Morgunblaðið - 25.09.1941, Síða 2
MORTtUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 25. sept. 1941'.
Leningrad: „Óvinurinn
við borgarhliðin
Aðvörun
Breta til
Finna
Stjórnmálafrjettaritari „The
Times“ skrifar í gær um að-
vörun, sem hann segir að breska
stjórnin hafi sent finsku stjórn-
inni.
Orðsending hefir verið send frá
London til Helsingfors (segir
frjettaritarinn), þar sem Finnar
ern varaðir við því, að ef þeir
'halda áfram innrás í hreinlega
rússneskt land, eigi Bretar ekki
annars úrkosta en að fara með þá
eins og óvini bæði nú og þegar
sá tími kemur, að friður verður
saminn.
Norski sendiherrann, sem verið
hefir um kyrt í Helsingfors, af-
henti orðsendinguna finsku stjórn
inni.
Timesfrjettaritarinn heklur síð-
an áfrarn:
— Margir Finnar vænta þess,
,að hægt verði að semja vopnahlje
eftir að finski herinn er kom-
inn að gömlu finsk-rússnesku
landamærunum, en vonir þeirra
hafa brugðist. Mannerheim hefir
lýst yfir því, að stríðið verði að
halda áfram og Þjóðverjar hafa
boðið nýjar mútur til þess að
hernaðinum verði haldið áfram.
Fram til þessa hafa finskir ráð-
herrar lýst yfir því, að þeir tækju
ekki þátt í styrjöld Þjóðverja,
heldur ætluðu þeir aðeins að nota
þetta tækifæri til að ná aftur á
sitt vald landi, sem þeir mistu
fyrir 18 mánuðum.
Slíkar tilraunir til að gera
greinarmun á hinum ýmsu víg-
stöðvum í stríði Þjóðverja gegn
Rússum, hafa aldrei haft mikinn
sannfæringarkraft og nú hafa þær
mist alt gildi. Hvert fet, sem
Finnar fara liandan við gömlu
landamæri sín, er árás, hrein og
ómenguð.
Orðsending Breta var send, eft-
ir að breska stjórnin hafði rætt
málið ítarlega við Sovjet-stjórn-
ina.
Þjóðverjar herða sóknina
á Leningrad og Odessa
Tvö orustuskip
Rússa hæfðM
FREGNIR FRÁ BERLÍN og London í gærkvöldi
hermdu, að orusturnar um Leningrad og
Odessa væru nú háðar með nýjum liðsauka
af hálfu Þjóðverja og af meiri ákafa en nokkru sinni áður.
í þýskum (D. N. B.) fregnum var skýrt frá því, að þýsk-
ar fótgönguliðssveitir hefðu í fyrradag brotist inn í varn-
arvirki Leningrad og að barist væri nú í útborgum hennar.
Frjettaritari Reuters í Moskva símaði í gærmorgun,
að orusturnar við Odessa hefðu blossað upp aftur og að
Rúmenar tefldu fram tveim nýjum herfylkjum, sem ný-
lega væru komin til vígstöðvanna.
Frjettaritarinn símaði að áhlaupinu hefði verið hrundið
með miklu mannfalli fyrir Rúmena.
í fregn frá London í nótt var skýrt frá því, að
Moskvaútvarpið hefði í fyrsta skiftið í gærkvöidi notað
orðin: „Óvinurinn er við borgarhliðin“, í frásögn af bar-
dögunum við Leningrad.
I frásögn þýsku frjettastofunnar af þessum bardögum segir
að þýskt fótgönguliðsherfylki hafi ráðist inn í nýtísku virkjaröð
við borgina og brotið það niður.
Annað þýskt fótgönguliðsherfylki var sagt hafa ráðist inn í
varnarvirki Rússa, og tekíð allstóra borg, en þriðja herfylkið var
sagt hafa brotist inn í brynvagnavarnarlínu Rússa og að barist
væri hús úr húsi í annari útborg.
