Morgunblaðið - 09.12.1941, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 9. des, 1941.
Rústsland:
„Veturinn setur
svip i hernaðar-
aðgerðirnar"
Gagnsókn Rússa
við Moskva
Ræða Roosevelts
Þýska herstjórnin tilkynti í
gœr, að „framhald hern-
aðaraðgerða og tilhögun her-
stjórnarinnar á austurvígstöðv-
unum rríiðaðist upp frá þessu
við það að vetur væri genginn í
garð. Á mörgum hlutum víg-
stöðvanna eru nú háðar aðeins
staðbundnar hernaðaraðgerð-
ir“.
1 fregn frá London í gær-
Jkvöldi var skýrt frá því, að full-
Irúi þýsku stjórnarinnar hafi
sagt í gær að svo gæti farið, að
Þjóðverjar tælcju Moskva ekki
iyr en í vor. Hann sagði, að
þýska herstjórnin ætlaði ekki
að fórna hermönnum sínum í
vetrarbardögum í kuldum hjá
Moskva. Fulltrúinn sagði, að
kuldarnir á Leningrad-vígstöðv
unum hefðu verið svo miklir, að
jafnvel olían hefði frosið.
j 1 tilkynningu þýsku herstjórn
arinnar er skýrt frá því, að
útrásartilraun Rússa frá Lenin-
grad hafi verið hrundið.
Herstjórnin skýrir einnig frá
' tilraun Rússa til að setja lið á
íand á vesturströnd Krímskag-
ans, hafi verið hrundið, og enn-
, fremur að Þjóðvcrjum og ítöl-
um miði nokkuð áfram í árás á
Donetzsvæðinu.
Rússneska herstjórnin til-
kynti i gær; Þ. 8. desember
börðust herir olckar við óvjn-
inn á öllum vígstöðvum. Á
nokkrum stöðum á vestur
(Moskva) vígstöðvunum gerðu
hersveitir okkar gagnárásir og
cllu óvinunum miklu mann-
tjóni og hernaðartjóni og hrakti
fcann út úr nokkrum bygðalög-
•um“.
| ,,Pravd.a“ skýrði frá því í
ígær, að Rússar hefðu tekið aft-
jur þjóðveginn milli Tula og
Moskvá. •
Herstjórnin skýrir frá því, að
Þjóðverjar hafi mist 44 flug-
ivjelar í fyr'radag, en sjálfir
segjast Rússar hafa mist 11 og
jen.nfremur segir herstjómin, að
j;4 þús. smál. flutningaskipa ó-
jvinanna hafi verið sökt í At-
lantshafi.
Bretar sækja
á I Libyu
j tilkynningu bresku herstjórn-
arinnar í Kairo í gær var
skýrt frá því, að árásirnar á ó-
vinina fari vaxandi um alt bar-
dagasvæðið. Bretar hafa tekið Sidi
Rezegh aftur, og setidiðið í To-
bruk hefir aftur tekið hönduin
saman við suðurherinn.
FRAMH. AF ANNARI 8ÍÐD
ur fyrir svívirðu, rjeðist floti og
flugher japanska keisararíkis-
ins alt í einu og af ráðnum hug,
á Bandaríkin. Bandaríkin
bjuggu í friði við þá þjóð og
áttu, enn, samkvæmt ósk Jap-
ana, samtöl við stjóm þeirra og
keisara með varðveislu friðarins
í Kyrrahafi fyrir augum. Það
var jafnvel svo, að klukku-
stundu eftir að flugsveitir Jap-
ana hófu að varpa sprengjum á
amerísku eyjuna Oahu, afhenti
sendiherra Japana í Bandaríkj-
'jnum og starfsbróðir hans ut-
anríkismálaráðherra okkar
svar við amerískri orðsendingu,
sem nýlega var send, og var í
svari þessu skýrt frá því, að það
virtist tilgangslaust að halda á-
fram samningum þeim, sem
stóðu yfir, en í því fólst engin
ógnun eða bending um styrjöid
eða vopnaða árás. Það mun
verða í frásögur fært, að fjar-
lægðin frá Japan til Hawai,
gerir það augljóst, að árásin
var undirbúin af ráðnum hug
íyrir mörgum dögum eða jafn-
vel vikum.
