Morgunblaðið - 31.01.1941, Blaðsíða 3
j?'OBtudagur ii. januar 1941.
M U KCi U N BLAÖlt)
3
Fjáihagsáæflunfln afgrefldd i bæjarsfjórn
Ríflegur styrkur til
húsmæðrafræöslu
Tekur því ekki að
leiðrjetta „Timann"
um Háskólabíóið
Ileimild fil fullrar
verðlagsuppbófar
FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykjavíkur fyrir yfir-
standandi ár var til síðustu umræðu á bæjar-
stjórnarfundi í gær. Fundurinn stóð fram á
nótt, og var ekki lokið, er blaðið fór í prentun.
Bæjarráð og fulltrúar Sjálfstæðisflokksins báru fram nokkrar
breytingartillögur við hið upprunalega fnmiyarp, og gerði Bjarni
Benediktsson borgarstjóri grein fyrir tillögum þessum á fundinum.
Árshátíð
Sjálfstæðismanna
á Eyrarbakka
Sjálfstæðisfjelag Eyrarbakka
hjelt árshátíð sína síðast-
liðinn laugardag í samkomu-
húsinU á Eyrarbakka, með sam-
eiginlegri kaffidrykkju, ræðu-
höldum, söng, dansi og fleiri
skemtiatriðum.
Formaður Fjelagsins, Jóhann
Ólafsson, setti hátíðina með
ræðu og stjórnaðj henni. —
Skýrði hann nokkuð frá starf-
semi fjelagsins og stofnun Sjálf
stæðisfjelaganna í Árnessýslu 1
fyrra.
Ræður fluttu Jakob Möller
fjármálaráðherra, Eiríkur Ein-
arsson alþm., Gunnar Thorodd-
sen lögfr., Sig- Kristjánsson
oddviti Eyrarbakka og Bjarni
Júníusson bóndi í Syðra-Seli
við Stokkseyri, flutti k veðju
Stokkbekkinga. Var gerður
hinn besti rómur að ölíum ræð-
um manna.
Ágúst Bjarnason og Jokob
Hafstein sungu tvísöngva, bæði
.•úr ,,Gluntarne“ og íslenska
söngva. Brynjólfur Jóhannes-
son skemti með gamansöng og
öðrum leikaraskap. Þótti aði
öllu þessu hin besta skemtun.
Setið var að borðum fram
yfir miðnætti og tóku þátt í
borðhaldinu um 130 manns. —
Síðan var dansað lengi nætur.
Þessi árshátíð Eyrbekkinga
þótti takast með afbrigðum vel
Formenn iþrótta-
ráða skipaðir
Stjórn Iþróttasambands ís-
lands hefir nýlega skipað
formenn íþróttaráðanna hjer í
bænum, en aðrir nefndarmenn
eru skipaðir til tveggja ára og
voru skipaðir í fyrra.
Formenn eru: íþróttaráð
Reykjavíkur, Stefán Runólfs-
son, Sundráð Reykjavíkur: Er-
lingur Pálsson. Skíðaráð Rvík-
ur: Steinþór Sigurðsson.
Formaður Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur var kosinn á
knattspyrnuþinginu í hapst,
Pjetur Sigurðsson.
Tillögur bæjarráðs voru þær
helstar, að lagðar yrðu fram 65
þús. kr. til húsmæðrafræðslu, að
frú Ólöfu Björnsdóttur, ekkju
Pjeturs heitins Halldórssonar
borgarstjóra verði greiddar 3600
kr. á ári í eftirlaun, að borgar-
stjóra sje heimilt að taka 500 þíis.
kr. rekstrarlán á árinu, og að gas-
verðið verði hækkað úr 3Q aurum
í 35 aura ten.metri.
Húsmæðra-
fræðslan.
Um húsmæði’afræðsluna komst
borgarstjóri að orði á þessa leið:
— Konur bæjarins af öllum
flolckum hafa vakið sterka hreyf-
ingu til þess að knýja fram hús-
stjórnarskólamálið. Vill bæjar-
stjórnin að sjálfsögðu ekki láta
sitt eftir liggja til þess að styðja
þetta mál. Augljóst er, að það er
bæði til leiðinda og fjártjóns fyrir
bæjarbúa að hússtjórnarkenslan
skuli -ekki vera komin hjer í betra
horf. Því grundvöllurinn að hag-
sýni húsmæðranna er hagnýt þekk
ing þeirra, sem þær geta fengið
á góðum hússtjórnarskólum.
