Morgunblaðið - 23.07.1940, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.07.1940, Blaðsíða 8
& Þriðjudagur 23. júlí 1940.- ------- Búðarfólkið 'fjelagslíf K. R. II. FLOKKUR Æfing í kvöld kl. 6,45 á II. flokks vellinum. Mjög áríðandi að allir þeir, sem æft hafa með II. flokki í sumar mæti vegna heimboðs út á land. LANDSMÓT III. FLOKKS Víkingur — Valur kl. 7—8 K. R. — Fram kl. 8—9. T. B. R. 1. S. 1. TENNIS MEISTARAMÓTIN Meistaramót I. S. 1. í tennis hefjast um miðjan ágúst. Vænt- anlegir þátttakendur gefi sig fram við Friðrik Sigurbjörns son eða Jón Jóhannesson fyrir 10. ágúst. Stjóm Tennis- og Badmintonfjelags Reykjavíkur. L O. G. T. ST. VERÐANDI NR. 9. Fundur í kvöld kl. 8: 1. Inntaka nýliða. 2. Erindi: Árni Óla. 3. Sjálfvalið: Jarþrúður Pjet- ursdóttir. 4. Píanósóló. 5. Sjálfvalið: Helga Pjeturs- dóttir. Í FIÐURHREINSUN ÍSLANDS íVið gufuhreinsum fiður úr sæng um yðar samdægurs. — Aðal- stræti 9 B. Sími 4520. OTTO B. ARNAR löggiltur útvrapsvirki, Hafnar- stræti 19. Sími 2799. Uppsetn ing og viðgerðir á útvarpstækj um og loftnetum. 43. dagur Neðan frá heyrðist diskaglam- ur þegar þjónninn var að leggja á borðið, og út úr eldhúsimu lagði ilm af steiktum hæsnum. Við um- hugsunina um mat varð Nínu ó- glatt og hún barðist á móti því af öllu afli. Jeg vil ekki verða veik af inflúensu — jeg ætti ekki annað eftir, hugsaði hún. Hún fór niður og gægðist inn í borðstof- una. Þjónninn — sem ekki hjet James — stóð og fægði glös. Við þessa sjóm fekk hún aftur ógleði. Hún tók glösin úr höndunum á honum og setti þau á borðið. Þeg- ar öll kurl voru komin til grafar hafði hún meira vit á glösum og tilhögun á borðbúnaði en hann. „Þetta er ágætt, Trompsted“, sagði liún. Henni hafði tekist að komast að hvað hann hjet. „Hvort vill frúin heldur hafa Pommard eða Rínarvín með hænsnasteikinni ?“ spurði hann. — Hún vissi að hann var að hæðast að henni. Fingur hennar nutu þess að handleika kalt postulín og gl$r. „Þjer vitið óskap vel að jeg hefi ekkert vit á því, Trompsted", sagði hún. Þjónninn hneigði sig. „Black læknir neytir aðeius jurtafæðu. Ilann á bágt með að þola að honum sje boðið kjöt“. „Frá hvaða landi eruð þjer eig- inlega, Trompsted ?“ spurði hún. Mjer þykir hreimurinn í fram- burði yðar einkar þægilegur“. „Jeg er danskur!‘, sagði hann og setti öskubakka hjá hverjum diski. Hann hallaði höfðinu og leit yfir verk sitt. „Nei — Dani —“ sagði hún. „Jeg á danska vini, — Bengtson greifynju —“ sagði hún og beið REYKHÚSIÐ, Grettisgötu 50 B tekur Lax, fisk og aðrar vörur til reyking- ar eins og að undanförnu. fKi/iynninqw? HAFNFIRÐINGAR. lYanti yður leigubifreið, þá hringið í síma 9084. Á kvöldin í símá 9141. Turninn. BARNLAUS HJÓN óska eftir 2 herbergjum og eld- húsi 1. október. Upplýsingar í síma 4364. EITT STÓRT HERBERGI, eða tvö minni, óskast til leigu í heita hverfinu. Lítil íbúð getur einnig komið til greina. Sími 3048 Framkðllun Kopiering Stækkun framkvæmd af útlærðum ljós- myndara. Amatðrverkstæðið Afgreiðsla í Laugavegs-apóteki. Nýkomið: Stoppugam Sirs Kjólatau köflótt Flónel Blúndur mislitar Krókapör svört Teygjur sívalar Sokkar, ísgarns Ljereft, mislitt Tvistur Versl. Dyngja Laugaveg 25. KOLASALAN S.f. Símar 4514 og 1845. Ingólfshvoli, 2. hæð. A U G A Ð hvílist með gleraugum frá THIELE Ei'lir VICKI BAUM eftir einhverri víshendingu, sem aldrei kom‘ ‘. „Fjölskylda mín er líka heldra fólk