Morgunblaðið - 29.10.1941, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.10.1941, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 29. okt. 1941. KVENDJOÐIN OG HEÍMILIN FW altur I tlsku Flauel er aftur komið á markað- inn og er sjerstaklega mikið notað að hafa það með silkiefni í kjól. Mittið á kjólnum er yfirleitt neðar lega og ermarnar ná aðeins niður fyrir olnboga. M eðferð ullarfata Nú fer að kólna í veðri «g ullarfötin koma aftur að góðu lialdi. Einn ókosturinn við þau er þvotturinn. Það virðist oft erfið- leikum bundið að þvo þau Jiannig, að þau hlaupi ekki og verði ónot- hæf eftir nokkra þvotta, þó að þau sjeu að öðru leyti heil. Margt liefir verið ráðlagt í þessum efn- nm, mismunandi gott, en eftirfar- andi aðferð er eflaust með þeim betri: Setjið 2—3 bnefa af salti í bala af köldu vatni. Látið ullar- fötin iiggja í vatninu 1—2 daga og skolið þau síðan vel úr köldu vatni. Ef þessi aðferð er notuð, hlaupa ullarfötin ekki, og verða •eins og ný eftir þvottinn. Kjötforði til vetrarins Niðursuða og geymsla Munið - - — — að það verður að fara varlega með krystal. Þegar á að þvo krvstalinn, er gott að fara þannig að: Látið muni þá, sem þjer ætlið að þvo, vera nokkra •stund í heitu herbergi; hafið vatn ið vel heitt og látið dálítið af salmiakspíritus út í ]>að. Berið sápu á stífan bursta og burstið ■duglega allar skorur. Hkolið svo úr vatni, jafnheitu og fyrsta vatn- 5ð. Látið dálítið af línsterkju í •iseinasta vatnið, þá verður krystall inn tær og fallegur. Þurkið hann að lokum með mjúkum klút. Allar hygnar húsmæður reyna að gera sem best innkaup á allskonar matvörú, þegar tækifæri býðst. Nú á þessum tíma, slátur- tímanum, er tækifæri til að fá bæði kjöt og aðrar sláturafurðir með heldur vægara verði, heldur en á öðrum tíma ársins. Þessvegna er ástæða fyrir húsmæðurnar að athuga það, að nota meira af þess- um ágætu fæðuefnum og kaupa svo mikið til vetrarins sem efni leyfa og geyma það á þann hátt. að það haldist óskemt og sje lyst- ugt, þegar nota á. Lambskrokkar, sem eru yfir 15 kg., eru 1. fl. Kg. kostar 3.25 upp og ofan. Við kaupum lambsskrokk, sem vegur 15 kg. og kostar 48.75. Sje þett^, kjöt keypt. í smásölu, kostar það 55 aurum meira kílóið og mundi þá skrokkurinn kosta 57.00. Kjöt má salta, reykja, súrsa eða sjóða niður, en mest er það geymt í frystihúsum. Kjöt og aðrar sláturafurðir, sem nú er völ á að fá í sláturtíðinni, er ódýrara en endra nær. Auk þess er kjötið miklu bragðbetra nii en á öðrum tíma árs. Eins og áður er sagt er ódýrast og best að kaupa heilan skrokk í einu. Þó munu margar húsmæðnr, sem fátt fólk hafa í heimili, segja: „Hvað á jeg að gera með heilan skrokk í einu?“ En það er mis- skilningur, því einn iítinn lambs- skrokk má matbúa á fjölda, marg- an hátt, og þótt fleiri væru. Hjer skiftir aðallega máli að geta geymt kjötið á sem hagkvæmastan hátt til vetrarins, svo gott sje að grípa til þess síðar. Jeg ræð því öllum húsmæðrum til að kaupa einn eða fleiri heila skrokka í einu. Hangikjöt úr frampart og læri. Húsmæður fá 2 lambskrokka, sem eru hjerumbil 15 kg. hvor. Hálsinn er skorinn af og skrokk- arnir sagaðir eftir endilöngum hryggnum. Hupparnir skornir af, þvínæst lærin og er síðan fylgj- andi með bógnum. Tvö lærin eru reykt og 2 fram- partar. Tvö lærin eru soðin niður og úr tveimur frampörtunum, sein eftir eru, er soðin kæfa. Úr slög- unum eru lagaðar rúllupylsur. Það er heppilegt að rúllupylsurnar sjeu litlar, sje fátt fólk í heimili. 