Morgunblaðið - 25.09.1941, Síða 6

Morgunblaðið - 25.09.1941, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 25. sept. 1941. Minning Guðrún- ar Ásgeirsdóttur Við fylgjum til "rafar í dag konu, sem aldrei blífði sjer meðan kraftarnir entust. Það er gott að starfa og sigra, en- að starfa og bíða ósigur er þjáning. Hún hafði reynt hvort- tveggja, ósigur móðurinnar, sem sjer á bak ástvinunum, sem hefir vakað við sjúkrabeðinn í von um líf þeirra og heilsu, og hvin er ein þeirra mæðra, sem fengið hafa fregnina af hafimi um að sonur hennar kæmi ekki heim framar, en hun hjelt áfram að starfa samt og bar vissulega sigur tir býtum, því þún var mikil þrekkona bæði lil sálar og líkama. Prú Guðrún var fædd að Leirá í Borgarfirði 25. sept. 1863, og voru foreldrar hennar Asgeir Möller og Regína Petrína Riist. Hún fluttist ung til Reykjavíkur og giftist hjer fyrra manni sín- um Guðmundi Þorsteinssyni. Þeim varð þriggja barna auðið, en Guðmundur Ijest, þegar börn- in: voru kornung, og kom þá til hennar kasta að halda ein í horf- inu. Síðar giftist hún eftirlifandi manni sínum, Stefáni Runólfs- syni í Eskihlíð, sem margir Reyk- víkingar kannast við, og hefir sambúð þeirra verið löng og far- sæl. Frá fyrra hjónabandi misti frú Guðrún tvö börnin í bernsku, en eitt þeirra, Regína. fór til Vestur- heims og er þar gift kona. Þau Stefán mistu einnig uppkominn son í sjóinn, mjög mannvænleg- an, en annar sonur þeirra er Kjartan kaupmaður á Bragagötu 38, og hafa gömlu hjónin dvalið hjá honum og hans ágætu konu, Ragnheiði Jónsdóttur. Þriðja barn þeirra h.jóna er frú Guð- mundína, gift Valgarði Stefáns- syni frá Fagraskógi'. Stefán maður Guðrúnar varð fyrir miklu slysi á síðastliðnu vori og liggur nú rúmfastur á Landspítalanum. Er nú sár harm- ur að honum kveðinn, er hann verður að sjá á bak sínum góða og trausta förunaut. En börn hehnar og barnabörn fylgja henm til hinstu hvíldar með hjartans þakklæti í huga og við aUir vin- ir hennar. Guðrún Stefánsdóttir. Fyrsta hlutavelta ársins. Næ*t- komandi sunnudag heldur K. R. stóra hlutaveltu í garðyrkjusýu- ingarskálanum við Túngötu. Eru K. R.-ingar þegar farnir að safna á hlutaveltuna og væntir stjórn fjelagsins, að þeim verði eins og áður vel tekið af kaupmönnum og verslunarfyrirtækjum bæjarins. Eimskipaf jelagið ... FRAMH. AF FIMTU SÍÐT/ birt grein, þar sem hann telur framannefnd sjálfstryggingargjöld með rektsurságóða Eimskips á ár- inu 1940 og telur því hreinan ágóða þess um 4 milj. 300 þús. kr. Á þeim grundvelli reiknar hann út, að hreinn ágóði fjelags- ins hafi síðastl. ár numið rúm- lega 52 kr. á hverja smálest af vörum, sem fjelagið hafi’ það ár fiutt til landsins og frá landinu (innflutt 51,531 smál., útflutt 30,302 smál.). Umrædd tryggingar- gjöld eru, eins og fyr er sagt, kr. 1.249.106.27, samkvæmt reikningi fjelagsins, og ef þau eru ekki talin reksturságóði, þá er ágóðinn kr. 3.071.260.78, en samkvæmt því er hreinn ágóði rjett talinn kr. 37.53 á hverja smálest. Þenna ágpða