í Danmörku“, sagði Tromp- sted og borfði dreymandi á blómst- urvasann, sem hún var að hag- ræða á borðinu. „Þetta er fyrirtak, Trompsted“, sagði hún og þjónninn fór. Steve kom niðnr. Hann ilmaði allur af rakvatni og neri saman höndum. Hundarnir flöðruðu upp um hann með gleðilátum. „Jæja, greyin mín“, sagði hann og tók hundana í fang sjer. Max var fæddur fífl og Moritz var að upp- lagi raunamæddur. Dyrbjallan hringdi og fyrstu gestirnir streymdu inn. Steve hafði boðið fimm karl- mönnum og Nínu þótti ekkert undarlegt að engar dömur voru með. Það var hrollur í henni, meiri heldur en þegar hún átti að vera til sýnis í glugganum forðum. Það var mikið talað um þá gluggásýningu. Steve mintist á hann aftur og aftur. Hann sagði hverjum einstökum gesti um Nínu í glugganum, hvernig hann hafði leitað upplýsinga um hana og hafði spurt hvort hann gæti feng- ið hana keypta. Hann virtist vera mjög upp með sjer af sigurvinning sínum eða kaupum, eftir því hvað hver vill nefna þá staðreynd, að hann; hafði tekið Nínu úr glugg- anum og sett hana við borðið hjá sjer. Karlmennirnir, sem Nínu hafði ekki tekist að muna hvað hjetu, ymgengust ’hana hálf-feimnir en þó góðlátlega. Þeir skiftn aðdáun sinni á milli Nínu og hundanna. Back læknir var grár fyrir hærnm, með blá augu og hjelt bví fram að hann væri ungur í anda. Á meðan Steve vjek sjer að Nínu voru gestirnir hálfvandræðalegir en ekki samt ónærgætnir í fram- komu. Trompsted kom með coektail. Nína leit á hann með vingjarnleg- um augum af því hann var dansk- ur. Danslög Iieyrðust frá útvarp- inu og hver gestanna fyrir sig reyndi að hafa orðið. Allir voru mjög báværir og blógu mikið. Alt í einu fanst Nínu bókaherbergið, sem þau sátu í, hverfa. Það var undarleg tilfinning, eias og hún væri alls ekki nærstödd og hún heyjjði alt tal í fjarska. Tony, sem var aðstoðarþjónn, opnaði dyrnar inn í borðstofuna. Bach læknir bauð Nínu arminn. Hún var afar þakklát að einhver leiddi hana í þessari þoku, sem' sveipaðist um hana. Bn þegar Trompsted rjetti henni humarinn yfir öxlina, varð henm ilt. Það var ekki um það að villast. Fyrst hjelt hún að það stafaði af víninu, en svo neyddist hún til þess að standa upp í einni svipan og fara upp á sitt herbergi. Tromsted hjelt áfram að rjetta matinn án þess að nokkur dráttur hreyfðist í andliti hans. Steve bló vand- ræðalega: „Hún þolir ekki tóbaks- reykinn“, sagði hann. „Hún er alveg óreynd — hálf^erður krakki“. Allir karlmennirnir byrjuðu að tala í einu til að komast úr vand- ræðunum. Þegar Nína kom ekki aftur, hvíslaði Steve einhverju að þjóninum. Maðurinn fór, kom aft- ur og hvíslaði einhverju að Steve. „Hún er dálítið lasin“, sagði hann, ekki laus við ábyggjur. „Influensa“ sagði Green. „Alstaðar í heiminum er fólk með inflúensu", sagði annar og um leið fóru allir að tala um in- flúensu og hvort það gæti verið satt að ef jarðarberin væru spraut- uð með arsenik, yrðu þau hættu- leg. Back læknir þurkaði sjer um munninn. Þegar svo gestunum var borið kaffi, fór hann út. Hann gaf Steve merki með augunum og Steve svaraði með því að depla augunum, sem. lýstu af þakklæti. Svo heyrði hann læknirinn fara upp stigann til svefnherbergjanna. Koniak var veitt í stórum glös- nm og karlmennirnir fóru aftur inn í hið svonefnda bókaherbergi. í þessu herbergi rúmaðist alt milli himins og jarðar, nema rjett bækur. Fjórir þeirra settnst