Morgunblaðið - 22.10.1940, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.10.1940, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Boris konungur Búlgara og öxulrikin Viðbótarsamningur sá við þýsk- júgóslafneska viðskiftasátt- málann (sem vjer gátum um á sunnudaginn) opnar leiðina til pólitískrar samvinnu milli Þýska- lands og Jugoslafíu, að því er Markowitc utanríkismálaráðherra Júgóslafa hefir skýrt frá. í Lon- don er litið svo á, að Júgóslafar hafi með þessum samningi beygt sig undir vilja öxulsríkjanna. Það er búist við að viðnám það, sem Boris Búlgaríukonungur hef- ir leitast við að veita gegn áhrif- 'ttm öxulsríkjanna, til þess að geta varðveitt algert hlutleysi Búlgaríu, verði nú brotið á bak aftur, eftir að Júgóslafar hafa beygt sig. Landbúnaðarráðherra Búlgara, M. Bagrianov, sem er vinsælastur ráð herranna í búlgörsku stjórninni og nýtur mikils trausts konungs, verði látinn mynda nýja stjórn. Bagrianov hefir undanfarið verið í heimsókn í Berlín og Rómaborg í boði öxulsríkjanna. Fyrir stuðning sinn við öxuls- ríkin er Búlgörum heitið að fá sneið af Grikklandi með hafnar- borginni Saloniki, sem Búlgarar þafa altaf gert kröfu til. Tass-frjettastofan rússneska hefir borið til baka fregn, sem mikið hefir verið gert úr í ame- rískum og breskum blöðum, um að Stalin hafi veitt sendiherra Trykja í Moskva áheyrn. Himmler á nautaati f Maclrid Spánverjar skemtu Heinrich Himmler, yfirmanni þýsku ríkisleynilögreglunnar (Gesta- po) með því, að bjóða honum á nauta-at í Madrid á sunnu- daginn. Þar var Himmler hylt- ur og þegar þýski þjóðsöngur- inn var leikinn, tóku margir á- heyrendur undir og sungu með. Á leiðinni frá leikvanginum til aðalstöðva spönsku lögregl- unnar í borginni, hafði fjöldi manns safnast saman til að hylla þýska Gestapoforingjann. Á sunnudagskvöld sat Him- mler veislu hjá Serrano Suner, hinum nýja utanríkismálaráðh. Spánverja og voru þar viðstadd- hfí auk spánskra stjórnmála- manna, þýskir, ítalskir og jap- anskir áhrifamenn í Madrid. I Berlín er á það bent, að þegar Serrano Suner var í Þýskalandi, hafi hann verið innanríkismálaráðherra og hafi þá byrjað viðræður við Himml- er um öryggismál og skipulag þeirra, og þessum viðræðum sje nú haldið áfram í Madrid. Er vakin athygli á hve nauðsynlegt sje að öryggismálum þjóðanna sje vel skipað, einkum á sfríðs- tímum. Þriðjudagur 22. október 1940 Winston Churchill ávarp- ar frönsku þjóðina Fjértánda loftárásin á Berlin 1941 munum við hafa forustuna í loftinu > _ ■ Látlausar „refsiárásir" Þjóðverja FJÓRTÁNDA LOFTÁRÁSIN á Berlín var gerð í fyrrinótt, en í öllum fjórtán loftárásunum hefir verið varpað á borgina (að því er skýrt er frá opinberlega í London) 200 smálestum af sprengj- um úr samtals 225 flugvjelum. Loftárásin stóð yfir frá klukkan 10 um kvöldið til klukkan 4 um morguninn. Merki um að hættan væri liðin hjá, var gefið um miðja nóttina, en þegar fólkið var á leiðinni úr loftvarna- byrgjunum kom önnur bylgja breskra flugvjela, svo að fólk var að leita skýlis aftur. IÁVAPI til frönsku þjóðarinnar, sem Mr. Churc- hill flutti í breska útvarpið í gærkvöldi, gat hann þess, að hún myndi fá