Morgunblaðið - 23.11.1941, Síða 7
Sunnudagur 23. nóv. 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Reykjavíkuibjef
• _________
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
landsmanna eins og raun varð á.
Menn bjuggust ekki við því, að
heimabruggið blómgvaðist svona
ört, smyglið yrði eins mikið, að
halda mætti fjölmennar samkom-
ur, þar sem drukkið væri meira
áfengi en tíðkaðist áður en lokað
var og að eins mikið kæmist „í
umferð“ af „dropum“, „hristing“
ug banvænu eitri, eins og verkin
sanna.
Bn um alla þessa ,,reynslu“
steinþegir hinn þolinmóði og
bjartsýni ritstjóri Tímans, sem
•gerði sig ánægðan með þá einu
reynslu, að áfengisneyslan mink-
aði en jókst ekki, þegar hætt var
að selja áfengið opinberlega.
Síra Jón Auðuns messar í frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag kl.
ðV2.
AUGAÐ hvílist T V I I h
aneð gleraugum frá I I L I f
OEXpnÍB
„Bjðrn Austrseni"
hleður á morgun, mánudag, til
Súgandafjarðar, Bolungavíkur og
fsafjarðar.
Vörumóttaka til hádegis sama dag
M.b, Skaftíellingur
•■* 11
hleður á morgun, mánudag, til
Vestmannaeyja.
Vörumóttaka til hádegis sama dag
Skólapiltar út-
vega sjer fje
i slaghörpu
Skora á kennara sina
í knattspyrnu —
og sigra!
Akureyri í gær.
Pann 20. nóv. skoraði 5. bekk-
ur stærðfræðideildar Menta-
skólans á Akureyri á kennara
skólans í kappleife við sig í knatt-
spyrnu. Áskorunarskjalið var hag-
lega gert og ritað í 16. aldar ís-
lenskustíl.
Kappleikurinn fór fram í dag
(22. nóv.) og var hinn fjörugasti.
Lauk honum með sigri 5. bekk-
inga með 1:0. Áhorfendur voru
fjölmargir.
Ágóðinn af kappleiknum rann
allur í sjóð til kaupa á nýrri slag-
hörpii (píanói) handa skólanum,
en sú slagharpa, sem nú er í skól-
anum, er orðin úr sjer gengin.
Frjettar.
Veitingastaðir í Hafn-
arfirði aftur opnir
til ki 11.30
Veitingastaðir í Hafnarfirði
eru nú aftur opnir til kl.
llt/2 að kveldi.
Voru þeir fyrst opnir í fyrra-
k-veld til þess tíma, en eins og
menn rekur minni til, var þeim
lokað klukkan 8 um skeið, eftir
árekstur þann, sem varð milli
ílslendinga og amerískra her-
manna.
Munu veitingastaðirnir fyrst
um sinn verða opnir til kl. lli^
síðd. Nokkurrar óánægju mun
gæta meðal Hafnfirðinga með
þá ráðstöfun.
SIGLINGAR
milli Bretlands og Islands halda áfram,
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Ctalliford & Clark Ltd.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
Dagbók
Helgafell 594111257-IV.-V.-2.
Nokkra verkamenn j
vantar mig nú þegar.
I.O.O.F. 3 = 12311248 =
Næturlæknir er í nótt ólafur
Þ. Þorsteinsson, Eiríksgötu 19. —
Sími 2255. Aðra nótt Axel BlÖn-
dal, Eiríksgötu 31. Sími 3951.
Helgidagslæknir er Gunnar Cort
es, Seljavegi 11. Sími 5995.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
Messað í Laugarnesskóla í dag
kl. 2. Sr. Garðar Svavarsson,
Barnaguðsþjónusta í Laugar-
nesskóla í dag kl. 10 árd.
Símablaðið 4. tbl. 16. árgangs
er nýkomið út. Eru m. a. í því
þessar greinar: Húsbyggingarmál
símamanna, eftir Unndór Jónsson,
Rjettur starfsmanna, eftir G. P.
Nýi tíminn og símritararnir o. fl.
Skemtifundur Skaftfellingafje-
lágsins s.l. laugardagskvöld var
mjög fjölmennur. Dr. Einar Ól.
