Morgunblaðið - 15.09.1940, Page 3
-Suitnudagur 15. sept. 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
•>
•>
Bresk flugvjel
nauðlendir
i
á öræfum
Óvíst um flugmennina
DAVIES ofursti í breska hernum lagði upp frá
Kaldaðarnesi um kl. 6 á föstudag, við annan
mann í flugvjel áleiðis til Akureyrar.
Veður var hvast af norðri. Flugv.jelin kom ekki til Akureyrav
og hafði ekkert til hennar frjest í gærmörgun. Var frá þessu sagt í
hádegisútvarpinu í gær, og þess getið til, að þeir fjelagar myndu
hafa nanðlent á öræfum.
Flugmenn hófu leit í gær að
hinni týndu vjel, og komu auga
á Hana skömmu eftir hádegi. Er
hún skamt suðaustur af Hofs-
jökli, að því er blaðið frjetti i
gærkt öldi, en ékbi var nánar til
getið við blaðið, hvort hún sje
áustaú éða véstan Þjórsár, senni-
lega vestan árinnar og mjög
skamt frá jöklinum.
Sást flugvjelin þar uppistand
andi og heil, en ekki varð það
greint úr íofti, hvort hjólin hefðu
brotnað undan henni.
.Sennilegt er, að þeir tveir, sem
í vjelinni voru, ofurstinn og flug-
raaður, hafi sloppið ómeiddir, úr
því vjelin sást heil eða heilleg.
Og liklegt að þeir hafi lagt af
stað áleiðis til bygða. En langt,
er til bygða ofan að ^kriðufeíli í
Þjórsárdal og illfært gangandi
mönnum, vegna þess hvé ár eru
margar og vátnsmiklar á þei'rri
leið.
Menn sém lögðu upp á Öræfin
í gærkvöldi eða morgun vel hest-
aðir, verða komnir upp undir jök-
ul í kvöld.
Walterskepnin
í dag
Walterskepnín hefst í
dag kl. 1,30 og
keppa Fram og Valur. Á und-
an kepninni fer fram ,,old
boys“ leikur milli gamalla
knattspyrnumanna úr Fram og
Val.
.Walterskepnin er, eins og ný-
lega var getið hjer í blaðinu
síðasta mót meistaraflokks í
haust. Leikirnir verða aðeins
þrír, því það fjelag sem tapar
einum leik er þar með úr.
Okuslys
á Akureyri
Síðastliðinn föstudag varð á-
rekstur milli bresks setu-
liðsbíls og unglingspilts á reið-
hjóli á gatnamótum Strandgötu
og Glerárgötu á Akureyri.
Pilturinn var Sigurður Sigur-
steinsson, Gránufjelagsgötu 6.
Hann er sendill hjá Vöruhúsi
Akureyrar. Hann fekk mikið
högg við áreksturinn, fjell með-
vitundarlaus á götuna og .var
fluttur á sjúkrahús. Ekki var
hann talinn í lífshættu.
Er myrkvun
strandarinnar
nauðsynlag?
Hugleiðingar
skipstjóra
Mjer þykir einkennilegt,,
; sagði togaraskipstjóri
einn, sem kom inn á skrifstofu ’
blaðsiusí gær, „að það skuli vera
nauðsynlegt ;ið slökkva á vitum ■
h.jer á landi, úr því vitaljós eru
látin-' Ióga !á ströndum ófriðarland
áima. ökkur 'sjómanníha lángat •
til þess að því ináli sje hreyft.
Við hofum sjeð, að til mála
kom, h ve-r svo sem upphafsmað-
urinn var, áð myrkva skyldi
Reykjavík. En síðan var horfið
frá því að athuguðu máli.
Ennfremur var Reykjavíkur-
höfn lokað nokkrar nætur. En
síðan hætt við þessa næturlokun.
Skyldi ekki mega fá það mál
tekið upp að nýju, hvort nauð-
synlegt sje, að slökkva á vitun-
um?
Látum það vera þó ratjiovitarn-
ir sjeu látnir hætta að starfa, ef
það þykir nauðsynlegt. Við sjó-
menn getum fengið miðanir frá
Vestmannaeyjum að deginum til.
Það er betra en ekki, þó meiri
þægindi s.je að slíkurn miðunum
meðan dimt er.;,
En að slökkva ljósvitana svo
marga, sem gert er, er okkur á-
kaflega óþægilegt, fyrir utan
hættuna, sem af því getur stafað.
r-r* Er það ekki einkum haga-
legt fyrir vkkur, þegar þið kom
ið til landsins frá utanlandsferð-
um ?
— Það getur altaf tafið okk-
ur að hafa e.kki vitana logandi.
Við höfum að vísu ljós á nokltr-
um aðalvitunum, helstu landtöku-
vitunum. En að missa af vitunum
er't. d. oft mjög bagalegt þegar
við erum að veiðum. T! d. að hafa
' <
ekki stuðning af Akranesvita þeg-
ar við erum að veiða hjerna í Fló-
anum. Það er okkur mikið óhag-
ræði.
Við eigum líka bágt með að
skilja það, að nauðsynlegt sje t.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
....... Victoríu-xiiiiiKiisnierk!!? ■
Hjer sprakk tíma-sprengja í gær
Victoríu minnismerkið fyr-
ir framan konungs-
höllina í London, þar sem
tímasprengja sprakk í gær.
