Morgunblaðið - 03.05.1941, Page 7
Laugardagur 3. maí 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Forðum í Flosaporti“
leikin til ágóða
Slysavarnafjelaginu
•••••••••••• ••••••••••••
Dagbók
••ocoocecas* ooo«oooooooo
Vart mun þarfari fjelagsskap-
ur lijer á landi en Slysa-
'varnafjelagið. Þau eru ekki fá
mannslífin, sem með þess hjálp
hafa verið hrifin úr hinni köldu
greip hafsins. Hefir fjelagið kom-
ið upp á síðari árum fjölda stöðva
um land alt, sem vinna og hafa
Tinnið að hjörgun manna úr sjáv-
arháska.
Ekki hafa kvennadeildir fje-
lagsins unnið hvað minst af al-
huga og fórnfýsi’ fyrir þetta mikla
þjóðþrifafyrirtæki. Er þess skemst
að minnast að Kvennadeild fje-
lagsins hjer í Reykjavík gaf 25
þús. krónur til fíæbjargar, sem
konurnar hafa safnað algerlega
sjálfar með merkjasölu, skemtun-
um o, fl. Má svo heita að þær
hafi ekki sparað neitt erfiði nje
tíma til að vinna að þessu áhuga-
máli sínu.
Nú hefjast konurnar enn handa
í fjáröflunarskyni. Hafa þær þeg-
ar gefið 10 þús. krónur til bygg-
ingar skipbrotsmannaskýlis á
söndunum í Skaftafellssýslum. Er
þess skemst að minnast, að 3 er-
lendir sjómenn urðu úti þarna fyr-
ir austan í vetur, aðeins af því að
skýli vantaði, þegar þeir þó höfðu
bjargast í land af strönduðu skipi
sínu. Nauðsyn á framkvæmdum
þarna er því auðsæ og hafa kon-
nrnar skorið upp herör um út-
vegun fjár í því skvni.
' Fónx því konurnar þess á leit
við hofúndana, leikara og starfs-
fólk Revýunnar „Forðum í Flosa-
þorti“, að þessir aðilar gæfu eina
sýningú á leik þessum til ágóða
skýlisbyggingunni. Var það auð-
sótt mál, og fer sú sýning fram
á morgun kl. 3 í Iðnó. Yerð að-
göngumiða er mjög lækkað frá
því sem tíðkast hefir á þessum
leik. t
Ættu bæjarbúar að fylla Iðnó
á morgun, bæði sjálfum sjer til
skemtunar og góðu málefni til
stuðnings, því hver evrir, er inn
kemur fyrir sýninguna, | rennur
allur og óskertur til byggingar
skýlis á söndunum.
Munið það, að þeim krónurn er
ekki illa xmrið sem lagðar eru af
mörkum til björgunar bæði okk-
ar og anixara hraustra sjómanna.
X.
A U G A Ð hvílist
með gleraugum frá
Dvagnó
KAUPI OG SEL
allskonar
Vevðbrjef og
fastelgnir.
Símar 4400 og 3442.
Garðar Þorsteinsson.
Næturlæknir er í nótt Daníel
Fjeldsted, Laugaveg 79. Sími 3272.
Næturakstur: Aðalstöiðn. Sími
1383.
Messur í Dómkirkjunni á morg-
uii;' Kl. 11, síra Bjarni Jónsson
(ferming). Kl. 2, síra Friðrik Hall-
grímsson (ferming).
Hallgrímsprestakall. Messað * í
Dómltirkjunni á morgun kl. 5, síra
Jakob Jónsson.
Messað í Laugarnesskóla á morg
un kl. 2, síra Garðar Svavarsson.
Barnaguðsþjónusta kl. 10 f. h.
Nessókn. Guðsþjónusta í Elli-
heimilinu Grund við Hringbraut á
morgun kl. 2, íra Jón Thoraren-
sen.
Fríkirkjan. Messað á morgun
kl. 2 (ferming), síra Árrd Sig-
urðsson.
