Morgunblaðið - 20.07.1940, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.07.1940, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ ÍKXXíCXXKXK^OOOCNOWO ÚR DAGLEGA LlFINU oocxxxx oooooo< Laugardagur 20. júlí 1940. Hitler boðar árásir sem hafa í för með sjer ógurlegar þjáningar Neftóbaksmenn landsins hafa nú margir lokið við birgðir sínar af því ekta Braunsbræðra-tóbaki, sem hjer var til í landinu, þegar viðskiftin stöðvuðust við Danmörku. En síðan hefir sú vara ekki fengist hjer á landi, því engin þjóð í heimi notar Braunsbræðra-tóbak nema íslendingar. Nú geta margir litið svo á, að bættur sje skaðinn, þó neftóbaksmenn verði tóbakslausir þangað til aftur næst viðskiftasamband við „Brödrene Braun“ í kringum Kaupmannahöfn. En tóbaksmennirnir eru ekki á því. Og tóbakseinkasalan ekki heldur. Þessvegna var Trausta Ólafssyni, for- stjóra Atvinnudeildar Háskólaris, falið fyrir nokkra að reyna að búa til nef- tóbak, sem jafnaðist á við hið danska Braunsbræða-tóbak. ★ Tilraunin þótti svo álitlega takast, að nú hefir einkasalan fengið ein 13 tonn af tóbaksblöðum, sem tilvalin eru í neftóbak, og er byrjað að vinna úr þeim rjól. Tóbak þetta fær, eftir því sem næst verður komist, sömu meðferð eins og Brauns-tóbakið eða hið venjulega rjól. Vinna að þessu 8 menn og eru nú unnin í Atvinnudeild- inni ein 40 kg. af rjóli á dag. Vinn- an er m. a. í því fólgin, að tína blað- leggina og aðalstrengina úr blöðunum, og er það talsvert verk. ]|i' : - ★ Neftóbaksmenn mega ekki vera alt of bróðlátir þó þeir heyri þetta. Því ekki er hægt að fara að skera þetta nýja rjól strax. Það þarf að geym- ast enn i einn hálfan mánuð, ef ekki lengur, áður en það er hæft til skurðar. i Alls eru það ein 30 tonn, sem notuð eru á ári af rjóli í landinu, þegai* eftlrspurnínni er fullnægt, og sam- svarar það því, að um 100 kg. sjeu aeld á dag, hvern virkan dag á árinu. f'; * Nokkuð hefir borið á því, að í versl- anir hefir komið neftóbak, mjög mis- jafnt að gæðum, sem menn hafa hald- ið fram að væri úr tóbaksgerð At- rinnudeildarinnar. En um ekkert slíkt hefir verið að ræða. Því þaðan hefir ekki enn verið selt neitt af tóbaki. ★ Mínkaéigandi hefir skrifað og bent mjer á, að ekki hefir enn tekist að naerkja minka, svo það dygði. Engiri ráð; fundin til þess. Sjeu sett merki í rtyru þeirra, rífa þeir merkin af sj^r o. s. frv. Það • væri þarft verk, ef hægt væri að. finna ráð til að merkja minkana, ef ekki verður horfið að því að hætta ▼ið alla minkarækt og reyna að út- rýma minkavargi úr landinu. ★ Mikið er það einkennilegt, hve siim ir menn eiga erfitt með að gera greín armun á frjettum og frásögnum um löngu liðna atburði. Það kemur t. d. stundum fyrir, að blaðinu berast frá- sagnir, mjög ítarlegar og nákvæmar, af atburðum, sem gerst hafa fyrir 1—2 árum, og ætlast er til, að frá- sagnir þessar sjeu birtar í frjetta- skyni, ★ f kauptúni einu hjer á landi þótti horfa til vandræða vegna þess hve margt bænda og búaliðs fluttist í kauþtúnið, því atvinnuhorfur voru þar ekki glæsilegar. Þá var það ráð tek ið, að forráðamenn kauptúnsins skrif- uðu öllum húseigendum brjef, þar sem farið var fram á, að þeir leigðu engum aokomumönnum húsnæði, eða gretódu1 ' k 'iiefhrl frá'tt' lg<itu(*^eirffi',^ tíV þes'i,;áð fá’ ’þár ’þak "ýfíh 'hijfúSi’ð. peéfd ■ Jótti koma a-ð* ;Áok)íi'u- *gkgní) FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU. urvígstöðvunum. Hann sagði að augljóst hefði verið, að Banda- menn hefðu haft ráðagerðir um að ráðast með leifturhraða gegn um Holland og Belgíu og gera innrás í Þýskaland. Þjóð- verjar hefðu haft ráðagerðir um að ráðast beint á Maginot línuna, en nú hefðu þeir orðið að gerbreyta hernaðaráætlun sinni. Þetta hefði verið gert í skyndi og í ráðagerðunum hefðu tekið þátt hinir lægstu sem æðstu herforingjar Þjóð- verja. 