Morgunblaðið - 25.09.1941, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 25.09.1941, Qupperneq 7
Fimtudagur 25. sept. 1941. MORGUNBLAÐIÐ 7 Minnlng: Frú Soffia Sigurjúnsdúttir P rú Soffía Sigurjónsdóttir and- * aðist að hoimili dóttur 'in.n- ar, prófessorsfrúar Elsu Kuhn, í Leipzig, hinn 5. sept. 1940, en andlátsfregn liennar barst ekki hingað til lands fyr en um jóla- leytið. Jeg hefi ekki sjeð, að dán- ardægurs Soffíu hafi verið getið í blöðum og þótt seint sje, bið jeg Morgunblaðið fyrir örfá minn ingarorð. Frú Soffía var fædd að hinu þjóðkunna heimili Laxamýri í Þingeyjarsýslu, 15. apríl 1876, og voru foreldrar hennar Sigurjón óðalsbóndi og dbrm. Jóhannesson „ríka“ á Laxamýri’, Kristjánsson- ar og konu hans, Snjólaug Þor- valdsdóttir frá Krossum á Ár- skógsströnd. Voru þau systkini Soffíu 8, sem upp komust, og var Jóhann skáld Sigurjónsson yngst- ur þeirra (fæddur 19. júní 1880). En nú eru þau öll látin, nema frú Líney, ekkja Árna prófessors Bjarnasonar, síðast í Görðum á Álftanesi. Soffía fjekk, eins og öll börn þeirra Snjólaugar og Sigurjóns, hið besta uppeldi í foreldrahúsum. Sigurjón var sterk-efnaður á þeirra tíma mælikvarða og var ekki sinkur á fje. Sjerstaklega var honum ant um að afla börn- um sínum góðrar mentunar og vildi þar síst spara til. — Soffía var á Kvennaskólanum á Lauga- landi 1891—93 og Kvennaskólan- um í Reykjavík 1893—1894. Sigldi til Kaupmannahafnar 1897, lærði þar fyrst hússtjórnarstörf, síðan nuddlækningar og lauk prófi í þeirri grein með lofi. — Um 1910 kom hún alfari heim til íslands ásamt dóttur sinni, Elsu, barn- ungri. Hóf hún þá nuddlækningar á Akureyri, undir handleiðslu þeirra Steingríms Matthíassonar og Vald. Stefensen, og Ijetu þeir þáðir svo um mælt, að skyldurækni og samviskusamari persónu í starfi sínu, en Soffíu við nudd- lækningarnar, væri ekki unt að óska sjer. Á Akureyri starfaði svo Soffía rúmlega 20 ár og vann sjer þar hylli og virðing allra er eitthvað kvntust henni. Auk nuddlækning- anna starfaði hún mjög að góð- gerða- og hjúkrunarmálum, og var t. d. lengi í stjórn hjúkrunarfje- lagsins Hlíf. Um 1928 giftist Elsa dóttir hennar, Hans Kuhn, háskólakenn- ara í Köln, og flutti þá burt frá Akureyri með honum. Eftir það festi Soffía lítt vndi, því mjög var ástúðlegt með þeim mæðgum. Flutti hún til þeirra hjóna 1931 og dvaldi hjá þeim til dauðadags, fýrst í Köln en síðast í Leipzig, þar sem tengdasonur hennar var skipaður háskólaprófessor haustið 1938. En ávalt saknaði Soffía Jslands. Sumarið 1938 kom hún heim, ásamt tengdasyni sínum, dóttur og 3 sonum þeirra og dvöldu þau hjerlendis, lengst á Akureyri, nokkrar vikur. — Nú hvílir hún í erlendri mold. Með frú Soffíu Sigurjónsdóttur er mæt kona og mikilhæf til mold ar gengin. — Sunnudaginn 29. desember síðastl. var haldin minn- ingarathöfn um hana í hinni nýju Akurevraikirkju, að tilhlutun ætt- ingja hennar og vina. Flutti sjera Fr. J. Rafnar vígslubiskup ræðu, en söngflokkur Akureyrarkirkju söng. Kirkjan var ljósum skreytt og fór athöfnin prýðilega fram. Þingeyingur. Minning frú Jórunnar