Morgunblaðið - 20.11.1941, Side 7

Morgunblaðið - 20.11.1941, Side 7
Fimtudagur 20. nóv. 1941 MORGUNBLAÐIÐ 7 Sextug er í dag trú Guörún Guðjðnsdóttir Njarðargötu 5 Sextíu eru enduð ár, æfi lengist stigur. / iÞolað iiefir þyrnasár, ■ 'þoranraun og sigur. Gafst þjer bæði gleði og sorg, geislaflóð og myrkur. \ Sjálf hefirðu bygt þjer borg, bilaði ei þinn styrkur. fíeim er hafði sorg þig sótt, "sýndust þrengjást leiðir. — Þá með orku og eljanþrótt alein'stríðið heiðir. Ógnasorgar ólög tryld eins og lietja, barstu. — Börnum þínum, mær og mild, inóðir besta varstu. Eigðu friðsælt æfikveld, æskuhrausta lundu, .gerðarausn og andans eld alt að hinstu stundu. Kæra vinkön’a! Við vinir þínir sendum þjer okkar bestu afmælis- óskir og þökkum þjer vináttu og trygð fyr og síðar og óskum af -alhug að þú megir lengi lifa og njóta umönuunar barna þinna og vina. Vinkona. Ellsabet Hafliðadóttir FRAMH. AF FIMTU SÍÐU. tíð með miklum áhuga og dugnaði að verkefnum f jelagsins. Þegar hún, haustið 1929, flutti til Reykja víkur, hjeldu samstarfskonur henu ar henni samsæti og gáfu henm minningargjof, en heiðursfjelagi hafði hún áður verið kjörin. Blísabet er kona ramíslensk í ahda, glaðlynd og hispurslaus 'í framkomu. Þótt lífskjör hennar hafi oft verið erfið, er kjarkurinn enn óbilaður. Er það trú þeírra, •er hana þekkja vel, að hún muni enn bæta. við dagsverkið, því það er ekki að hennar skapi að setjast x helgan stein meðan orka leyfir. Vinir og kunningjar Elísabetar fjær og nær þakka henni vel unn- in störf og senda henni hlýjar -árnaðaróskir á sjötugsafmælinu. Kunnugur. AUG AÐ hvílist T V I I h með gleraugum frá I I L I f í BIÐSAL DAUÐANS er bókin, sem allir lesa. ,A flótta* gýnt í 10. sinn í kvðld Aðsóknin að leikritinu ,,Á flótta“, sem Leikfjelagið sýnir um þessar mundir mun skera úr því, hvort til nokkurs er að bjóða Reykvíkingum upp á góð leikrit og leiklist, eða hvort meiri hluti leikhússgesta kýs aðeins að sjá það, sem kitl- ar fram hlátur, án tillits til efu- is og leiks. Sá, er þetta ritar er ekki neinn sjerfræðingur í fögrum listum, heldur aðeins eins og fólk er flest. En jeg verð að segja, eftir að hafa sjeð þetta leikrit, þá finst mjer hafa verið allt of hljótt um það á opinber- um vettvangi. En jeg og fleiri leikhússgestir hafa tekið eftir því, að ef leik- urum tekst miður upp í eitt skifti, eða val á leikriti fær ekki náð fyrir augum þeirra er dæma, stendur ekki á skömm- unum. Stundum óbótaskömm- um. En því má ekki geta þess rækilega, sem vel er gert? All- ir bæjarbúar eiga að vita, að nú er á ferðinni athyglisvert leik- rit, sem er vel leikið af öllum, sem taka þátt í leiknum. Því fje og þeim tímá, sem eytt er í að sjá „Á flótta“, er vel varið og leikhússgestir fara heim úr Iðnó eftir að hafa sjeð þenna leik ánægðir, Leikritið verður sýr.r.í 10. sinn í kvöld. í. Hæstfrjettur FRAMH. AF ÞRIBJU SÍBV bera að taka til greina, og teljast þajr hæfilega ákveðnar kr. 700,00. Eftir þessum málalokum þykir rjett að stefndi Grímur Gíslason greiði á- frýjanda samtals kr. 600,00 í máls- kostnað fyrir báðum dómum. Um flutnings málsins í hjeraði þyk- ir það aðfinnsluvert, að í rjettar- haldi 11. apríl 1940, eru fyrst vitni leidd og því næst ákveðinn ski'iflegur ínálflut.ningur, áður er greinargerð er komin fram af hálfu stefndu. Þá er þess ekki gætt að veita aðiljum sam- eiginlegan frest til gagnasöfnunar áð- ur málflutningúr hefjist, og þar með brotin 110. gr. laga nr. 85 frá 1936. Málið var í mörgum atriðum illa upp- lýst, og hefði verið ástæða fyrir dóm- arann að beita ákvæða 114. og 115. sbr. 120. gr. nefndra laga. Verður að átelja dómarann svo og málflytjendur í hjeraði, þá Friðþjóf G. Johnsen cand. ;ur. og Björn P. Kalman hrm., fyrir t þessa málsmeðferð“. J Gunnar Þorsteinsson hrm. flutti málið fyrir Ingibjörgu og E. Claessen hrm. fyrir Grím. í BIÐSAL DAUÐANS er bókin, sem allir lesa. Telpupeysur nýkomnar. Mikilvirk bókaútgáfa Menningarsjóös T) ókaútgáfa Menningarsjóðs og Þjóðvinafjelagsins sendir þessa dagana frá sjer þrjár nýj- ar bækur til viðbótar við þær tvær, sem áðnr voru komnar út á þessu ári. Þessar síðustu bækur eru þess- ar: Uppreisnin í eyðimörkinni eft.