Morgunblaðið - 04.09.1941, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 4. sept. 1941,
Iran og Riza sjah Pahlavi
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU,
trúa í hverri borg, til þess að
breyta húsum og strætum í ný-
tísknhorf.
„Ríkið það er jeg sjálfur“, gæti
Riza sagt ekki síður en Lúðvík
XTV. Hann tekur skatta og skyld-
nr af þjóðinni, en hefir enga á-
nægju af að nota tekjurnar til
eigin þarfa. Hann leggur þær í
jnannvirki, sem stuðla að alþjóðar
heill. Þannig bygði hann járn
brautina miklu, frá Kaspíahafi til
Bandar Sjahpur skuldlaust. Hann
hefir ekkert fyrir því að semja
f járlög — heimtar aðeins ákveðna
skatta af þinginu, en þingið í ír-
an hefir lítil völd gagnvart sjah-
inum. Það stingur að vísu upp á
stjórn, en hún er aðeins ráðgef-
andi, en sjahinn ábyrgðarlaus og
einvaldur og hlýðir engu fyr eu
vopnin standa á honum.
★
Þó að hinn máttugi einvalds-
herra transbúa hafi notfært
sjer reynslu Evrópuþjóða í verk-
legum framkvæmdum, var hann
enginn aðdáandi þeirra í stjórn
málaháttum. Undir eins og honum
úx fiskur um hrygg, tók hann að
svifta þær ýmsum forrjettindum,
sem þær höfðu náð í íran; þann-
ig átti hann í snarpri deilu við
Breta út af samningi, sem bresk
olíufjelög höfðu gert við fyrver-
andi Persastjórn og átti eftir að
gilda mörg ár enn. Og fremur
andaði köldu frá honum til Rússa
út af forrjettindum, sem þeir
höfðu náð.
Hinsvegar gerði hann sjer far
um að halda góðu samkomulagi
við nágranna sína. Hann gerði
vináttusamning við Tyrki árið
1926 og við Afganistan 1927, en
að því loknu afnam hann út-
lendu forrjettindin (árið 1928) og
bitnaði það einkum á Bretum.
Það var að mörgu leyti ekki
nema eðlilegt, að hann hallaði
sjer að Þjóðverjum, eftir að sker-
ast fór í odda með þeim og vest-
lurveldunum og Rússum. Og þeim
mun eðlilegra varð þetta, eftir að
Þjóðverjar höfðu snúið við blað-
inu fyrir tveimur árum og gert
vináttusamning við Rússa. Því að
þó að Riza sjah vildi gjarna eyða
rússneskum áhrifum, þá gekk
hann þess ekki dulinn, að Rússar
voru voldugur nágranni. En sem
,,vinir“ hinna þýsku sjerfræðinga
áttu þeir að geta verið meinlaus-
ir.
Nú hefir vináttan snúist við og
íran varð eins og lús ínilli
tveggja nagla: Englands og Rúss-
lands. Hermanninum Riza sjah
var því nauðugur einn kostur að
kjósa frið í stað blóðsúthellinga.
Skúli Skúlason.
Villiminkar
Vænar kartöflur. í sýningar-
glugga Morgunblaðsins eru til
sýnis vænar kartöflur. Stærsta
kartaflan er um 800 grömm, en
til jafnaðar eru þær 500—600
grömm. Kartöflur þessar eru frá
Jakobi Erlendssyni bónda áð
Reykjum í Biskupstungum. Þær
hafa sprottið á hverasvæði. Út-
sæðið var íslenskt.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
tók hann þar með höndunum.
Hægt er stundum að handsama
þá lifandi úti á víðavangi.
— Hvernig miðar því áfram
að drepa minkinn í Hvassa-
hrauni.
— Það hefir ekki tekist enn-
þá. Maður sá, sem fenginn hef-
ir verið til þess að ráða niðurlög-
um þeirra, heldur að þeir kunni
að vera þar einir 8. Þó er ekki
víst að þeir sjeu svo margir, að
hann hafi tvítalið suma.
— En í Hafnarfirði?
— Þar hefir ekki orðið vart
við mink síðan í fyrra. Manni
virðist sem sömu minkar haldi
sig mjög á sömu slóðum, þar
sem best er um æti. Efelst við sjó
eða veiðiár og vötn.
— Hafa menrx ekki orðið var-
ið við villiminka annars staðar
á landinu en hjer í nágrenninu?
— Jú. En jeg veit ekki bet-
ur en alstaðar annars staðar
hafi tekist að ná þeim. Lang
erfiðast að eiga við þá þar sem
hraun eru. Þar er erfiðast að ná
til þeirra. Og hjer við Elliðaárn-
í r var líka sjerstaklega erfitt að
eiga við þá í vetur. Því jörð var
auð mestallan veturinn, En þeg-
ar snjór er á jörð er auðvelt að
rekja slóðir minkanna.
Orvsgisútbúnaður skipa
Hval, um eða yfir 20 álna lang-
an, rak s. 1. sunnudag á Yíkur-
fjöru í Mýrdal. Var hvalurinn
hauslaus, en virðist lítt eða ekki
skemdur og er nú í óða önn verið
að skera hann.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
skulu hafa suSuáhald af viðurkendri
gerð.
