Morgunblaðið - 21.06.1942, Síða 3
MORGUNBLAÐIt)
3
Suiiitudagur 21. júní 1942.
NeyðarTÖrnin i
dýrtíðarmálunuiii
■oaa
PAÐ verður að viðurkenna, að hlutverkið er örð-
ugt, sem Alþýðuflokkurinn nú reynir að leika
í sambandi við gerðardómslögin.
Sennilegt er, að enn verði um nokkra hríð hægt að spana
menn gegn þessu mesta nauðsynjamáli alþýðunnar með full-
yrðingum um, að sjerhver sá, er hafa vill hemil á kaupgjaldi og
afurðaverði sje fyrst og fremst að níðast á verkamönnum og
framleiðendum, en alls ekki að hugsa um að berjast gegn dýrtíð-
inni.
Þessa hlið málsins hefir þá
Alþýðuflokkurinn líka fckiljð,
;Og í kjósendaveiðihug kastar
hann fyrir borð skynseminni og
ábyrgðartilfinningunni, í því
ekyni að auka kjörfylgi sitt-
Hitt sást flokknum aftur yfir, að
sá sem — eins og Alþýðuflokk-
urinn áður — hafði í einum og
sömu lögum hækkað dýrtíðina,
bannað grunnkaupshækkun,
bannað dýrtíðaruppbót og bann-
að verkfall, hann var ekki tek-
inn alvarlega, þegar hann í
nafni alþýðuvináttunnar fór að
berjast gegn lögum, sem heim-
ila grunnkaupshækkun og
tryggja fulla dýrtíðaruppbót.
Og nú situr Alþýðuflokkurinn
í gildrunni.
1 gær er Jón Blöndal hagfræð
ingur sendur út af örkinni til að
draga lokuna frá gildru-hurð-
innj og hleypa Alþýðuflokknum
út. Læst J. Bl. vera að svara
rökum Ólafs Thors forsætisráð-
herra í þessu máli, sem áður
hafa birst hjer í blaðinu. En
til þess er J. Bl. engin maður og
tekst þá líka eftir því.
Jón Blöndal treystir sjer
ekki að neita fortíð Alþýðufl. í
þessu máli, en streitist hinsveg-
ar við, að draga skýrar línur
milli þess er var 1939 og þess,
sem er nú. J. Bl. treystir sjer
heldur ekki til að neita hinu
almenna samhengi milli kaup-
gjaldshækkunar og verðlags-
hækkunar, þ. e. a. s. vaxandi
dýrtíðar, sem gerir kauphækk-
unina að engu fyrir launþega.
En, segir J. Bl., þegar gróði at-
vinnurekandans er nægílega
mikill, þarf verðlagið ekki að
hækka, og svo bætir hann við:
„Nú hefir gróði atvinurekenda
um langt skeið verið svo æfin-
týralegur, að það er auðskilið
mál, að kaupið hefir getað
hækkað'.
Þetta lítur ekki illa út við
fyrstu sýn. En veit Jón Blöndal
ekki, að innlendu afurðirnar og
þá aðallega landbúnaðarafurð-
irnar mynda 4/5 hluta vísitöl-
unnar? Og veit J. Bl. ekki, hvort
heldur gróði þessa atvinnurek-
anda hefir verið „svo æfintýra-
legur“, eða — lítill? Allir aðrir
vita, að afkoma bænda er ekki
betri en svo, að kauphækkun í
landinu hlaut að leiða til annars
tveggja:- hækkunar á afurða-
r*AMH k ÍJÖTTU
Nordahl Grieg les upp
i háskólanum annað-
kvóld
Nordahl Grieg skáld les upp
í hátíðasal Háskólans ann-
að kvöld kl .8.30 á vegum Nor-
ræna fjelagsins og rennur allur
ágóði til Noregssöfnunarinnar.
Grieg mun lesa upp kvæði eft-
ir sjálfan sig og þar á meðal mörg
af sínum allra nýjustu kvæðum.
