Morgunblaðið - 09.11.1941, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.11.1941, Blaðsíða 3
Sfmnudagur 9. nóv. 1941. MORGUNBLAÐIÐ 3 Ríkisst]óri ræðir á ný við formenn ílokkanna Hann vill kanna til þrautar bvort til er grundvöllur Þjóðstjörnar RÍKISSTJÓRI hefir nij á ný hafið viðræður við formenn flokkanna, er stóðu að þjóðstjórn- inni, þá ólaf Thors, Jónas Jónsson og Stefán Jóhann Stefánsson. Sennilega mun vaka fyrir ríkisstjóra, að fá úr því skorið, hvort fyrir heodi er möguleiki á sainstarfi flokkanna áfram, þrátt fyrir snurðu þá, er hljóp ý. samstarfið. _______ Finnist enginn grundvöllur til nýs samstarfs, verður að leita annara. möguleika til stjórnar- myndunar. En hvaða möguleikar ern á því, að þingræðisstjórn verði mynduð, ef ekki er til nýr grundvöllur þjóðstjórnar? ★ Alþingi er sem stendur skipað 45 þingmönnum og vantar þann- ig 4 til'þess að það sje fullskipað. Tvö kjördæmi (N.-ísafjarðarsýsla og Snæfellsnes- og Hnappadals- sýsla) hafa nú engan þingtpapn; f!inn þingmaður (Ásg. Ásg.) er f jarverandi (dvelur nú í Ameríku) pg annar (Bergur -Tónsson) hefir ekki getað mætt á þingi, sakir veikinda. Flokkaskipunin er sem stendur þannig á Alþingi: Framsóknar- flokkur 18, Sjálfstæðisflokkur 16, AJþýðuflokkur 5, Kommúnistar 3, Bændaflokkur 2 og einn utan flokka (Hjeðinn Vald.). Af þessu er Ijóst, að enginn ílokkur er svo fjölmennur á þingi, að hann geti einn myhdað stjórn. Spurningin er þá sú, hvort líkur eru til þess, að tveir eða flein flokkar geti komið sjer saman og myndað samsteypustjórn. ★ Einhver kynni að líta svo á, að eðlilegast væri að Sjálfstæðis- flokkurinn og Alþýðuflokkurinn mynduðu stjórn, þar sem þeir stóðu að falli dýrtíðarfrumvarps Framsóknarflokksins. En þessir möguleikar eru þegar útilokaðir af þeirri ástæðu, að flokkarnir hafa ekki þingfylgi til stjórnar- myndunar. En þess utan myndi slík samsteypustjórn aldrei koma til greina, vegna hins mikla djúps, sem ríkjandi er milli þessara flokka um grundvallarstefnur þjóðmálanna. En svo er einn möguleikinn sá, að Framsókn og Alþýðuflokkur- inn myndi samsteypustjórn. Þess- ir flokkar hafa til samans 23 þing- menn og geta því myndað þing- ræðisstjórn. Þeir hafa og sameig- inlegt áhugamál, skattalagabreyt- inguna, sem Framsókn hefir borið fram. Er og yfirlýstur stuðningur kommúnista við framgang þessa máls. Hefir þótt rjett að skýra fyrir fólki hvernig flokkaskiftingin er í þinginu, til þess að það geti betur áttað sig á viðhorfinu. Væntanlega fæst úr því skorið mjög bráðlega, hvaða afstöðu flokkarnir taka. Ríkísstjóri fluttur að Bessastöðum Ríkisstjóri er nú fluttur að Bessastöðum, þótt breyt- ingum á húsáskipan sje ekki að iullu lokið þar. Gabbró hjá Akureyri Athuganir dr. Trausta Einarssonar Akureyri í gær, ¥ „íslendingi'1, er kom út í gær, * skýrir dr. Trausti Einarssou mentaskólakennari frá því, að hann hafi fundið gabbró í jörðu í nánd við Akureyri. Gabbróið kem- ur fram í fjallstindunum Bónda og Þríklökkum, sunnan við fjallið Súlur, sem er hin alkunna bæjar- prýði Akureyrar. Dr. Trausti Einarsson segir í grein sinni: „Gabbróið er