Morgunblaðið - 02.08.1940, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
F'östudagur 2. ágúst 1940.
Sambúðin við Þfóðverfa og Italft góð, við Breta
og Bandarifeftn „ekki góðM
Molotoff lýsir afstöðu
Rússa til annara þjóða
Styrföldin milli Þfóðverfa og
Itala — og Breta og Bandarfikf-
anna um það bil að heffast
Graf Spee
vandamál
i Braziliu
Það er að koma upp samskonar
vandamál út af breska hjálp-
arbeitiskipinu, sem laskaðist í
viðureign við þýskt hjálparbeiti-
skip í Suður-Atlantshafi í' fyrra-
d.ag, eins og reis út af þýska or-
ustuskipinu „Graf Spee“ í vetur.
Breska hjálparbeitiskipið er nú
komið til hafnar í Rio de Jan-
eiro (Brasilíu), þar sem fara á
fram á því viðgerð.
Breska stjórnin hefir farið þess
á leit við stjórnina í Brasilíu, að
skipið fai að vera í höfninni í 4
daga á meðan viðgerðin fer frarn,
en samkvæ'mt alþjóða-hlutieysis-
lögum mega herskip ekki dvelja
í höfnum hlutlausra þjóða nema
einn sólarhring.
Bkki er kunnugt hvaða afstöðu
stjórnin í Brasilíu ætlar að taka
til málaleitunar Breta. En það
er í fersku minni, að þýska or-
ustuskipið „Graf Spee“ varð að
láta úr höfn fná Montevideo í
TJruguav í vetur, áður en viðgerð
á skipinu var lokið, vegna þess
áð stjórnin í Urugay hjelt fast
við la'gabókstafinn um hlutleysi
þjóðarinnar. En „Graf Spee“ fekk
þó að vera 72 klst. í höfn í Monte-
vdeo.
Það er nú kunnugt að viður-
eignin milli hjálparbeitiskipanna,
hins breska og hins þýska, var
sbamt undan Rio de Janeiro. —
Breska beitisbipið hæfði þýska
skipið á 5V2 mílna færi. Sjálft
hlaut breska skipið þrjár fall-
byssukúlur.
Þjóðverjar tilkyntu í gær, að
þýska hjálparbeitiskipjð hefði
tekið upp sjóliernaðaraðgerðir
gínar að nýju.
En Bretar segja, að þar með
sje þó sagan sennilega ekki sögð
öll, því að brdsk herskip sjeu að
leita að hinu þýska skipi.
Roosevelt
á ráðstefnu
Afstaðan til Finna
MOLOTOFF, forsætisráðherra og utanríkis-
hálaráðherra Rússa, sagði í ræðu, sera hann
flutti á 7. fundi æðsta ráðs Sovjet-ríkjanna
í gær, „að nýr þáttur heimsvaldastyrjaldar vesturþjóðanna
væri um það bil að hefjast, þar sem annarsvegar myndu
standa Þjóðverjar og ítalar, en hinsvegar Bretar, sem
myndu njóta aðstoðar Bandaríkjanna“. Molotoff lýsti yfir
því að Sovjetríkin myndu standa utan við þessa styrjöld.
Fundur æðsta-ráðsins hafði verið boðaður til þess að
taka ákvörðun um „umsókn“ Eystrasaltsríkjanna um upp-
töku í sovjetríkjasambandið, og um innlimun Bessarabíi1
og Norður-Bukovínu í Sovjet-Rússland. Bæði þessi mál
voru sett í nefnd.
En Molotoff notaði tækifærið til að gera grein fyrir af-
stöðu Sovjetríkjanna í utanríkismálum og til hvers einstaks
ríkis sjerstaklega sem viðskifti hefðu við Rússa. Hann talaði
fyrst um afstöðuna til Þjóðverja.
Sambúð Rússp. og Þjóðverja er góð, sagði hann.
Það hefir sannast, að þýzk-rússneski samningurinn,
sem gerður var í októher síðastliðnum hefir orðið til
gagns fyrir báða aðila. Hann gerði okkur kleift að
gera nauðsynlegar ráðstafanir á vesturlandamærum
okkar, og Þjóðverjum hefir hann trygt frið á austur-
landamærum sínum.
