Morgunblaðið - 30.06.1940, Síða 3

Morgunblaðið - 30.06.1940, Síða 3
3 Sunnudagur 30. júní 1940. MORGUNBLAÐIÐ Öxnadalsheiðarvegur. 100 þúsund- irnar trygðar Hvemig gengur með útvegun lánsfjárs til Öxnadalsheið- arvegar?, spurðun?. vjer Sigurð Eggerz bæjarfógeta í gær. — Ágætlega, svarar Sigurður. Jeg vona, að búið sje að tryggja þær 100 þúsund krónur, sem stjórnin samþykti að unnið yrði fyrir á þessu sumri. Yerður þá ekki strax hafist lianda? — Jú, byrjað verður st-rax að' vinna. Svo vona jeg að áfram verði haldið af fullum' krafti næsta sumar og áfram, uns „járnhraut- in“ milli Reykjavíkur og Akur- eyrar er fullgerð. Fjðlbreytt skemt un ð Eiði i dag Ef veður leyfir 'C’yrsta skemtun Sjálfstæðis- ^ manna að Eiði, á þessu sumri, verður í dag. Hefst hún kl. 3 e. h. ef veður leyfir. Til skemtunar verða ræðuhöld. og flytja ræður þeir Árni Jónsson frá Múla, formaður Varðarfjelags- ins, Ólafur Thors, formaður Sjálf- stæðisflokksins, og Sigurður Egg- erz hæjarfógeti. Þá syngur söngflokkur iir Karla kórnum Fóstbræður. Ennfremur verða sýndir fimleikar. Lúðrasveitin Svanur mun og 'skemta. Má birast við ágætri skemtun og munn Reykvíkingar án efa fjölmenna að Eiði ef veður leyfir. Fyrstu börn- in fara á þriðjudag C' yrsti bamahópurinn á vegum Rauða Krossins og Bama- vemdarráðs verður sendur hjeðan úr bænum á þriðjudag. Eru það börnin, sem eiga að dvelja að Laugum' og á heimilum, í .Suður-Þingeyjarsýslú. Enn er hægt að ráðstafa nokkr- um börnum (8—12 ára) á góð heimili á Norðurlandi. Athygli aðstandenda yngri barna (3—7 ára) skal vakin á því, að dagheimili Sumargjafar hjer í bænum geta. enn tekið nokkur börn. Heimilin éru þrjú í sumar. 'rstöðukonurnar veita allar upp- augar. Vjelbáturinn ,,Reynir“ slitnaðt i> af legunni í Keflavík í gær- aorgun og rak á land. Báturinn ar- ekki mjög brotinn, og talið úklegþ að hann myndi nást út, ’ veður versnaði ekki. Brúin á Eskifjarðará sóp- ast burt í vatnsfióði Stótleld tjón I Eskiljarðarkaup- túni af völdum vatnshlaups STÓRFELDAR skemdir hafa orðið af vatnsflóð- um í Eskifirði. Brúin - á Eskifjarðará hefir sópast burtu. Stífla rafmagnsstöðvarinnar sömuleiðis. Fiskreitir eyðilagst og mikið af fiski, sem á þeim var. Kálgarðar og tún einnig. Þessi miklu flóð byrjuðu um kl. 2 aðfaranótt laugardags og stóðu látlaust til kl. um 10 á laugardagsmorgun. Fólk varð að flýja úr húsum víða á Eskifirði, því að kjallarar fyltust af vatni. Tíðindamenn Morgunblaðsins í Eskifirði og Seyðisfirði skýrðu þannig frá þessum flóðum. Stórfeldar rigningar hafa ver- ið á Austfjörðum síðustu dag- ana. Snjór var talsverður í fjöll- um og kom þessvegna þrátt mik- ilT vöxtur í ár og læki. Tjón hafa orðið víða af völd- um flóða, en langmest í Eski-, firði. Byrjuðu flóðin þar um kl. 2 aðfaranótt laugardags 'og stóðu til kl. 10 á laugardags- morgun. Brúin á Eskifjarðará sópað-* ist burtu. Var ekkert eftir af brúnni nema grjótgarðarnir beggja rnegin. Þessi brú var fullgerð 1928. Hún var 27,6 metrar á, lengd, bygð úr járnbentri steypu á stöplum. Margar skemdir aðrar urðu á Eskifirði. Þannig hljóp skarð úr stíflu rafmagnsstöðvarinnar og var kauptúnið rafmagnslaust. í kauptúninu sjálfu urðu einn ig stórfeldar