álítur Skúli Guðm. alþ.maður svo áhæfilega og óþarf- lega háan, að hann vill láta rík- isvaldið skerast í leikinn, ákveða hámark farmgjalda fjelagsins og miða það við, ekki aðeins hvað sjeu hæfileg farmgjöld eins og nú stendur, heldur einnig taka tillit til þess, að fjelagið hafi haft ó- hæfilega mikinn gróða á síðastl. ári, Hann vjll, að því er virðist, með þessu móti koma í fram- kvæmd fyrnefndri tillögu, sem hann bar fram á aðalfundi fje- lagsins 7. júm þ. á., um að fje- lagið skyldi' útborga upphæð, sem hjer um bil svaraði sjálfstrygg- ingargjöldunum, til lækkana farra gjalda á yfirstandandi ári, en á áðalfunndinum var þessi tillaga feld með 14464 atkv. gegn 3244. í sambandi við þetta virðist rjett að athuga, hvernig reksturs- ágóða fjelagsins var háttað í fyrri heimsstyrjöldinni, ef hann er reikn aður út á sama grundvelli, sem Skúli Guðm. alþ.maður gjörir í áðurnefndri grein — hvað snertir reksturságóðann síðastl. ár — þá verður niðurstaðan þessi: Arið 1917 var reksturságóðinn kr. 75.75 á hverja smálest. Arið 1918 var reksturságóðinn kr. 105.70 á hverja smálest. Árið 1919 var reksturságóðinn kr. 74.54 á hverja smálest. Það kemur þannig í ljós, að þótt reiknað sje á grundvelli Skiila. Guðm. alþ.m., þá var reksturságóði fjelagsins hlutfallslega hjer um bil 50 til 100Í% hærri á fyrri stvrjaldarárunum, heldur en hann var síðastl. ár. Þá kom samt ekki nokkur rödd fram um það, að ágóði fjelagsins væri óhæfilega hár. Menn voru þá það framsýnir, báru í brjósti svo mikla umhyggju fyrir velferð fjelagsins og töldu það svo þýðingarmikið fyrir þjóð- fjelagið, að á aðalfundi fjelags- ins 1916 var meira að segja borin fram tillaga um, að það „hagi flutn ingsgjöldum skipanna um sinn nokkuð eftir því, sem önnur fjelög á Norðurlöndum gera og hafa gert síðan er ófriðurinn hófst“. 'Stjórn fjelagsins vildi aftur á móti leggja til grundvallar þarfir og öryggi fjelagsins og sömu stefnu er enn fylgt í ákvörðun flutningsgjalda fjelagsins. Sbr. yfirlýsing f jelagsstjórnarinnar i aðalfundi, 8. júní 1940. Hvernig fór svo eftir fyrri heimsstyrjöldina ? Sýndi reynslan, að farmgjöldin hefðu verið of há? Varasjóður fjelagsins komst upp í ca. 1 y3 milj. kr., en tapaðist algjörlega vegna afleiðinga styr- jaldarinnar. Þessi reynsla fjelagsins ætti að geta sannfært alla þá, sem vilja Uyggja framtíð þess, um það, að farmgjöld þess nú eru ekki svo há, sem þau þyrftu að vera, til þess að veita fjelaginu svipað öryggi því, er jafnvel reyndist ófullnægjandi eftir heimsstyrjöld- ina 1914—1918, og hver getur með nokkurri skynsemi haldið því fram, að ekki sje þörf sama ör- yggis níi sem þá? 8. sept. 1941. Sigurj. Jónsson. ★ Síðan grein þessi var skrifuð, hefir birst í Morgunnblaðinu 11. þ. m. grein eftir Einar Sigfússon, þar sem hann leiðir meðal annars rök að því, hversu nauðsynlegt sje, ekki aðeins fyrir Eimskipa- fjelagið sjálft, heldur einnig fyrir þjóðina í heild, að fjelagið eflisí fjárhagslega svo mikið sem mögu- legt er. „Sumargjöf* kaupir