En á þessu tímabili hefir jap-
anska stjórnin af ráðnum hug
reynt að blekkja Bandaríkin
með fölskum yfirlýsingum og
tjáning vonar um áframhald-
andi frið. Árásin á Hawai eyjar
hefir valdið sjóher og landher
Bandaríkjanna mjiklu tjóni.
Mjer þykir leitt að þurfa að
segja ykkur, að mjög mörg am-
erísk líf hafa farist. Þar að auk
hafa borist fregnir um að am-
erísk skip hafi verið skotin í
kaf, á hafi úti milli San Frans-
cisko og Honolulu.
í gær hóf japanska stjórnin
oinnig árás á Malaya. í gær-
kvöldi rjeðst japanskur her á
Hong Kong. í gærkvöldi rjeðst
iapanskur herafli á Guam. í
gærkvöldi rjeðst japanskur her-
afli á Filipseyjar. í gærkvöldi
rjeðust Japanar á Wake-eyjar
cg í morgun rjeðust Japanar á
Midway-eyjar.
Japan hefir þess vegna gert
skyndiárás, sem nær yfir
alt Kyrrahaf. Staðreyndir dags-
ins í gær og í dag tala sínu eig-
in máli.
Bandaríkjaþjóðin hefir þegar
tekið sína ákvörðun og mun
skilja að þetta er barátta um
líf og öryggi þjóðar okkar.
Sem yfirmaður hers og flota,
hefi jeg látið gera ráðstafanir
til varnar, en ávalt mun öll okk-
ar þjóð minnast þess með hvaða
hætti á okkur var ráðist. (Fagn-
aðarlæti).
Það skiftir engu máli, hve
iengi það tekur okkur að vinna
bug á þessari undirbúnu inn-
rás, ameríska þjóðin mun í
hrafti rjettlætis síns vinna end-
anlegan sigur. (Gleðióp og fagn
aðarlæti).
Jeg trúi því, að jeg- túlki
vilja þjóðþingsins og þjóðar-
innar, þegar jeg held því fram,
að við munum ekki aðeins verja
okkur sjálf til hins ítrasta, held-
ur munum við búa þannig um
hnútana, að við eigum ekki á
hættu, að samskonar svik sem
þessi endurtaki sig. (Fagnaðar-
læti).
Ófriðarástand er ríkjandi.
Það er ekki nokkur vafi á, að
þjóð okkar, landsvgeði okkar
og hagsmunir okkar eru í ál-
varlegri hættu. í trausti til
hins vopnaða herstyrks okkar,
með ákveðinni framkomu þjóð-
arinnar, mun okkur auðnast
sigur, guð hjálpi okkuú til
þess. (Gleðihróp og fagnaðar-
læti).
Jeg bið þjóðþingið að lýsa
yfir, að ófriðarástand hafi verið
ríkjandi milli Bandaríkjanna og
japanska keisaradæmisins frá
því hin tilefnislausa og rag-
menskulega árás Japana var
hafin, sunnudaginn 7. desem-
ber 1941. (Löng fagnaðarlæti
og gleðifcróp).
Flugher og floti
Jopana
I apanar hafa lagt áherslu á
^ smíði flugvjela, sem
fluttar eru með skipum, meir
en nokkur önnur þjóð. Eru flug-
vjelarnar fluttar með sjerstök-
um fulgvjelamóðúrskipum, en
Japanar nota einnig mikið svo-
kalaðar .,katapult“ flugvjelar.
Flug-vjelamóðurskip Japana eru
minni, heldur en t. d. bresk flugvjela-
móðurskip. Bresku skipin geta borið
60—70 flugvjelar, en japönsku skip-
in yfirleitt ekki nema 45 flugvjelar.
Japanar eiga, svo vitað sje 7 flug-
\jelamóðurskip, og auk þess 2 í smíð-
um. Japanar hafa jafnvel smíðað sjer-
stök sjóflugvjelamóðurskip. En marg-
ir sjerfræðingar líta svo á, að þær
muni ekki koma að miklu gagni,
nema sem njósnaflugvjelar.
