Morgunblaðið - 20.05.1942, Side 6
9
MORGDNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 20. maí 1942.
Samtal við Cbristmas Möller
FRAMH AF ANNARl 8ÍÐU.
Þ,jJl5verja. Eada hefir öll fram *
koiha og aðfávir ÞjóðvepQ afið-
aafarin tvö ár gert öll loforð
þeirra gagnslanS ‘ og einskisvirði.
Við Danir liötum Nazi.smann og
yfirgangsstefnu Hitlers í sama
mtelikvarða eins og aðrar her-
numdar þjóðir, og allar frjálsar
þjóðir heims.
DANIÆÖRK OG
NOREGUR.
Margt, er líkt um afstöðu Dana
og Norðmanna gagnvart Nazistum.
Norðmenn tóku þann kostinn að
berjast meðan þeim var það auð-
ið, gegn hinni svívirðilegu árás.
Ilíu heilli kusu Danir þá leið, að
Ifeggja niður vopn. En jeg er sann-
færður um, að allar frjálsar þjóð-
ir heimsíns hafa skilið það sjón-
armið, sem stjórnaði athöfnum
ukkar 9. apríl. Enda hafa Danir
hvergi verið ásakaðir fyrir þessa
framkomu sína.
QUISLINGAR DANA
ÁHRIFALAUSIR.
— Danmörk á sína Quislinga og
svikara. heldur Christmas Möller
áfram, eius og aðrar þjóðir. Og
þeir hafa hjálpað Þjóðverjum i
Danmörku eins og annarsstaðar.
En munurinn er sá t. d. í Dan-
mörku og í Noregi, að í Danmörku
.hafa1 'Quislingar engin áhrif, og
táka ekki á ríeinn hátt þátt í
Vtjórn Jandsins. .
Af 225 þingmönnum eru aðeins
tveir Quislingar. Þeir eru hataðir
'óg fy'rirlitnif' í öllum stjettum' þjóð
fjefá'gsrns. Éngmn heiðarlegur mað
ur vinnur með þeim. Og jafnvel
Þjóðverjar viðnrkenna, að þessir
dönskn svikarar sjeu Þjóðverjum
gagnslaus v.erkfæri.
Danska þjóðfri er'og hefir ver-
ið ósammála utanríkismálaáðherra
sínum, Séaveniusi. En Scavenius
cér!;hvorki Nazisti eða Quislingur.
Hann fylgir rangri stjórnmála-
stfefnu, en það er útaf fyrir sig
ekkert óvenjulegt. Þetta hefir
margan manninn hent.
, Það- er staðreynd, að ýegna þess
að við griþum’ekki til vopná gégn
Þjóðvejum, hofnm við fengið að
háfda koriitngi vorum ög ríkis-
stjórn, og haft stjórn málefna
vorra í okkar eigin höndum. Er
jþað Ósk mín, að sama ástaiul geti
fengið að haldast \ Danmörkn,
meðan styrjöldin stendur yfir.
Vænti jeg þess, að allir menn utan
Danmerknr geti. skilið ástæður
mínar fyrir þessari ósk,
o Heiwá fvrir ern Danir bundnir
í báða skó og geta því ekkí bar-
ist gegn kúguninni. Þessvegna er
.það skyfda frjálsra Dana. hvar
sem þeir eru í heiminum, að grípa
til vojnia g.égn Þjóðverjum, Vjer
þökkum öllum Dönum, sem verið
hafa útanlands undanfarin ár,
þann stuðning. er þeir hafa veitt
málstað .Danmerkur. Pyrst. og
fremst Jeiðtogum frjálsra Dana,
þeim Reventlow greifa og sendi-
herra Dana í London og Kauf-
mann sendiherra Dana í Was-
hington, svo og öðrum seudiherr-
um ■ og séndisveitum, sem unnið
hafa rrtp? frjálsum Dönum, hyr
mönnum.,, flugmnnöum og síðast
en ekki síst þeim dönskum sjó-
mönnnm, sem haldið hafa úti
Christmas Möller.
versfunarflotanum danska tif flutn
inga fyrir Bandamenn.