Molotoff talaði fyrirlitlega um tilraunir þær, sem gerðar
hefðu verið undanfarið til að spilla sambúð Rússa og Þjóðverja.
„Síðustu atburðirnir hafa ekki gert annað- en að undirstrika
mikilvægi þýzk-rússneska samningsins“, sagði hann.
Molotoff lagði áherslu á, á sama hátt og Hitler gerði í
síðustu ræðu sinni, að í samningi þessum fælist viðurkenning á
hagsmunasvæðum beggja þjóða.
Það kendi margra grasa hjá Molotoff er hann talaði um
afstöðu Rússa til ítala. Hann sagði að sambúð þessara þjóða
hefði batnað undanfarið og að opnast hefðu möguleikar til
aukinnar samvinnu milli þeirra „í utanríkismálum. og til auk-
innar verzlunarviðskifta á milli þeirra“.
En öðru máli gegnir um sambúð Rússa við Breta. Þar hefði
engin breyting gerst undanfarið, og hann kvað litlar líkur til
að sambúðin batnaði á næstunni, „þótt útnefning Sir Stafford
Cripps tíl sendiherra í Moskva, gæti bent til þess, að Bretar
hefðu hug á að koma á betra samkomulagi“.
Loftðrðsir
fireta á skip
við Holland og
Þýskaland
aosevelt kallaði á ráðstefnu
til sín í gær aðstoðarutan-
málaráðherra sinn, Mr.
ler Welles, yfirmann amer-
hersins, Mr. Marshall og
aann flota,ns, Mr. Stark.
Eins kvaðst Molotoff ekkert
gott geta sagt um sambúð Band-
ríkjanna við Rússa. Ýmsar ráð-
stafanir hefðu verið gerðar vest-
anbafs. sem sýndu litla velvild
í garð Rússa, „en Rússum er
sama“, ‘sagði' nann.
(Það er sjerstaklega sú ráð-
stöfun Bandaríkjanna að ,,frysta“
ugll Eystrasaltsríkjanna í ame-
rískum bönkum, sem vekur gremju
Rússa). f
Molotoff kvað það hafa kornið
í Ijós undanfarið, að Japanar vildu
bæta sarnbúð sína við Rússa og
möguleikarnir til þess væru fyrir
hendi. En þó hefði hin nýja stjórn
ekki gert nægilega grein fyrir af-
stöðu sinni til þessa máls.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU
Mannffall
Hollendinga
Bretar tilkynna að flugvjel-"
ar þeirra hafi í gaer gert
loftárásir á skip við strendur
Hollands og Þýzkalands. Með-
al annars voru gerðar árásir á
skip í Zuidersee.
Bretar segjast einnig hafa
varpað sprengjum yfir tvö þýzk
birgðaskip.
En bæði í tilkynningum Þjóð-
verja otg tilkynningum Breta
er talað um að slæmt veður
hamli hernaðaraðgerðum flug-
vjelanna.
í tilkyriningu brezka flug-
málaráðuneytisins er skýrt frá
loftárásum, aem einstakar þýzk-
ar flugvjelar hafi gert á borgir
í Suð-austur Englandi. Á einj
um stað varð nokkuð tjón á
jrksmiðjum og eins nokkuð
manntjón.
Yfir annari borg lækkaði
'þýzk flugvjel flugið og skaut
af vjelbyssum á götur borgar-
j innar. f
Loftárás var gerð á Thamesár-
mynni og Bristolflóa.
Frá því að loftárásir iiófnst 18.
júní, segja Bretar að 366 óbreyttir
borgargr hafi farist og 476 særst.
í tilkynningu þýsku herstjórnar-
innar segir, að í nánd við Dover
hafi komið til loftorustu í gær
milli enskra Spitfireflugvjela og
þýskra Messerschmidtflugvjela, og
voru 5 hinna ensku skotnar nið-
ur, en Þjóðverjar mistu eina. —
Enskar flugvjelar vörjmðu í gær
nokkrum sprengjum vfir ýmsa
staði í Noregi, Danmörku og Hol-
landi, og voru 3 flugvjelar þeirra
skotnar niður á þessum stöðum.
