Morgunblaðið - 11.02.1941, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 11. fehrúar 1941
MORGUNBLAÐIf)
3
fyrslu hernaðaraðgerðlr á Islandi
.
Vjelbvssuskothríö úr þýskri
flugvjel við Olfusá
Þýsk flugwjel yfir
Keykjavík, og víðar
y fir Kcykjanesskag'a
ÞÝSK SPRENGJUFLUGVJEL, „Heinkel 111“
flaug yfir Selfoss, Revkjavík og víða yfir
Reykjanesskaga kl. 11—12 á sunnudagsmorg-
un. Yfir Ölfusárbrú flaug flugvjelin mjög lágt og var
skotið úr vjelbyssu flugvjelarinnar á hermenn og særðust
tveir þeirra.
Þýska flugvjelin flaug hjer umhverfis Reykjavík
laust eftir klukkan 11, en flaug ekki yfir sjálfan bæinn,
heldur meðfram ströndinni og suður yfir Skerjafjörð, til
Hafnarfjarðar og móts við Keflavík. Þar sneri flugvjelin
við og flaug austur á bóginn. Sást lækka flugið yfir Sand-
skeiði, en flaug síðan austur yfir fjall og hvarf sjónum á
haf út.
Ekki varpaði flugvjelin niður sprengjum og olli engu tjóni
á mannvirkjum. Þó má sjá för eftir vjelbyssukúlur í stöplum
á ölfusárbrú og vjelbyssukúlur lentu í hermannaskálum.
Loftvarnamerki var gefið
hjer í Reykjavík kl. 11,12, en
mínútu áður heyrðu bæjarbúar
skothríð mikla úr loftvarnabyss
um setuliðsins utan til í bæn-
um. Fyrsta loftvarnamerkið var
gefið með símahringingum og
síðan svo að segja í sömu mund
með rafmagnslúðrum.
Hingað höfðu fregnir borist
um ferðir flugvjelarinnar frá
Selfossi til setuliðsstjórnarinnar
hjer, en hún gerði lögíeglustöð
inni aðvart og var svo um tal-
að, að ekki skyldi gefa hættu-
merki fyr en ef byrjað yrði
að skjóta úr loftvarnabyssum.
Veður var ágætt, stilt og
heiðskírt,, en þó var svartur
reykjarmökkur yfir bænum,
einkum yfir höfninni. Margt
manna var á ferli á götunum
og leituðu margir til loftvarna-
skýla, en aðrir ekki.
Víða í bænum kom fólk
að hinum opinberu loft-
vamakjöllurum lokuðum,
vegna þess að vörður sá,
er þeirra átti að gæta og
sjá um að opin væri, kom
ekki á sinn stað.
Fyrír utan suma loftvarna-
kjallarana mátti sjá konur með
hvítvoðunga á örmum sjer og
smábörn við hlið sjer. Hefði
þetta skeytingarleysi varðanna
getað haft hinar alvarlegustu
afleiðingar, ef um loftárás á bæ
inn hefði verið að ræða.
Um 20 mínútum eftir að
hættumerki hafði verið gefið
hjer í bænum, var enn á ný
gefið hættumerki, en það var
er þýska flugvjelin hafði snúið
við aftur norðaustur á bóginn.
Laust fyrir klukkan 12 var svo
gefið merki um að hættan væri
liðin hjá.
Almenningur mun ekki hafa
FRAMH. Á FJÓRÐU SÍÐU.
u ,
„Heinkel 111“ flugvjel af
sömn gerð og var hjer yfir
bænum á sunnudaginn.
Engar þýskar
flugvjelar við
ísland í gær
Allskonar sögusagnir voru á
lofti hjer í bænum í gær um
að sjest hefði til þýskra flugvjela
við suðurströndina. Morgunblaðið
hefir það hinsvegar frá áreiðan-
legum heimildum, að engar þýsk-
ar flugvjelar voru á ferð hjer við
land í gærdag.
Breskar hernaðarflugvjelar voru
á sveimi víða við suðurströndina
í gær og er sennilegt að sögnrn-
ar um þýsku flugvjelarnar hafi
spunnist frá því, að þessar ensku
flugvjelar sáust á flugi.