hús fyrir dag- heimili barna Bí.rnavinafjelagið „Sumar- gjöf“ hefir ráðist í það þarfaverk, að festa kaup á húsi fyrir dagheimili., leikskóla og vöggustofu fyrir börn. Húsið, sem fjelagið hefir fest kaup á er Tjarnargata 33, sem var eign Lárusar Fjeldsted hrm. Hús þetta er hið vandaðasta og mjög hentugt fyrir starfsemi ,,Sumargjafar“. — Kaupverðið mun hafa verið 100 þúsund kr. Ætlun ,,Sumargjafar“ er að hefja starfrækslu í húsi þessu þegar um næstu mánaðamót. Þarna verður dagheimili fyr- ir um 40—50 börn, leikskóli fyrir um 40 börn og vöggustofa fyrir um 15 börn. Talið er að mánaðargjald fyrir dagheimilisbörn verði um 75 krónur og 20 krónur fyrir leikskólabörn, en ekki hefir verið ákveðið gjald fyrir vöggu- stofubörn. Forstöðukona starfseminnar verður Þórhildur Ólafsdóttir, en hún hefir veitt dagheimilum „Sumargjafar“ forstöðu undan- farin ár og farist það prýðilega úr hendi. Flýðultil Tvrklandst Ifregn frá Berlín í gær, var skýrt frá því, að margir sovjet-rússpeskir liðsforingjar á landamærum Tyrklands og Rússlands í Kákasus, hefðu undanfarið farið yfir á tyrk- neskt landssvæði. Liðsforingjar þessir hafa ver- ið afvopnaðir og kyrsettir. 4 Atvinnuástand Hnifsdælinga FRAMH. AF ÞRIÐJU StÐU. 1936—1937 mistum við tvo góða báta. Ástandið var þá orðið svo slæmt, að eitthvað varð að gera til úrbóta. Var þá hafist handa um bátabyggingar og síðan 1937 hafa verið bygðir nýir og stærri bátar. Hafa þeir verið bygðir á ísafirði. En auk þess var, eins og áður er sagt, 50 tonna vjelskip keypt og haldið úti frá staðn- um. Nú er í ráði að byggja tvo 15 tonna vjelbáta. Verða stofnúð hlutafjeicg um hvorn þeirra. Gætir mjög aukinnar bjartsýni um afkomumöguleika útgerðar- innar og mun það fje, sem græðist, jafnharðan lagt í frekari eftingu atvinnulífsins á staðnum. Við hina auknu útgerð hefir skapast aukin atvinna og þar af leiðandi bættur efnahagur fólksins í þorpinu. Hins bætta efnahags fólksins gætir og í bættri afkomu hreppsfjelagsins. — Þið hafið nýlega stofnað með ykkur kaupfjelag? — Já, snemma á árinu 1939 stofnuðu sjómenn og útgerðar- menn kaupfjelag, aðallega með það fyrir augum, að kaupa og verka fisk þann, sem bátarni.’ ®kkar veiddu. Jafnframt var opn- ,uð sölubúð með Uauðsynjavarn- i'ngi. Páll Pálsson útgerðarmaður er formaður fjelagsins, en jeg hefi haft framkvæmdarstjórn með höndum Rekstur kaupfjelagsins hefir gengið sæmilega. Flestir sjó- menn og útgerðarmenn hafa gerst fjelagsmenn og töluverður hluti verslunar þorpsbúa er við fjelagið. Er hin besta samvinna meðal fjelagsmanna og engrar pólitískr- ar togsíreitu gætir um stjórn þess. — Hvað er frystihúsmáli' ykk- ar komið ? — Alt fram til þessa tíma höf- um við aðeins haft frystihús, sem fryst hefir með snjó. Er það að- eins til bcitugeymslu. Nokkur brögð voru að því, að beitan skemmdii t í því og auk þess ó- fullnægjandi að stærð. En um síðustu áramót var hlutafjelag stofnað um byggingu hraðfrysti- hiiss. Safnaðist 55 þús. kr. hluta- fje í þorpinu og meðal