Morgunblaðið - 20.11.1941, Side 5

Morgunblaðið - 20.11.1941, Side 5
Fimtudagur 20. nóv. 1941. JlorgisittMaðid Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgTJarm.). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreibsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjaid: kr. 4,00 á mánutSi innanlands, kr. 4,50 utanlands. í lausasölu: 25 aura eintakib, 30 aura með Lesbók. Ábyrgðin HÚ N spáir ekki góðu um framtíð ríkisstjórnarinn- ar ræðan, sem forsætisráðherr- ann flutti á Alþingi á þriðju- dag, er hann tilkynti myndun stjórnarinnar. Af mörgu furðulegu í ræðu forsætisráðherrans voru einna furðulegust ummælin um dýr- tíðarmálin, sem urðu stjórninrii að falli. Ágreiningsatriðinu var skotið til þingsins og þar fekk það banahöggið. Þegar svo Hermann Jónas- son tekur að sjer myndun sam- . steypustjórnar á ný, gefur hann fyrir sína hönd og síns flokks svohljóðandi yfirlýsingu: „Það, sem jeg vil sjerstaklega taka fram í sambandi við myndun þessar- = ar stjórnar, er það, að með lausnar- ’ beiðni minni höfum vi8 ráSherrar Framsóknarflokksins lýst yfir því, í eitt skifti fyrir SII, að við tökum ekki ábyrgð á þeinri stefnu, sem meirihluú Alþingis heíír tekið í dýrtíðarmálun- ura ... Hvernig ætlar forsætisráð- herrann að verja það fyrir þjóð- inni, að taka að sjer stjórnar- myndun og gefa um leið slíka yfirlýsingu í málí, ’sem hann sjálfur hefir margsinþis sagt, að væri stærsta viðfangsefni þirigs og stjórnar? Og hvernig er hægt að vænta farsællar lausnar á þessu máli, þegar sá maðurinn, sem falin er forysta í framkvæmdunum kastar því þannig frá sjer? Það út af fyrir sig er barna- legt hjal, að ætla að telja þjóð- inni trú um, að eina bjargráðið í dýrtíðarmálunum sje, að það I dýrtíðarmálunum sje, að það sje sett í lög, að greitt skuli hvarvetna á næsta ári sama kaup og var á þessu ári. Þjóðin veit, að slík lög yrðu dauður ’ bókstafur. Eftirspurnin eftir vinnuaflinu er nú svo mikil hjer í Reykjavík og grend, að af- leiðing slíkra laga yrði hrun : sveitanna. Viðskiftamálaráðherrann ját- aði og í ræðu, er hann flutti í þinginu á dögunum, að frum- varp hans kæmi alls ekki að neinu haldi, ef eklci tækjust samningar við setuliðið um af- iiot íslensks vinnuafls. En það hefir ekki einu sinni verið gerð tilraun til að ná slíkum samn- ingum, hvorki við setuliðið nje verklýðsfjelögin eða fagfjelög iðnaðarmanna. Og þó er þetta írumskilyrði þess, að unt sje yf- irleitt að gera nokkrar vitur- legar ráðstafanir í dýrtíðarmál- unum. Sá forsætisráðherra sem ekk- • ert hefir hirt um þessa hlið rnálsins getur vissulega ekki kastað frá sjer allri ábyrgð í dýrtíðarmálunum, um leið og 'ihann sest I sætið á ný. 5 Hrafnarnir gera mikið tjón í lambfje og varplöndum Margar forynjur granda nú sauðfje voru, ogr er hrafninn einn bölverkur þess. Hrafninn gerir atlögn að hverri sauðkind, sem kemst í klípu, hvort sem hún lendir í dýi eða verður afvelta, og rífur hana á hol, oft lifandi, og er aðkoma fjárhii-ða á þann vettvang oft hryllileg. Dæmi em til, að hrafn slítur augun úr lömbum, sem eru í burðarlið mæðra sinna og slíkt hið sama augun úr móður lambsins. Samkvæmt 60 ára reynslu minni lætur nærri, að ein sauðkind af hverju hundraði verði hröfnum að bráð, þ. e. a. s. 1000 af Imndrað þúsundum sauðfjár. 5000 koma þá á hálfa miljón sauðkinda og* svo framvegis. Þó að hver kind sje metin aðeins 20 kr., sem hrafninn eyðileggur, nemur skaði allra iandsmanna hundruðum þúsunda, sá sem þessi vargur er valdur að í sauðfjárhögum. Nú eru hrafnar teknir til að róta upp í jarðeplagörðum og ern þar mikilvirkir. Þessháttar kvart- anir berast úr öllum áttum og fær ist sá usli í aukana ár frá ári. Þá er hrafninn vargur I vjeum varpanna. Því fer fjarri að æðar- kollur fái varið hreiður sín fyrir hrafninum og verður sá óleikur því misjafnari, sem fleiri vargar sækja að einni varnarlausri eggja- móður. Varp.eigendur standa höll- um fæti andspænis þessum flug- vargi, sem Bólu-Hjálmar-gefur