6. og 7. maí hefðu borist fregnir um að árás Banda- manna gæti hafist þá og þegar. Þegar hjer var komið hefði hann (Hitler) ákveðið að bíða ekki lengur og láta heri sína gera innrás í Holland og Belgíu 10. maí kl. 5,35. NÝ ÁRÁSARAÐFERÐ Hitler skýrði nú frá hern- aðaráætlun sinni, sem hafði mið að að því að gjöreyðileggja heri óvinanna. Hernaðaráætlun sín hefði ver jð frábrugðin ásétlun von Schlieffens að því leytí, að hann hefði lagt aðaláhersluna á vinstri fylkingararminn í sókn- arlínunni, en von Schlieffen (lefði lagt aðaláhersluna á að gera hægri fylkingararminn sterkan. Vinstri armurinn hefði fengið það hlutverk, að brjót- ast í gegn milli Namur og Longwy og yfir Meuse-fljótið, hjá Sedan, til Aisne, til þess að tryggja þaðan áframhald sóknarinnar suður til svissnesku landamæranna, en halda síðan til strandar. Þjóðverjar hefðu vitað, að Bandamenn hefðu dregið saman hinar vjelknúnu herdeildir sínar við belgísku landamærin og það hefði ver- ið augljóst, að þær áttu að fara ■hratt ýfir Belgíu. Markmið Þjóð verja hefði verið að króa inni þessar hersveitir og það hefði tekist. ■! í . 'áfvamhaldi sóknarinnar hefðu Þjóðverjar enn lagt áhersiu á vinstri fylkingararminn, sem sótti fram til svissnesku landamær- amia. En fyrst hefði orðið að tryggja aðstöðnna við Somme og Seine, svo að undrfti frá Marn - árið 1914 endurtækju sig ekki. Það h.efði verið ætluu Þjóðverja að sækja fram aíla leið suður fyr- ir Bordeaux. HERSTJ ÓRNIN. Hitler ræddi mikið um hina hetjulegu baráttu þýska hersins. Ilann sagði, að 'áðuf fyr het'ði ver ið sagt, að Þjóðverjar ;ættu bestii herforingja í heimi. Þétta gildir ennþá , sagði Hitler, nema meira sje, að þeir sjeu betri eir þeir’hafa nokkru sinni Verið. von Brau- ehittsch, vfirhershöfðingi Þ.jóð verja, hefði Jeyst hlutverk sití með miklum sóma, og eins for- ingjar hinna þriggja herdeilda, v'ón Leb, von Bock og von Rund- stedt. 5 Hitler sagðá, að þegar Petain Ijefðf 'áírý’eðið að bíðja un)'rír'oþhrtL lilje, þá hefði í því falist ’ekki ■ annað en viðurkenning á þeim glundroða, sem skapast hefði í Frakklandi. Hitler sagði, áð éng- inn myndi geta komist hjá því að horfast í augu við þessa stað- reynd. Hitler las nú upp langan lista með nöfnum þeirra, sem hann þakkaði sigur Þjóðverja. Þýska fótgönguliðið væri besta fótgöngu lið í heimi. Þýsku vjelaherdeild- irnar hefðu skapað sjer sess í ver- aldarsögunni. En framar öllu þakkaði hann flughernum. Okkur tókst tá nokkrum dögum að ná yfirburðum í loftinu", sagði Hitt- er, „og sleptum þeim aldrei aft- ur“. Hugrekki landhersins héfði verið til einskis, ef hann hefði ekki notið flughersins. Flughern- nm hefði stjórnað Hermann Gör- ing. Hitler þakkaði þeim síðan enn, von Keitel og Jodel fyrir að hafa framkvæmt fyrirætlanir sínar og hugsjónir um herstjómina á vest- urvígstöðvunum. (Hjer færði Hitler fram þakk- ir sínar til samstarfsmanna sinha, sem skýrt er frá á öðrnm