskeið standa yfir
árið um kring í Sundhöllinni, og er
hægt að taka þátt í þeim um lengri
eða skemri tíma, þá hefir sú nýbreytni
verið tekin upp, að hafa sundkennara
til leiðbeininga á fimtudagskvöldum
kl. 8—9, fyrir þá baðgesti er þess
óska, og er sú kensla ókeypis. Þetta
hefir orðið mjög svo vinsælt hjá bæj-
arbúum.
Vafalaust hafið þjer nú, kæri sund-
nemandi fundið hve hressandi og á-
nægjuleg sundíþróttin er. Væri oss)
kær að sjá yður sem oftast í Sund- j
höllinni. Munið að það mun veita yð- j
ur aukið öryggi, er einhver hin besta .
heilsuvemd sem völ er á og mun gefa
yður margar ánægjustundir, ef þjer
kunnið og iðkið sundíþróttina.
Vinsamlegast,
Forstjóri Sundhallarinnar.
Ath. Upplýsnigar um sundkenslu
fást alla virka daga kl. 9—11 f. h. og
2—4 e. h. á skrifstófu Sundhallarinn-
ar, sími 4059.
Kornræktin
FRAMH. AF ÞRIÐJTT 3ÍÐU
um o. fl. einærum belgjurtum,
sem ætlað er að undirbúa sand-
inn fyrir komandi grasfrærækt,
kornyrkju og kartöflurækt. —
Ennfremur er þarna sáð smára-
fræblöndu og venjulegri gras-
fræblöndu í nýunninn sandinn.
Er ætlast til, að forræktun belg-
jurtategundanna geti næsta ár
haft hagkvæm áhrif á þessa
tvenskonar túnrækt, er sáð verð-
ur næsta ár.
STÓRFELD AUKNING
KORNRÆKTAR
— Hvað búist þjer við, að
kornrsektin verði mikil í ár?
— Frá Sámsstöðum hafa alls
verið seld 8 tonn af byggi og
höfrum til þroskunar, um 3
tonn frá Birtingaholti, og vitað
er að selt hefir verið útsæði
frá Kauf í Eyjafirði og rækt-
unarstöð Ræktunarf jelags Norð
urlands. Hefir aldrei verið sáð
jafnmiklu korni, síðan þessar
tilraunir hófust. Jeg geri ráð
fyrir, sem Klemens að lokum,
að útsæði það, sem sáð var nú í
vor á öllu landinu sje um 25
tonn; í fyrra var sáð um 12—15
tonnum.
Vestur-Islending-
um fagnað
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
er flutti kvæði, er hún hafði verið
beði)i að flytja til Sófóniasar Þor-
kelssonar, Árni Eylands, Jónas
Þorbergsson,. Arni Pálsson, er m.
a. lýsti heimsókn sinni vestra
1930 og dálæti sínú á Vestur-ís-
lendingum og ættjarðarást þeirra,
Steingrímur Arason og Magnús
Torfason.
Veislan stóð fram til kl. 4 e. h.
Þýsk yfirvöld í Noregi hafa nú
leyft, að norskir flóttamenn, sem
fóru til Svíþjóðar, komi aftur
heim til Noregs. Mun hjer vera
um að ræða 2500 manns.
Landsbókasafnið
á nú 147.835
bækur
T) itaukaskrá Landsbókasafns-
ins 1939 er nýkomin út.
Skráin tekur yfir ritauka
safnsins 1939 og er henni hag-
að eins og áður. Við árslok var
bókaeign safnsins 147,835 bindi
og 9106 handrit.
Af prentuðum bókum hefir
safnið á árinu eignast 2122
bindi, þar af auk skylduein-
taka, 81 gefins.
Stærstur gefandi hefir hr.
forlagsbóksali dr. Ejner Munks
gaard verið.
Handritasafnið hefir aukist
um 32 bindi. Gefendur eru:
Árni Þorvaldsson Mentaskóla-
kennari, Akureyri (2 bindi),
börn Páls Árdals, skálds (4),
Elín Þorsteinsdóttir, Vestmanna
eyjum (1). Háskóli íslands (1),
Sigfús Sigmundsson kennari (2),
cand. theol. Sigurbjarni Á.
Gíslason (4 bindi).
Votlorð —
og skýrlng
17 rá Carl Finsen forstjóra
hefir Morgunblaðinu bor.
ist eftirfarandi, til birtingar:
Að gefnu tilefni skal það
tekið fram, að Carl Finsen, for-
stjóri firmans Trolle & Rothe
hefir gegnt starfi sínu sem sett-
ur framkvæmdastjóri, Sam-
ábyrgðar íslands á fiskiskipum,
með nákvæmni og samvisku
semi og hefir ekkert verið út
á starf hans að setja, enda hef-<
ur hann verið ráðinnáfram sjer.
fræðingur stofnunarinnar í
tryggingarmálum.
Atvinnu- og samgöngumálaráðu
neytið, 24. maí 1940. v
Ólafur Thors.
★
Morgunblaðið átti tal við Ól-
af Thors atvinnumálaráðherra
og spurði hvort hann hefði
nokkru við þetta, að bæta.