011 rifbein eru skorin frá að innanverðu með beittum hníf. Hryggurinn skorinn í burtu, bein- in skorin úr bógnum. Nú er frant- parturinn beinlaus. Beinin og hálsinn er soðið, og kjötið notað í kjötkássu, en soðið niður í kjötkraft. Saltblanda. 600 gr. salt. y2 tesk. salt- pjetur. 4—5 matsk. sykur. Þessu er blandað saman, og er blandan mátuleg á 10—12 kg. af kjöti, sem reykja á. Nokkru af saltblöndunni er nuddað innan í sárið á bógnum og síðuna. Kjötið er vafið fast sam- an 4 langa pylsu, þannig að síðan komi utan um. Saumað eins og rúllupylsa. Síðan er enn nokkru af salt- blöndunni stráð á botninn í byttu eða bala. Kjötpylsurnar og lærin eru nudduð vél utan með blönd- unni, lagt í ílát og þar yfir stráð því sem eftir er. Bíði þannig 3—4 daga. Verður að snúa kjötinu á hverjum degi. Sje saltið ekki bráð ið, er því nuddað inn í kjötið smátt og smátt. Seglgarn er vafiö um pylsurnar eins og rúllupylsu, og kjötið reykt á venjulegan hátt. Verður mjög gott og fallegt hangí- kjöt úr frampartinum sje þannig farið með það. Smásteik, niðursoðin. Kjötlærin eru hreinsuð, þerruð mej heitum klút og skorin í jafna ferkantaða bita, sem brúnaðir eru móbrúnir á vel heitri feiti á pönnu Bitarnir eru jafnóðum lagðiríhrein niðursuðuglös, þegar alt kjötið hei ir verið brúnað, er vatn látið á pönnuna og það saltað eftir smekk. Vatnið er soðið í 5—10 mín., þvínæst er soðið síað og helt yfir kjötbitana í glösunum. Glös- unum iokað. Látin í pott með pappír á botninum og milli glas- anna; vatn sem hefir sama hita- stig og glösin, er látið á. Eftir að suðan kemur npp eru glösin soðin í 1 klst., tekin, upp og vafin inn í þurku, meðan þau eru að kólna. Þegar smásteikin er borðuð, er henni helt í pott ásamt soðinu, þar saman við má setja brúnaðan lauk og grænmeti, svo sem rófur, gul- rætur eða kartöflur, sem brúnað er í smjöri og hálfsoðið í litlu vatni. Smásteikin verður miklu ljúffengari og drýgri, sje græn- metið iátið saman við. Þvínæst er sósan jöfnuð með hveitijafning, sósulitur og krydd látið í. Borðað með hrærðum kartöflum. Barið buff, niðursoðið. Kjötlærið er þerrað með klút, sem undinn er upp úr heitu vatni, skorið í sneiðar þversum á þráð- ■ 111111111111111111 ■ 111111111111111111 < 11 ■ 11 ■■ 11111 ■ 11111 f 11111111111111111 r 111 ri 1111 ■ 11111 ■ 111111 ■ 111111M11111 ii 1111111111111 ■ i ii 11 ■ 11111 ■ 111111111«r 11111111»« Káptiefní Svart, dökkblátt og aðrir fallegir litir, tekið upp í dag. Vcrsl. Snót Vesturgötu 17. iitiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiniiitiiiiiitiiMitfiniiiiminiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiii unum og barið með kjöthamri í jafnar sneiðar. Tólg og smjörlíki er brúnað á pönnu, buffsneiðarn- ar brúnaðar móbrúnar við mikinn hita, salti stráð yfir sneiðarnar og þeim raðað jafnóðum niður í vel hrein niðursuðuglös. Ofurlitlu soðnu vatni er helt á pönnuna, salt og pipar iátið í það eftir smekk, soðið í nokkrar mínútur, síað og helt yfir buffið í glösunum. Glös- unum lokað og soðin í 1 klst. Þegar borða á buffið, eru buff- sneiðarnar brúnaðar í smjöri á pönnu, sett á fat og brtinaður laukur settur yfir. Borðað með soðnum kartöflum. Barið buff, með fituloki. 