Morgunblaðið - 20.11.1941, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 20. nóv. 1941.
Weygand
svífttír
störftim?
FRJEGNIR, sem bárust til Was-
hington í gær hermdu, að Pe-
tain og Darlan hefðu stigið nýtt
spor til aukinnar samvinnu við
Þjóðverja með því að kalla Wey-
gand hershöfðingja til Vichy, og
svifta hann störfum sem yfir-
mann franska hersins í Algier og
umboðsmann Vichy-stjórnarinnar í
nýlendum Frakka í Norður-Afríku
i Stjórnarerindrekar í Washing-
t'on staðfestn í gærkyöldi (segir
í;Reutersfregn) að fregn þessi sje
rjett, og að ákyörðunin mn að
syifta Weygahd stðrfum hafi ýer-
ið tekin á fundi Viehy-stjórnar-
innar í fyrradag.
Utaiiríkismalaráðuneytið í Was-
bington skýrði þó frá því í gær,
að það,- kefði énga staðfest.ingu
fengið á þessu frá sendiherra sín-
um í Viehy, Leahy aðmírál, en
sagt var að Leahy myndi ræða við
Petain í gærkvöldi.
^En fregnin er þó tekin svo al-
varlega í Washington, að því var
lýst yfir þar í gær, að enga á-
kvörðun væri hægt að taka nm
béiðni Frakka um að fá matyæli
frjá Bandaríkjunuin, fyr en áreið-
anlegar npplýsingar hefðu borist
Uin hvað íueft-væri í þessari Wey-
gánd-frjett, ■ .
Þýska frjettastofan skýrði frá
því í nótt samkvæmt fregn frá
Vjehy (segir Réuter), að Weygand
hefði enn verið í Vichy í gær, þótt
gert hefði Verið ráð fyrir að hann
lejgði af stað þaðan til Norður-
Afríku í gærrnorgun. Ýms samtöl
áttu sjer , stað í gær milli helstti
méðlima Viehystjórnarinnar, segir
í ífregninni.
-í þondon er Jitið svo á, að á-
kvörðuniu um að svifta Weygand
störfum hafi verið tekin að und-
angengnum hörðum átökum á hak
við tjöldiu um það, hver verða
skyldi eftirmaður Huntzigers hers-
höfðingja, sem liermálaráðherra.
(Huntziger fórst nýlega í. flug-
slysi.)
Er látið í veðri vaka, að Þjóð-
ýerjar hafi haft horn í síðu Wey
gands, þótt hann ekki nógú auð-
sveipnr gagnvart fyrirætlunum
þeirra í Norður- og Vestur-Afríkn
Honum hafi þessvegna verið fórn-
að til þess að þóknast Þjóðverj -
um og sýna vilja Frakka nm
aukna þýsk-franska samvinnu.
Nssta spor
Breta gagnvart
Flnnum
Banúaríkin telja svar
fFinna úfullnægiandi
Spurningar voru bornar fram
í breska þinginu í gær, um
afstöðu Breta til Finna, Rúm-
ena og Búlgara, og um það,
hvenær sovjetstjórnin hefði far-
ið þess á leit við bresku stjórn-
ina, að hún segði Finnum stríð
á hendur.
Eden svaraði og sagði, að
hann gæti ekki á þessu stigi
svarað þessum spurningum, en
lofaði að gera nánar grein fyr-
ir afstöðu Breta síðar.
Frjettaritari Reuters í Wash-
inton pímaði í gæ’-kvöldi að svar
Finna við orðsendingu Banda-
ríkjanna væri „samkvæmt heim-
ild kunnra erlendra blaða-
manna“, álitið mjög ófullnægj-
andi vestra.
Sú skoðun er látin í Ijós í
Washington, að svar Finna hafi
verið skrifað aðeins í þeim til-
gangi, að fá það staðfest, og að
Finnar ætli að halda áfram
hernaðaraðgerðum með það
fyrir augum, að rúfa Murmansk
brautina.
Mjer er kunnugt um (segir
Reuters frjettaritarinn), að
Bandaríkin hafa vakandi auga
á Finnlandi, vegna nauðsynar-
innar, sem á því er að nota
Murmanskbrautina til flutninga
á hergögnum til Rússa, og
mönnum er nokkur forvitni á að
vita, hvað Bretar géra næst.