Er Christmas Möller hafði þetta
mælt, barst talið að íslandsmál-
um. Um þau efni sagði hann m. a.:
—- Því miður hafa sum ensk
blöð misskilið það, sem jeg sagði
þeim um afstöðu Dana til Islands.
Hefi .jeg reynt að leiðrjetta það.
Mín skoðun ér sú, að íslending
ar skuli tvímælalaust ákveða
stefnu sína sjálfir að öllu leyti,
jafnt um ufstöðuna til Danmerk-
ur sem annað. Þetta var einnig
mín skoðun árið 1918.
Um alla Danmörku ríkir su
skoðun, að íslendingar hafi orð
ið að gera þær ráðstafanir, er
þeir gerðu í sambandsmálinu við
Danmörku 10. apríl 1940. En jafn
framt get jeg fullyrt, að Danir
ineta það, hve smekklega og kurt
eislega íslendingar hafa komið
fram gagnvart Kristjáni konungi
og sambandsþjóðinni.
Rússland
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
Kharkov, hrundu gagn-
árásum óvinanna og sóttu
fram.
Fyr í gær höfðu borist fregn-
ir um að vörn Þjóðverja hjá
Kharkov færi harðnandi, en
samt sem áður hjeldi sókn Timo
schenkos áfram.
Rússar skýru frá því, að þeir
hefðu tekið stóra borg og að
þeir hjeldu uppi árásum á öfl-
Ugar herstöðvar Þjóðverja á
eystri bakka fljóts nokkurs. —
Rússnesku hersveitirnar voru
sagðar hafa komist yfir þetta
fljót og væru þær byrjaðar áð
sækja að baki hinum þýsku her
stöðvum.
Á öðrum stað segjast Rússar
hafa tekið járnbrautarstöð.
Einnig segja Rússar að þeir
sæki að mikilvægum þjóðvegi,
milli tveggja stórborga og nota
Þjóðverjar þenna veg til vista-
flutninga.
Þýska herstjórnin skýrði frá
því í gær, að 80 rússneskir skrið
drekar hefðu verið eyðilagðir
hjá Kharkov í fyrradag og 31
laskaður og segir herstjórnin að
þar með hafi 447 rússneskir
skriðdrekar verið eyðilagðir í
bardögunum á Kharkovvíg-
stöðvunum.
Meðal herfróðra manna í
Berlín var í gærkvöldi látin í
Ijós sú skoðun að sókn Timos-
chenkos mætti heita strönduð.
Noregssðfnunin
yfir 41 þds,
krónur
Framkvæmdastjóri Noregssöfn-
unarinnar hefir birt fyrstu
skýrsluna um söfnunina. Safnast
hafa þegar yfir 41 þús. krónur.
Stærsta gjöfin frá einstakling-
nni eða fyrirtækjum hefir borist
frá Kveldúlfi h,f. — kr. 10 þús.
Oefendur eru:
Merkjasala í Rvík 17 maí -f-
sölul. 21.920.00. Söfnun á Hótel
Borg í kaffitímanum 17. maí
750.00. Ásbjörn Árnason 10.00.
Einar 10 ára 1.00. H. B. S. 10.00.
Lvd. 10.00. Eyþór Árnason 12 ára
4.00. Ben. (1. Guðmundsson 5.00.
N. N. 5.00. Pitti 20.00. N. N. 5.00.
N. N. 25.00. Á. J. 50.00. J. Thórd-
arson Reykjavíkurv. 29 250.00.
Kr. Davíðsdóttir 50.00. L. H.
Miiller 1.000.00. N. N. 5Ö.00. R. R.
50.00. Niels Tyberg, Reykjum
500.00. Barði Guðmundsson 100.00
Atli Halldórsson 50.00. Kveldúlfur
h.f. 10.000.00. Geir Zoega í Hafn-
arfirði 1.000.00. Johnson & Kaab-
er 1.000,00. Jóna Jónsdóttir 90.00.