stað). BANÐALAGIÐ VIÐ ÍTALI, Loks þakkaði Hitler Itolum. Hann sagði, að hann hefði frá upphafi vega haft á stefnuskrá sinni, að hafa samvinnu við ítala á sama hátt og hann hefði viljað hafa samvinnu við Breta. Eu þrátt fyrir alla viðleitni sína hefði sjer ekki tekist að fá Breta til samstarfs við sig, en hefði það tekist, þá kvaðst hann vera sann- færður um, að það hefði orðið til blessunar fyrir báðar þjóðirnar. En s.jer hefði a. m. k. tekist að halda fyrra stefnuskráratriðið. Hann þakkaði það snillingnum, sem væri í fylkingarbrjósti fyrir ítölsku þjóðinni. Hitler sagði, að það fylti sig fögnuði að vera vinur Mussolinis. Ilann sagði, að margt væri líkr með þróunarsögu þeirra og flokks hreyfinga þeirra. ítalir væi'u eina þjóðin, sem sýnt hefðu Þjóðverj- um mannlegan skilníng. Þjóðr verjar hefðu liaft mikið gagn af ítölum í stríðinu, þótt þeii' hefðu ekki tekið beinan þátt í því, bæði viðskiftalegt og hernaðarlegt. Vegna afstöðu ftala liefðu Banda- menn orðið að binda mikinn her- afla, sem þeir hefðu ; þessyegna „ekki haft frjáls umráð yfir til að beita gegn Þjóðverjum. En þegar Mussolini ákvað. eft- ir að traðkað hafði verið frek lega á hagsmunum Itala, að hefja beina þátttöku í stríðinu, þá gerði hann það af eigin frjáls- tim vil.ja. Þeim mun meiri hlýtui’, þalckarkend okkar að vera. , Sársauki ítala, eins og t. d. þeg ar þeir mistu Balbo, er okkar sárs aukí, gleði þeirra er okkar gleði. Satnvinna okkar <á stjórnmálasvið- inu og hernaðaráviðinu hafi nú verið rótfest í samningum. Þessí samvimia mun halda áfrara ]jar til við að lokuin vinnum. sameig- iulegan sigur. FRAMTÍÐIN. Hitler hóf nú að i'æða framtíð- Hwá'í Háwh kvaðst. ekki gera það til þess að gorta, það gæti hann iátið öðrum eftir, sem þyrftu þess frekar, eins og t. d. Churchill. Bretar hjeldu því fram, að þeir yrðu öflugri og samhentari eftir hvert áfall. „Mjer leyfist þá e. t. v. að halda því fram, að vi'ð verð- nm sterkari eftir hvern sigur“. ÖFLUGASTUR NÚ. Hitler gerði síðan yfirlit yfir mátt þýska hersins, sem hann taldi meiri en nokkru sinni fyr. Tjón það, sem herinn hefði beðið á mönnum og hergögnum, væri lítið og hefði enga þýðingu. Bæði landherinn og loftherinn væri öfl- ugri en þegar sóknin hófst á vest- urvígstöðvunum. Þjóðverjar hefðu svo mikil skotfæri, að stöðva hefði orðið framleiðslu á þeim í bili, þeir liefðu ótakmarkaðar birgðir af tveiín hinum mikilvægustu hrá- efnum, kolum og járni og nægar og vaxandi birgðir af olíu og hen- síni. Hitler sagði, að í löndum þeim, sem Þjóðverjar óg ítalir hefðu á valdi sínu, væru 200 miljónir manna, og þar af gætu 70 miljón- ir • að staðaldri unnið að fram- leiðslunni. NAZISTAR QG ÞJÓÐIN. Loks mintist Hitler iá afstöðu þýsku þjóðarinnar. Hann sagði, að þjpðin væri ákveðnari og ein- heittari nú eftir 10 mánaða styrj- öld, heldur en nokkru sinni áður. Hitler kvaðst furða sig á skjöí um þeim, sem fallið hefðu í hend- ur Þjóðverjum og sem hann hefði verið að blaða í undanfarið, þar sem m. a. væru frásagnir er- lendra erindreka um afstöðu þjóð- arinnar til nazistastjórnarinnar. Þeir sem skrifuðu þessar skýrsl- ur væru annaðhvort blindir, fá- vitar, eða ósvífnir þorparar. VINÁTTA ÞJÓÐVERJA OG RÚSSA. Síðustu vikurnar hefðu Bretav verið að byggja vonir sínar á því, að til sundurþykkju dragi með Þjóðverjum 'og Rússum. Hitler kallaði þetta barnalegt. Sambúð Þjóðverja