Sú tilgáta hefir komið fram
hjer, að Bretar ætli að skipa
Finnum í hliðstæðan flokk og
Frakkar eru í og miða aðgerðir
sínar við það, að Norður-Finn-
land sje hernumið af Þjóðverj-
um, og þessvegna sje heimilt að
fara þar með hernaði: •
Stokkhólms frjettaritari Thp
Times skýrir frá því, að Þjóð-
verjar treysti á það, að þeim
verði betur ágengt í Norður-
Finnlandi í vetur, þegar þeir
fara að geta notað skíðasveitir
meir en hingað til. Þeir halda
því fram að skíðasveitir þeirra
sjeu betri heldur en skíðasveitir
Rússa, og sjeu jafnvel jafnok-
ar skíSasveitum allra annara
þjóða, nema e. t. v. Finna og
‘ Norðmanna.
£
Finskir sjerfræðingar líta svo
á, að yfirhershöfðingi þýsku
herjanna í Norður-Finnlandi.
Dietl (kunnur frá Narvik), geti
e. t. v. gert sjer von um árang-
ur, ef hann fær liðsauka raun-
verulega vel þjálfaðra og hug-
djarfra skíðamanna.
Það er íslensk kona, sem
hefir samið bókina um
Kína. Hafið bjer sjeð bók-
ina?
Sókn Breta Bardagarnir
í Norður-Atríku i Rússlandi
PRAMH. AP ANNARI BÍÐU.
um, og bifreiðalestir, stundum allt að 50 km. langar, á vestur-
leið“. Frjettaritarinn segist hafa dvalið tvo mánuði með bresku
herjunum í eyðimörkinni, á meðan verið var að undirbúa árás-
ina. „Þessi sókn hefir verið jafn vel undirbúin og þýska ríkið
hefir undirbúið nokkurn sigur sinn“.
PRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
þýska herdeild, tortímt þúsund
þýskum hermönnum, 113 skrið-
drekum og 27:» bifreiðum, auk
margra fallbyssna.
Þýska hérdeildin var undir
stjórn von Kleist,
Bresku herirnir eru undir
stjórn þessara manna: Hernum
stjórnar Sir Allan Cunningham
hershöfðingi, sem stjórnaði
bresku herjunum, sem rjeðust
norður Somaliland alla leið til
Addis-Ababa í Abyssiníu í vor.
Flotanum stjórnar Sir Andrew
Cunningham, bróðir Allans. —.
Flughernum stjórnar Andrew
Conyngham, sem nýlega var
falin yfirstjórn breska flughers-
ins í hinum nálægari austur-
■löndum.
r frjettaskeyti frá Jacob,
'írjettaritara Reuters, sem er í
för með her Breta í Libyu, segir
að Bretar og Þjóðverjar
heyi nú orústur á vígvöllum
vestur-sandauðnaðarinnar, sem
frægir urðu í sókn Wavells í
fyrra.
NÝJAR VÍGSTÖÐVAR
„Kalli hinna rússnesku banda
manna okkar, hefir verið hlýtt
og nýjar vígstöðvar opnaðar
gegn öxulsríkjunum". „Enda
þótt þýsku hersveitirnar í Af-
ríku sjer þar aðeins til að örva
kjark ítala, því að ítalir eru
miklu fjölmennari í Libyu held-
ur en Þjóðverjar, þá skiftir
mestu máli um bardagana, sem
nú eru háðir, 1) að þetta er í
fyrsta skifti sem Bretar og Þjóð
ver.jar reyna afl með sjer frá
því í Grikklandi og á Krít og
2) að það eru hermenn frá Bret
landseyjum, sem taka mestan
þátt í þessum hernaðaraðgerð-
um, því að hlutfallslega minna
er af samveldislandahermönn-
um heldur en í fyrri herferð-
inni.
Bresku samveldislandaher-
irnir leitast við leggja heldur
til orustu við Þjóðverja, held-
ur en ítali, og gera það með
þeirri sannfæringu, að einn
þýskur hermaður eyðilagður,
samsvarar tylft hertekinna ít-
aía. Kjörorðið er: „Sigrum hún-
ana, og þá munu ítalir taka til
fótanna“.
„Óhætt er að segja, að ef
okkur tekst að tvístra Þjóðverj-
um, þá munu ítalir, sem treysta
á h.jálp þeirra, tæplega veita
herjum okkar viðnám len?i“.
ORÐSENDING
CHURCHILLS
í fregn frá London í gær-
kvöldi var skýrt frá því, að
orðsending frá Mr. Churchill
hefði verið lesin upp fyrir
hermönnum allra herjanna,
landhers, sjóhers og flughers,
áður en sóknin hófst.