hlutdeild í sigri Breta og sagði: „Ef þið getið ekki hjálpað okkur, þá setj- ið þó ekki tálmanir í veg fyrir okkur“. Churchill sagði, að Bretar hefðu nú, á árinu 1940, þrátt fyrir minniháttar töp, yfirhöndina á sjónum. En ár- ið 1941 myndu þeir hafa yfirhöndina í lofti, sagði Churc- hill og bætti við: „Munið, hvað það mun hafa í för með sjer“. ChurchiII talaði til Frakka sem sætu nú við arineldinn heima hjá sjer og tók upp orðin úr bæninni: Guð varðveiti Frakkland. Hjer á Englandi, sagði Churchill, sitjum við undir eldi Þjóðverja. Gleymið ekki að við höldum áfram baráttunni fyrir frelsi og rjettlæti, í viðskiftum þjóða, sem við hófum með ykkur. Þeg- ar góðir menn lenda í vandræðum, þá verða þeir að gæta þess að verða ekki saupsáttir. Oviijir þeirra munu reyna að spilla vináttu þeirra og þegar óhappið er yfir þeim, þá er hætt við að óvinunum verði nokkuð ágengt. Hjer í London sjést engipn bilbugur á neinum. Flugfloti vor hefir gert betur en að verjast. Við bíðum innrásarinnar og það gera fiskarnir líka. Hitler hefir tekist með skriðdrekum sínum, og fimtu her- deildarmönnum að undiroka um stundarsakir nokkra bestu kynflokka í heiminum. Litli bandamaðurinn hans í Italíu fylg- ir í fótspor hans, en að vísu þreytulega og hikandi. Markmið þeirra er að búta í sundur Frakkland eins og fugl. Einn á að fá vængina, annar ef til vill brjóstið. Á þeim að takast þetta? Eiga Elsass og Lothringen, Nizza, Savoien, Korsíka — Korsíka Napoleons, að falla undir járnhæla þeirra? Amerískir frjettaritarar í Ber- lín segja, að sprengjum hafi verið varpað á nokkra staði í borginni, en geta ekki um mann tjón. Þeir segja að ein bresk flug- vjel hafi verið hæfð af kúlu úr einni af loftvarnabyssum borgarinnar og splundrast í all- ar áttir. Hlutar úr henni fjellu niður á eina af aðalgötum borgarinnár. í tilkynningu Breta er ekki getið um flugvjelatjón, en hins vegar segir, að kúla úr loft- varnabyssunum hafi hæft loft- belg og að hann hafi hrapað í björtu báli á borgina. í tilkynningu Breta segir, að sámtímis árásinni á Berlín hafi verið gerð árás á Hamborg, Wil- helmshafen (þar sem álitið er að herskip hafi verið hæft), Essen, Köln, Rotterdam, Antwerpen og Vlissingen, og auk þess Ermar- sundsborgirnar. í fregn frá London. segir, að fólk á suðurströnd Engiands hafi sjeð eldana á Frakklandsströnd, og að eldar þessir hafi logað enn í dag. Bretar gerðu einnig árás á Turin og Milano, þ. á. m. á Pirelli verksmiðjuna og á Fiat verksmiðj- urnar. Bresku flugvjelarnar, sem fóru til Ítalíu, flugu yfir Sviss, að því er fregnir frá Berlín herma, og var loftvarnamerki gefið bæði í Bern og Zúrich. Þjóðverjar hjeldu enn uppi loft- árásum á England dag og nótt yfir helgina og í gærkvöldi hófst næturárásin á venjulegum tíma. í loftárás á London í fyrrinótt var blaðahverfi horgarinnar hæft, og urðu m. a. byggingar „The Tim- es“, „Daily Express", „Daily Telegraph“, „Evening Standard" o. fl. fyrir skemdum _ (skv. þýsk- um frjettum). Þjóðverjar segjast á einum sól- arhring hafa varpað 500 smál. af sprengjum yfir England. Morðinginn, sem kom a( stað Gyöinga- ofsóknunum Framselduff til Þýskalands q amkvæmt fregn frá