Síðán fjárhagsáætlunin var sam-
in, er málið komið nokkuð lengra
áleiðis. Forstöðukonur þessa máls
eru nú í þann veginn að festa
kaup á húsi fyrir skólann, svo nú
ef þægilegra en áður að gera sjer
grein fyrir stofnkostnaði skólans.
Frumvarp hafa þærl og samið til
laga um væntanlegan hússtjórn-
arskóla. Er gert ráð fyrir því, að
ríkissjóður taki á sig 2/3 af stofn-
kostnaði skólans og bærinn 1/3,
og’ er það í samræmi við það, sem
annarsstaðar hefir verið. En sam-
komulag um þetta er ekki fengið
enn.
Til reksturskostnaðar skólans
fer tiltölnlega lítið þetta ár, því
skólinn getur ekki starfað nema-
'síðustu mánuði ársins.
Gasverðið.
Tillagan um að hækka gasverð-
ið stafar af því, að fyrirsjáanlegt
er, að kolaverðið verður hærra en
ætlað var, vegna þess hve farm-
gjöld fara hækkandi. Hækknnin
á gasverðinu er þó ékki miðuð við
hina miklu verðhækkun á kölum,
heldur er hún gerð til samræmis
við verð á rafmagninu.
Rekstrarlán.
Um heimildina fyrir horgar-
PRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Hvað miðar bíómálinu áleið-
is?, spurði blaðið Alex-
ander Jóhannesson háskólarek-
tor í gær. Heyrst hafði, að ein-
hver afturkippur væri kominn
í J>að.
— Sjerstök nefnd hefir mál-
ið með höndum, sagði rektor-
inn, og er jeg ekki ínefndinni,
Níels Dungal er formaður, og
með honum Gunnar Thorodd-
sen og Jón Hjaltalín. En í mál-
inu er enginn afturkippur. —
Síður en svo. Nú er fyrst að
athuga hvað byggingin muni
kosta. Hefir nefndin fyrst skrif-
ati byggingarnefnd og spurt
hvort nokkuð væri sje því til
fyrirstöðu, að kvikmyndahús
sje reist á lóð þeirri, er Há-
skólinn hefir keypt við Aust-
urstræti.
Síðan þarf að fá bygginga-
meistara til þess að spreyta sig
á að gera útlits uppdrætti af
húsinu. Og þegar einhver þeirra
hefir verið valin, þá kemur til
að gera vinnuuppdrætti. — Ef
rannsókn leiðir í ljós, að það
sje fjárhagslega gróðavænlegt
að reisa húsið nú sem fyrst, þá
verður gengið að því.
— Hvað um fjárútvegun til
byggingarinnar ?
— jMálið er ekki komið svo
langt, að nokkuð sje farið að
hugsa um það enn.
— Tíminn flutti þá fregn
nýlega, að einhver Ónafngreind-
ur maður hefði boðið Háskól-
anum 700 þúsund króna lán
til byggingarinnar.
---Já, jeg hefi heyrt frá því
sagt, sagði rektorinn, að Tím-
inn flutti þá fregn. En hún er
helber uppspuni. Jeg átti tal
við ritstjóra Tímans í gær, Þór-
arinn Þórarinsson, og sagði
honum frá því að enginn fót-
ur væri fyrir þessari fregn
hans.
— Leiðrjettir hann. það þá í
blaði sínu?
— Það veit jeg ekkert. Jeg
fór ekki fram á það við hann
sjerstaklega. Jeg vildi aðeins
vera viss um, að hann. vissi að
fregnin væri ósönn. En Tíminn
flytur hvort sem er einhverjar
lygar um Háskólann svo að
segja í hverju blaði. Það endist
enginn til að vera að leiðrjetta
það alt saman. Almenningur
getur gengið að því nokk-jrn-
veginn vísu, að það, sem Tím-
inn segir um Háskólann sje
ósatt.
Næturakstur: Litla Bílstöðin.
Sími 1380.
liimniiiniimiuinnnnnniimiiniimninmiiHminniniiiiniif
EE —
( Roosevelt 1
I 59 ára 1
I í gær |
Franklin Delano Roose-
velt, forseti Bandaríkjanna
varð 59 ára gamall í gær.
í Bandaríkjunum var
haldið upp á afmælið, með
því að hef ja söfnun í sjóð,
sem verja á til baráttu
gegn lömunarveikinni. En
Roosevelt sýktist af þess-
ari veiki árið 1922, og
hefir hann ekki náð fullri
heilsu siðan.
Skjaldarglima
Ármanns fer
fram i kvöld
T1 in árlega skjaldarglíma
Á Ármanns fer fram í kvöld
kl. 9 í Iðnó. Glíma þessi er ann-
ar mesti glímuviðburður ársins.
enda kept um nafnbótina
„Glímukappi Reykjavíkur".