I London hefir þessi sóbn ekki
komið á óvart, að því er segir í
fregn þaðan. Hefir verið búist við
henni um márgra vikna skeið, þar
sem angljóst þótti, áð hinar miklu
loftárásir, sem gerðar hafa verið á
hafnir Itala í Libyu og einnig í
Italíu undanfarið, höfðu verið
gerðar í ákveðnum tilgangi. Einnig
hinar miklu árásir á skipaflota
ítala, sem voru að reyna að flytja
vistir til þýsk-ítölsku herjanna í
Libyu.
Það var einnig vitað, að bresku
herirnir í Egyptalandi höfðu und-
anfarið fengið mikinn liðsauka, og
mikið af nýjum hergögnum, þ. á.
m. flugvjelar af allra nýjustu
gerð.
Fyrstu fregnirnar, sem bárust
til London í gær og sem gátu bent
til þess að eitthvað óvenjulegt
væri á seiði í f Norður-Afríku,
hermdu að breskar flugvjelar
hefðu í leiðangri yfir Cyrenaica í.
fyrradag eyðilagt 18 flugyjelar ó-
vinanna, en aðeins ein bresk flug-
'Vjeí kom ekki aftur til hækistöðva
sinna.
Áhrif bafnbannsins
i Þýskalandi
C ulltrúi breska viðskiftastríðs-
*• málaráðuneytisins sagði í
gær, að ýmislegt benti t-il þess að
„hafnbannið væri farið að þrengja
að Þjóðverjum, éftir tveggja ára
viðskiftastríð". Var á það bent, að
þýskir hermenn á austurvígstöðv-
Unum væru farnir að klæðast loð-
skiiínkápum kvenna, svo að skort-
Ur virtist vera orðinn á ull. Þess
þekkjast jafnvel dæmi, að þýskir
sjómenn hafa klæðst brókum úr
gerfisilki, pappír eða loðskinnum.
Kjöt- og feitmetisskaintur þýska
hersins var nýlega minkaður, en
höfuðsönnun þess, að hafnbannið
er farið að hafa áhrif, er talin, að
fataskömtnnin þýska var minkuð
fvrir nokkrum nlánUðum ilm 40%.
Þýska herstjórnar-
tiIkynnin{Ejin
Þýska herstjórnin tilkynnir:
ýjar árangursríkar árásir
standa vfir á austurvíg-
stöðvnnum. Bardagarnir síðustu
þrjá dagana hafa borið þann á-
rangur, að yfir 10 þús. fangar
hafa verið teknir og 171 skrið-
dreki eyðilagður.
Loftárásir sem gerðar voru á
Sehastopol-virkið höfðu í föi-
með sjer ákafar sprengingar í
skipasmíðastöðvum og t/undur-
skemmum. Stórt vöruflutningaskip
var laskað með sprengju í höfn-
iniii.
í gærkvöldi gerðu þýskar
sprengjuflugvjelar loftárás á her-
stöðvar í Moskva og Leningrad og
einnig á samgönguleiðir , að haki
vígsföðvum óvinanna á miðhluta
víglínunnar.
Á tímahjlinu frá ,9. nóv, til 15.
nóv. nam tjón rússneska flughers-
ins 242 ÍTugvjelum; þar af voru
122 skotnar niður í loftbardög-
um og loftvarnabyssur skutu nið-
ur 44, aðrar vorit eyðilagðar á
jörðunni. Á sama tímabili misti
þýski flugherinn 24 flugvjelar á
austurvígstöðvunum.
VONGÓÐIR UM HORF-
URNAR í RÚSSLANDI.
WASHINGTON í gær —: Það
verður sjeð hve vongóð Bandá-
ríkjastjórn er um liorfurnar í
Rússlandi á því, að vjelaverkfæri
að verðmæti 15 milj. dollarar, hafa
verið send af stað þangað, þrátt
fyrir að stjórnin hafi áður verið
treg til þess að afgreiða þau, a£
ótta við það, að Þjóðverjar kæm-
ust yfir þáu.
(Reuter.) •
t
Framtlðaratvinna
I
t
f
?
|
♦X* »!♦ •!♦ ♦!♦ ♦
Vantar nú þegar
3 duglega rafvirkja.
Johan Bönning^h.l.
f
t
t
Vantar í Skíðaskálann í Hveradölum
matsvein og 3 stúlkur
Upplýsingar gefur
Steðnþór Krisf|ánsson
Skíðaskálanum.