í Englandi hefir verið áætlað að
Japanar ættu 3—4 þús. flugvjelar,
sem hægt væri að senda þegar í stað
í fremstu víglínu (til samanburðar
má geta þess, að áætlað hafi verið í
Englandi áð Þjóðverjar eigi um 9 þús.
flugvjelar í fremstu víglínu). Meir en
helmingur þessara flugvjela er áætl-
aður vera í þjónustu flotans.
Aðrir sjerfræðingar áætla áð það
sje of hátt áætlað áð Japanar eigi 3
þús. flugvjelar.
Einnig er á það bent, að flugvjelar
Japana þoli ekki samanburð við flug-
vjelar annara stórvelda. Flugvjelarn-
ar sjeu smíðaðar eftir erlendum fyr-
irmyndum, þýskum, frönskum, banda-
ríkskum, breskum og ítölskum, en
það sje sjaldan, sem eftirmyndirnar
sjeu jafngóðar og fyrirmyndirnar, m.
a. vegna þess, að nýjustu breytingar
til umbóta, eru sjaldan gefnar upp
erlendum þjóðum.
Hinsvegar eiga Japanar öflugan
fiota. Ekki er þó vitað hversu öflug-
an, því að frá því 1936 hafa þeir
engar upplýsingar gefið um flota
sinn. En talið var árið 1938, að
þeir ættu þá 8 45 þús. smálesta or-
ustuskip í smíðum, til viðbótar við
10, sem þeir áttu þá.
Fyrir 1936 hafði engin flotaþjóð
smíðað stærri orustuskip en 35 þús.
smálesta (að Hood undantkenu).
Ennfremur eiga Japanar öflugan
kafbátaflota. Er talið að þeir eigi 70
kafbáta.
Hvernig árái-
in hófst
FRAMH. AF ANNARI Blöö
af henni hlaust afar mikið. Það
var opinberlega tilkynt í Was-
hington í gærkvöldi, að 3000
manns hefðu særst eða farist,
þar af yfir helmipgur farist,
auk þess hefði einu gömlu or-
ustuskipi (sagt vera 29 þús.
smálesta skipið ,,Oklahama“,
smíðað árið 1914) sökt skipinu,
hvolfdi öðru og tundurspillir
hefði sprungið í loft upp. Enn-
fiemur er tjón sagt hafa orðið
á allmörgum öðrum orustu-
skipum og öðrum herskipum,
»
og öðrum skipum.
í hÍRni opinberu tilkynn-
ingu í gærkvöldi er skýrt
frá því, að mörgum jap-
önskum flugvjelum og
kafbátum hafi verið kom-
ið fyrir kattarnef og að
hernaðaraðgerðir „gegn
árásaherafla Japana um-
hverfis Hawai“ hjeldu á-
fram.
Laúsáfregn um að japönsku flug
vjelamóðurskipi hafi verið sökt
við Hawai hefir á hinn bóginn
ekki fengist staðfest.
í tilkynningu, sem japanska
herstjórnin birti í gær um árásina
á Pearl Harbour, segir, að tveim
orustuskipum Jiafi verið sökt, 4
orustuskip hafi verið löskuð og
auk þess 4 stór beitiskip (af A-
gerð).
Japanar segjast ekkert tjón haf i
beðið í árásinni.
IJAPAN /
Það var ekki fyr en mörgum
klukkustundum eftir að þessi ár-
ás á Honolulu var gerð, að jap-
anska stjórnin í Tokip afhenti
sendiherrum Breta og Bandaríkja-
manna þar stríðsyfirlýsingu Jap
ana. í fregn frá Tokio segir að
ýfirlýsingu þessari fylgi lönc;
greinargerð.
