Morgunblaðið - 29.04.1941, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 29. apríl 1941.
MORGUN BLAÐIÐ
3
Báðir ritstjórar „f>jóðviljans“ og
einn starfsmaður blaðsins hand-
teknir af Bretum
Fluttir til Englands og
verða þar í haldi
Útkoma „Þjóðviljans"
bönnuð
SEINT á sunnudagskvölcl bárust þau tíðindi út
um bæinn, að herlögregla breska setuliðsins
hefði handtekið þá Einar Olgeirsson og Sig-
fús Sigurhjartarson, ritstjóra „Þjóðviljans“, og einnig Sig-
urð Guðmundsson, blaðamann, er hefir starfað við þetta
sama blað. Allir hinir handteknu menn voru síðan fluttir
út í skip, er lá ferðbúið hjer í höfninni, og svo lagt af
stað með þá til Englands. Þar verða þeir hafðir í haldi.
Samtímis handtökunni fór bresk herlögregla til skrifstofu
,,Þjóðviljans“ í Austurstræti 12 og tók þar alt í sínar vörslur og
bannaði útkomu blaðsins. framvegis.
Stjórn breska setuliðsins gaf strax í gærmorgun svohljóð-
andi tilkynningu um þennan atburð:
„Yfirforingi breska hersins á íslandi tilkynnir, að hann hafi
verið neyddur til að banna blaðið „Þjóðviljann“ og senda af landi
burt þá þrjá menn, sem aðallega starfa við það.
Jafnvel þótt blað þetta hafi þegar í nokkra mánuði sýnt full-
an fjandskap gagnvart Bretum, þá hefir vilji þeirra til að leyfa
mönnum eins mikið prentfrelsi, og mögulegt er, afstýrt því, að
slíkt skref hafi verið tekið, fram til þessa. En frá áramótum hefir
blaðði auk áróðurs síns gagnvart Bretum, gert alvarlega tilraun
til að eyðileggja hernaðaraðgerðir, sem eru nauðsynlegar til að
verja landið, með því að æsa upp verkamennina, sem vinna að
þessum aðgerðum, og með því að stuðla að tilraunum til uppreisn-
ar meðal hermannanna. Slík verk sem þessi, sem ekki eru annað
en raunveruleg aðstoð við nazista, eru óþolandi. Verkamennirnir
í Bretavinnunni fá ágætt kaup og þvert ofan í hinar ósönnu stað-
bæíingar Þjóðviljans er hagsmuna og velferðar þeirra vel og sam-
viskusamlega gætt af herstjórninni.
Yfirforinginn vonar, að ekki þurfi að gera frekari ráðstaf-
anir, en vill um leið taka skýrt fram, að þótt Stóra-Bretlandi sje
jafn umhugað um frelsi íslands og siít eigið frelsi og allra ann-
arra þjóða, þá verður og skal alt, sem talist getur til hjálpar við
möndulveldin, bælt niður“.
Ofanritaðri tilkynningu her-
stjómarinnar fylgdi brjef til
ritstjóra Þjóðviljans, svohljóð-
andi:
„Hjer með tilkynnist yður að
útgá^a blaðsins ,,Þjóðviljans“
er bönnuð hjeðan í frá.
Ef tilraun verður gerð í því
augnamiði að hefja útgáfuna að
nýju, hvort sem er með sama
hætti og áður eða undir nýju
nafni, munu nauðsynlegar ráð-
stafanir verða gerðar í því efni.
Aðvörun þessi nær einnig til
hverskonar tilrauna til að bera
fram opinber mótmæli eða halda
uppi andbreskum áróðri með
dreifimiðum, bæklingum eða á
nokkum annan hátt“.
Þessar nýju handtökur og
brottflutningur hafa að vonum
vakið ugg og kvíða meðal al-
mennings. Alþingi hefir mót-
mælt þessum aðgerðum. Ríkis-
st'ómin ætlar einnig að mót-
mæla.
Lausn i sigl-
ingamðlunum
I dag?
Sáttanefndin, sem undan-
faraa daga hefir unnið
að lausn á siglingamálunum,
sat á fundi til kl. iy2 í nótt.
Samkomulag tókst ekki að
fullu í nótt, en búist er við
lausn þessara mála í dag.
Morgunblaðið náði tali af
nefndarmönnunum, er þeir
komu af fundi í nótt, en þeir
vildu ekki láta hafa neitt eftir
sjer um hvernig málin stæðu,
að svo komnu, að öðru leyti
en að framan greinir, að búast
mætti við úrslitum í dag.
— Alþíngí
mótmæíír
handtökun-
um og
brottfliítn
íngnnm
Húsnæðið trygt
handa börnunum
Þau fara slrax
i % ' . '" 1 - i
og wegir balna
K
■lukkan 2 e. h. í gær
var haldinn lokað-
ur fundur í Sameinuðu Al-
þingi, til þess að ræða um
handtöku Einars Olgeirs-
sonar alþingismanns Stóðu
umræður í þrjár klukku-
stundir. Að lokum var
samþykt einróma svohljól-
andi þingsályktun:
„Um leið og það er vitað,
að ríkisstjórnin mótmæli
við bresk stjómarvöld
hinni nýju handtöku og
brottflutnings íslenskra
þegna og banni á aitkomu
íslensks dagblaðs, ályktar
Alþingi að leggja fyrir rík-
isstjórnina að bera fram
sjerstaklega eindregin mót-
mæli Alþingis gegn hand-
töku og brottflutningi ís-
lensks alþingismanns og
vitna í því efni til verndar
þeirrar, er alþingismenn
njóta samkvæmt stjórnar-
skránni“.