5) Einn a.f bjargbátum skipsins skal
vera vjelbátur, búinn öllum fleytigögn-
um og útbúnaði, sem aðrir bjargbátar
skipsins, og auk þess fleytigögnum, sem
pvara til þunga vjelarinnar og ann-
arra áhalda, sem vjelbátur þarf að
hafa. í vjelbátum skal vera hæfilega
langur og gildur dráttarkaðall, og fest-
artæki á bátnum til að festa hann við.
í hverjum vjelbát skal vera eldsneyt-
isforði í 48 klst-. með fullhraða. Sje
I í vjelbátnum bensínvjel, skal henni
I fylgja varakveikja, geymd í vatns-
heldu íláti, eða að svo sje um vjelina
búið, að sjór geti alls ekki að henni
komist, enda þótt báturinn fyllist af
ejó.
6) Einn af bjargbátum skipsins skal
vera með loftskeytatæ'k.jum, er dragi
að minnsta kosti 100 sjómílur.
7) Á botni bjargbátanna að utan-
verðu, skal vera handlisti til beggja
hliða.
8) í hverjum bjargbát skal vera út-
búnaður til að þjetta batinn eftir kúlna-J
göt og þess háttar.
9) Ef þess er kostur, skulu bétarnir
búnir fallkrókum (Sliphager).
BJARGFLEKAR EÐA
BJARGBÁTAR MEÐ
HLEYPISÚÐ.
3. gr, Auk bjargbáta þeirra, sem
skipið á að hafa, .skal það einnig hafa
I bjargfleka eðá bjargbáta með hleypi-
í súð nægilega stóra til að geta tekið alla
I á skipinu.
j Bátar þessir eða bjargflekar, skulu
um gerð, útbúnað og fólkstölu, full-
nægja alþjóða ákvteðum, en þurfa þó
ekki að hafa vara árar, eða varahluta.
Tala þeirra sem flekinn tekur, skal
"ákveðin samkvæmt alþjóðareglum, og
mörkuð á hann ásamt nafni skipsins,
en útbúnaður flekans skal vera þessi:
1) Sem fleytigagn skal ekki eingöngu
nota loftkassa eða tunnur, heldur sje
einnig haft hæfilega mikið af korkiý
vel fyrir komið.
2) Á sjerhverjum fleka skal vera
vatnskvartil f’ult af góðu drykkjar-
vatni, 1 lítri á mann. og brauðkassi með-
hörðu brauði, p. kg. á mann, 3 dósir
mjólk á mann og 1 kg. haframjöl á
mann. Ennfremur vatnsheldur dunkur
með sárabindum, 2 góðir vasalampar,
merkjaskammbyssa (Signalpistol) méð
6 -skotum, eða 6 flugeldar, stormeld-
spýtur, flugeldastengur, 6 olíufatnaðir
og 6 peysur eða heitar flíkur í olíupoka,.
og fáni.
3) Á flekanum skal vera, skjólsegl,
vel fest við hann, er sje 40 sm. á hæð,
2 árar, krókstjaki og öxi.
4) Kassarnir á flekanum skulu þann-
ig gerðir, að þeir komi að fullum not-
um, hvor hlið flekans sem upp snýr.
Skipstjóri ákveður flekanum stað á
skipinu, og hvemig honum gkuli komið
fyrir á því.,
5) Vjð bjargflekann skal festa sjálf-
kveik.jandi blys, er kvikni á, um leið
og bjargflekinn kemur í sjó.
4. gr. Til viðbótar við þann forða,
sem á að vera í bétummi skal ennfrem-
ur vera í bátnum og á flekanum, forði
af niðursoðnu kjöti í % eða 1 kg. dós-
um, er nemi 1 kg. á mann.
Bjargtækjum þeim, sem nefnd eru
í 3. gr., þarf ekki að vera komið fyrir
undir bátsuglum, en þau skulu höfð á
þeim stað á skipi og þannig komið fyr-
ir, að þau fljóti upp, ef skipið sekk-
ur.
Sjerstakar reglur eru einnig
settar um útbúnað annara fisk-
tökuskipa en togara, og strand-
ferðaskipa.
Hús - Bátar - Jarðir
Hús í Reykjavík til sölu:
Nýtt steinhús við Flókagötu. — 2 hæðir, 4 herbergi,
eldhús og bað á hvorri hæð, og kjallari með 5 her-
bergjum og eldhúsi. — Bílskúr.
Nýtt steinhús við Bergstaðastræti. — 2 íbúðir, 3
herbergi og eldhús og 1 íhúð, 2 herbergi og eldhús.
Stórt timburhús við Laugaveg með óbygðri bygging -
arlóð. — 2 hæðir, 5 herbergi og eldhús á hvorri, 4
herbergi og eldhús í kjallara og 2 herbergi og eldhús
í risi.
Timburhús og steinhús (sambygð) við Vitastíg. —
6 litlar íbúðir, verkstæði o. fl. — Gefa góðar leigu-
tekjur.
