Morgunblaðið - 20.03.1941, Síða 7
Fimtudagur 21. mars 1941.
7
MORGUNBLAÐIÐ
1 313 D
crn'^i’L^
E.s. Sfiðln
áætluð vestur um til Akureyrar
n.k. laugardagskvöld 22. þ. m.
Viðkomustaðir í báðum leiðum:
Sandur, Ólafsvík, Stykkishólmur,
Flatey, Bíldudalur, Þingeyri, Flat-
eyri, Suðureyri, ísafjörður, Siglu-
fjörður og auk þess í suðurleið
Hofsós, Sauðárkrókur, Skaga-
strönd, Blönduós, Hvammstangi,
Borðeyri, Bitrufjörður, Hólmavík,
Djópavík, Norðurfjörður, Sveins-
eyri og Patreksfjörður.
Vörumóttaka meðan rúm leyfir
fram til hádegis á föstudag.
Corn Flakes
All Bran
Cocomalt
Laugaveg 1. Fjölnniveg J.
si
=)□
KAUPI OG SEL
allskonar
Yerðbrfef og
fasteignlr.
Símar 4400 og 3442.
Garðar Þorsteinsson.
MÁUFUJIWSSKEIFSTOFá
Pjetur Magnússon.
Einar B. Guðmundsson.
Guðlaugur Þorláksson.
Símar 3602, 3202, 2002.
Austurstrœti 7.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—6.
IROLi
ktillaníi
ine
Sjálfstæðisverkamenn
(Eyjum treysta
samtök sín
.h
AUGLÝSING er gulls ígildi,
sje hún á rjettum stað.
eimir“, málfundafjel. Sjálf-
stæðisverkamanna í Vest-
mannaeyjum, hjelt aðalfund sinn
þriðjudaginn 11. þ. m.
Fóru þar fram venjuleg aðal-
fundarstörf. f stjórn fjelagsins
voru kosnir: Óskar Kárason, sem
var endurkosinn formaður, Ingi-
mundnr Bernharðsson varaform.,
Arnlaugur Þ. Sigurjónsson ritari,
Guðjón Seheving gjaldkeri, og
Sigurbjörn Árnason fjármálaritari.
Nokkrir nýir meðlimir gengu í
fjelagið á fundinum.
Þá flutti Hermann Guðmunds-
son, forseti Sambands Sjálfstæðis-
verkamanna og sjómanna, erindi
um verkalýðsmál, við ágætar und-
irtektir.
Málfundafjelag Sjálfstæðisverka
manna í Eyjum mun nú vera
þriðja stærsta fjelag Sjálfstæðis-
verkamanna. Á fjelagið vaxandi
fylgis að fagna meðal verkamanna
þar á staðnum og er mikill áhugi
ríkjandi meðal fjelagsmanna um,
eflingu fjelagsins.
ALÞINGI.
Stækkun Sogs-
stöðvarinnar
Eiríkur Einarsson flytur svo-
hljóðandi þingsályktunartil-
lögu í sameinuðu þingi:
„Alþingi ályktar að skora á rík-
isstjórnina að beita aðstöðu sinni
og áhrifum til þess, að þeirri við-
leitni Beykjavíkurkaupstaðar, sem
nú á sjer stað til aulsningar Sogs-
virkjuninni, verði hagað á þann
veg, að fult tillit sje tekið til þess,
að aukningin verði svo vernleg,
ef framgangs, verður auðið, að
kauptún þan og annað þjetthýli,
sem næst er orkuverinu, fái um
leið nauðsynlegt rafmagn á þann
hátt' og með þeim kjörum, er sam-
ræmist þörfum og hag þeirra, sem
að rafveitunni eiga að húa“.
í greinargerð segir:
Forráðamenn Revkjavíkurbæjar
munu nú nm þessar mundir vera
að leita fyrir sjer nm útvegnn
vjela og annara tækja til aukinn-
ar raforkuvinslu að Ljósafossi.
Hvernig seni þetta tekst, er hin
mesta nauðsyn að vera vel á verðí
og sjá svo um, að hepnist Reyk-
víkingum þessi tilraun til að hæta
úr eigin nauðsyn sinni, þá verði
einnig sjeð nm, að hin nálægnstu
hjeruð orkuverinu verið eigi út-
undan að þessu sinni. Ætti það,
sem áður er skeð í þeim efnum,
að verða víti til vamaðar.
Kunnugleiki nm þetta mál inn-
an þings og utan, rannsóknir og
því til sönnunar, að hinn almenni
áætlanir, er liggja fyrir, nægja
áhugi þeirra, er búa í Jnágrenni
Sogsvirkjunarinnar, á fylsta rjett
á sjer, og má hið næsta tækifæri,
er bjóðast kann, því eigi notast án
þess að áminst bygðarlög verði
þess hagræðis aðnjótandi, er raf-
veita þessi hefir í för með sjer.