Sveinsson las kafla úr hinni ágætu
bók Eyjólfs á Hvoli, „Afi og
amma“; Guðjón .Jónsson bryti og
Bjarni sonur hans skemtu með
samspili. Rætt var um fjáröflun
fyrjr sjóð síra Jóns Steingrímsson-
ar. Hyggst fjelagið að hafa þar
margt á prjónunum. Kosnar voru
7 konur í nefnd til þess að ann-'
ast bögglauppboð á næsta fúndi,
þær Gúðrún Jónsdóttir (sími
2319), Ósk Gísladóttir, Laugav.
171 (s. 4226), Rannveig Jónsdótt-
ir. Laufásv) 34 (s. 4867), Elín
Bergs, Skólavörðust. 30 (s. 3636),
Sigríður Bjarnadóttir, Óðinsg. 10
(s. 4504), Rakel Þorleifsson, Blá-
túni (s. 4644), Ágústa Jónsdóttir,
Vesturg. 3 (s. 1467). Eru Skaft-
fellingar beðnir að snúa sjer til
einhverra þessara kvenna með
gjafir og annað varðandi næsta
skémtifúnd.
Höfðingleg gjöf. Fyrir fáum
dögúm heimsóttu mig þekt heið-
urshjón hjer í bænum og færðu
mjer tvö þúsund króna gjöf til
Húsbvggingarsjóðs Sólarrannsókn-
arfjelags íslands. Þessi góðu hjón
vilja ^jkki láta nafna sinna opin-
berlega getið. En í nafni fjelags-
ins þakka jeg þeim hjártanlega
þessa rausnarlegu gjöf. Síðar mun
verða birt greinargerð fyrir gjöf-
um til hiirs sama frá ýmsum öðr-
um velunnurUm fjelagsins. Þakkir
sjeii öllum, sem á þann hátt hafa
sýnt mikilsverðu málefni góðan
stnðning. Ásm. Gestsson (gjaldk.).
Útvarpið í dag:
11.00 Prestvígslumessa í Dóm-
kirkjunni. Biskup vígir Pinn-
. boga Kristjánsson cand. theol,
til Staðar í Aðalvík. (Fvrir alt-
ari: sjera Friðrik Hallgrímsson.
Lýsing vígslu: sjera Garðar
Svavarsson. Prjedikun Finnbogi
Krist jánsson).
12.(X)—13.00 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegistónleikar (plötur):
ítölsk tónskáld frá 19. öld.
18.30 Barnatími (Ragnar Jóhann-
esson).
Telpnakórinn „Svölur“. '
19.25 Hljómplötur: Etudes, Op. 10,
eftir Cliopin.
20.00 Frjettir.
20.20 Illjómplötur. íslensk kórlög.
20.30 Erindi: Sjáffstæðisbarátta ts
lendinga á 14. öld, I (Árni Páls-
son prófessor).
21.00 Tónleikar Dómkirkjukórsins
(úr Dómkirkjunni); Requiem
(sálumessa), eftir Luigi Cheru-
bini (Orgel: dr. Urbantschitsch.
Stjórnandi: Páll ísólfsson).
22.10 Frjettir.
JÓN GAUTI
Smáragötu 14. — Sími 1792.
KApnr
komu fram í búðina í gær (laugardag).
Hefi einnig nokkrar
Model-Regnkápur.
LÍTIÐ í GLUGGANA I DAG.
KápubúOin, Laugaweg 35.
Vsgna jarðarfarar .
werður verslun og skrif-
stofur vorar lokaðar frá
kl. 12-4 á morgun, mánu-
dag, 23. nóvember.
VersluniR Edinborg
Heíldversl. Ásgeirs Sigurðssonar
Veiðarfæragerð Islands.
''v.; t )
Konan mín og móðir okkar
GUDRÚN EIDE
andaðist í fyrrinótt.
Hans Eide. Kristín Eide. Ragnheiður Eide.
PAUL R. OLSEN mejeríst
andaðist þ. 22. þ. m.
Lilja B. Olsen.
■JBrfSE
Jarðarför míns ástkæra eiginmanns, föður, fósturföðúr,
tengdaföður og afa
JÓNS JÓNSSONAR
frá Bárugerðí, fer fram miðvikúdaginn 26. þ. m. og hefst með
húskveðju kl'. 12 á hádegi að heimili hans, Vinaminni á Miðnesi.
Guðrún Gúðmundsdóttir.
Arnoddur Jónsson. Gunnar Jónsson.
Ragnheiður Sigurgísladóttir, tengda- og barnabörn.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við
andlát og jarðarför eiginkonu, móður og ömmu okkar
ELÍNAR ZOEGA.
Erlendur Erlendsson.
Kjartan Konráðsson. Brynhildur Kjartansdóttir.