þá einkunn í Hjaðningarímum, að þeir sje Ileljar sinnar, járn-nefj- aðir. Svo örðugt sem varpeigendum er að duga æðarkollum andvart hrafnagangi, er þó langt um tor- veldara að liðsinna mófuglum og villiöndum. Hrafnar eiga hreiður sín í öllum hömrum hverrar sveit- ar og er næsta torvelt að ná til hreiðranna, þó að gangskör væri gerð að þeim. Þessi vitri og' skygni vargur er svo aðsópsmikill í eggjaleit, að furðu gegnir. Hann fer til dæmis inn í hraunskúta, djúpa og þrönga, til eggjaráns. Hann finnur anda- egg og rjúpna í . skógarkjarri. Fundvísi hans sætir furðu. Það er víst, að hver hrafnsfjöl- skylda gleypir í sig á sólarhring egg úr 5 hreiðrum, Hrafnahjón verða að mata unga sína í 40—-50 sólarhringa, mestmegnis á eggjum, og verða þá 250 hreiður — egg úr þeim — hverri fjölskyldu að bráð. Yfir minni sveit vofa 5 hrafna- fjölskyldur hvert vor. Og svipað- ur hrafnagangur mun vera annars staðar á landinu. Má af þessu marka, hver voði fuglalífi lands- ins stafar af þessum vargi. Eggjamæðurnar geta helst dul- ist fyrir þessum fjendum þega** líður á vorið og gras og lauf dvl- ur hreiðrin. En ungar. sem eru síðbornir, verða vanbúnir gegn haustveðrmn og falla þá fyrir of- urborð áður eu þeir geta forðað sjer til hlýrri stöðva en hjerlend- is eru. T. d. finnast ándir oft dauð- ar — sennilega ungar — eftir Eftir Guðmund Friðjónsson haustáfelli (hríðar). Þá eru ung- arnir ekki harðnaðir svo að þeir geti spjarað sig. Jeg reyni ekki að meta til fjár- skaða þann usla, sem hrafnar gera árlega í fuglalífi -landsins. Hitt er og mikilsvirði, sem er í veði: sú fegurð, sem fuglalífinu er nátengd — fjaðraskraut og söngsnilli. Þjóð in má eigi láta sjer í ljettu rúrni liggja þá dásemd eða hætta henni með andvaraleysi. Tvö ár eru nú liðin síðan borið var fram á Alþingi frumvarp um eyðing svartbaks og hrafns. Sá þáttur frumvarpsins, sem fjallaði um veiðibjölluna, var gerður — á hrakningi milli þingdeilda — að viðundri. En hinn þátturinn, um eyðingu hrafna, var feldur niður og hrafninn blótaður á laun. I nefndaráliti var þeirri lijegiljn röksemd haldið á lofti, að hrafn- inn anðgaði fuglalíf landsins! Meiri hluti nefndarinnar sagði sem sje, að löggjöfin mætti ekki stuðla að því, að fnglalífíð gerðist fá- breyttara en það er nú. Þá má kalla furðulega -niðurstöðu. Ef tií vill hefir vakað fyrir þessum mönn um sú hætta, að hröfnum kynni að verða útrýmt, ef fje væri lagt þeim til höfuðs. En ekki er hætt við því. Krummi er styggur og ákaflega var um sig. Honum mundi fækka að mun, ef fje væri lagt til höfuðs honum, en því þarf eltki að kvíða að honum yrði út- j rýmt. Þessum sendiboðum myrkra veldisins hefir stórum fjölgað, síð- að nýræktin í fiskiþorpunum færð- ist í aukana. Nýræktin er svo að segja þakin með fiskúrgangi hvert j haust. Og á þeim matföngiun lifa hrafnarnir góðu lífi. Engin harð- j indi sverfa að hröfnunum og öli hin mikla hjörð lifir. Barnasjúk- dómar heimsækja alls ekki hrafna- hreiður. Æður, andir og kríur missa-miga sína unnvörpum hvert. vor og sumar. En þegar lirafna- lijón koma me4 unga sína niður í bygð úr hamravígi sínu, er hægt að ganga úr skugga um það, að þar hafa engin vanhöld orðið. Ef lagt væri f je til höfuðs hröfn- um með allsherjai1 skipulagning, mundu kaupstaðabúar skjóta þá við fiskætið á nýræktinni, þar sem Jieir safnats saman og halda sig. Það væri nokkur bót í máli að koma til leiðar fækkun Jmssara ill- fygla með skotum og með því að eyðileggja hreiðrin, þar sem því yrði komið til leiðar. Sú hjátrúarheimska ríkir víða í landi voru, að ógæfa falli þeim mönnum í skaut, sem granda hröfn um eða eggjum þeirra. Löggjöfin getur ekki upprætt hjegiíjur. En hún getur heimilað liispurslausri skynsemi að taka nndan vörgum í landi manna, sem halda hlífiskild: hjátrúar yfir þessum skelmi, sem eyrir hvorki sauðfje nje fuglum. Jeg skora nú á alþingismenn vora, þá sem gæddir eru heíl- brigðri skynsemi, að hefja herfefð til höfuðs hrafninum með