•FlugvjelasÖgurnar í gær voru
hinar furðulegustu. Þær áttu ým-
ist að vera 2, 4, 6, 12 eða 16 sam-
an og ein sagan var um það, að
árás héfði verið gerð á breskan
flugvöll hjer í nágrenninu.
Gott dæmi um, hve fólk getur
búið til fáránlegar sögur, þegar
fát kemur á það, er maðurinn,
sem kom inn í loftvarnabyrgi hjer
í bænum á sunnudagmorgun og
sagði frá því, að hann hefði með
eigin augum sjeð 30—40 þýskar
flugvjelar yfir bænum og að hann
hefði sjeð tveimur sprengjum
varpað á höfnina!
Infíúensan
fer fremttr
hægt yfir
I NFLÚENSAN breiðist ekki
* mjög ört út hjer í Reykja-
vík, sagði hjeraðslæknir Morg-
unblaðinu í gær. Læknir sá,
er vakt hafði á sunnudag,
varð var við 100 ný tilfelli.
Samkomubannið hefir vafa-
laust haft sín áhrif, að diaga
úr útbreiðslu veikinnar oe var
það áheiðanlega vel ráðig, að
setja samkomubannið á s/ona
Lmanlega.
HJALP SKÁTA.
Hjeraðslæknirinn í Revkja-
vík biður þetta tilkynt bæjar-
búum:
Skátar bjóða aðstoð til
skyndihjálpar á heimilum, sem
eru ósjálfbjarga vegna inflú-
ensu. '
Skátavörður verður því fyrst
um sinn á skrifstofu hjeraðs-
læknis í Mjólkurfjelagshús-
inu, herb. 23—25, frá kl. 9
árdegis til kl. 9 síðdegis, sími
5054. Þau heimili, sem eru svo
nauðulega stödd vegna inflú-
ensu, að þeim sje bráð nauð-
syn skyndihjálpar, svo sem til
sendiferða eða nauðsynlegrar
heimilisaðstoðar, mega því
leita þangað.
Munu skátar þá eftir fremsta
megni reyna að leysa þeirra
vandræði.
Þess er einkum vænst, að
læknar tilkynni skátaverðinum,
ef þeir telja nauðsyn skjótrar
hjálpar.
VEIKIN ÚTI UM
LAND.
Morgunblaðið átti í gær tal
við landlækni og spurði hann
um útbreiðslu veikinnar út um
land.
Landlæknir sagði að veikin
væri komin á þessa staði: Ár-
nes- og Rangárvallasýslur, Isa-
fjörð, Bíldudal, Stykkishólm
og Ólafsvík.
Samkomubann hefir verið
fyrirskipað á þessum stöðum:
Reykjavík, ísafirði, Bíldudal,
Ólafsvík, Árnes- og Rangár-
vallasýslum.
- Fjögur hjeruð hafa fengið
leyfi til að setja á samkomu-
bann, er þeim sýnist. Þessi
hjeruð eru: Akureyri, Stykkis-
hólmur, Eskifjörður og Seyð-
isfjörður.
Nokkur hjeruð ætla að reyna
að verjast veikinni og hafa
því sett á samgöngubann. Þau
eru: Dalahjerað, Reykhóla-,
Flateyjar-, Svarfdæla- og
3i
Unglingspiltur
ferst af bílslysi
Annar hlaut alvar-
leg meiðsl
u ~
M klukkan 2% á sunnudag varð hörmulegt
bílslys skamt fyrir ofan Baldurshaga. Vöru-
bíllinn R 951 ók þarna út af veginum, en 6
piltar úr Svifflugfjelaginu stóðu á palli bílsins og köstuð-
ust fimm þeirra af bílnum. Tveir piltanna hlutu stórmeiðsl
og annar þeirra, Guðmundur Eiríksson, ljest á sunnudags-
kvöld.