Agöngumiðar verða seldir á
morgun í Bókuversl. Sigf. Ey-
mundssonar og í Bókaversl. ísa-
foldar. Meðlimir Norræna fjelags-
ins ganga fyrir um kaup á að-
göngumiðum til klukkan 5.
HátlðahSld kvenna
19. júni
Kvenrjettindafjelag íslands
og Kvenstúdentafjelag ts-
lands mintust 19. júní með út-
varpserindum og skemtikvöldi í
Golfskálanum. Var drukkið
kaffj í hinum vistlega veitinga-
skála og skemtu konurnar sjer
við ræðuhöld, kvæðaupplestur
og söng.
Fjelögunum barst svohljóð-
andi skeyti frá Sambandi sunn-
lenskra kvenna: „Þökkum yður
mótmæli til alþingis gegn rjett-
arskerðingu þeirri er fólst í
frumvarpi mentaskólarektors,
Pálma Hennessonar. Megi ætíð
svo Vera að fjelög yðar sjeu
þannig skipuð sem forverðir
jafnrjettis kvenna og þeim kon-
um fjölgi sem skilja og meta
störf yðar'.
Skeytið var þakkað með lófa-
klappi. Þetta fyrsta sameigin-
legá skemtikvöld fjelaganna
var mjög ánægjulegt og benti til
nánara samstarfs og kynningar
í framtíðinni.
íslandsmótið. Næsti leikur ís-
landsmótsins er í kvöld og keppa
Fram og Vestmannaeyingar. Er
það síðasti kappleikur Vestmanna-
eyinga.
| Isíenskir sjó-
menn bjarga
bresktim fltig-
mönniim
Bresk blöð hafa nýlega birt myndir þær, sem
hjer fvlgja, en þær eru af Jslenskum báti,
sem bjargaði breskum flugmönnum, sem höfðn
neyðst til að lenda á sjónum og bjarga sjer
í gúmmíbát sínum. Segir í skýringu með
myndunum, að Withley-sprengjuflugvjel hafi
neyðst til að lenda á sjónum við vesturströrid;:
íslands. Þar hafi íslenskur togari bjargað
flugmönnunum og flutt þá til hafnar, þar Sem
þeir voru fluttir að bryggju í róðrabáti. Neðrí
myndin er af drengjum í þorpinu með gúmmí-
bát flugmannanna.
Stórkostleg stækkun
fiskimiðanna fyrir
Vestfjörðum
MORGUNBLAÐIÐ frjetti á skotspónum í gær.
að bresku sjóhernaðaryfirvöldin hefðu
stækkað að mjög miklum mun hið opna
svæði fyrir Vesturlandi, sem fiskiskip fá aðgang að til
veiða.
Blaðið reyndi að fá upplýsingar um þetta hjá ríkisstjórninni,
en það tókst ekki. En samkvæmt upplýsingum, sem blaðið fekk hjá
Landssambandi ísl. útvegsmanna, er það rjett, að veiðisvæðið hefir
verið stækkað stórlega.
Forsaga málsins er í stuttu máli
þessi, eftir því sem Landssam-
bandið upplýsti;
í fyrra gaf breska kerstjórnin
fyrirmæli um, að loka skyldi mjög
dýrmætum fiskimiðum fyrir Vest-
urlandi, þ. á. m. Halanum, eem
er höfuðveiðistöð togaranna mest-
an hluta árs, eins og nú er komið
og eitínig Djúpálnum, sem er
besta fiskimið stærri báta á Vest-
fjörðum.
Þáverandi ríkisstjórn leitáðist
við að fá þessu breytt, en tókst
ekki. Hinsvegar voru útgerðar-
menn að mestu látnir óáreittir,
þótt skip þeirra færu eínstöku
sinnum út á bannsvæðið. Gekk
þannig fram að miðjum maí s»l.,
en þá barst stjórn Landssambands
ins þau skilaboð frá ríkisstjórn-
inni, að hún hefði fengið tilkynn-
ingu frá herstjórninni, að ekkert
skip mætti fara inn á bánnsvæð-
ið og ættu skipin á hættu að
verða skotin í kaf tafarlaust, ef
banninu yrði ekki hlýtt. Skömmu
síðar voru herskip komin á vett-
vang og ráku þau fiskiskipin út
af bannsvæðinu.