Það var ein af 6 sprengjum,
sem varpað var á höliina í
fyrradag.
Sprengjan mun hafa kom-
Ið niður, þar sem hestvagninn
sjest á myndinni. Gróf hún
sig niður í götuna. Lögregla
og herlið vann að því að
hlaða sandpokum í og um-
hverfis gýginn, ensamt eyði-
lagði sprengjan mikið er hún
sprakk, þar á meðal hallar-
hliðið.
Bátur brotnar
við Laugarnes
einni partinn í gær fóru tveir
k—' menn á bát inn í Sund, þeir
Björgólfur Sigurðsson og versl-
unarmaður frá Tómasi Jónssyni.
Þeir ætluðu iun að flutningaskipi,
sem þar liggur. Þeir voru á
skemtibát, sem Ingólfur Guð-
mundsson átti.
Er þeir voru staddir milli Við-
eyjar og Lands,, bilaðb vjelin í
bátnum, og rak bátinn undan
vindi upp í kletta austan við
Laugarnes.
Þeir fleygðu sjer úr bátnum og
svömluðu til lands. En í því vet-
fangi sein Björgólfur var að losa
sig við bátinn, slöngvaðist bátur-
iun til, þannig að Björgólfur fekk
mikið högg á höfuðið. Var hann
ringlaður er í land kom. Hafði
fengið heilahristing.
Báturinn mölbrotnaði þnrna í
klettunum.
Frönsku herskipin 6, sem
fóru um Gibraltarsund í vikunni
voru á leið til Dakar í Norður-
Afríku. Segir í fregn frá Vichy,
að skip þessi sjeu send til þess
að vernda hagsmuni Frakka í
Norður-Afríku. 1 gærkvöldi var
tilkynt frá Vichy að skipin
væru komin til Dakar.
Forráðamenn
skólanna koma
saman oftir
helgíoa
Ræða hið breytta
ástand
A ð tilhlutan kenslumálaráðu
neytisins verða . boðaðir
á fund hjer í bænum, allir
skólastjórar framhaldsskólanna
í landinu: Háskólans, menta-
skólanna, gagnfræðaskólanna,
alþýðuskólanna, iðnskólans,
verslunarskólanna, kvennaskól-
ans í Reykjavík og barnaskól-
anna í Reykjavík og á Akur-
eyri.
Þessi fundur hefst á mánu-
dag og mun standa yfir í tvo
daga eða svo.
Aðaltilgangurinn með fundin-
um er, að ræða um afstöðu
skólanna til þess sjerstaka á-
stands sem nú ríkir hjer á
landi.
Það er áreiðanlega hyggilegt,
að boða til slíks fundar áður en
skólarnir hefjast. Æska lands-
ins kemur saman í skólunum.
Það hefir ekki litla þýðingu,
að hegðun hennar og breytni
gagnvart hinu erlenda setuliði
sje í alla staði óaðfinnanleg. Og
skólarnir geta einmitt miklu á-
orkað í að skapa heilbrigt al-
menningsálit í þessum mestu
vandamálum okkar litla þjóð-
fjelags. Þess vegna ber að
fagna því, að forráðamenn
skólanna komi saman til að
ræða þessi mál, áður en skól-
arnir hefjast.
Kaldastí ágúst
etta er kaldasti ágúst-
mánuður síðan jeg byrj-
aði kornræktartilraunir mínar
1927, sagði Klemens Kristjáns-
son á Sámsstöðum er blaðið átti
tal við hann í gær. Móðalhiti í
ágúst var á Sámstöðum 9,8
gráður, og er það lægri meðal-
hiti en mælst hefir hjer sunn-
anlands að meðaltali í ágúst
síðan veðurathuganir hófust
1876.
Klemens var ekki viss um
hvort hafrarnir myndu þroskast
fyllilega, hjá honum að þessu
sinni. Sexraðaða byggið var
hann að byrja að slá í gær og
er það sæmilega þroskað. Þó
bjóst hann við því að grómagn
þess til útsæðis yrði með minna
móti.
Þar sem hann hafði athugað
uppskeru af kartöflum í til-
raunareitum, var uppskeran %
af meðaluppskeru.
Hann er búinn að hirða af
tilraunareitunum á Rangár-
söndum. Reyndist uppskera þar
minni en hún leit út fyrir að
vera.
Ólafur Jónsson framkvæmda-
stjóri Ræktunarfjelagsins sagði
hörmulega tíð í Eyjafirði, er
blaðið hafði tal af honum í
gær, frost altaf öðru ht'o'ru.
Mikið úthey óhirt í Eyjafirði,
og há víða enn á túnum. Kárt-
öfluuppskera mjög Ijeleg, en á-
berandi best í gömlu kartöflu-
görðunum á Akureyri. Snjðr var
í gær langt niður í hlíðar Vaðla-
heiðar.
Sex ára gömul telpa, Unnur
Brynjólfsdóttir, hljóp fyrir bíl á
Bergstaðastræti í gærkvöldi og
slengdist í götuna. Hún fjekk
heilahristing og var flutt á Land-
spítalann. Meiðslþ ekki talin
hættuleg.
Á hlutaveltu Vals í gær var
annar stóri peningavinnmgurinn
dreginn. Frú Súsanna Friðriksd.
(Miðstr. 4, Rvík) hjet sú, er vinn-
inginn fjekk.