II. llalldórsson og systkini, til
minningar um föður þeirra Ole
Ualldorsen, og um 50 ára húsetu
móður þeirra Else Johnsdatter
Haldorsen á ísl. 500.00. K. J.
Elliheimilinu 10.00. Sigríður Helga
dóttir frá Bolungarvík 50.00. N. N.
25.00. N. N. 50.00. N. N. 10.00.
K. T. 50.00. G. S. 10.00. P. Ó. 25.00.
N. N. 5.00. N. N. 5.00. H. S. S.
13.00. Ónefndur 10.00. B. S. 20.00.
Prá þrem systrnm 300.00. Erla
Gísladóttir, Tjarnarg. 8 5.00. Höj-
gaard & Sehultz 2.500.00. Kay
Langvad, civilingeniör 500.00. —
Lúðrasveit Reykjavíkur ljek án
endurgjalds, einnig söng kvartett-
inn á Hótel Borg fyrir ekkert og
forstj. Iðnó lánaði húsið án end-
urgjalds. Allir, sem aðstoðuðu við
söfnunina, unnu án endurgjalds
og Ísafoldarprentsmiðja gaf prent
un merkjanna. Innilegustu þakkir.
P. h. framkvæmdanefndarinnar
Guðl. Rósinkranz form.
Safnast hefir hjá
Morgunblaðinu
Noregssöfnunin. Þorv. Benja-
mínss, Garðastræti 16, 50.00. Þórð
ur Jónsson, Grettisgötu 17 50.00.
Gamall sjómaður 10.00. Cristian
Björnæs, Lindargötu 47 100.00.
P. G. Ó. 30.00. Vinnuflokknr
Sverris Þórðarsonar, Cámp Belvoir
75.00. Hráfnhildur Haralds, Holts-
götu 10 20.00. Gunnar Ágústsson,
HoltsgÖtu 10 20.00. Þ. G. 10.00.
J. G. 10.00. L. 50.00. M. K. 25.00.
Þ. H. 10.00. V. G. 50.00. S.s. Bel-
gaum, h.f. Fylkir 1.000.00. Skip-
stjóri og skipverjar á s.s. Bel-
gaum 1.000.00. Noregsfari 1927
50.00. — Ofanritaðar gjafir hafa
borist afgreiðslu Morgunblaðsins:
Sjúklingar og starfsfólk í Kópa-
vogi biðja Morgunblaðið að flytja
þeim IJaraldi Á. Sigurðssyni og
fjelögum hans úr ..Halló Ameríka"
bestu þakkir fyrir heimsókn og
ágæta skénítún s'. 1.' láúgardag.
17 þás. smál.
skípínu „Em-
press of Asía“
sökkt
að var opinberlega tilkynt
í Ottawa í gær, að kanad-
iska 17 þúsund smálesta stór-
skipinu „Empress of Ásia“,
hefði verið sökt.
Fjórtán kanadiskir skipbrots-
menn af skipinu hafa verið
settir á Jand á austurströnd Kan
ada og skýra þeir svo frá, að
japanskar steypiflugvjelar hafi
komið að skipinu, er það var 10
km. frá Singapore með herlið,
sem var á leiðinni til hins breska
eyvirkis. Flugvjelarnar vörp-
uðu 80 sprengjum á skipið og
hæfðu fimm þeirra í mark. —
2500 hermenn voru um borð og
björguðust flestir þeirra og
einnig um 100 sjómenn.
Eldur kviknaði út frá sprengj
unum og brunnu allir björgun-
arbátarnir. En ástralskt herskip
Yárra, sem síðar fórst í viður-
eignunum við Java sigldi upp
að hinu brennandi skipi og tók
mennina um borð.
En allar tilraunir til þess að
bjarga sldpinu komu fyrir ekki.
Skipið hraktist um tundurdufla
belti upp í fjöru og var þá ekki
nema tóm stálbeinagrind, að
því er frjettaritari Reuters sím-
ar.
„Empress of Asia“ var smíð-
áð árið 1913.