Churchill-stjórn
f þrjú ár eftir
stríðið
Flugmálaráðherra Breta, Sir
Archibald Sinclair (for-
maður frjálslynda flokksins)
sagði í gær, að flokkapólitík
myndi liggja niðri þar til eftir
stríðið.
Um það, hve lengi núverandi
þing myndi sitja, sagði hann
að það myndi „miklu frekar
vera þrjú ár, heldur en þrjár
vikur, eftir stríðið". Hann
sagði, að það „gæti haft hinar
alvarlegustu afleiðingar" ef
kosningar yrðu . látnar fara
fram rjett á eftir að vopnahlje
hefði verið samið.
FUNDUR V. R.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
Var ræðu framsögumanns
mjög vel tekið.
Magnús Jónsson prófessor
var boðinn á fundinn og flutti
hann þar langt og fróðlegt mál
um skattamálin.
Þá urðu og almennar umræð-
ur um málið.
Dagbóh
ooooaooooooi
oooooooooooo
□ Edda 5941321 - Systrakvöld.
Aðgöngumiða sje vitjað í dag til
S.\ M.\ ■
I. O. O. F. 5= 1223208l/2 =
Næturlæknir er í nótt Eyþór
Gunnarsson, Laugaveg 98. Sími
2111.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðirini Iðunn.
Næturakstur: Bifreiðast. Geysir.
Sími 1633.
Aðalfundur Ekknasjóðs Reykja-
víkur var haldinn 15. þ. m. Sjóð-
urinn hafði á liðnu ári ankist um
kr. 4259.29, og var í árslok kr.
100.749.83, sem er að mestu ávaxt-
að í Söfnunarsjóði og Veðdeild-
arbrjefum. 85 ekkjur látinna fje-
lagsmanna höfðu notið hins árlega
glaðnins, er sjóðurinn veitir. Sjóð-
urinn hafði á liðnu ári drjúgar
tekjur af minningagjöfum, og fást
minningaspjöld keypt hjá gjald-
kera sjóðsins. Stjórnin var endur-
kosin, en hana skipa: Formaður
síra Bjarni Jónsson vígslubiskup,
gjaldkeri Sigurjón Jónsson versl-
unarstjóri, Sigurhjörn Þorkelsson
kaupm., Jón Sigurðsson innheimtn-
maður og Jón Jónsson verslunar-
maður.
Útvarpið í dag:
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukensla, 1. fl.
19.00 Enskukensla, 2. fl.
19.25 Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi; Sjávarhiti og dýra-
líf í Norðurhöfum I. (Árni' Frið-
rikson).
20.50 Minnisverð tíðindi (Sigurð-
ur Einarsson).
21.10 Útvarpshljómsveitin: Laga
syrpa eftir Mozart.
21.30 Orgellög (hljómplötur).
21.40 Sjeð og heyrt.
21.50 Frjettir.
Bann.
Hjer með er öllum stranglega bannað að fara um
borð í „S/s Wirta“, sem liggur strandað í Skerjafirði,
eða að taka nokkurn hlut úr skipinu. Ef út af þessu er
brugðið, verða þeir, er slíkt gera, látnir sæta ábyrgð.
Reykjavík, 19. mars 1941.
Harald Faaberg.
Skoreyjar ð BreiOafirði
eru (il sölu.
Eyjarnar liggja örskamt fyrir innan höfnina í
Stykkishólmi. — Árið 1919 gáfu eyjarnar af sjer
átta kýrfóður og 28 pund af dún. Auk þess er þar
hrognkelsa- og selveiði svo og malartekja. — Eyjar
þessar eru tilvalinn sumardvalarstaður fyrir Reyk-
víkinga. — Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 31.
þ. m„ merkt „Skoreyjar“.
Kassafiskur
Getum tekið fisk til ísunar (kassafisk). Höfum einnig
kælirúm til geymslu á ísuðum fiski.
Laxinn b.f. (Frystihúsið)
Sími 4956.
Húseign min Hafnarstr. 11 Isafirði
er til sölu.
Húsið stendur á eignarlóð á besta verslunarstað bæj-
arins. Húsið er tvílyft timburhús járnvarið, með góðri
íbúð uppi og mætti hafa eina til tvær sölubúðir niðri.
Húsið er alt í góðri varanlegri leigu.
KR. H. JÓNSSON, ísafirði.
AUGLÝSING er gulls ígildi.
Minníngarguðsþjóntísta
verður haldin i Dómkirkjunni föstudaginn 21. mars
kl. 1 e. hád. um
skípshöfnína á b.v. „Gtilífossí“
Magnús Andrjesson.
Jarðarför konunnar minnar,
ÓLAFAR ÓLAFSDÓTTUR,
frá Efri-Brúnavöllum á Skeiðum, fer fram frá Fríkirkjunni
næstkomandi laugardag 22. þ. m. og hefst með húskveðju á
heimili hinnar látnu, Grettisgötu 60, kl. 3.15 síðd.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Þorgeir Árnason.
Innilegar þakkir fjrrir anðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför i
SIGURÐAR HALLSSONAR,
fyrrum kaupmanns.
Vandamenn.