—• Nei, engu sjerstöku, svar-
aði ráðherrann. Mjer er ánægja
að láta hr. Carl Finsen í tje
þetta vottorð. |Jeg tel hann í alla
staði hæfan til að gegna for-
stjórastarfinu í Samábyrgðinni,
sakir kunnáttu og starfshæfni.
En ástæðan, að jeg veitti hon.
um samt ekki starfið var sú, að
hann er framkvæmdastjóri fyr-
ir öðru vátryggingarfjelagi, er
jeg tel ekki samrýmast þessu
starfi. Sama ástæða mun hafa
valdið því, að fyrirrennarar
mínir tveir, veittu honum ekki
starfið.
Sláturfjelag' Suðurlands. Það
var misskilningur, sem sagt var
í blaðinu í gær, að aðalfundur Sf.
SI. hafi verið haldinn þessa dag-
ana. Ákvörðunin um uppbótina á
gærur Og kjöt var fyrir nokkru
tekin á stjórnarfundi Sf. Sl. og
uppbótin útborguð á deildarfull-
trúafundi, sem haldinn var við
Olfusá s.I. fimtudag.
Gengið í gær:
Sterlingspund 20.77
100 Dollarar 651.65
— Ríkismörk 260.76
— Franskir frankar 11.76
— Svissn. frankar 145.97
Fímttigttr á morgan
Eínar Jónsson,
magíster
Einar Jónsson magister á fim-
tugsafmæli á morgun. Hann
er einn af þeim mönnum, sem
jafnan láta Htið yfir sjer, en þar
sem hann er, þar er hann altaf
heill og sannur.
Hann gekk sína útmældu menta-
braut og tók síðan upp kenslu-
störf hjer í bænuni að magister-
prófinu -loknu. Hefir hann rúmlega
2 áratugi' starfað að þýskukenslu
hjer í bænum, við Verslunarskól-
ann, Stýrimannaskólann, Vjel-
stjóraskólann og víðar. Ilann var
önnur hönd Jóns heitins Ófeigs-
sonar við samning þýsk-íslensku
kenslubókarinnar, og álitu margir
að hann væri sjálfkjörinn eftir-
maður Jóns við Mentaskólann að
honum látnum. En þar starfaði
Einar aðeins skamma stund.
Einar er frábærlega vandaður
og samviskusamur maður við
hvert það verk er hann vinnur og
eindreginn í skoðunum í hverju
því máli ér hanri lætur sig skittft.
Hann'er hinn öruggasti fjélagi í
sínum hóp, og virða menn hann,
mannkosti hans og hæfileika, því
meir sem þeir þekkja hann betur.
Um það getum við best dæmt,
sem höfum þekt hann alt frá
skólaárunum.
Fyrir skömmu átti Einar við
mikla og langvinna vanheilsu að
stríða, og var um skeið jafnvel
tvísýnt talið um líf hans. En
þrautseigja hans og stilling mun
þar sem í öðru hafa bjálpað til
þess að hann yfirvann sjvikdóm-
inn og er nú héill heilsu aftúr.
Einar ér maður einbeittur og
fylginn sjer, farsæll maður í
hverju starfi, og á vonandi margt
og mikið óunnið sjer og samtíð
sinni ti] gagns. V. St.
Nýtt veitingahús. Egill Bene
diktsson veitingamaður opnar 1
kvöld veitingasalina í Oddfellow
og verður þar dansað á hverju
kvöldi eftirleiðis. Hljómsveit Aage
Lorange leikur í veitingasölunum.
Salarkynni í Oddfellow eru góð og
Egill veitingamaður og frú hans
Margrjet eru viðurkend og vinsæl
meðal allra, er við þau skifta, sök-
um lipurðar í öllum viðskiftum.
Lúðrasveit Reykjavíkur leikur í
dag á Áusturvelli kl. 3^2, ef veð-
ur leyfir. Stjórnandi Albert
Klahn. Leikur hún m. a. K. R.-
marsinn eftir Markús Kristjáns-
son, Standchen eftir Schubert,
Finlandia eftir Sibelíus, Aases
Död úr Per Gynt eftir E Grieg,
Kínverskt serenade eftir Siede,
íslensk lög og Abschied der Gla-
diatoren, mars eftir Fucik.
Mæðradagurinn
Merki dagsins seld allan dag-
inn. Sölubörn komi frá klukkan
9 á þessa staði: Miðbæjarskólann
(norðurdyr), Grænuborg, Vestur-
borg, Þingholtsstræti 18, Laugar-
nesskóla og Skildinganesskóla.
Góð sölulaun.
AUGAÐ hvílist TIIICl £
með gleraugum frá *
KOLASALAN §1.
Símar 4514 og 1845.
Ingólfshvoli, 2. hæð.
Verndið heilsu barnsins
yðar.
Kaupið kerrupoka frá
Magna.
Sólskinssápa,
Radion,
Rinso,
Vim-ræstiduft,
Lux sápuspænir.
Laugaveg 1.
Útbú: Fjölnisveg 2. y
A A
oooooooooooooooooo
SKERMUM,
SILKIKÖGRI
LEGGINGUM
Shermabúðin
Laugaveg; 15.
Morgunblaðið með
morgunkaffinu.