Þessi þingsályktun „um
mótmæli gegn handtöku ís-
lensks alþingismanns“, var
flutt af fjórum forsetum
Alþingis, þeim Haraldi
Guðmundssyni, forseta sam
einaðs þings, Jörundi Brynj-
ólfssyni, forseta neðri deild
ar, Einari Árnasyni, for-
seta efri deildar og Gísla
Sveinssyni, fyrsta vara-
forseta neðri deildar.
Nafnakall var viðhaft
við atkvæðagreiðsluna, sem
fram fór á opnum þing-
fundi. Var þingsályktunin,
eins og fyr segir samþykt
einróma.
VARAMAÐUR EINARS
OLGEIRSSONAR
S
UMARDVALARNEFNDIN hefir nú umráð
yfir nægu húsnæði til sumardvalar handa
öllum kaupstaðabörnum á aldrinum 5—8
ara.
Hefir og náðst samkomulag um skiftingu skólahúsanna milli
bæjanna og er skiftingin í aðalatriðum hugsuð þannig:
Jóhannes úr Kötlum, skáld, tek-
ur nú sæti á Alþingi. Hann er
varamaður Einars Olgeirssonar.
íslenska flotan-
um bætlst
nýtt sklp
Capitana, hið nýja skip Magn-
úsar Andrjessonar útgerðar-
manns, kom hingað til Reykja-
víkur s.l. laugardag, eftir 21 dags
siglingu frá New-Bedford í Banda-
ríkjunum. Er það hið glæsilegasta
skip, þrímöstruð skonnorta, 277
smál. brúttó, með 250 hestafla
Diesel-hjálparvjel.
Blaðamönnum var í gær boðið
um borð í skipið, þar sem það lá
á ytri höfninni, og sýndi eigandi
skipsins, ásamt skipstjóranum,
Jóni Sigurðssyni, þeim það og
greindi sögu þess.
Er skipið skemtiferðasnekkja,
sem siglt hefir vjða um Suðurhöf.
Er það bygt árið 1927 í Englandi
og kostaði þá um 100 þús. ster-
lingspund. Upp á síðkastið hefir
skipið verið notað sem flutninga-
skip, en þó ekki verið breytt til
samræmis við það.
Hingað flutti skipið 180 smá-
lestir af maismjöli og var þvi
komið fyrir í farþeganimi skips-
ins, sem eru 10 klefar, misjáfn-
lega stórir.
Lengd skipsins er um 140 fet
og er það alt hið vandaðasta.
Lestariim er ekkert, enda er skip-
ið bygt fyrst og fremst með ann-
að fyrir augum en flutninga.
Fremst í skipinu eru hásetaklefar
og eldhús með fullkominni Aga
eldavjel og ísskáp.
Miðstöð er í skipinu með kola-
kyndingu. Skipið er 'ur járni.
Magnús Andrjesson hefir í
hyggju að breyta skipinu þannig,
að í því skapist lestarúm, er geri
ísfisksflutninga með þvi mögu-
lega. Sýnist til þess þurfa veru-
lega breytingu.
Skipstjórinn, Jón Sigurðsson.
taldi ferðina hafa gengið vel.
FRAMH. Á SJÖTTU SfÐtl
Akureyri fær heimavistar-
skóla og samkomuhús austan
Öxnadalsheiðar, að undanskild
um Laugaskólanum og e. t. v. 2
smærri skólahúsum, sem falla í
hlut Reykjavíkur.
Siglufjörður fær Hólaskóla
skóla og aðra smærri skóla í
Skagafirði.
Akranes fær Ásbyrgi og Stað-
arbakka í Miðfirði.
Seyðisf jörður, Reyðarf jörður
, og e. t. v. Vestmannaeyjar fá
Biðaskóli, Hallorm.sstaðaskóla
og aðra smærri skóla á Austur-
landi, eftir þörfum.
Reykjavík og Hafnarfjörður
i fá öll önnur skóla- og samkomu
jhús, en ekki búið að ákveða til
jfulls skiftinguna.
I Rjett er að geta þess, að sum-
I ardvalamefndin fær umráð1
, allra hinna stærri skóla í sveit-
um og einnig gistihúsa, þ. á m.
Laugarvatnsskólann og gistihús
ið Valhöll á Þingvöllum.
Strax og vegir verða færir og
búið er að setja skólahúsin í
stand, verður farið að flytja
börnin í flokkum á þá staði, sem
þeim eru ætlaðir til sumardval-
ar.
Upplýsingar þær, sem að
framan getur, fengu blaðamenn
hjá Sumardvalamefndinni í
gær. Nefndin ljet ennfremur
getið eftirfarandi:
Vegna Reykjavíkur sjérstak-
lega skal fram tekið: Líkur eru
til þess, að starfrækt verði um
20 sumardvalarheimili með sam
tals að minsta kosti 1100 börn-
um á aldrinum 5—8 ára. Nokk-
ur eldri böm verða þó á ein-
hverju þessara heimila, ef þau
eru veikluð og þau af þeim á-
stæðum geta ekki dvalið ein síns
liðs á sveitaheimilum.
Innan fárra daga birtir sum-
ardvalarnefndin sjerstaka til-
kynningu til aðstandenda, þar
sem þeir verða kvaddir til við-
tals og ákveðinn hefir verið dval
arstaður fyrir börnin.
Þá munu verða starfrækt frá
Reykjavík 7 mæðraheimili með
10 til 100 mæðrum á hverju
heimili með ungbörnum. (Frá
FRAMH. Á SJÖTTTJ SÍÐD