Frjálslyndi söfnuðurinn. Messað
í Fríkirkjunni í Reykjavík á morg
un kl: 5Y2, síra Jón Auðuns. Alt-
arisganga.
Messur í kaþólsku kirkjunni í
Landakoti á morgun: Lágmessa
kl. 6% árd. Hámessa kl. 10 árd.
Bænahald og prjedikun kl. 6 síðd.
Þjóðkirkjan í Hafnarfirði. Mess-
að á, morgun kl. 2 (fermiúg), síra
Garðar Þorsteinsson.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mess-
að á morgun kl. 2 (ferming), síra
Jón Auðuns.
Lágafellskirkja. Messað verður
á morgun kl. 12.30, síra Hálfdan
Helgason.
Messað í Keflavíkurkirkju kl. 5
á morgun, síra Eiríkur Brynjólfs-
son. Kl. 2 bafnaguðsþjónusta.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband Rósbjörg
Hulda Magnxxsdóttir og ETríkur
Beek sjómaður. Heimili ungxx
hjónanna er á Lágholtsstíg 6.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband af síra Ragn-
ari Benediktssyni ungfrxx Kristín
Elísabet Waage og Guðmundur
Karlsson. Heimili xxngxx hjónanna
verður á Bragagötu 29 A.
Stutt athugasemd. í tilefni af
grein H. F. í blaðinxx í gær, sem
hann nefnir íþróttavÖllinn og góða
veðrið, vill íþróttavallarstjórnin
taka eftirfarandi fram: Það er
langt síðan að sjálft æfingasvæðið
var fært til æfinga, enda byrjað
að æfa, á því fyrir löngxx. í miðj-
um apríl x-ar völlurinn opnaður
til æfinga, var þá vallarvörður
skipaður, heitt og kalt bað ’ og
húsakvnni upphituð, Um miðjan
apríl var æfingataflan send fje-
lögunum, en það tekur altaf nokk-
xxrn tíma, fyrir fjelögin að koma
æfingum á stað. Að sjálft knatt-
spyrnxisvæðið var svona fljótt
þxxrt, þrátt fyrir hin löngxx frost
sem gengu í vetxxr, telxxr vallar-
stjórnin því að þakka, að lok-
Vfel I bil
?
?
x
Chevrolet-vjel,
X óskast,
f
model 1930,
Enn fremur head á $
sama model.
$ Ólafur O. Guðmundsson,
X Keflavík. Sími 21.
taspil
Vil kaupa. dragnótaspil.
I
ÓLAFUR E. EINARSSON,
Keflavík.
ræsin voru sett í völlin og álítur
hún að þeim beri að fjölga. Um-
hverfið, þar sem lokræsin eru, er
byrjað að laga og var ekki hægt
að gera það fyr vegna þess hve
frost fór seint úr jörðu. Að öðru
leyti þakkar vallarstjórnin höf-
undi fyrir áhuga hans á vel-
gengni íþróttanna.
Hallgrímskirkja í Reykjavík.
Afhent af síra Jakob Jónssyni frá
Þ. Erl., Grettisg. 57 B 200 kr.
Kærar þakkir. — G. J.
Skógræktarfjelag fslands lijelt
útvarpskvöld í gærkvöld. Þar töl-
uðu þessir menn: Valtýr Stefáns-
son ritstjóri um garða í bæjuin
og í kauptúnum. Próf. Sig. Nor-
dal um Heiðmörk, en svo vill hann
nefna hið fyrirhugaða friðland
Reykvíkinga. Hákon Bjarnason
hvatti bæjarbúa til þess að leggja
skerf sinn til þes$ að friðunin
megi sem fyrst komast á. Guðm.
Marteinsson verkfræðingur um
skógræktarfjelög og starfsemi
þeirra. Því næst talaði dr. Helgi
Tómasson um nauðsynina á að
rækta barrtrje og barrskóga og
aukið fjármagn til skóggræðslu.