- ir Thomas Edward Lawrance, síð- ari hluti, Almanakið og Andvari. Andvari hefst á grein um Jón heítinn Olafsson' fyrrum banka- stjóra, eftir Þorstein Þorsteinsson sýslumann. Þá ritar Bjarni Bene- diktsson um ályktanir Alþingis vorið 1941 um stjórnarskipun og sjálfstæði Islands, Jónas Jónsson um hrun Frakklands 1940, Guð- mundur Finnbogason um tóm- stundir, Björn Guðfinnsson um málbótastarf Baldvins Einarsson- ar og Steinþór Sigurðsson ura náttúrurannsóknir. í Almanakinu eru og ýmsar* fróðlegar greinar. Auk þessara fimm bóka. sem þegar eru komuar út, er von 4 tveim öðrum bókum, ágripi af sögu síðustu áratuga eftir Skúla Þórðarson og Anna Karenina eftir Leo Tolstoy, fyrsta bindi. Er sú bók þýdd af Magnúsi Ásgeirssyni. Dagbóh !«•••••••••• •••••••••••• I.O.O.F.5= 12311208V2 = * Næturlæknir er í nótt, Pjetur Jakobsson, Vífilsgötu þ. Sími 2735A Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Lyfjabúðinni Iðunni. Hjónaband. S.l. laugardag voru gefin saman í hjónaband uirgfrú Gíslína Gísladóttir og Jón Bjarna- son. Heimili þeirra er á Hellis- götu 5, Hafnarfirði. Leikfjelag Reykjavíkur sýnir Á flótta í kvöld og hefst sala að- göngumiða kl. ‘2 í dag. Til Hallgrímskirkju í Reykjavík Afh. af sr. Bjarna Jónssyni áheit I 10 kr. frá gamalli konu. Afhent af j sr. Sigurbirni Einarssyni, áheit, 100 kr. frá J. K. Afh. af sr. Jakab Jónssyni, áheit, 50 kr. frá E. Þ. Gjöf 50 kr. frá frú H. G. Áheit. fr áónefndum 50 kr. Frá X 10 kr. Gjöf frá Jónínu 50 kr. Áheit S. B. 10 kr. Gjöf frá konu í Vestmanna- eyjum 25 kr. Frá A. G. 10 kr. Afli. a£ St.efáni Sandholt, áheit frá N. N. 50 kr. N. N. 2,50. Bestu þakkir. G'. J. IJtvarpið í dag: 15.30—16.00 Miðdegisútvarp. 20.30 Minnisverð tíðindi (Jón Magnússon fil, lcand.). 20.50 Orgelleikur úr Dómkirkj- . unni (Eggert, Gilfer): Hugsmíö um lagið „Fögur er foldin“, eft- ir Lindemann. 21.05 Kvæðalestur. a) frú Filippía Kristjánsdóttir Húgrún) : „Mánaskin“. b) 21.15 Steindór Sigurðsson: „Við lifum eitt sumar“. 21.25 TJtvarpshljómsveitin.- a) Vor kliður og vals í G-dúr, eftir Sinding. b) Haustrósir eftir Bertu Önnerberg. e) Hinsta sigl ingiii, eft.ii’ Alnæs. d) Korn- modsglausen, eftir 'Lange-Möller 21.50 Frjettir. 1. Háskólahljómleikar Árna Kristjánssonar og Björns Ólafssonar ver$a á morgun, föstuclag, kl. 9 í Hátíðasal Háskólans. Aðgöngumiðar seldir í Bókaverslun Sigfúsar Ey- mundssonar og Hljóðfærahúsinu. Aðalfuodur Skipstjóra- og Stýrisaonatjelagsins Kári í Hafnarfirði verður haldinn fimtudaginn 4. desember 1941, kl. 814 síðd. á skrifstofp Sjómannafjelags Hafnar- fjarðar í Verkamannaskýlinu. Venjuleg aðalfundarstörf Lögð fram breytingartillaga við 5. gr. fjelagslaganna. Stjórnin. SIGLINGAR milli Bretlands og Islands halda áfram, eins og að undanförnu. Höfum 3—4 skip í förum. Tilkynningar um vöru- sendingar sendist Calliford & Clark Lt*. BRADLEYS CHAMBERS, LONDON STREET, FLEETWOOD. EF LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI ÞÁ HVERt Elsku dóttir okkar og systir, SIGRÍÐUR SVAVA MAGNÚSDÓTTIR frá ÁsheimuHi við Ölfusá, andaðist á spítala aðfaranótt 19. þ. m. - Ingibjörg Árnadóttir. Magnús Þorkelsson og systkini. Fálkagötu 14, Reykjavík. Það tilkynnist hjer með, að hjartkær móðir mín, ELINBORG ANNA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Ósi, andaðist 18. þ. m. Gunnar Sörensen, Aðalstr. 16. Konan mín og móðir okkar SOLVEIG PÁLSDÓTTIR andaðist að heimili okkar, Nýlendugötu 11 A 19. þ. mán. Þórlákur Jónsson. Sigríður Þórláksdóttir. Páll Þórláksson. Maðurinn minn BALDUR BENEDIKTSSON húsasmíðameistari andaðist að heimili okkar, Hverfisgötu 88, þann 19. þ. m. Fyrir hönð vandamanna Þórdís Runólfsdóttir. Jarðarför konunnar minnar, ELÍNAR ZÖEGA fer fram frá dómkirkjunni laugardaginn 22. þ. m. og hefst með húskveðju að heimili okkar, Laugaveg 56, kl. 1 e. h. Jarðsett verður í gamla kirkjugarðinum. Erlendur Erlendsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.