Samkvæmt upplýsingum, sem Morgunblaðið fekk í gær hjá
Sveini Sæmundssyni yfirlögregluþjóni rannsóknarlögreglunnar, hafa
tildrög slyssins orðið þau, er nú skal greina:
Um kl. 8 á sunnudagsmorgun fóru nokkrir piltar úr Svifflug-
fjelaginu upp á Sandskeið, en ætlun þeirra var, að hafa æfingu þar
efra, eins og venja þeirra er í góðu veðri á sunnudögum.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Hús hristust og
rúður brotnnðu
er tundurdufl
sprakk
Kl. 8% á sunnudagskvöldið
sprakk rekdufl á fjörunni
skamt frá Harðbak á Sljettu.
Sprakk duflið 400 metra frá bæn-
um.
Tvö íbúðarhús eru þar og brotn-
uðu rúður í-báðum húsunum, mynd
ir hrundu af- veggjum og annað
smávegis raskaðist. Annað húsið,
sem var steinhús, hristist svo mik-
ið, að t. d. skrifborð, sem var við
vegg, er að sjónum sneri, rann
tvo metra inn á gólf. Glugga tók
alveg úr öðru húsinu. Það var
kjallaragluggi.
Fólk, sem var í herbergjum
þeim, þar sem rúður fuku úr, sak-
aði ekki. Ekki er talið að húsin
hafi orðið fyrir neinum teljandi
skemdum umfram rúðubrotin.
Frá Harðbak að Raufarhöfn er
7 km. f jarlægð — loftlína. Á Rauf
arhöfn heyrðist dynkur mikill, er
duflið sprakk, og þeir sem lágu í
rúmum, fundu titringinn.
í f jörunni þar-sem duflið sprakk
er stórgrýti. Myndaðist þar dæld.
Grjótið sentist um 300 metra frá
sprengingarstaðnum, en sprengju-
brot fundust 400 metra þaðan.
Skíðaferðir. Allmargt bæjar-
manna fór í skíðaferðir um helg-
ina á venjulegar skíðaslóðir.
Snjór var frekar lítill, en veðrið
var svo dásamlegt, að það bætti
úr snjóleysinu.
Piltarnir fóru á tveim bílum upp
á Sandskeið. Var annár bíllinn R.
951, sem er vörubíil Áfengisversl-
unar ríkisins, sem piltarnir fengu
lánaðan í þessa ferð. Ekkert far- .
þegarúm er á bílnum og engar
grindur um pallinn, en á pallin-
um stóðu 6 piltanna, en tveir voru
inni í stýrishúsinu og stýrði ann- '
ar bílnum. .Járnslá var fest efst ,
á stýrishúsið að aftanverðu og
hjeldu piltarnir á pallinum sjer
í hana.
Gengu á Vífilsfell.
Er piltarnir komu á Sandskeið-
ið gat ekkert orðið úr æfingu,
vegna þess hve veður var kyrt.
í stað þess tóku þeir sjer göngu
á Vífilsfell.
Laust fyrir kl, 21/; hjelt bíllinn
R 951 af stað heimleiðis. Einn pilt-
anna, Léifúr Grímsson stýrði bíln-
um. Hjá honúm í stýrishúsinu sat
Hörður Jónsson efnafræðingnr, en
sex piltar stóðu á pallinum.
Misti stjórnina.
Bíllinn er kominn langleiðina
niður að Baldurshaga. Bílstjórinn
og Hörður, er hjá honum sat, telja
að ekið hafi verið með ca. 50—60
km. hraða.
Þeir sjá nú hvar enskur her-
flutningabíll kemur á móti þeim,
en all-langt burtu. Þeir óku eftir
miðjum veginum, en nú var ætl-
unin að rýma fyrir breska bíln-
um. Bílstjórinn kveðst hafa dreg-
ið úr ferðinni og vikið út á vinstri
vegarkantinn.
En alt í einu byrjar bíllinn að
„skrolla“ og skifti nú engum tog-
um: Bflst jórinn misti stjórn á
bílnum og bfllinn rann út af veg-
arkantinum, sem er þarna 1.10
m. á hæð. Bfllinn valt þó ekki, en
rann áfram eftir reiðveginum, sem
liggur samhliða akveginum. Renn-
ur bfllinn svo á stein við norður-
brún reiðvegarins og breytir þá
stefnu, rennur upp litla brekku
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.