Að síðustu talaði H. J. Hólmjárn
ríkisráðunautur um ábúð og ör-
tröð á landi hjer. Milli erindanna
voru leiknar hljómplötur.
Til Hallgrímskirkju í R.eykjavík.
Áheit frá N. N. 2 kr. Áheit frá
Rósu 2 kr. Áheit frá ónefndum
10 kr. — Afhent síra Friðrik Hall-
grímssyni.
Útvarpið í dag:
20.30 Leikrit; „Fjölskyldan ætlar
út að skemta sjer“, eftir Mabel
Constandxiras, þýtt og staðfært
af Ilans klaufa. (Haraldur Á.
Sigurðsson, Arndís Björnsdóttir,
Alda Möller o. fl. — Leikstj.:
Indriði AYaage).
21.00 Illjómplötxir: Söngvísur á
Norðurlandamálum.
41—45
þúsund
komusl
undan
Brottflutningi breska her-
liðsins frá Grikklandi er
nú lokið, var tilkynt í Kairo í
gær. Enn hefir ekki verið kom-
ið tölu á alla þá sem undan kom
ust, en í stað 48 þúsunda sem
sagt var í fyrradag að hefðu
komist undan voru nefndar
tölur frá 41—45 þúsui)dir í
gær.
Breskur herforingi í Egypta-
landi telur að 43 þúsund manns
hafi komist undan. Talið er að
um 500 manns hafi látið lífið
leiðinni frá Grikklandi vegna
árása Þjóðverja á herflutninga
skipin.
Þjóðverjar segjast hafa tek-
ið 8200 breska fanga á Pelo-
ponneskaga. Bretar viður-
kenna, að þeir hafi orðið að
skilja þar eftir hermenn í þús-
undatali vegna þess að þýskar
hersveitir króuðu Breta inni.
í Kairo gera menn sjer von-
ir um að enn eigi eftir að bjarg-
ast margir breskir hermenn frá
Grikklandi og að þeir muni
halda áfram að komast undan
næstu mánuði. Grikkir eru
Bretum vinveittir og gera alt,
sem í þeirra valdi stendur til
að fela þá fyrir Þjóðverjum.
I Iðnó i kvöld
HIN ÁGÆTA HLJÓMSVEIT IÐNÓ LEIKUR.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6. —
Tryggið ykkur þá tímanlega.
Aðeins fyrir íslendinga.
OliraQlv menn fá ekfei aðgang.
Hfer með er skorað á alla
þá er bafa lefeið að sfer werfe
fyrlr bresfeu herslfórnlna að
gefa viðsklflainálaráÓuneylinu
skýrslu um hvað af erlendu
efnl þeir hafa notað lil fram-
bwœmdar werkslns frá 1. fan.
sl. að telfa.
Viðskiftamálaráðuneytið 2. maí 1941.
Skotæfing.
Skotæfing verður haldin, ef veður leyfir, 5. maí 1941
frá kl. 10.30—11.30 í nágrenni við Gróttu.
Skotið verður til sjávar. ,
Reykjavfk— Stokkseyri.
Höfum byrjað aftur okkar vinsælu kvöldferðir til Stokks-
eyrar. — Farið frá Reykjavík alla daga kl. 7 síðd. og
frá Stokkseyri kl. 9.30 árd.
Steindór.
Sfmar 1540, þrffir ttnnr.
Gfiðlr bflar. Fljót ulgrtSM*
B. S. í.
Jarðarför
SVEINS BERGSTEINSSONAR,
Eiðikoti, fer fram mánudaginn 5. maí og hefst með bæn að St.
Jósefsspítala, Hafnarfirði kl. 2 e. m. Jarðað verður að Görðum.
Vandamenn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
JÓHÖNNU þorsteinsdóttur
frá Hnappavöllum í Öræfum.
Aðstandendur.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hluttekningu við
andlát og jarðarför
GISSURS GUNNARSSONAR,
Bygðarhorni. '
Ingibjörg Sigurðardóttir, börn og tengdabörn.
c