Morgunblaðið - 20.11.1941, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 20. nov. 1941.
<-:-x~x~x~:~x-:~x~x~x~:~:~x~x~:~x~x~x~:~x~x~:~x~:~x~:-x~x-x~x~x
FYRIRLIGGJANDI
Gjafakassar
margar tegundir. Takmarkaðar birgðir. •
Heíldvarsliin Árna Júnssonar
Hafnarstræti 5, Sími 5805.
>i~i»**+*i**i**i*+i~i~******i*+***i~i*\~**»i**i*\*****i*****i**i~***i**i**i+**~*»*i»****i»*i**i“*»*i***+*i****+i**i+****i**i++t+**+K+*y*i**
M.s. „Faoranes11
M b „HeindH4 annast ferðirnar næstu daga.
Afgreiðslan.
Mig
vantar:
1 skrifstofumann
1 sendisvein
2 útvarpsvirkja (eða ,,amatöra“)
2 rafvirkja
2 unglinga
1 loftskeytamann
Lysthafendur tali við mig sem fyrst (ekki í síma).
OTTO B. ARNAR, Hai'narstræti 19.
jiiuiiiiiiiiiiiiiiuiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiMiiiMifiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiimiiiiiiiiiiiim
1 I
I 5 notuð bildekk, 1
I I
stærð 450x17, til sölu með tækifærisverði.
I Uppl. í sölubúð P. Stefánssonar, Hverfisgötu 103.
1 Sími 3450.
lönnimiuiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiuimuuiuuiuiuuiuimiiuuiuiuuiuuiiiiiiuiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiMiiiiiiinhi
Skrifstofumaður.
Ungur maður vanur bókhaldi og annari
algengri skrifstofuvinnu óskar eftir
framtíðaratvinnu.
Tilboð merkt „1941“ leggist inn á afgr.
Morgunblaðsins fyrir næstk. laugardag.
luiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiumiiiumuimiiuimiiuuimiimiiumuuiiimiuiiiiimiiiiiiimmmi
I Dnglegur
(Sendisveinn [
14 ára gamall, óskast strax.
Getur komist að síðar sem járnsmíðanemi.
Landssmiðjan. (
Ymniiiinniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiimiiiimiimiiiiiiiiuiiiimimiimiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiumiimiimiuuiiimiiumufiii
Úfför Þórðar
§igurðssonar
fer fram í dag
Sunnudagurinn 9. nóvember
var óvenjulegur dagur í
Ilafnarfirði, alvara, hrygð og óhug
ur hvíldi sem mara yfir bænum.
Leifturhratt hafði sá fregn breiðst
út, að kveldið áður hefði einn af
æskumönnum bæjarrins, Þórður
Sigurðsson, hlotið skotsár af völd-
um amerísks hermanns og lægi
nú hættulega sjúkur á St. Joseps-
spítala. Með kvíða, milli vonar og
ótta, fylgdist allur Hafnarfjörður
með líðan Þórðar 4og hvar sem
menn komu saman, var spurningin
þessi: Iivernig hefir Doddi það,
en svo var Þórður nefndur og
þá er harmfregnin barst út, þriðju
daginn 11. nóvember, um lát hans,
fylti sorg og hrvgð hugi manna.
Skal hjer í stuttu máli getíð
helstu æfiatriða hins látna. Æfi
hans varð stutt og saga hans ekki
margbrotin, því hann átti enn flest
ógert.
*
Þórður Sigurðsson var fæddur
"0. desember 1919 í Hafnarfirði.
Sonur hjónanna Sigurðar Jónsson-
ar fiskimatsmanns og konu hans,
Þórolínu Þórðardóttur. — Bar
snemma á þeim eiginleika hjá
Þórði, sem Amrð hans einkenni’
til hinstu stundar, en það var
hreysti og dugnaður, enda valdi
hann sjer það starf, er hraustum
dreng sæmir; hann gerðist sjó-
maður. Jafnhliða sjómensku lagði
hann gjörva hendi á margt. Var
hann til dæmis mörg sumur starfs-
maður við Síldarverksmiðjur rík-
■isins á Siglufírði og eignaðist þar
viui og kunningja.
★
Þórður var maður gáfaður og
hlaut mentun. Árið 1935 útskrif-
aðist hann úr Flensborgarskóla.
Iþróttamaður A-ar hann. Lagði
hann mikla rækt við knattspyrnu
og var ágætur knattspyrnumaður;
var því mörg ár í kappliði knatt-
spyrnufjelagsins „Haukar“. Tók
hann mjög Arirkan þátt í starfsemi
þess fjelags og var einn af bestu
meðlimum þess og um skeið í
stjórn ,,Hauka“.
Skaði ekki stærra bæjarfjelags
en Ilafnarfjarðar er stór, við að
missa einn af mannvænlegustu
sonum sínum. Hrygð og sorg bæj-
arbúa er mikil yfir láti Þórðar
Sigurðssonar. Þó er eftirsjáin mest
og sorgin dýpst hjá foreldrum og
öðrum skyldmennum; hjá þeim
geymist lengst og best minningin
um góðan dreng.
Hermann Guðmundsson.