Samkvæmt þýzkum heimild-
um nam tala fallina hol-
lenskra hermanna í styrjöldinni
við Þjóðverja 2890. — Tale
særðra manna 6889. 29 manna
er saknað.
Hollenski utanríkismálaráð-
herriann tilkynti skömmu eftir
uppgjöf Hollendinga að 100
þúsund manns hefðu fallið af
hollenska hernum,
Þjóðverjar segja, að það sje
uú uppiýst að 619 manns hafi
farist í loftárásunum á Rotter-
dam.
Yfir Atlantshaf
Pað er búist við að innan
skarris verði fyrstu sprengi-
flugvjelunum, sem Bretar hafa
keypt í Bandaríkjunum, flogið'
yfir Atlaritshaf frá Kanada.
Wilcoxon flugkapteinn, sá er
stjórnaði tilraunaflugi Breta frá
írlandi til Nyfundnalands, fyr-
| ir nokkrum árum, er kominn til
jKanada til að hafa yfirstjórn
Atlantshafsflugsins.
Stór-Austur
Asía
Takmark Japana
Alveldi i innan-
ríkismálum
Matsuoku, utanríkismála-
ráðherra Japana gerði
í gær grein fyrir utanríkismála-
stefnu hinnar nýju stjórnar í
Tokio, og í sama mund var gef-
in út stjórnarttlkynning, þar
sem gerð var grein fyrir innan-
ríkismálastefnu stjórnarinnar. ,
Stefnan í utanríkismálum er
samkvæmt ummælum Matsuo-*
kus, að stofna Stór Austur-Asíu,
sem er á allan hátt sjálfri sjer
nóg. En fyrsta verkefnið er að
leiða hið fyrsta stríðið í Kína
til lykta.
Hið síðara atriðið hefir verið
á stefnuskrá allra stjórpa, sem
tekið hafa við völdum í Japan
síðastliðin 3 ár.
Matsuoku talaði um að stofna
hagsmunasvæði allra þjóða í
Austur-Asíu. Svæði þetta á að
ná yfir hollensku Austur-Ind-
landseyjarnar, Indo-Kína, og
eyjarnar í Suðurhöfum, og auk
þess Japan, Kína og Mands-
phukuo. Þær þjóðir .sem reyndu
að leggja stein í götu Japana
við framkvæmd þessarar fyrir-
ætlunar, myndu engrar sam-
vinnu þurfa að leita í Japan.
Hagsmunasvæðið, sem Japanar
vilja hjer helga sjer, er ekki síð-
lir hagsmunasvæði Breta ög Banda
ríkjanna, en þeirra.
ALVELDI
I innanríkismálum er stefnan
að stofna alveldi, á svipaðan hátt
og í Þýskalaudi og Italíu. Ment-
un í landinu á að vera miðuð' við
það, að keuna að þjóna ríkinu,
þingið á að verða tæki til að
hjálpa keisaraknúnuniii, endur:
skipuleggja þurfi hina opinheru
þjónustu o. s. frv.
í yfirlýsingu stjórnarinnar er
talað um, að japanska þjóðin verði
að horfast í augu við „hin óhjá-
kvæmilegu stefhumið í verldar-
sögunni“.
„ÓVINSAMLEG
RÁÐSTÖFUN“
Japanar ljetu ófriðlega í gær,
bæði gagnvart Bandaríkjunum og
Bretum. Fulltrúi japanska flota-
málaráðuneytisins, sagði að bann
Bandaríkjamia við útflutningi á
flugvjelabensíni, væri stefnt gegn
Japönum og værj óvinsamleg ráð-
stöfun gaguvart -þeiin. Hann sagði
að Bandar. hljóti að þafa gert
sjer grein fyrir því fvrirfram,
hvaða afleiðingu þetta hann
mvndi hafa.
í London fór sendiherra Japana
á fund breska utanríkismálaráð-
herrans og kráfðist skýringar á
þeirri ákvörðun Breta, að ætla
,að krefjaet flotaskírteinis af öll-
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.