eins og kunnugt er dílótt, stórkornótt bergtegund, sem líkst getur granit og hefir glitrandi brotsár, sem stafar af fjölda speglandi kristalflata. Það má nota í legsteina eða tröppur, súlur, húðun og til skrauts í bvggingar. Aðal fundarstaður gabbrós hjer á landi' er við Hornafjörð. En það hefir einnig verið talið fundið yst á Snæfellsnesi. Á ferðalagi s.l. sumar fann jeg einnig mikið af því hjá Vatnsholti, innan á nes- inu, en flutningskostnaður þar hamlar því, að þetta gabbró verði notað að nokkru ráði'. Gabbró það, sem nú hefir fund- ist hjá AkuVeyri, er talsvert smá- gerðara en Ilornafjarðargabbróið, en með tilliti til flutningskostnað- ar o. fl. er hjer um athyglisverðan fund að ræða“. Frjettaritari. 70 ára afmælis Stúdentafjelags Reykjavíkurminst PANN 14. þ. m. verður Stúdentafjelag Reykja- víkur 70 ára. Er fjelagið stofnað þann mán- aðardag árið 1871. í tilefni þessa afmælis fjelagsins hefir stjórn þess á- kveðið að þess verði minst n.k. föstudag, sem er 14. nóvember. Hefir ítíkisútvarpið fengið fjelaginu rvim í dagskrá útvarpsins um kvöldið. Flytur fonnaður þess þá stutt ávarp, en Árni Pálsson prófessor minnist starfs fjelagsins og stefnu á liðnum árum, Að ræð- unum loknum vei’ða síðan sungnir stúdentasöngvar. Þá efnir fjelagið og til hófs um kvöldið. Verður það haldið að Hótel Borg og hefst með þorðhaldi. Breskur her- maOur verður úti ð ReykjaheiOi Breskur hermaður varð úti á Reykjaheiði aðfaranótt fimtu dag (símar frjettaritari Morgun- blaðsins á Húsavík). Leitarmenn frá Húsavílt fundu lík hans í gær. Hermaðurinn hafði ásamt fje- laga sínum verið að koma austau yfir Œteykjaheiði á bíl s.l. miðviku- dag. Festist bíll þeirra í snjó og fóru þeir til Húsavíkur gangandi til að ná í hjálp. íslenskur bílstjóri fór Jftur með þá á bíl sínum. Tókst þeim ekki áð ná. hinum breska bíl og ætluðu því aftur til Húsavíkur til að sækja fleiri menn. En á leiðinni þangað festist íslenski' bíllinn í snjó. Islendingurinn hjelt. þá af stað gangandi til Húsavíkur til að sækja hjálp, en sagði Bretunum að bíða sín í bílnum. Þegar íslendingurinn kom með hjálparmenn til baka var aðeins annar hermaðurinn eftir í bílnum. Hinum hafði leiðst biðin-og ákveð- ið að fara gangandi til bygða. Stórhríð var og viltist hermað- urinn af leið og mátti sjá af því hvar hann fanst, að hann hafði gengið í þveröfuga átt. Leit var hafin strax á fimtu- dag. Voru það aðallega hermenn, sem þátt tóku í þeirri leit. f gær fann hópur íslenskra leit- armanna slóð hermannsins og skömmu síðar lík hans. Hjónaband. í gær voru gefin saman í hjónaband af síra Bjarna Jónssyni Áslaug Árnadóttir og Steingrímur Guðmundsson. Heim- ili þeirra er á Njálsgötu 15 A. Verða þar fluttar ræður og á- vörp, en að lokum verður stiginn dans. Má vænta þess að stúdentar, eldri sem yngri fjölmenni þangað, þar sem minst er svo merkilegs afmælis elsta og virðulegasta ís- lenska stúdentafjelagsins, sem er starfandi á landinu. Stúdentafjelagið er nú fjölment og hefir eflt starfsemi síná mjög á þessu ári, farið fjölmenna hóp- ferð stúdenta til Þingvalla í sum- ar, haldið