skemdir. Þrjú tún gereyðilögðust af skriðu- og vatnshlaupi. Einnig margir fiskreitir og mikið af fullverkuðum fiski, sem var í stökkum á reitunum. Margir kálgarðar eyðilögðust einnig og stórskemdir á öðrum. Þá urðu einnig miklar skemdir á götum í kauptúninu. Eru götur víða sundurtættar og stórfeldar gryfjur' í þeim, eftir vatnsflóðið. Á HJERAÐI. ' Þar varð feikna flóð í ám. 1 Grímsá varð vöxturinn svo mik- íll, að áin flæddi langt upp á bakka, svo að hólmar mynduð-r ust á Vallanesinu. Þar á nesihu var fje á beit og var það innikróað. Enginn bát- ur var við hendina, til þess að bjarga fjenu og ekki viðlit að vaða út í hólmana. Var þá bíll sendur til Reyðarfjarðar og þangað sóttur bátur, til þess að bjarga fjenu. Var róið út í hólmana og fjeð ferjað í land. Ekki héfir heyrst um tjón annars staðar á Austfjörðum, en vöxtur var alls staðar mjög' mikill í ám og lækjum. Þó urðu einhverjar skemdir á vegum í Neskaupstað. ÚRKOMAN. Samkvæmt upplýsinguni, sem blaðið hefir fengið hjá Veður-i stofunni mældist úrkoman já Danatanga við Seyðisfjörð 113 mm. frá kl. 6 á föstudag til sama tíma á laugardag. í Öræfum gerði einig stór-i rigningu og mældist úrkoman þar svipuð og eystra.-Kalsa veð-, ur var í Öræfum, aðeins 4 gr. hiti, með rigningunni. Króknaði margt fje í sveitinni. Hafa þeg- ar fundist dauðar 60 ær, er allar hafa króknað. Nokkrar skemdir urðu einnig á húsum. Kjallarar fyltust af vatni og eyðilagðist mikíð af því sem inni var. Fólk flúði úr flestum húsum í innkauptúninu, því að lífshætta gat verið, að vera í þeim. Hlaup kom á útibú Lands- bankans og hálffylti kjallara hússins. Varð að brjóta gat á kjallaravegginn, til þess að vatnið gæti fengið útrás. Eigi var talið, að skjöl bank- ans eða verðmæti hafi skemst. Hjá olíustöð Shell kom mik- ið hlaup og voru djúpir skurðir beggja megin við stöðina, en sjálfa sakaði hana ekki. Ekki urðu neinar skemdir á bryggjum. f Heildartjónið í Eskifjarðar-, kauptúni er gífurlegt. Hjeraðsmót Sjálfstæðismanna í Borgarnesi í dag Idag verður háð í Borgamesi Hjeraðsmót Sjálfstæðismaima fyrir Dalasýslu, Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu og Mýra- og Borgarfjarðarsýslu. Á mótinu munu mæta þingmenn flokksins fyrir þessi kjördæmi, þeir Thor Thors, Pjetur Ottesen og Þorsteinn Þorsteinsson. Síðari hluta dags verður sam- ,eiginleg kaffidrykkja og að lokum verður dansað. Einnig mun Brynj- ólfnr Jóhannesson leikari skemta. Lúðrasveit Reykjavíkur verður með í förinni og mun hún leika nm kvöldið. Stórstúkuþingið var sett í gær KLUKKAN rúmlega eitt í gær söfnuðust full- trúar á Stórstúkuþingi og aðrir Templarar saman í Góðtemplarahúsinu, og síðan var gengið þaðan í skrúðfylkingu út í Dómkirkjuna og hlýtt á guðsþjónustu. Pjetur Ingjaldsson cand. theol. prjedik- aði, en síra Garðar Svavarsson þjónaði fyrir altari. Stórstúkúþingíð vár. síðan sett í G. T.-húsiiiu kl. 3 áf Stórtejnplar Helgá Hélgasyni. Fóru því næst fram venjuleg undirbúningsstöff ogj -.stígýéitmg:' Vár :stórstúkustigið veitt. 