D. Thorlacius Frú Jórunn D. Thorlacius and- aðist 2. september s.l. á elli- heimilinu hjer í bænum. Húu var dóttir Daníels Thorlacius kaup- manns og umboðsmanns í Stykk- ishólmi og Guðrúnar (f. Skapta- sen) dóttir Jóseps Skaptasens læknis að Hnausum í Himaþingi. Guðrún var hin metsa fríðleiks- kona, vel greind, þrekmikil og hinn mesti kvenskörungur, eins og hún átti kyn til. Maður henn- ar misti heilsuna og gat enga björg sjer veitt síðustu æfiárin. Er mjer minnisstætt, hve kona hans stundaði hann með mikilli alúð og innileik svo árum skifti. Frú Jórunn Thorlacius var tví- gift. Fyrri rnaður hennar var Magnús Þórarinsson frá Bakka við Bakkafjörð. Myndarmaður og þjóðhaga smiður. Hann var kom- inn af merkum bændaættum þar eystra. Fyrst bjuggu þau hjón á Steintúní við Bakkaf jörð, en fluttu síðan til Stykkishólms. Keypti Magnús þar Norska-húsið svo nefnda. Það var ættaróðal og æskuheimili Jórunnar konu hans. Magnús hafði' þarna verslun og þilskipaútgerð í nokkur ár, en varð að hætta því vegna heilsu- bilunar. Flutti þá Magnús með konu sína og tengdaforeldra til Reykjavíkur og síðar austur að Bakkafirði aftur. Þar misti Jór- unn mann sinn. Seinni maður hennar var Þórarinn Yaldimars- son, bróðursonur Magnúsar. Eftir nokkurra ára sambúð misti' hún hann einnig Þeim hjónum varð ekki barna auðið. En með fyrra manni sínum átti .Jórunn þrjú börn. Tvo syni, Þórarinn og Jós- ep og dóttur, Theódóru að nafni, myndarlega cg góða stúlku. Hún dó um tvítugsaldur. Frú Jórunn fór því engan veginn á mis við mótlæti og andstreymi í lífinu. En hún bar það með einstakri þolin- mæði og jafnaðargeði. Um ættfeður Jórunnar, Thor- lacius-feðga, má lesa í ágætri rit- gerð í II. h. Sagna af Snæfells- nesi, eftii Óscar Clausen. Auðurinn er ekki ættrækinn. Hann endist ekki að jafnaði í marga ættliði, en mannkostirnir ganga í ættir mann fram af manni. Og það voru þeir, sem Jórunn erfði og átti í ríkum mæli, enda nutu þess margir. Jórunn var glæsileg kona, fríð sýnum og fyrirmannleg í fram- göngu og fasi, áður en heilsan bilaði. Góðgerðasemi og hjálpfýsi var henni í blóð borið. Komu þess- ar dygðir jafnan niður á þeim, sem voru umkomulausir og áttu við bág kjör að búa. í einu orði sagt var Jórunn góð kona, í þessa orðs fylstu merkingu. x Húnvetningur. Átfikin ú Miðjarðariiafi r tilkynningu bresku herstjórn- arinnar í Kairo í gær var skýrt frá hernaðaraðgerðum breskra kafbáta á Miðjarðarhafi. Var greint frá árás á ítalskt skip, sem breskur kafbátur sökti með tundurskevti vestur af Sikil- ey. t V í breskum blöðum er á það bént, að skipatjón ítala á Mið- jarðarhafi fari mjög vaxandi og sje þegar orðið mjög tilfinnan- legt. B. S. í. Sfmar 1540, þrjlr lfnor. Géðír bflar. Fljót afgreiMa í norska útvarpinu frá London í gærkvöldi var sagt frá vaxandi ólgu í norskum skólum gegn harðstjórn Þjóðverja. Terboven, landstjóri Þjóðverja hefir reynt að koma í veg fyrir starfsemi skólafjelaga innan æðri skólanna, en nemendur láta bann hans ekki á sig fá og halda fuúdi sína í íeyni Sími 1380. _ LITLA BILSTÖÐIN zr Mr UPPHITAÐIR BÍLAn. Kaupiö