nið- ur og fóru að spila bridge. Stev©' settist hjá arininum með Gi'een. og setti upp skáborð. En hanu. byrjaði ekki strax að leika, hann, var altaf annars hugar og óró- legur. Hann knnni svo ágætlega við Nínu, en því var ekki að leyna að fyrir þessu samkvæmi hafði hún beðið álisthnekkir. Um leið og hann gekk út að ná í vindla handa gestunum fann hann það greinilega á sjer að þeir hlógu. að honnm í stað þess að dáðst að honum. En þar með var ekki ölliim er- Framh. JCaurts&anuc SPARTA-DRENGJAFÖT Laugaveg 10 — við allra hæfi. FASTEIGNASKIFTI fyrir stærra ef um semst. Sími 4100. HEFI TIL SÖLU 1 Chevrolet bíldynamo nýupp- gerðan, 2 öxla í Studebaker model 1935 og skipslogg. Páll G. Þormar, Hverfisgötu 4.-- Sími 1558, ' KÁPUBÚÐIN, Laugaveg 35 Svaggerar, frakkar og kápur, seljast með niðursettu verði út þennan mánuð og næsta mán- uð. Ódýrar kvenleðurtöskur og kjólablóm. KAUPUM allskonar húsgögn, skófatnaS og karlmannaföt. Staðgreiðsla. Nýja fornsalan, Kirkjustræti 4. MEÐALAGLÖS og FLÖSKUR keypt daglega. Sparið millilið- ina og komið til okkar, þar senn þjer fáið hæst verð. Hringið íi síma 1616. Við sækjum. Lauga- vegs Apótek. I TJÖLD SÚLUR og SÓLSKÝLI Verbúð 2, Sími 5840 og 27311 KAUPI GULL OG SILFUR Sigurþór, Hafnarstræti 4. Reiðhjólaviðgerðir eru fljótast og best af hendi leystar í Reiðhjúlasmiðjunni Þór, Veltusundi 1. Prestur nokkur tók fyrir löngn síðan karl einn til bæna á þenn- an hátt: „Það er hjerna karl frami 1 dalnum og liggur í kommentu und- ir kringlóttum skjáglugga. Hann biður yður, elskulegur söfnuður, að biðja fyrir sjer, með óumræði- legum andvörpum, svo hann fyrir- ,farist ekki eins og þeir Kóridatan og Abiram og þurfi ekki að segja með Júdasi; Mín synd er stærri en að hún verði fyrirgefin“. ★ v Merkur klerkur komst í ósátt við söfnuð sinn. Hann sótti um nýtt embætti og fekk stöðu sem fangelsisprestur. í kveðjuræðu sinni þóttist honum segjast vel, nema hvað söfnuðurinn var ekki ánægður með textann, sem var: Jeg fer til þess að fyrirbúa yður stað, svo að þar sem jeg er, þar skuluð þjer einnig vera. Presturinn: Kristnir vinir! Jeg verð að biðja yður að hafa þolin- mæði litla stund. Jeg gleymdi ræð- unni minni inni, en jeg hefi sent drenginn minn eftir henni. Dreng- urinn kemnr að vörmu spori og segir.- Hún mamma gat hvergi fundið það sem þú hafðir skrif- að, en hjerna er hókin_, sem þú skrifaðir upp úr. ★ Sami prestur sagði einhverju jsinni í enda ræðu sinnar: „Og í tólfta og síðasta máta læt jeg ykkur vita, elskanlegir til- heyrendur, að hásæti Salómons var logandi gylt og kiipt að aftan, sem átti að fyrirstilla hina himn- esku dýrð“. ★ Lítil stúlka horfir hugfangin á hörpuleikara: — Ertu að æfa þig áður en þú ferð til iiiinnaríkis f KAUPUM tóma strigapoka, kopar, blý og aluminium. Búðin, Bergstaða- «ta»ti 10. ÞAÐ ER ÓDÝRARA að lita heima. Litina selur- Hjörtur Hjartarson, Bræðra- borgarstíg 1. Sími 4256. HARÐFISKSALAN Þvergötu, selur góðan saltfisk; Sími 3448. SUMAR KJÓLAR eftirmiðdagskjólar, blússur og pi-ls altaf fyrirlgigjandi. Sauma- stofan Uppsölum. Sími 2744. KAUPUM FLÖSKUR stórar og smáar, whiskypela, glös ©g bóndósir. Flöskubúðin, Bergstaðastræti 10. Sími 5395. Sækjum. Opið allan daginn. FLÖSKUVERSLUNIN á Kalkofnsvegi (við Vörubíla- stöðina) kaupir altaf tómar flöskur og glös. Sækjum sam- stundis. Sími 5333.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.