Morgunblaðið - 23.07.1942, Side 7

Morgunblaðið - 23.07.1942, Side 7
Fimtudagur 23. júlí 1942. MOSGUNBLAÐIÐ I Veiðibann i 4 sólarhringa Verksmiðjurnar þurfa nýja síld til blðnd- unar á eldri slld Igær klukkan 3 setti stjórn Ríkisverksmiðjanna veiði- bann í f jóra sólarhringa á skip þau er leggja þar upp afla sinn. Verða skipin að vera losuð að þeim tíma liðnum og sýna sig tóm hjá Ríkisverksmiðjunum. Er þetta gert til þess að verk- 'smiðjurnar verða að ’haía nýja isíld til vinslu saman við þá síld. sem söltuð hefir verið i þrærn- ar. Þessa daga mega skip þó veiða lítillega í salt. Leyfð hefir verið söltun á 7—8 þús. tunnum. Er söltmi svo takmörkuð vegna þess að menn óttast að síldin sje enn of -lausholda. En kaupendur salt- síldar vestanhafs hafa áskilið sjer að síldin sem þeir kaupi, sje veidd í ágúst. Prestaverkfallíð t Noregi hlægifegt segir Gulbrand Lunde Stokkhólmi 22. júlí. ýlega sagði Gulbrand Lunde, útbreiðslumálaráðherra Quislings, í ræðu, að ef kennarar Noregs reyndu enn á ný að koma af stað mótmælum eða skemdar- starfsemi, yrðu þær tiltaunir hæld ar niður með harðri hendi. Auk þess bætti Lunde við: „Við verðum að hafa ró og frið í land- ínu og við munum ekki þola neitt það, sem getur stofnað í hættu frelsi og sjálfstæði Noregs. Verkfall þrestanna er eitt skop- íegasta fyrirbrigðið í sögu okkar“. Skoðanafrelsið FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. Stefánsson og Einar Olgeirsson og aðra, sem efst eru á baugi í stjórnmálabaráttu okkar. Oft hefir verið á það minst, að að of gróft hafi verið til orða tek- ið í blaðadeilum um þessi mál hjer á íslandi, og má vel vera, að svo sje. En hinsvegar er athyglisvert, að líta yfir margt það, sem ritað hefir verið í Englandi nú þegar landið er í styrjöld, þar sem bar- ist er fyrir tiiveru Breta og margra annara þjóða, bæði í blöð- um og tímaritum. ★ AÐ SJÁLFSÖGÐU er varasamara áð ýmsu leyti að skrifa og ræða opinberlega viðkvæm mál a þess- um tímum, en það er því athyglis- verðara að athuga lítið eitt, hvað leyft er í Englandi nú, og gefst væntanlega ^ækifæri til þess, að ræða þau mál hjer innan skamms. StúdentaferSinni til Þingvalla, sem átti að vera næstk. sunnudag, verður frestað, vegna þess að bílar fengust ekki til fararinnar. Förin verður farin síðar í sumar. Áttræð: Anna Sigurðardóttir Anna Sigurðardóttir í Stykkis- hólmi er áttræð í dag. Hún er fædd 23. júlí 1862 að ICálfárvöllum í Staðarsveit. Voru foreldrar hennar búendur þar, þau hjónin Oddfríður Jónsdóttir og Sigurður Jónsson. Móðurafi Önnu var Jón Jónsson á Hólkoti í Staðarsveit, alkunuur hagyrð- ingur á Snæfellsnesi á sinni tíð. Er Anna var 4 vetur yfir tví- tugt giftist hún Jóhanni Erlends- syni, svni Erlends Jónssonar á Fá- skrúðarbakka. Þau hjón bjuggu saman í 55 ár, en Jóhann andað- ist í desehiber síðastl. Lengst af þjuggu þau í Stykkishólmi, eða 35 ár. Þeim varð auðið 8 barna og lifa 7 þeirra. Anna er ein af þeim konum ís- lenskum, er í hljóðlátri önn hefir unnið sitt mikla og langa dags- verk. Einyrkja hjón með stóran barnahóp mega ekki að jafnaði sitja með hendur í keltu. Þeirra bíður strit eða neyð, eða kannske hvorttveggja. Anna var manni sín- um samhent og taldi ekki sporin nje handtökin. Oft bljes henni í fang, en hún ljet ekki æðrunar- semi nje vílúð verða sjer einskon- ar hnappelda um fót. Oft bar margt manna að garði og þurfti því að amast í mörgu, en Anna hjelt sínu góðlvndi og sinni gest- risnisástúð, hvernig sem gekk. Það þykist jeg mega fullyrða, að Anna uppskeri að maklegleik- um starf sitt. Því börn hennar öl! eru með þeim hætti, að þau kunna mörgum frernur að meta foreldra- starfið og horfa í þeim efnum eigi í ódeilda hluti. — Sá, er þetta rit- ar, þakkar Önnu fyrir margar hug- ljúfar stundir og svo munu flest- ir gera, er af henni hafa haft nokkur kynni. Vjer árnmn henni unaðar miðsumarskvöldsins við Breiðafjörð og vonum, að kún