Stórt steinhús við Leifsgötu með 5 íbúðum, 2 her-
bergi og eldhús hver.
Nýtísku steinhús við Mánagötu. — 5 íbúðir, 2 her-
bergi og eldhús- hver og 1 íhúð, 1 herbergi og eldhús.
Lítið steinhús við Fálkagötu. — 3 herbergi og eldhús.
Steinhús við Bragagötu. — 4 íbúðir, 2 herbergi og
eldhús hver og 2 verslanir.
Steinhús innarlega við Laugaveg. — 3 herbergi og
eldhús, 4 herbergi og eldhús og 2 íbúðir, sem eru 1
herbergi og eldhús hyor. — TJtiskúrar
Stórt timburhús með erfðafestulandi við Laugarnes-
veg.
Steinhús við Þverholt, með öllum þægindum. — 3
hæðir, 4 herbergi og eldhús, 3 herbergi og eldhús, 2
íbúðir, 2 herbergi og eldhús hvor og 1 herbergi í risi.
Stórt timburhús við Miðstræti. — 2 íhúðir, 4 her-
bergi og eldhús hvor, 1 íbúð 3 herbergi og eldhús og
1 íbúð, 2 herbergi og eldhús (laust 1. okt.) Kjallari
góður fyrir verkstæði og útiskúr.
Nýtt steinhús við Vífilsgötu. — 2 íhúðir, 3 herbergi
og eldhús hvor og 2 herbergi og eldhús í kjallara. —
Bílskúr.
Stórt- timburhús í Miðbænum. Nýlega standsett og
með öllum þægindum. — 5 skrifstofuherbergi, laus
1. okt. — 4 herbergi og eldhús á 2. hæð og 2 herbergi
og eldhús í risi.
Höfum marga kaupendur að minni húsum.
Hús fyrir ufan bæinn fil söln:
Sumarbústaður hjá Grafarholti. —- 3 herbergi' og
eldhús. — Góðir garðar.
Vandað hús í Digraneslandi. — 3—4 herbergi
og eldhús. — Erfðafestuland 1 ha. — Laust til afnota.
Nýlegt timburhús í Garði. — 3 herbergi og eldhús. —
Tún og garðar.
Nýtt steinhús í Grindavík. — 3 herbergi og eldhús,
með þægindum. Tún, garðar, útræði.
Timburhús á Stokkseyri. — 5 herhergi og eldhús.
Utihús, tún og dálitlar engjar. — Skepnur geta fylgt.
Býli við Langholtsveg. — 3 herbergi og eldhús —
Gripahús. — Ca. 4 hektarar í rækt. Laust til afnota.
Steinhús 1 Hafnarfirði. — 2 hæðir, 2 herbergi og
eldhús hvor hæð, ris og kjallari.
Timburhús í Hafnarfirði. — 2 hæðir, 3 herbergi og
eidhús hvor hæð.
Jarðír til s>ölu n>. a.:
Stórbýli á Kjalarnesi með vönduðum byggingum og-
vel ræktuðu iandi.
% jörð í Rauðasandshreppi — Gamalt höfuðból. —
Hlunnindi óvenju mikil. — Stórt vjeltækt tún og
góðar engjar.
Hlunnindajörð nálægt Siglufirði. — 16 hektara tún.
24 ferkm. land. — íbúðarhús úr timhri, 15 herbergi
og eldhús.
Hálflenda í Flóa. — Húsa lítil. — 800—1000 hesta
sljett flæðiengi.
Stórbýli í Holtum. — Stendur við þjóðbraut. —
Mikiar byggingar. — 500 hcsta tún, alt vjeltækt. —
Góð beit. Tilvalinn veitingastaður.
Jörð í Laugardal. Vandaðar, steinsteyptar bygging-
ar. 350 hesta tún, vjeltækt. 800 hesta engjar, þar af
helmingur vjeltækur. — Rafiýst. — Veiði.
Mótocbáfar tll söln:
8 tonna mótorbátur með 15—25 hestafla Unionvjei.
Snurruvoðaspil og veiðarfæri fyigja. — Báturinn er
14 ára gamall. 0
29 tonna mótorbátur með 70 hestafla Völundvjel. —
Ný veiðarfæri og spil getur fylgt.
71/2 tonna trillubátur með 20 hestafla Scandiavjel.
5 tonna trillubátur með 12 hestafla Sólóvjel. —
Yfirbygður staf og vjelarhús.
10—11 tonna mótorbátur, nýklassaður. Er með
nýrri 30 hestafla Tuxhamvjel. — Á að seljast í skiftum
fyrir 13—15 tonna bát.
90 tonna skip fæst ennfremur keypt hjá okkur.
Afhngiö.
Um margar fleiri eignir cr að ræða en þær, sem
hjer hafa verið taldar. T. d höfum við verið beðnir
um að selja stórt og gott minkabú í nágrenni hæjar-
ins, með úrvals dýrum.
Leitið upplýsinga hjá okkur, áður en þjer kaupið
eða seljið verðbrjef — hús — báta — jarðir.
GUNNAR & GEIR
Hafnarstræti 4. (Gengið inn frá Véitusnndi). Sími 4306.