saltkjðtið af þeim sem verða að salta Kiötverðlagsnefnd hefir á- kveðið verð á saltkjöti kr. 400,00 pr. tunnu, 130 kg. Rjett er að vekja athygli Revkvíkinga á því, að þetta verð er mun lægra en ef menn kaupa hjer nýtt kjöt og láta salta niður í tunnu. Hjer kostar nýtt 1. fl. dilkakjöt í kroppum kr. 3,25 kg., eða 130 kílóin kr. 422,50, og er þá tunnan ekki talin með. Sjest af þessu, að jafn vel þótt menn hafi tunnu til þess að salta kjötið í, verður mun ódýrara að kaupa saltkjötið á þeim stöðum, sem verða að salta. Sumir kynnu e. t. v. að óttast að þeir fengju ekki eins gott saltkjöt með því að kaupa það þannig ósjeð. En fyrir þessu á að vera næg trygging. því að allt kjöt er metið og flokkað. Þær verslanir, er hafa saltkjöt á boðstólum munu og sjá til þess, að kjötið sem þær selja, sje gott. En það hefir þýðingu fyrir kjötneysluna alment, að ekki sje saltað á öðrum stöðum en þeim, sem hafa ekki önnur úr- yæði en að salta kjötið. Nú er ekki neinn markaður fyrir salt- kjötið annarsstaðar en hjer jnnanlands. En víða hagar svo til hjer á landi, að ekki er hægt að frysta kjötið. Hjónaefni. Nýlega hafa opiu- berað trúlofun sína ungfrú Ágústa ; Jónasdóttir, Laufásveg 4 og Jón Bergmann, Ljósvallagötu 24. Dagbók • ••••<»<»••••• •••••••••••« 1.0.0. F. 5 = 1239258 Ú2 = 9 II Næturlæknir er í nótt Ólafur Jóhannsson, Gunnarsbraut 38. —• Sími 5979. . Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. 92 ára er í dag Steinunn Jóns- dóttir, Elliheimilinu, Ilafnarfirði. 50 ára er í dag frú Ingibjörg Snorradóttir. Austurgötu 17, Ilafnarfirði. Trúlofun síiia hafa nýlega op- inberað ungfrú Guðrún Stein- dórsdóttir, Sólvallagötu 68 og Pjetur Pjetursson, Sólvallagötu 33. Bíl stolið. I fyrradag var stol- ið bifreiðinni R. 1773. Hafði þjóf- urinn og bifreiðin ekki fundist þegar síðast frjettist í gærkvöldi. Bifreiðin var einkabifreið. Hún stóð fyrir utan bifreiðaverkstæði Sveins Egilssonar, er henni var stolið. Stúdentarí Munið fund Stú- dentafjelags Reykjavíkur í Há- skólanum í kvöld. Útvarpið í dag: 12.00—13.00 Hádegisútvarp. 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 19.30 Hljómplötur: Valsar. 19.40 Lesin dagskrá næstu viku. 20.00 Frjettir. 20.30 Minnisverð tíðindi (Axel Thorsteinsson). 20.50 Hljómplötur: „Feðgamir“, saga eftir Gunnar Gunnarsson (ungfrú Solveig Guðmundsdótt- ir). ^ 21.25 Útvarpshljómsveitin: a) Mars eftir Teike. b) Vals eftir Moszkowsky. c) Indversk ástalög eftir Woodford-Finden. d) Krýningarmars eftir Meyer- beer. 21.50 Frjettir. Grammofónplötur. Mikið úrval af orkestur plötum. Nýtísku dansplötur. Klassiskar plötur. Komið á meðan nógu er úr velja. H1 jóðfærahúsið. Sonardóttir mín ODDNÝ ODDSDÓTTIR andaðist í gærmorgun. Jarðarförin auglýst síðar. Valgerður Einarsdóttir, Laugarnesveg 73. Jarðarför föður og tengdaföður okkar, ÞORSTEINS MATTHÍASSONAR frá Tungu í Fróðárhreppi, fer fram laugardaginn 28. þessa mánaðar frá heimili hans, Kirkjuveg 12, Hafnarfirði, kl. iy2 e. h. Fyrir hönd systkina og annara vandamanna. Karlotta Þorsteinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.