Ilm sama léyti birti Japanskeis-
ari ávarp til þjóðar sinnar, þar
sem þjóðinni var skýrt frá stríð-
inu. Tojo forsætisráðherra flutti
útvarpsræðu, .þar sem hann hvatti
„100 miljón Japana að gefa föður-
landi sínu alt það, sem þeir ættu
til“
Bandaríkjaþjóðin fjekk fyrstu
fregnirnar af styrjöldinni með til-
kynningu frá Roosevelt forseta,
sem birt var uin miðian dag (eft-
ir staðartírna) á sunundaginn o;;
þar sem skýrt va.r frá árásunum
á Honolulu.
FILIPPSEYJAR
Aðrar tilk. fylgdu á eftir með
litlu millibili, þar sem skýrt var
frá árásum Japana á önnur land-
svæði Bandaríkjanna í Kyrrabafi
(eins og rakið er í ræðu Roose-
velts á öðrum stað í blaðinu).
Japanskar flugvjelar gerðu
strax fyrsta kvöldið árás á tvær
borgir á Filippseyjum, aðra á
uyrstu og stærstu eyjuna, Luzon,
og varð þar manntjón nokkuð, en
hina á borgina Davoa, sem er ein
af svðstii eyjunum. Fulltrúi Banda
ríkjanna sagði í gær, að ainerfskt
flugvjelamóðurskip hafi verið hæfi
þar.
Höfuðborgin á Filippseyjum,
Manilla, varð ekki fyrir árás
fyrsta kvöldið, en í fregn frá New
York í gærkvöldr var skýrt frá
því, að loftárás á Manilla stæði
þá yfir,
GUAM
Japanskar flugvjelar gerðu einii
ig árás á eyjuna Guam, sem ligg-
ur vestast allra landsvæða Banda-
ríkjanna í Kyrrahafi, næst Jap-
an. Byja þessi er aðeins 206 fer-
mílur (íbúar 20 þús.) og Banda-
ríkin hafa oft ætlað að víggirða
hana, en látið það undir höfuð
leggjast til að styggja ekki Jap-
ana. Japanskar flugvjelar - flugu
lágt yfir þessa eyju í fyrrakvöld
og ollu þar miklu tjóni. M. a.
var kveikt þar í olíubirgðum.
Lausafregnir hafa borist um að
japönsk herskiji hafi umkringt
eyjiina.
t
Ameríkuþjóð-
irnar sameinast
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
stjórnmálasambandi við Japana.
Þessar Ameríku þjóðir hafa lýsl
yfir eða ern um það bil að lýsa
yfir styrjöld á hendur Japönum:
Costa Rica, Nicaragua, Honduras,
Salvador, Ilaiti, Dominicán-lýðveld.
ið og Cuba. Einnig hefir forsetí
Mexico lýst yfir því, að hann
muni fara fram á að lýst verði
yfir styrjöld á hendur Japönum.
Panama ætlar að segja Japönum,
Þjóðverjum og Itölum stríð á
hendur.
Forseti Uruguay 'sagði í gær í
útVarpsávarpi til þjóðar sinnar.
að nú yrði að gera að veruleika
hernaðarlega samvinnn Ameríku-
þjóða.
Forseti Brasilíu hefir lýst yfir
því, úð brasilianska stjórnin hafí
í einu hljóði samþykt að lýsa yfir
samstöðu (solidarity) íneð Banda-
ríkjunum.
MEÐ JAPÖNUM.
Á hinn bóginn, með Japönum.
hefir stjÖrnin í Manschuko sagt
Bretum og Bandaríkjamönnum
stríð á hendur.
Skákþíng
Norðíendmga
Akureyri í gær.
Q kákþing- Norðlendinga hófst
á Akureyri um síðustu helgi
T 1. og meistaraflokki eru 10
þátttakendur af Akureyri: Jóhann
Snorrason/ Jón Þorsteinsson, Unn-
steinn Stefánsson, Margeir Stein-
grímsson, Stefán Sveinsson. Frá
Húsavík; Sigurmundur Halldórs-
son, núverandi skákmeistari Norð-
lendinga, Hjálmar Theódórsson,
Kristján Theódórsson. Frá Þórs-
höfn : Daníel Sigurðsson. Frá Dal-
vík: Þorgils JSigurðsson.
í 2. flokki eru 6 þátttakendur.
Búist er við, að skákþingið st.andi
vfii' í vikú.