því að skipa ábúendum jarða að granda hrafnseggjum og svo með því að borgað sje, méira en skoti nem- ur, fyrir að vega hrafn, t. d. krónu Ríkissjóðian munar lítið um 10 þúsundir króna t. d. En ef 10 þús undir hrafna fjellu í valinn árlega, mundi sjá mun á mergð þessara spellvirkja áður en langt um liði. ★ Margir mætir menn stefna nii að því og starfa, að gera hlíðar og mela að skóglendi. Sú viðleitni ætti að geta orðið ]>ess valdandi, að fugl yrði á hverjum kvisti, fuglasöngur í * hver'jum lundi, fylgsni handa eggjamóðnr undir hverri laufkrónu, þegar fram líða stundir. En því aðeins getur það orðið, að ránfuglunum sje haldið í skefjum, sem eru vargar í vje- um fuglauna. Þeim verður ekki fækkað með öðru móti en því, að beitt sje gegn þeim skipulag&i herferð, sem studd sje með afli þeirra hluta, sem duga. Það kann að þykja undarlegt, að vargar hafi með sjer nokkurs- konar skipulag. En Jió er þetta dagsanna. Aldrei eru nema eint hjón í hverju gili eða bjargi, hrafna nje hanka, og því síður arna. Með því móti verður lífvæn- legra fyrir fjölskylduna, þegar hún er ein um föngin á því Qg því svæði. Og þegar vargur er í liverju gili og hverju bergi lands- ins, öðlast eggjamæðurnar varnar- lausu engin afdrep. Hver þúfa, sjerhver skorningur eru og verða í „hers hönduirí* og „í vargakjöft- um“. — Þessi deiling veiðisvæða er ekki íslensk fyrst og fremst. Hún er einnig indversk. R. Kipling, fuaka skáldið, getur Jiess í frásögum sín- um frá Indlandi, að villidýrin þar í frumskógunum skifti inyrkviðin- um milli sín, í þeim tilgangi, aS þau beri bráð úr býtum sjer tíl nauðþurftar. Kipling vekur at- hygli á því — ef jeg man rjett — að engin villidýr drepi sjer til gamans, heldur til viðurhalds lífs síns. Maðurinn er eina dýrið á jörðunni, sem drepur sjer tíl dægrastyttingar menn og málleyB- higja. Maðurinn er grimmasta dýr jarðar. Ekki þó allir menn. Þeir mannúðardrengir, sem hafa æðra og hærra markmið en það aJS stuðla að drápgirni, verða, að koma til sögunnar og stjaka við þeim vörgum, sem ógna og bana sak- leysingjum, fleygum eða ferfætt- um. Hjer í landi er ekki í annað hús að venda en alþingislnisið þessa máli til framdráttar. Ef þaS bregst, að þar verði þessu máli sint, má segja með sanni: Svo bregðast krosstrje sem ön»- ur trje. Sjötug: Frú Elísabet Hafliðadóttir 1 dag er frú Elísabet Hafliða- ■ dóttir, Nönnugötu 8 hjer í bæ, 70 ára. Hún er fædd í Hörgs- hlíð í Mjóafirði vestra 20. nóv. 1871. Foreldrar hennar voru Haf- iiði Rósinkranzson og Jónína Jóns dóttir, bæði komin af merkum bændaættmn í Mið-Djúpinu. Iíún ólst upp hjá foreldrum sínum til 10 ára aldurs en þá dó móðir hennar og fluttist- Elísabet þá til sjera Sigurðar Stefánssonar alþm. í Vigur aldurs. Arrð Jón J. dvaldist þar til 17 ára 1896 gekk liún að eiga Hafliðason. Bjuggu þau fyrst tvö ár á Gilsbrekku í Súg- andafirði en fluttust síðan til Bol- ungarvíkur. Þau Jón og Elísabet áttii alls 8 börn og lifa nú 7 þeirra og eru þau þessi: Hafliði', starfsmaður hjá Olíuverslun Is- freyja í Þykkvabæ og Snorri, framkvæmdastjóri hjer. Elísabet misti mann sinn frá forstöðu heimilisins 1911 og var5 það þá hennar hlutskifti að koma upp öllum barnahópnum, sem henni tókst, þrátt fyrir alla örð- ugleika fátæktar og einstæðings- skapar, vel og myndarlega. Eru börnin bæði dugleg og vel mönn- uð, þótt ekki hafi þau notið mik- illar skólagöngu. Auk þessa mik- ilvæga hlutverks, sem Elísabet hafði á heimili sínu, fylgdist hún jafnan vel .með almennum málum og hafði ríkan áhuga, sjerstaklega lands hjer í bæ, Iugólfur, búsettur á öllu því, sem verða mátti til í Ilnífsdal, Jörgen, Hjörleifur og umbóta í sveitarfjelaginu. Þegar Eyjólfur, sjómenn lijer, hinn síð- kvenfjelag Bolungarvíkur, „Bi'aut, asttaldi var annar þeirra manna, in“, var stofnuð, 1914, gerðist hún er bjargaðist þegar togarinn strax fjelagi þess og starfaði alla Reykjaborg fórst, Jónma, hús-1 FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.