Bandaríkín attka
her sínn í Evrópu
London í gær.
arga r skriðdrekasveitir
voru í herstyrk þeim, sem
kom frá Bandaríkjunum til N.-
Irlands í gær, til þess að efla
iandvarnir Breta og.til þess síð-
ar að taka þátt í sókn banda-
manna inn á meginlandið.
Her þessi er hinn mesti, sem
fluttur hefir verið í þessu stríði
yfir Atlantshafið.
Roosevelt sagði á fundi sínum
með blaðamönnum í gær, að
flutningur herliðsins yfir Atl-
antshaf hefði gengið vel og að
hann vonaði að hægt yrði að
halda honum áfram með góðum
árangri.
Hann var spurður hvað hann
ætti við og svaraði forsetinn
með því að brosa, eins og hann
vjldi gefa í skyn, að það væri
augljóst.
„Flugvöllur
]ýðræ<Msríkjanna“
I orðsendingu frá Roosevelt
■ forseta, sem lesin var upp á
flugráðstefnunni í Kanada, sem
sett var í gær, segir forsetinn
að Kanada sje flugvöllur lýð-
ræðisríkjanna.
14 þjóðir taka þátt í ráðstefn-
unni.
Náttúrulækningafjelag íslands
heldur síðasta fund sinn á. vorinú
í Baðstófu iðnaðannanna í kvöld
kl. 20.30.
Minníng Erasmusar
Erasmussonar
F. 25. ágúst 1889. D. 16, apr. 1942.
Hinn 16. apríl andaðist lijer í
bænum Erasmus Erasmus-
son.
Hann var Skaftfeliingur að ætt
og uþpruna, fæddur 25. ágúst
1889 og fluttist til Reykjavíkur
um tvítugsáldur, gaf sig þá strax
að sjómeiisku og stundáði hana
til" dauðadags.
Erasmus sál. var tíður ges.tu:
foreidra minna, er hann dvaldi
hjer í landi og hafði jeg því ná-
in kynni af honum mörgum frein-
ur. . V
Ilann var trúr og skyldúræk-
inn við hvert, verk, er hann vann,
sjerstaklega mikið fyrir að gera
öðrum gott, og á jeg þar aðal-
lega við böru. því hann yar afar
barngóður.
Ekki fy'gnaðist hann nokkiirn
óvin sVo vitað sje, því h'ann talaði
ýel um náungann og vildi ekki
sknlda neinum neitt.
! Erasmus kvamtÍHt' árið 1933:
eftirlifandi konu ainni, Sóffíu fs-
leifsdóttur og áttú þau einn son,
Bjarna, sem nú er á 8. ári.
: Heimili þeirra var framúrskar-
andi myndarlegt og bar það vott
um góða umhugsun húsmóðurmn-
ar og umhyggjsaman heirnilisföð-
ur.
Gamli vinur. Með söknuði kveð
jeg þig, er vegir skilja og margar
góðar minningar svífa fyrir hug-
skotssjónum mínum frá hinum
liðna samverntíma, er jeg þakka
þjer, og sem jeg veit að margi-í
af vinum þínum munu og einnig
gera, bæði fjær og nær, og þá
ekki síst sjófjelagar þínir, sem
með þjer dvöldu ó hafinu í hlíðu
og stríðu.
Kona þín og lit.li sonur, seni
ávalt þráðu heimkomu þína.
kveðja þig hjartans kveðju með
þökk fyrir alla ástúð og um-
hyggju, er þú sýndir þeim í orði
og verki. Minninguna um góðai)
dreng og prúðan geymum við öll.
ástvinir þínir og fjelagar, þar til
við um síðir finnumst aftur 1
sumarmorgni hinnar óendanlegu
eilífðar.
Hafðu þökk fyrir góða við-
kynningu. Par þú í friði.
B Kr. Grímsson,
Revýan Halló Ameríka verður
ekki leikin i kvöld vegna veik-
indaforfalla. — Onnur sýning
verður í næstu viku. Þeir, sem
■keypt hafa aðgöngumiða, fó þá
endurgreidda kl. 2 í dag.