Ríkisstjórnin mun þá þegar hafa
borið fram þá ósk til bresku yfir-
valdanna hjer á landi, að opna
svæðið yrði stækkað, en ekki
munu í öndVerðu hafa verið mikl-
ar líkur til, að það bæri árangur.
Svo mun það hafa verið seint
í maí, að ríkistjórnin sneri sjer
til Landssamhandsins og óskaði
eftir að fá vtiiueskju um, hvaða
svæði það væru þarna vestra, sein
annarsvegar togarar og hinsvegar
vjelbátar legðu mesta áherslu á,
að fá opnuð. Voru þær upplýs-
írigai í tje látnar. Muri þá ríkis-
stjórnin enn á ný hafa snúið sjer
til sendiherra Breta og breska
flotaforingjans hjer og borið fram
mjög eindregnar óskir um, að
svæði þessi fengjust opnuð.
Stjórn Landssambandsins barst
svo í dag (þ. e. í gær) tilkynn-
ing frá ríkisstjórninni, þar sem
skýrt er frá því, að óskum okkar
sje fullnægt í öllum aðalefnum.
Landssambandið fagnar mjög
þessum málalokum. Ríkir meðal
útgérðarmanna almenn ánægja yf-
ir, hversu giftusamlega ríkis-
stjórninni tókst áð leysa þetta
mál, og yfir þeim skilningi á okk-
ar málum og þeirri velvild í okk-
ar garð, sem hjer kemur fram hjá
breskum stjórnarvöldum.
Sjálfstæðismenn. Munið að
kjósa hjá lögmanni áður en þið
farið burt úr bænum.
D-LISTINN er listi Sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík.
ReykjavikuibðrnuBum
liður vel I sveitinni
----- ! ;:s4
ndanfarna daga hafa þeir
Scheving Thorsteinsson,
Haraldur Árnason og Sigurður
Sigurð&son verið á vegum sum-
ardvalamefndar á eftirlitsférð
til bamaheimila þeirra er néfnd-
in starfrækir nú í sumar.
Hafa þeir þegar heimsótt éft-
irtalin heimili: Hvanneyri, Réyk
holt, Stykkishólm (skólann og
sjúkrahúsið), Staðarfell og Sæl-
ingsdalslaug. -
Líðan barnanna virðist yfir-
leitt góð, sumstaðar ágæt. —
Heilsufar hefir verið sæmilegt,
þó hefir verið talsvert um kíg-
hósta á barnaheimilurium. Er
hann yfirleitt mjög vægur og als
staðár í rjenun. Þá héfir riokkuð
orðið vart við magakvíila er
gengið hefir hjer í Reykjavík í
vor og vetur, en hann hefir
hvergi lagst alvarlega á börnin
og þau náð sjer eftir fáa daga.
Á einu barnaheimilanna hefir
hlaupabólu orðið vart.
Má yfirleitt fullyrða að rékst-
ur heimilanna gangi að óskum,
og líðan bamanna sje góð, eftir
atvikum. Á tveimur heimilanna
hefir orðið vart vatnskorts
vegna óvenjulegra þurka und-
anfarið, en bætt hefir verið úr
því, með því að flytja vatn á
bílum til þessara heimila all-
langa leið.
I eftirlitsferðinni var enn-
fremur forstjóri ameríska Rauða
Krossins hjer, Mr. Charles Mc
Donald, en eins og kunnugt er,
hefir hann látið sig starfsemi
þessa miklu sldfta. Var hann
hinn ánægðasti með fyrirkomu-
lag heimilanna og ferðina ;