megi sem lengst njóta hinnar sjer- stæðu hlýju og umönnuhar barna sinna. L. K. __ Bla« SJáWrtwítoJnaniii Auglýsendnr þeir, sem þnrfa aC auglýsa ntan Reykjavíknr, ná til flestra iesenda i sveit- nm landsins og kauptúnnm meC því að augiýBa 1 ísafold og VerBi. ---- Sfmi 1600. -------- Bílvegirnir FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU, þaðan alla leið niður í Vopna- fjarðarkauptún. Vegurinn til Austurlands hef ir verið slæmur í sumar, klaka- hlaup víða, því frost var þar djúpt í jörðu eftir veturinn. VESTURLAND Á Snæfellsnesi er m. a. unnið að því, að gera nýjan veg ofan við Búðaós, en ósinn hefir ekki verið bílfær um flóð, og því oft lei<&ir farartálmi. Verður þeirri vegaþót lokið næsta sumar. Bílfært verður nú í sumar norður yfir Stikuháls til Bitru- fjarðar. Unnið er að veginum upp frá Kollabúðum upp á Kollafjarðar heiði, í Vesturlandsvegi. — En ætlunin er, að sá vegur haldi á- fram norður Þorskaf jarðar-, heiði með hliðarálmu yfir Stein- grímsfjarðarheiði, og á að fást akvegasamband úr tveim áttum yfir Þorskafjarðarheiði til Langadals við ísafjarðardjúp. ★ Keflavíkurveg er verið að breikka. Vegheflar nýir hafa fengist, og von á fleirum. Hafa verið nokkrir erfiðleikar á því, að fá varahluti í hina eldri veghefla, þareð þeir eru keyptir í Noregi. En sæmilega hefir tekist að halda þeim gangandi ennþá. Umferð íslenskra bíla á veg- unum er yfirleitt talsvert meiri í ár en hún var í fyrra, segir vegamálastjóri að lokum. • •••••*«•«•*••* MIMHMHKMIBIW Dagbók ••••••••••• •••••••••••• Næturlæknir er í nótt Ólafur Jóhannsson, 'GUnnarsbraut 38. Sími 5979. Næturvörður er í Laugavegs Apóteki. Næturakstur annaðst Bifreiða- stöð Steindórs. Bílstjórar Strætisvagna Reykja víkur h.f. hafa í brjefi til fje- lagsstjórnarinnar farið fram á, að grunnkaup þeirra verði hækk að úr 350 upp í 400 krónur og að aukavinna verði afnumin. Stjórnin hefir frest til 25. þ. m. til að svara. Til Strandarkirkju* Þ. 4.00, Palli 5.00, K. J. G. 10.00, I. R. G. 20.00, N. N. (kosningaáheit) 5.00, E. 15.00, Dídí 3.00; G. X. 5.00, D. G. 35.00, Stúlka 10.00, Tannpína frænka 20.00, Gl. 10.00, M. B. 10.00, E. G. 20,00, V. 1. 10.00. Til Hallgrímskirkju í Saurbæ. Á. J. 10.00, Ómar 15.00, Ónefndur 10.00, Stúlka 10.00. Útvarpið í dagr. 12.10 Iládegisiitvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. 19.25s Hljómplötur: Tataralög. 19.40 Lesin dagskrá næstu viku. 20.00 Frjettir.' 20.30 Minnisverð tíðindi (Axel Thorsteinsson). 20.50 Hljómplötur: Lög úr söng- leikum eftir Lehár. 21.05 Auglýst síðar. 21.20 Hljómplötur: Lagaflokkur eftir Saint-Saens. 21.50 Frjettir. Nýkomnar vörur Ódýr gluggatjöld, aðeins lítið eitt. Karlmannavesti — ensk. Ullar-sundbolir og -skýlur, „Meridian“. Handklæði, baðhandklæði og mjög stór sólbaðhandkl. Sokkabandabelti, fjölbreytt úrval. Karlmanna ullarsokkar, margar gerðir. Satin- og silki-náttkjólar. Stakir undirkjólar og bux- ur. Undirföt. Stakar skyrtur og Jersey-buxur. Rykfrakkar og regnkápur, á karla, konur og börn, fjölbreytt úrval. Í enn fremur er nokkuð eftir af: „ModBll“-k]ðlum og kápum Einnig Angoragarn, ullargarn, silkitvinni, aurora- garn, perlugarn, ísaumssilki o. fl. Dragið ekki að kaupa það, sem þjer þarfnist — Það er ekki víst að það fáist seinna. VESl Af Laugaveg 40. Sími 4197. OOOOOKXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXXX Dömur \ Veljið smekklegan og hentugan búning í sumarfríin. Klæðist sportfötum frá JectX^- ^^^BTlAUGAVEGI 58 oooooooooooooooooooooooooooooooooooo< Símar 1540, þrjár línur. Góðir bílar Fljót afgreiðsla. . 8. I. BESTT AÐ AUGLYSA 1 MORGUNBLAÐINU. Jarðarför móður okkar, KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR frá Seyðisfirði, sem andaðist 16. þ. m., fer fram föstudaginn 24. júlí’kl. 3% frá dómkirkjunni. Jóhanna Vigfúsdóttir. Valgerður Vigfúsdóttir. Jón Kristinn Vigfússon.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.