Skipuleggur
Wavell varnir
Kákasus ?
l-v að var tilkynt opinberlega
* í London í gær, að Wavell
hershöfðingi, yfirmaður hreska
hersins í Indlandi, hefði nýlega
verið í London á ráðstefnu með
breska samveldisherráðinu. —
Hann kom til London með flug-
vjel og er nú farinn aftur þaðan.
I fregn frá Berlín í gær, var
skýrt frá því, að Wavell væri nú
kominn til Tilsit í Kákasus, til
þess að skipuleggja varnir sov-
jetríkjanna 1 Kákasus.
Samúð íslendinga
til Svía
I fregn frá Stokkhólmi í gær
var skýrt frá því, að Vil-
hjálmur Finsen, charge d’affair
íslendinga, hefði gengið á fund
sænska utanríkismálaráðherr-
ans Gúnthers, og látið í ljós
samúð íslensku ríkisstjórnar-
innar og íslensku þjóðarinnar,
út af slysinu, er Svíar mistu
með voveiflegum hætti þrjá
tundurspilla sína.
í Berlínarfregn er skýrt frá
því, að rússneskt orustuskip og
beitiskip hafi reynt að hlutast
í orusturnar við Leningrad, með
því að skjóta á herstöðvar Þjóð-
verja á ströndinni fyrir vestan
borgina, en þýskar steypiflug-
vjelar eru sagðar hafa neytt
herskipin til að stöðva skothríð-
ina og forða sjer.
í sjálfri herstjórnartilkynn-
ingu Þjóðverja í gær segir þó
ekki annað um bardagana við
Leningrad, en að næturloftárás-
ir hafi verið gerðar á borgina,
og einnig á Moskva. Miklir eld-
ar sáust koma upp í Moskva.
' Þýska herstjórnin skýrði að
öðru leyti frá því að þýskar
sprengjuflugvjelar og steypi-
ílugvjelar hafi hæft orustuskip
og tundurspilli í flotahöfninni
Kronstadt við Leningrad.
Þýska frjettastofan segir, að
orustuskipin sem hjer um ræðir
sjeu frægustu orustuskip Rússa,
„Marat“ og „Októberbylting-
in“. Frjettastofan segir, að or-
ustuskipið „Marat“ hafi verið
hæft þann 18. september síðast-
liðinn,’ og flutt þá lskað til
Kronstadt. í fyrrinótt (segir
frjettastofan), var það hæft aft-
ur með þrem sprengjum og þeg-
ar frá var horfið var það komið
að því að sökkva.
Frjettastofan segir að orustu
skipið „Októberbyltingin“ (23.-
500 smál.), hafi verið hæft fram
arlega 21. september síðastlið-
inn og í fyrrinótt veittu þýskir
flugmenn því athygli, að það lá
með stefnið undir sjó.
Frjettastofan skýrir lol^ frá
því, að rússneskt herskip hafi
nálgast herstöðvar Þjóðverja á
eynni „Ösel“, en þýsku fallbyss-
urnar hefðu stöðvað það, og
kveikt í því.
Lá það hreyfingarlaust þegar
fi'á var horfið.
Bandamenn
á ráðstefnu
í London
Búl^aría
Ráðherra ber
fil baka
/"'l abrovsky, innanríkismála-
N-* ráðherra Búlgara, skýrði
frá því í gær, að rannsókn hcfði
nú leitt í Ijós, að fallhlífather-
mennirnir, sem settir voru nið-
"ur í Búlgaríu fyrir nokkrum dög-
um, voru rússneskir og hergögn
þeirra rússnesk.
En ástandið í landinu væri nú
komið í samt lag aftur. Hann
bar það til baka, að herlög
hefðu verið sett í Búlgaríu og að
almenn hervæðing færi fram í
landinu.
Búlgarar, sagði ráðherrann,
hafa ekki árás í huga gagnvart
nokkurri þjóð.