Vichy 3 hefir franska stjórnin ákveð- ið að leyfa að Grúnspahn, pólski Gyðingurinn, sem myrti þýska sendiráðsfulltrúann í París, von Rath árið 1938, verði fluttur til Berlínar og dreginn þar fyrir rjett. Morðið á von Rath leiddi á sín- um tíma til hinna ægilegu Gyð- ingaofsókna í Þýskalandi í nóvem- ber 1938, er Gyðingar voru dregn- ir út úr íbúðum sínum og drepn- ir, synagogur brendar o. s. frv. Þjóðverjar lögðu 1800 miljón króna skatt á alla Gyðinga bit- setta í Þýskalandi Grúnspahn, morðvargurinn, var dæmdur í 20 ára fangelsi af frönskum dómurum, en franska stjórnin neitaði þá að framselja hann til Þýskalands. Verður Lupescu framseld? O amkvæmt fregn frá Bukarest ^ hefir rúmenska stjórnin far- ið þess á leit við spönsku stjórn- ina, að hún framselji Madame Lu- peseu (hjákonu Carols fyrv. Rú- meníukonungs) og hirðmarskálk Carols, sem bæði eru landflótta á Spáni. Bæði eru sökuð um að hafa átt drýgstan þátt í lífláti Codreanus, rúmenska járnvarðaliðs (fascista) foringjans. En Hitler ætlar ekki aðeins að stela hluta af Frakklandi. Jeg segi ykkur og þið verðið að trúa mjer, að þessi illi maður, þetta afkvæmi haturs og ósig- urs, ætlar sjer að þurka út frönsku þjóðina. Þið verðið að fyrirgefa mjer, að jeg tala hreinskilnislega. Það eru ekki tímar til þess að tala fag- urlega. Það er ekki ósignr ykkar, sem hann vill, heldur tortíming. Her ykkar, floti, flugher, trú, lög, stofnanir, saga og erfðavenj- ur, alt á þetta að hverfa fyrir sig- ursælum her og vísindálegum að- ferðum ófyrirleitinnar lögreglu. Frakkar, herðið upp hugann. Minnist orða Napoleons: „Aldrei mun jeg trúa því, að sál Frakk- lands sje dauð“. Við munum taka hefnd á Hitl- er og við munum lifa það að sjá þessa hefnd. Sagan er ekki á enda. Við erum á hælunum á honum, við og vinir okkar — og vinir ykkar — handan hafsins. Þótt, hann geti ekki sigrað okkur, þá munum við leggja hann að velli. Verið vongóðir, alt mun fara vel. Hvers er það, sem við biðjum af ykkur, til þess að íijálpa okk- ur til að vinna sigur, sigur, sem þið fáið hlutdeild í. Ef þið getið ekki hjálpað okkur, þá setjið þó ekki hindranir í leið okkar. Síðar getið þið stutt höndina, sem legg- ur Hitler að velli. Við munum aldrei hætta bar- áttunni. Við leitumst við að sigra Hitler og Hitlerismann. Við sækj- umst ekki eftif neinn frá öðrum þjóðum fyrir sjálfa okkur, annars en virðingar þeirra. Churchill sagði, að Frakkar í þeim hluta Frakklands, sem ekki væri hernuminn, gætu hjálpað með því að andæfa Þjóðverjum. Ilina, sem byggju í hinum her- numda hluta Fralcklands, minti Churchill á orð Gambetta frá ár- inu 1870: „Hugsið altaf um það, talið aldrei um það“. Churchill lauk ræðu sinni með orðunum: „Vive la France (Lengi lifi Frakkland) og lengi lifi hinar óbreyttu þjóðir á göngu sinni til frelsis“. Innrásin T íK af þýskum fótgönguliðs- manni í fullum herklæðum hefir rekið á land á suðurströnd Englands. í sambandi við þenna líkfund rifja Bretar upp fregnina um aS Þjóðverjar hafi ætlað að gera inn- rás í England 16. sept., en að hún liafi farið út um þúfur, vegná loftárása breska flugflotans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.