Hnífs- dælinga búsettra í Reykjavík. Þá fjekst og loforð fyrir láni frá Fiskimálsnefnd og Fiskiveiðasjóði. Áætlaður kostnaður er 130—140 þús. kr Geri jeg ráð fyrir, áð íshúsið geti tekið til starfa næstu daga, a. m. k. sem beitugeymslu- hús. En nokkur dráttur hefir orðið á að hraðfrystitækin kæmu. í húsinu er geymslurúm fyrir ca. 200 tonn af beitu og frystum fiski. Á það að fullnægja beitu- þörf útgerðarinnar. Stjórn fje- lagsins skipa: Páll Pálsson út- gerðarmaður. formaður, og með- stjórnendur: Hjörtur Guðmunds- son útgerðarmaður og jeg. Má vænta þess, að í framtíðinni verði atvinnulífi þorpsins mikill styrk- ur að þessu fyrirtæki. — Hvernig er ræktunarmálum ykkar Hnífsdælinga varið? — Ræktunarmöguleikum þorps- búa almennt er fremur þröngur stakkur skorinn Garðrækt er þó nú þegar orðin töluverð og nokkr- ir eiga kindur. Annars fá þorps- búar landbúnaðarafurðir frá bænd unum í dalnum. Vegagerð fram í Hnífsdal en komin nokkuð áleiðis. Er mikill áhugi fyrir því, að hann komist lengra fram dalinn, en við það skapaðist aðgangur að auknu land rými til ræktunar. Annars eru atvinnumál okkar komin það á rekspöl, að naumast ætti að vera hætta á atvinnuleysi og þröng, ef sæmilegt verð helst á fisbinum. — Hvaða framkvæmdir teljið þjer mest aðkallandi hjá ykkur nú sem sakir standa? — Tvímælalaust lengingu bryggjnnnar. Hún er nú 35 metra löng, eins og áður er grúint, en þarf nauðsynlega að verða helm- ingi lengri. Með stækkun báta- flotans hefir skapast aukin þörf fyrir bryggju. En svo grunt er við hana ennþá, að bátarnir fljóta naumast við hana um fjöru, og geta alls ekki' komist að henni í vondum veðrum. Er mibil nauðsyn á að fá þessa framkvæmd unna þegar á næsta ári. Verður að ætla, að ríkissjóður sjái sjer fært að kosta hana að verulegu leyti. Það, sem þegar hefir verið gert, hefir hreppurinn kostað að %, en ríkissjóður aðeins að %. Fyrir útgerðina er þessi lenging bryggj - unnar bráðnauðsynleg. Raunar má segja, að- bryggjubyggingin hafi á sínum tíma komið í veg fyrir að plássið legðist niður sem útgerðar- staður. En að því hefði verið hið mesta tjón, þar sem Hnífsdalur liggur ágætlega við einum allra bestu fiskimiðum hjer við land, þar sem fiskur er svo að segja allan ársins hring, sem hvergi mun annarsstaðar hjer við land. Það er von mín og vissa, segir Elías Ingimarsson að lokum, að þegar sjávarútveginum hjá okkur hafa verið skipuð sæmileg skil- yrði til vaxtar og viðgangs, get- um við snúið okkur að ræktunar- málunum og komið þeim í það horf, að þorpsbúar almennt geti' að einhverju leyti haft stuðning af jarðarnytjum. oooooooooooooooooooooo<xxxxxxxx>ooooo<. o Fóðnriíld. $ Sá sem getur tekið á móti og losað 100 tunnur ^ af síld strax, fær innihaldið, ca. 100 kíló af síld, 0 fyrir 7 krónur tunnuna. Minsta afgreiðsla 25 tunnur. $ Upplýsingar í dag kl. 1—2. 0 SOPHUS ÁRNASON, 0 Þingholtsstr. 13. a 0 * oooooooooooooooooooooooooooooooooooo< 8EST AÐ AUGLÝSA I MORGUNBLAÐINU.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.