32 fjelögum. Prestastefnunni lokið T okadagur prestastefnunn- * ar var í gær. Hann hófst með bænasam- komu, sem síra Þorgrímur Sig- urðsson stjórnaði. Að henni lokinni flutti pró- fessor Ásmundur Guðmundsson skýrslu um störf barnaheimilis- nefndar þjóðkirkjunnar. I sjóði nefndarinnar voru kr. 2500.00. Nefndin hafði veitt styrk til starfrækslu Barnaheimilisins Sól heimar fyrst og fremst en einn-, ig höfðu þessi barnaheimili not- ið styrks frá nefndinni: Dag-' heimilið á Siglufirði og sumar- heimili barna að Lundi i Axar- firði og Laufahlíð í Þingeyj- arsýslu. Einnig hafði nefndin og þá einkum nefndarformaður átt þátt í því, að dagheimili var starfrækt fyrir börn s. 1. vetur hjer í Reykjavík með hinum á- nægjulegasta árangri. Urðu nokkrar umræður um fjárhag barnahælisins Sólheim- ar, sem er nú afar þröngur. Síra Guðmundur Einarsson, sem frá upphafi hefir starfað ákaft í barnaheimilisnefndinni, rakti sögu barnahælisins, gat þess m. a. að vistargjald barnanna hefði upphaflega ver- ið ákveðið lægra en verið hefði í samsVarandi hælum í Dan- mörku, þrátt fyrir meiri dýrtíð í landinu. Taldi hann, að ýtrasta þörf væri nú á, að kirkjuhnar menn legðu sig alla fram við fjársöfn- un til hælisins, ef ekki ætti illa að fara. Að umræðunum .loknum var barnaheimilisnefnd kosin fyrir næstu 3 ár og var nefndin öll endurkosin og vottuðu fundar- menn nefndinni þakkir sínar fyrir ötult starf, þegar unnið, með því að standa upp úr sæt- um sínum. FRAMH. Á SJÖTTU 8ÍÐU. ’ Framkvæmdane.fnd Stór.stúkúnn ar bar fratn tillögu mii það.-fað kosiu yrði nú þegar í þingbyrjun 5 manna néfnd, til þess\ a.ð. íat- huga þau deil.umál, sem vérið hafá; innan Regluimar hjer í He.ykja- vík að unðanförnu, og skyldi þau mál ekki rædd á þinginu f'ýr fen nefndin hefði lokið stiirfum. Vár það samþykt í einu hljóði, og-'f nefndina kosnir: Eiríkúr. t?ignrðs- osn, Akureyri, Jónas Tónia.ssom ísafirði, Brynleifur Tobíassón; Ak+í ureyri, Páll Eyjólfsson, Vestmanna eyjum, Kristján A. Kristjánsson, Súgandafirði. Skýrslur framkvænulanefndar voru því næst lagðar fram. Sjest á þeim a.ð nú eru 67 nmlirstúkur í landinu og 49 barnastúkur. AUs eru templarar taldir 10.054. Með tilliti til fólksfjölda eru þeir flest- ir í Vestur-ísafjarðarsýslu, 18.4%d ísafirði 17.8%, Seyðísfirði 17.8%, Akureyri og Norðfirði 16.1% og' Siglufirði 16%. í Reykjavík eru 3038 Templarar, en það er ekkt nema 8.1%. Á árinu hafa verið' stofnaðar 8 nýjar nndirstúknr. Fjárhagur Reglunnar er nú með besta móti. Fóru og tekjur þennar talsvert mikið fram úr áætlun á árinu. I skýrslunum er skrá um áfeng- isnotkun landsmánna, og segir svo: um hana: „Síðastliðið ár var talið erfitt á' ,marga lund, atvinnúleysiy dýrtíð; og margskonar viðskiftaörðugléik- ar, svo að telcin var upp SkÖmtún' á nauðsynjavöru. Þetta ár hafú landsmenn samt keypt áfengi hjá. útsölustöðum ríkisins fyrir kr. 3.672.992.00 samtals“. Kapplelkurlnn í kx öl«l að verður vafalaust mann- mergt á íþróttavellinum í kvöld á leiknum milli Vals og Víkings, sem getur ráðið úrslitum tun það, hvort Víkingur verður Reykjavíkurmeistari í ár. Kappleikurinn hefst kl. 8.30, en áður en leikurinn hefst fer fram kepni í kixluvarpi og í hljeinu milli hálfleikja fer fram kassa- boðhlaup kvenna. Síðast, þegar Valur og Víkingur keptu vann Víkingur með 4 mörk- um gegn 1.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.