nmræðufundi og kvöld- vöku. Mun það ætlan stjórnar fje- lagsins, að þetta sjötugasta starfs- ár þess beri meiri vott áhuga og þróttar en ellimarka á fjelaginu. Þær aðstæður sýnast og vera fyrir hendi í íslensku þjóðlífi nú, að það sje vel farið, að menta- menn þjóðarinnar eigi vel vakandi fjelagsskap, þar sem rædd sjeu þau fjölþættu vandkvæði, sem að þjóðinni steðja. Stúdentafjelag Reykjavíkur hef ir jafnan látið sig miklu »kifta þau mál, sem íslensku þjóðina hafa mestu varðað, frelsismál hennar og þjóðernismál. Mun svo vera enn. Stjóm de Gaulle viðurkend London í gær. C ftir að bresk;i og rússneska *“* stjórnin höfðu viðurkeht stjórn þá, sem de Gaulle myn’daði nýlega, hafa stjórnir Belgíu, 'Pól- lands og Tjekkóslóvakíu lýst yfir því, að þær væru reiðubúnar til þess að semja við stjórn de Gaulle um öll mál, sem snertu samstarf Bandamanna og áframhald stríðs- ins. Alvarlegur árekstur ame- riskra hermanna og Islendinga i Hafnarfirði Til alvarlegra árekstra kom í gærkvöldi í Hafnarfirði milli amerískra hermanna og nokkurra fslendinga. Skutu hermennimir á fslendingana og hæfðu tvo menn, annan í kviðinn og hinn í fót. Nánari atvik þessa atburðar voru þau, að því er blaðið frjetti seint í gærkvöldi, áð kl. um það bil 10.45 komu nokkrir amerískir hermenn inn á veitingastofu í Hafnarfirði og voru nokkrir fs- lendingar þar fyrir. Kom til mis- klíðar milli þeirra, og hermann- anna og lyktaði henni ineð því, að farið var út úr stofunni út á götuna til þess að útkljá deiluna með barsmíðum. Lauk þeim svo, að hermennirnir urðu undír. En þá greip einn þeirra til skammbyssu siunar og skaut mörgum skotum úr henni, fyrst í götuna við fætur þeirra, sem þarna voru, en hæfði, síðan tvo menn, annan í kviðinn og f jell hann við, en hinn í ristina, eins og áður er getið. Var hinn fyrnefndi hinna særðu manna fluttur á sjúkrahús. Bresk herlögregla kom á stað- inn og tók árásarmennina hönd- um. Vinnuhæli S. I, B. S. G ,V“ jafir til Vinnuhælis S. S. (afh. Morgunbl.). kr. Flækingur (áheit) — D. — Stúdentar 82 — Einhver — Fríða Berg — Veggfóðrarinn h.f, — Verkamenn hjá H. Bene- diktsson & Co. — Kassagerð Reykjavíkur — Starfsfólk í Kassagerð Reykjavíkur — Vikurfjelagið — Starfsmenn Vikurfjel. — Á. B. — Starfsfólk Kaupfjelags Árnesinga — Safnað á Selfossi — Álieit frá Z. — Erna og Guðíaundur — í. B. 10.00 10.00 10.00 200.00 5.00 10f00 500.00 120.00 500.00 352.27 50.00 60.00 5.00 292.00 440.00 20.00 30.00 Húskapur. , í gær voru gefin saman í hjónaband af síra Friðrik Hallgrímssyni, ungfrú Hansína Hjartardóttir og Evjólfur Eyjólfs- son. Heimili þeirra verður á Lang- eyrarveg 14, Hafnarfirði. Sveitarstjórnarmál. Nýtt tímarit, sem nefnist „Sveitarstjórnarmál", hefir nýlega hafið göngu sína. Til- gangur ritsins er aðallega sá, að flytja greinar, skýrslur, frjettir og annan fróðleik, sem sjerstaklega varðar þá menn, er hafa með hönd Um stjórn sveitarstjórnarmála. —■ Ritið á að koma út ársfjórðungs- lega. Ritstjóri þess og útgefandi er Jónas Guðmundsson eftirlits- inaðun sveitarstjórnamála. I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.