Að þessu sinni keppa níu
vaskir og ágætir glímumenn,
eriu sjö þeirra úr Glímufjelag-
inu Ármann, einn úr íþrótta-
fjelagi Kjósarsýslu og einn frá
U. M. F. Hvöt.
Meðal keppenda frá Árm.
eru Kjartan B. Guðjónsson,
hinn prýðilegasti glimumaður,
enda hefir hann nú nafnbótina
glímpsniliingur íslands. Énn-
fremur Jóhannes Ólafsson, Sig-
urður Hallbjörnsson, Guðni
Kristjánsson og fleiri snjallir
glímumenn. Frá Hvít keppir
Sigurður Ingvarsson og frá í.
K. Grímur Norðdahl.
Hin síðasta Islandsglíma
þótti að mörgu leyti marka nýtt
spor í rjetta átt með glímuna,
vonandi verður þessi skjaldar-
glíma Ármanns framhald að
þeirri ágætu glímu sem þá sást.
Allir hafa þessir glímumenn
nú um nokkurt skeið æft undir
^stjórn glímukennara Ármanns,
Jóns Þorsteinssonar.
Þær eru orðnar margar
skjaldarglímurnar, sem hafa
komið glímuskjálfta í Reykvík-
ina og skfemt þeim vel á liðnun
árum við að horfa á skemtilega
keppni í þessari fögru þjóðar-
íþrótt vorri. Þeir. sem áhuga
hafa fyrir glímu eða fögrum
íbióttum, ættu ekki að setja sig
úr færi að sjá þessa skjald-
arglímu.
Utilegubátar
hafa fiskaö fyrir
75 þús. krónur
ð mánuðf
Hásetahlutur
1500-2000 kr.
töðugar gæftir hafa verið
^ hjer í Faxaflóa í 20 daga
samfleytt og er mjög sjaldgæft
að gæftir sjeu svo langan tíma
í einu í janúarmánuði.
Morgunblaðið átti í gær tal
við Óskar Halldórsson útgerð-
armann um aflabrögðin og
sagðist honum frá á þessa Ieið:
Afli hefir verið ágætur á
útilegubáta, en tregari á land-
róðrarbáta.
Útilegubátarnir hafa aðal-
lega verið að veiðum í Jökul-
djúpi og hafa hæstu skipin afl-
að fyrir um 75 þúsund krónur
síðan um jól. Hásetahlutur á
þessum bátum er á rúmurft
mánuði 1500—2000 krónur.
Stærri bátarnir hafa allir,
eða langflestir komið með afla
sinn hingað til Reykjavíkur eða
Hafnarfjarðar og selt hann í
skip til útflutnings.
Aflinn hjá landróðrabátun-
um í verstöðvunum við Faxa-
flóa hefir hinsvegar verið treg-
ari.
Fyrir nokkrum dögum var
góður afli í 3—4 daga í Sand-
gerði og Keflavík og fiskaðist
þá 5—8 smálestir á bát í róðri 4
miðað við nýjan fisk inanúr-
tekinn með haus, tilbúinn til
útflutnings.
Nú hefir dregið úr þessum
afla og verið tregari síðustu
daga. 2—4 smálestir í róðri.
Svipaður afli hefir verið á Akra
nesi og Suðurnesjum.
Mest allur afli landróðrabáta
hefir verið seldur nýr til út-
flutnings í útflutningsskipin,
eins er með hrognin, þau hafa
verið seld til ísunar, fyrir 50
aura líterinn.
Nokkrir bátar hafa saltað
lítilsháttar af aflanum, 20-—
30 skpd. á bát. Það var þegar
engin skip hafa verið til
að láta fiskinn í.
. Hæsti afli á bát á Suðurnesj-
um mun vera um 200 skpd. á
bát, síðan um jól, og hæsti há-
setahlutur á sama tíma um
1000 krónur.
BEITUSKORTUR
YFIRVOFANDI
Svo að segja allir bátar hafa
fiskað með línu og beitt síld.
Tregur afli hefir verið hjá þeim
bátum, sem veiða með botn-
vörpu. Fyrirsjáánlegt er að
beituskortur verður, er kemur
fram á vertíðina, því nú þegar
er orðið erfitt að fá síld til
beitu. Stafar þessi beituskortur
af góðum gæftum og einnig af
því, að aldrei hafa jafnmargir
bátar stundað veiðar hjer við
Faxaflóa sem í vetur.