Hann sagði, að fregnirnar, er
birtar hefðu verið um að Búlg-
arar ætluðu að senda herfylki til
austurvígstöðvanna væru úr
íausu lofti gripnar.
Ráðstefna Bandamanna hófst
í London í gær. Mættu þar
fulltrúar stjórna þeirra, sem her-
numdu löndin hafa sett upp í
London, fulltrúar bresku stjórn-
arinnar og samveldislandanna
ásamt fulltrúum Sovjet-Rúss-
lands.
Anthony Eden, utanríkis-
málaráðherra Breta var í for-
sæti á fundinum. Flutti hann
ræðu þar sem hann minti á hina
8 punkta Atlantshafssamþykt-.
arinnar, sem sú barátta, sem
Bretland nú ætti í, bygðist á. —
Yjer munum framkvæma þær
meginreglur sem í þeim felast.
Hið sameiginlega markmið
Bandamanna er frelsi þjóðanna
og vjer munum eftir stríðið snúa
oss að uppbyggingu og frið-
sömu starfi. En Hitlerismann
verður að sigra fyrst, sagði Mr.
Eden.
Maisky, sendiherra Rpssa í
London flutti einnig ræðu.
Ræddi hann hina örlagaríku
baráttu, sem nú væri háð. Þao
verður að sigra árásarseggina,
sagði hann. Hann kvaðst geta
fallist á að Atlantshafssamþykt-
in fæli í sjer það styrjaldar-
markmið sem allir þeir, sem
berjast vildu gegn fascismanum
gæt u sámeinast um.
Fimtug’ er í dag frú Sigurbjörg
Jónsdóttir, Klapparstíg 9 hjer í
bæ.
/
Breskur flugher
I Lenlngrad
Fyrstu 7 þýsku ílug-
vjelarnar skotoar niður
T7I rá því var skýrt í London í
gær, að breski flugherinn,
sem sendur var til Rússlands,
væri byrjaður að taka þátt í or-
ustum á austurvígstöðvunum og
ein flugdeild var sögð hafa þeg-
ar skotið niður 7 þýskar flug-
vjelar.
Talið er að flugherinn berjist
á Leningradvígstöðvunum. Það
var tekið fram að í flughernum
sjeu flugmenn frá Bretlandi,
Kanada, Ástralíu og Nýja-Sjá-
lar.di.
6000 tonna þýsku
skipi sökt
T~> reska flugmálaráðuneytið
^tilkynti í gærkvöldi að 6000
smálesta þýsku skipi hefði verið
sökkt við Noregsstrendur.
Gerðu breskar flugvjelar árás
á það og huldi það sig þá reykj-
armekki. Flugvjelarnar lækk-
uou þá flugið niður úr reykský-
inu og tókst að hæfa skipið með
sprengjum sínum.
Óeirðir
í París
Þjóðverjar beita
Frakka harð-
ræðum
Fregnir bárust um það í gær
til Vichy, að óeirðir hefðu
brotist út í París.
Hefði jafnvel svo mikið kveð-
ið að þeim, að heil hverfi í borg-
inni hefðu verið lýst í hernaðar-
ástandi.
Fregn um þetta hafði þó ekki
feíigið staðfestingu í Vichy.
Víðar frá hinum hernumda
hluta Frakklands berast nú fregn-
ir um óeirðir og vaxandi and-
spyrnu gegn Þjóðverjum.
En allri slíkri mótspyrnu er
mætt með hinum harðneskjuleg-
ustu ráðstöfunum af liálfu Þjóð-
verja. T. d. hefir það komið fyr-
ir, er þýskir hermenn hafa orðið
fyrir tilræðum a£ hálfu Frakka
og ekki hefir tekist að hafa upp
á tilræðismönnunum, að saklausir
borgarbúar hafa verið teknir af
handahófi og ýmist skotnir eða
hneptir í fangabúðir.
Á Tobruksvæðinu kom í gær til
lítilsháttar viðureignar framvarða-
sveita.