og Rússa væri ákveðin um alia framtíð með samningum. Með samningun^ þess- um væri hagsmunasvið beggja skýrt afmörkuð. Þjóðverjar hefðu livergi farið inn á liagsmunasvið Rússa og Rússar hvergi farið inn á hagsmunasvið Þjóðverja. Er Hitler hafði gert þannig grein fyrir mætti þýska hersins, hjelt hann áfram : „Jeg sá það rjettilega fyrir 6. október síðastliðinn, hvernig frið artillögum mínum myndi verða tekið. Samt setn áður rjetti jeg fram hendina til sátta. Frakkar munu nú minnast þessa friðat’- boðs míns: Hve hræðilegar hörm- ungar hafa ekki gengið yfir þetta stóra fand. En jeg vil ekki orð- lengja um það hjer. Jeg óskaði einskis nema friðar, en hagsmun- ir vopnaframleiðendanha máttu sín meir. BYRJAÐ FYRIR ALVÖRU. Nú heyri jeg frá Englandi ekk- prt aimað .en hróp um, að nú fyrst sje stríðið að byrja fyrir alvöru, en það er ekki óp þjóðarinnar, heldur stjórmnálamamnanna. Þeir tala um að halda stríðinu áfram ]í Englandi, og ef þeir verða und- irokaðir þar, þá frá Kanada. Það er eins og það eigi að flytja hresku þjóðina til Kanada, en það verða aðeins„ stríðsæsingamennirnir, sem ]fara þangað. Tilgangur minn er ekki að heyja stríð, heldur að byggja upx> ríki, þar sem aðbiið fólksins er gerð eins góð og unt er. En það eru einskisnýtir menn, sem hindra það, að jeg geti framkvæmt þetta. Mr. Churchill hefir undanfarnar 6 vikur háð orustur, sem eru við lians hæfi: Loftorustur gegn ó- breyttum borgurum. Fram til þessa hefi jeg varla látið svaræ þeim nokkru. En það er til ann- að svar við þessu, sem flytja mun með sjer takmarkalausar þjáning-• ar, en ekki fyrir Churehill, því að hann verður í Kanada. ANNAÐHV ORT. Jeg hefi fram til þessa reynst, sannspár um styrjöldina. Jeg ætla nú enn að gerast spámaður. Ef stríðið heldur áfram, þá mun mikið heimsríki líða undir lok. Því að stríðinu verður þá ekki lok ið, fyr en annaðhvort breska heims veldinu eða Þýskalandi hefir ver- ið tohtímt. Churuhill heldur að það verði Þýskaland, en jeg held að það verði Stóra-Bretland. En það hefir aldrei verið ætl- un mín að eyðileggja breska heimsveldið. Þessvegna ætla jeg eiin að skírskota til skynseminn- ar. Jeg sje enga ástæðu til að haldá þessu stríði áfram. Jeg geri mjer þó enga von um, að þessi síðasta áeggjan mín um að skyn- sernin verði látin ráða, beri ár- angur. En jeg hefi þá a. m. k. Ijett á samvisku minni gagnvart þeim atburðum, sem í vændum, eru. Hitler lauk máli sínu með því að þakka forsjóninni að hún skyldi gefa sjer kost á að gefa þýsku þjóðinni frelsi sitt aftur. Síðustu orð hans voru : Sieg Heil, og tók þá þingheimur undir, en að því loknu var sunginn þýski þjóðsöngurinn og ITorst-W essel- lagið. GÖRING ÞAKKAR. En að því lokim stóð Göring- upp og þakkaði Hitler. Hann sagði, að þýska þjóðin hefði nú . fengið vissu fyrir því, sem hana i grunaði áður, að Hitler hefði • sjálfur stjórnað hersveitum, sín-: um. Forustu þýska hersins hefði • haft mesti hershöfðinginn, sem nokkru sinni hefði verið uppi, og í forustu þjóðarinnar hefði hafc: mesti stjóriimálamaðurinn, sem Þjóðverjar hefðu nokkru sinni átt. Stjórnmálamaðurinn Hitler hefði smíðað sverðið, sem hershöfðing- inn Hitler hefði sjálfur hrugðið. Göring talaði um þá hamingju, að fá að vera í • fylgdarliði Hitl- ers. Þjer einir, foringi minn, eigið þakkir skilið, sagði Göring.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.