★
Kveðja frá vinum.
(Lag: Eg horfi yfir hafið).
Við reynum harm að hylja
og hjarta djúpstæð tár,
en það er þungt að skilja
að þú sjert orðinn nár.
Þú gelcst frá okkur glaður
með góðleiks bros um kinn,
og hugur bar þig hraður,
þú, hraustur æsku maður,
en þá í síðsta sinn.
Og ef vjer að því gáum
jafnt yfir kaust og vor.
Vjer áfram ekki sjáum
vor yfir næstu spor.
Um örlaganna vegi
vjer eigum bágt með rök,
á landi jafnt sem legi
á lífsins hæðsta degi
er falin feigs manns vök.
Þjer Ijek svo ljett í liendi
að leika á bjartan streng.
Þig enginn annað kendi
en allra besta dreng.
Þú sást þig sífelt bundinn
við sókn á hafsins slóð,
í hættum heil var lundin
og hetjusterk var mundin
er svall þitt sjómannsblóð.
En kom þitt óvænt kallið,
var klökt hjá vinum mál
og feikna bjarg er fallið
á foreldranna sál.
Þó svelli sorga vefir
og sárin ýfi geir
og myrkt sje moldu yfir
er minningin sem lifir
og orðstýr aldrei deyr.
En lokað er ei leiðum,
það ljómar bak við ský.
Á morgun himni lieiðum
rís heilög sól á ný.
Þær instu vonir ölum
að eftir hinsta blund
vjer duft úr jarðar dölum
í drottins himna sölum
þá eigum endurfund.
J. B. P.
□i——jeii--1 BBa i—-iBr^ia
! KAUPIOG SELÍ
allskonar
| Verðbrjef og |
j fasteignfr. j
n Garðar Þorsteinsson. j
Símar 4400 og 3442.
□I-H=3h=3EH=]CII Hr=il—==113
Nýtt rit ura
þjóðrjettarstöðu
íslands
vo heitir ný bók eftir hinn
^ þekta þjóðarjettarfræðing
og Islandsviu dr. jur. Ragnar
Lundborg. Bók þessi kom upp-
haflega út á þýsku í ritasafninu
Internationalrechtliche Abhandl-
ungen, er prófessor Herbert Krans
ge.fur út, en Þjóðrækisf jel íslend-
inga í Vesturheimi gaf bókina út
á íslensku. Á leiðinni að vestans
fórst megnið af upplaginu, svo
aðeins 200 eintök komu á mark-
aðinn. Bókin er 95 stórar bls. a3
stærð og kostar kr. 10.00 Aðalút-
sala hennar er hjá Jóni Dúasyni,
Þingholststræti 28, Rvík, sími
3081.
Miðaldra mönnum og eldri' mun
minnisstætt, hvernig dr. Landborg
gekk fram fyrir fylkingar í sjálf-
stæðisbaráttunni og varði hinn
sögulega rjett íslands á erlendum
vettvangi. Síðan Danir viðurkendn
fullveldi íslands hefir dr. Land-
borg verið sískrifandi gegn þeiio
mönnum erlendis, er vefengja
landsrjettindi Islands. — Þetta er
síðasta bók dr. Landborgs og hin
einasta af bókum hans, er komið
hefir út á íslensku.
Fjölmenn templara-
heimsókn til Hatoar-
fjarðar
Oóðtemplarastúkurnar, Frón
nr. 227 í Reykjavík og Leið-
arstjarnan nr. 240 í Iveflavík,
heimsóttu stúkuna Daníelsher nr.
4 í Hafnarfirði á fund hennar síð-
astliðið þriðjudagskvöld. Var mik-
ið fjölmenni samankomið í Qóð-
templarahúsinu, alt að 200 manns
samtals, þar af 30 frá st. Frón og
23 frá st. Leiðarstjarnan. Enn-
fremur um 40 manns frá st. Morg-
unstjarnan nr. 11 í Hafnarfirði.
Við þetta tækifæri var frú Vig-
dís Thordarsen gerð að heiðurs-
fjelaga st. Daníelsher, en hún á
í þessum mánuði 40 ára templara-
afmæli. Hún gékk í st. Verðandí
nr. 9, 15. nóv. 1901, en hefir lengst
af verið í st. Daníelsher og starf-
að mjög mikið í þeirri stúku og
barna- og unglingastúkunum þar
á staðnum.
Að loknum fundinum hófst
kaffisamdrykkja og voru margar
snjallar og áhrifamiklar ræður
fluttar varðaudi Regluna og ann-
að. Móttökur Hafnfirðinga við slík
tækifæri eru jafnan hinar rausn-
arlegustu og myndarbragur á ölln
Tilgangurinn með slíkum heim-
sóknum er fyrst og fremst sá, að
auka viðkynningu templara inn-
byrðis og efla stúkurnar til þrótt-
meira starfs og sameiginlegra á-
taka. Ilefir jafnan orðið hinn
besti árangnr af slíkum heimsókn-
um.
Sögur perluveiðarans er kærkomin bók ðllum stálpuðum drengjum
timiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimttiiiitiiiiimiiiimiiiiimiiiiiiiiii