Morgunblaðið - 10.10.1940, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 10.10.1940, Qupperneq 7
Fimtudagur 10. okt. 1940. M 0 R GUNBLAÐIÐ oooooooo<xxx>ooooo<> 4 hellu Rafha eldavjel, nýleg, með hitá- skúffn og tvöföldum bakara- ofni, sjerstaklega hentug fyr- ir rekstur í stærri stíl, er til sölu. Upplýsingar Kaffisaln- um Hafnarstræti 16. 0 oooooooooooooooooo Cerebos BORÐSALT er þekt heimsend- anna á milli. Alstað- ar reynist það jafn- gott og altaf fer notk- un þess vaxandi. Fæst í öllum búðum. Bergur Jónsson skip- stjóri 75 ára B Dagbók Uppboð verður haldið að Miðdal í Mos- fellshreppi í dag, fimtudaignn 10. okt. og hefst kl. 2 e. hád. Selt verður: Sauðfjenaður, kýr, hey, verkfæri, búslóð o. fl. — Greiðsla fari fram við hamars- högg. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu, 10. október 1940. Bergur Jónsson. Hreinleetisvörur: Sunlight sápa Radion Rinso Lux-sápuspænir Vim-ræstiduft. VÍ5IR Laugaveg 1. Fjölnisveg 2. írnmniiinnmnmmnntMiiniimiimiimiiiiiiiiiiimmiiimiiiii luiiiimumiiiumimiimiiiiiiiiimiiiiiiiiiuiiuummiiiiiimui Starfskrá Morgtmblaðsíns er fyrflr alla fla^menn. Biftist á sunnudögum ergur Jónsson skipstjóri er 75 ára í dag. Hann er einn af þessuni bjargtryggu, gömlu og góðu mönnum, sem öllum er hlýtt til og allir bera virðingu fyrir, ef þeir hafa nokkur kynni af manninum. Hann er Mýramaður að ætt og uppruna, fæddur í Sanddalstungu í Norðurárdal, og ólst upp í Dalasýslu og Borgar- fjarðarsýslu* til tvítugsaldurs; en þá flutti hann til Keykjavíkur. Mentun fengu fátækir unglingar litla á þeim árum, og skrift lærði Bergur af sjálfum sjer og lánaðri forskrift. Hrærði hann sót út í vatni og notaði sem blek, og skar sjálfur fjöðurstaf til þess að æfa sig með. I Reykjavík stundaði Bergur sjó á árabátum og skútum, en var þó hneigðari fyrir smíðar en sjómensku. En þá voru engin tök á að komast að smíðanámi, og varð hann því að láta sjer nægja með sjómenskuna. Vorið 1891 var hann ráðinn háseti á Geir til há- karlaveiða, en á Önnu Matthildi, sem einnig var eign Geirs Zoéga, vantaði frammámann (er færi fram „Klyverbómuna" þegar losa þurfti „Klyverinn“ eða gera hann fastan), og fjekst enginn fyr en Bergur bauð sig fram. Þar var stýrimaður Marteinn Teitsson (faðir Guðmundar Marteinssonar verkfræðings) og hvatti hann Berg til þess að fara á Stýri- mannaskolann, er var stofnaður um haustið 1891, og kendi hann Bergi reikning undir skóla. Var Bérgur í skólanum part úr vetrin- um, byrjaði seint og hætti snemma, til þess að komast í skiprtim á vetrarvertíðinni. Næsta sumar var Marteinn skipstjori á Ilaraldi og rjeði Berg sem stýrimann hjá sjer. Þar var þá Jón heitinn banka stjóri Ólafsson háseti. Þegar Bergur hafði lokið skip stjóraprófi, varð hann skipstjóri á „Solid“, skipi er Gunnlaugur Briem átti ,næst stýrði hann skip um fyrir þá Jón heitinn Norð mann og Tryggva heitinn Gunn- arsson. En lengst var hann skip stjóri á „Surprise“ Einars Þor gilssonar. og átti hlut í skipinu sjálfur. Tók hanu við því skipi ár- ið 1901 og var á því til 1921, að hann hætti sjómensku. Allan þann tíma, er Bergur var a sjó, hvort sem hann var háseti, stýrimaður eða skipstjóri, hlektist skipi hans aldrei á og aldrei slas- aðist þar maður. Má það vissu lega heita gæfa góðum manni enda telur Bergur sjer það hina mestu hamingju, jafnhliða því að hafa eignast góða konu (frú Þóru Magnúsdóttur frá Miðseli), gott heimili og góð börn. Bergur bjó í Hafnarfirði meðan hann hafði atvinnu sína þar, en fluttist til Reykjavíkur árið 1931 og hefir búið hjer síðan, á Bók hlöðustíg 6 C. Þrír fjórðu aldar, og „strikið óbreytt. Það er vel gert, vinur. mHiiniiiiiiuiiiiiiiiiiiitiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiitiifliiini Dansleik ætlar mótanefnd Val: og Víkings að ha.lda í Oddfellow höllinni n.k. laugardagskvöld. I. O. O. F. 5 = 12210108‘/2 =9 II Næturlæknir er í nótt Theodór Skúlason, Vesturvallagötu 6. Sími 4411. Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. Næturakstur næstu nótt annast Bifreiðastöðin Geysir. —r- fsími 1633. Tungumálanám við Háskólann. Þeir stúdentar, sem hafa í hyggju að leggja stund á tungumálanáiu við Háskólann, með framhaldsnám síðar erlendis fyrir augum, eru beðnir að koma til viðtals við rektor í Háskólanum kl. 11 á morgun. Sigurður Sigtryggsson, sem hefir úndarifárið verið yíirkenn- ari latínuskólans í Kaupmanna- höfn, var frá 1. ágúst s.l. skipað- ur rektor við ríkisskólann í Lyng- by (rjett við Kaupmannahöfn). 375 nemendur eru í skólanum. Vitneskjan um þetta kom í brjefi frá Sigurði til síra Bjarna Jóns- sonar vígslubiskups. Brjefið er skrifað 17. júlí og sent í flug- pósti yfir ftalíu og Ameríku, eu kom til viðtakanda 8. okt., svo að margar hafa orðið hindranirn- ar á vegi þess. Sigurður Sig- tryggsson á marga vini og kunn- ingja hjer og munu þeir gleðjast yfir þessum frama hans. Bamavinafjelagið,, Sumargjöf" ætlar að starfrækja heimili fyrir böm í Vesturborg í vetur. Það verður ekki hægt að taka nema tiltö’lulega fá börn og ættu því >eir, sem þurfa að koma börnum sínum fyrir, að senda umsóknir í dag eða á morgun. Bryndís Zoéga forstöðukona veitir allar upplýsingar í Vesturborg kl. 3-5 daglega. Konur í kvennad. Slysavarna- fjel firi| beðnar að skila sem tyrst andvirði happdrættismiða, sem þær kynnu að hafa undir höndum. Aðrar konur í deildinni, sem ekki hafa tekið miða til sölu, eru góðfúslega beðnar að gera það sem fyrst, þar sem bráðlega verðnr dregið. Konur geta skilað eða tekið miða ,á skrifst. Slysa- varnafjel. í Hafnarhúsinu. Samsæti verður haldið fyrir Arna Thorsteinsson tónskáld, tilefni af sjötugs afmæli hans þriðjudaginn 15. þ. m. Samsætið hefst stundvíslega kl. 7 með borð- haldi í salarkynnum ■ Oddfellow hússins. Væntanlegir þátttakend- ur eru vinsamlegast beðnir að skrá nöfn sín og vitja aðgöngu- miða í Bókaverslun Sigfúsar Ey- mundssonar fynr laugardags- kvöld. Rauði Kross íslands. Þeir, hafa haft happdrættismiða, er seídir hafa verið í sumar til ágóða fyrir sumardvöl barna í sveit, eru vinsamlegast beðnir aS gera þeg- ar í st-að grein fyrir sölunni og skila peningum og óseldum mið- um í síðasta lagi fyrir 12. þ. m. á skrifstofu R. K. í. kl. 1—4. Til Hallgrímskirkju í Saurbæ frá T. Da. 5 ,kr„ N. N. 5 kr. Til kirkjunnar á Skólavörðuhæð- inrii: frá B. 2 kr. Áheit frá S. J. 10 kr., afh. síra Fr. Hallgríms- syni. lítvarpið í dag : 1-8.05 Áttundi dráttnr í happ- drætti háskólans. 20.30 Fiðlu-tvíleikur (Þórarinn Guðmundsson og Þórir Jóns- son): Tvíleikur eftir Mendel- sohn o. fl. 21.10 Útvarpshljóirisveitin: Laga- flokkur eftir Coates. 21.45 Frjettir. Síra Arnbjörn ólafsson er ný bók, sem menn ættu að kaupa og lesa. Frásögnin virðist vera þrauthugsuð, efnið varðar alla hugsandi menn. Verð kr. 2.00. Fæst í prentsmiðjunni Viðey. x**x**x-x->*x-x**:-x**x-x-x**x-x-x-x*<-x*<-x~x*<**:**x-x*,x**x-x**x*<*«^ v r Umbúðapappír nýkominn. HeifdversEun Garðars Gíslasonar. ><—:—x—x—x~x—x-:—x*<—x—x—x—x—x—x~x—x—x—x—x—x—x—x—x—:—x*<-> Tilkynning frá loffvarnanefnd Skrifstofa loftvamanefndar er flutt í Slökkvistöðina Tjamargötti 12. Skrifstofan er opin daglega kl. 2—4 síðd. hvern virkan dag. Sími 1100. LOFTVARNANEFND. Dóttir mín ANNA SIGRÍÐUR EYÓLFSDÓTTIR andaðist á Vífilsstöðum að morgni þess 9. október. Pálína Jónsdóttir. Móðir mín SIGURBJÖRG DAVÍÐSDÓTTIR andaðist 7. þ. m. á heimili dóttur sinnar, Víðirgerði í Eyjafirði. Haraldur Hagan. Maðurinn minn elskulegur GRÍMÚLFUR ÓLAFSSON yfirtollvörður andaðist að heimili sínn í gærmorgun. Stefanía Friðriksdóttir. Móðir okkar, tengdamóðir og amma MARGRJET JÓNSDÓTTIR frá Leiðvelli í Meðallandi, verður jarðsungin föstud. 11. þ. m. Athöfnin byrjar með bæn að heimili dóttur hennar, Grettis- götu 38, kl. 10 f. h. Kirkjuathöfnin fer fram í dómkirkjunni og verður henni útvarpað. Jarðað verður í Fossvogi. Blóm og kransar afbeðnir. Fyrir mina hönd og annara vandamanna Gissur Erasmusson. Jarðarför mannsins míns og föður okkar HAFLIÐA M. SÆMUNDSSONAR kennara fer fram frá dómkirkjunni föstudaginn 11. þ. mán. og hefst með hæn í Austurbæjarskólanum kl. iy2 e. hád. Kirkjuathöfninni verður útvarpað. Bjarnheiður Þórðardóttir og börn. Þökkum innilega auðsýnda vináttu við andlát og jarð- arför GUÐBJARGAR GUNN LAUGSDÓTTUR. Einar Ólafsson, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.