2 kg. lrjötlæri. 300 gr. tólg. 100 gr. smjrölíki. 2 1- vatn. 2 msk. salt. 2 msk. pipar. Kjötið er þurkað með heitum klút, skorið sneiðar þversum og barið með kjöthamri, svo það verði meyrar og jafnar sneiðar. Feitin brúnuð á pönnu, kjötsneiðarnar brúnaðar í henni móbrúnar, látn-! ar í pott jafnóðum. Þegar alt kjöt- ( ið er brúnað er vatn látið á pönn- una ásamt salti og pipar, soðinu helt vfir buffið í pottinum. Soðið við hægan eld í 3—4 stundarf jórð-, unga eða þangað til stinga má með prjóni í gegnum buffsneiðarn ar. Geyma má buffið í hvaða íláti' sem er, en best er að hafa leir-' krukku eða emailleraða fötu, sem ekkert er brotið úr. ílátið er þveg ið vel úr mörgum lieitum vötnum, það látið ofan í pott með sjóðandi vatni. Þegar ílátið er orðið vel heitt, er buffið látið í það ásamt soði, sem þarf að fljóta yfir kjöt- ið, hlemmur látinn yfir ílátið og ]>að soðið þannig í 15-—20 mín.; þá er það tekið upp úr og hlemm- urinn ofan af. Meðan buffið er að kólna verður að ýta því ofan í, svo ekki nokkur ögn standi upp úr. Þegar fitan er storkin ofan á því, er brædd tólg látin yfir, svo ! fitulokið verði 2—3 cm. á ]>ykt. Geymist á köldum stað. Aðgæta verður buffið öðru hverju, því springi fitulokið, verður að borða buffið sem fyrst. Þess verður að gæta, að hafa ekki meira en í 1 máltíð í hverju íláti, því tæplega geymist buffið lengi eftir að búið er að taka af því. Á þennan hátt á buffið að geta geýmst í 3—4 mánuði, hafi hreinlæti verið fnll- komið. Þegar buffið er borðað, er fitu- lokið tekið ofan af, sett í pott og hitað, jafnað með hveitijafning, salt pipar og sósulitur sett í eftir smekk. Látið á fat, brúnaður lauk- ur settur yfir, borðað með soðnum kartöflum. Smásteik með fituloki. 2 kg. kjöt. 300 gr. tólg. 200 gr. kjötfeiti eða smjörlíki. 2 msk. salt. 1 tsk. pipar. 1 y2 I. vatn. f smásteik má nota alt sæmilega gott kjöt, þó það sje smátt, jafn- vel það sem skafið er utan af bein unum. Kjötið er þerrað með klút, sem undinn er upp úr heitu vatni, skorið í jafna, ferkantaða bita, sem ekki eru nema munnbiti á stærð. Tólgin er hituð á pönnunni, smjörlíkið bnmað þar í, kjötbit- arnir látnir með jöfnu millibili á pönnuna. Þeir mega ekki snerta hvern annan, því að brún, hörð skorpa verður að myndast utan á þeim, og sje það brúnað með hægan eld, sýðst kjötkrafturinn út í feitina. Þegar kjötið er vel brún- að, er það látið í pott, vatn látið á pönnuna, þegar það sýður er því helt í pottinn, þar í látið salt og pipar og soðið við hægan eld þang að til kjötið er orðið svo meyrt, að stinga megi í gegnum það með prjóni. Geymist á sama hátt og barið buff með fituloki. Þegar borða á smásteikina er 'fitulokið tekið ofan af og soðinu með kjötinu helt í pott og hitað- Mikill bragðbætir er að láta brún- aðan lauk saman við, og drýgja má kjötið með því að láta brúnað- ar rófur, kartöflur eða gulrætnr út í. Steikin er jöfnuð með hveiti- jafningi, salt og pipar látið í eftir smekk og sósulitur, sje þess þörf. Sett á fat og hrærðar kartöflur í kring. H. S. VetrarffrakM Einfaldur og hentugur „swagger" úr þykku, einlitu efni, með stórum vösum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.