Morgunblaðið - 15.08.1942, Qupperneq 7
Laugardagur 15. ágúst 1942.
MORGoNBLAÐIÐ
7
Umferðin ð Sóieyjargötu
Sjón er sögu ríkari. H|er
birtist mynd af umferðinni
nm Sóleyjargötu. Gangandi
fólk hefir ekkert afdrep, því
engin gangstjett er til. Fólki
og bílum er ætlað sama umferð-
arsvæði. Tiltölulega þröng gata
með girðingum á báðar hliðar.
Bílaumferð suður í Hafnar-
fjörð, Skerjafjörð og á flugvöll-
inn, liggur að miklu leytí um
Sóleyjargötu — Umferðaslys á
fólki hafa ekki orðið ennþá. en
•árlega aka bifreiðarnar á grind-
urnar meðfram götunni og
brjóta þær. Síðasti árekstur
varð í maímánuði í vor, og síð-
astliðið ár var tvisvar keyrt á
grindurnar um lystigarðinn og
einu sinni inn í trjágarð að ofan-
verðu við götuna.
Rykið frá götunni hefir ver-
ið svo mikið í sumar, að trjá-
gróður hefir víða kafnað. Tvisv
ar hefir vatnsbíllinn sjest kl.
91/2 að kvöldi, þegar mestu um-
ferðinni var afljett.
íslenska söng-
konan
FRAMH. AF ÞRIÐJU SIÐU
son. — Söngur hennar minti á daga
Trebelli, hinnar yngri (sem síðar
breytti nafni sínu í Dolores, svo ekki
væri því ruglað saman við hið fræga
nafn móður hennar) og síðar í
Tetrazzini“.
Þessi sýnistiorn um hina frá-
bæru blaðadóma, sem ungfrú
Þóra Matthíasson lilaut, verða lát-
in nægja til að sýna, hve vel hinni
íslensku söngkonu hefir verið tek-
ið í Los Angeles, þar sem margir
af bestu listamönnum heimsins
safnast saman vegna kvikmynd-
anna.
)BD
SNITTVERKFÆRI
eru heimsviðurkend
f.yrir gæði.
•
Einkaumboðsmenn:
fiÍSLI IIALLDÓRSSON H.F.
Sími 4477.
Alt í uppnámi
á quislinga-
kvikmynd
London í gær.
1 tilkynningu frá Stokkhólmi
segir svo: Fyrir skömrnu
síðan var sýnd í einu stærsta
kvikmyndahúsinu í Oslo mynd,
sem var fagurgali um landráð
quislinganna. Þjóðsöngur Norð
manna var svívirðilega misnot-
aður við þetta tækifæri.
Þá stóð ungur maður upp og
hrópaði: ,,Guð varðveiti kon-
unginn og föðurlandið!“
Ljósin í salnum voru sam-
stundis slökt og móðursjúk
kona, áhangandi Quislings, sem
sat rjett hjá unga manninum,
hrópaði: „Það var hann! Það
var hann!“ Lögreglan var þeg-
ar kvödd á vettvang og ungi
maðurinn var handtekinn asámt
nokkrum öðrum.
Áhorfendur fóru þegar burt,
en fáeinir Þjóðverjar og quisl-
ingar sátu eftir.
Amerískir herrjettar-
dúmar eru blrtir
I Englandi
Aðrar reglur ea
gilda hjer á landi
LONDON, Reuter: — Fyrsti
ameríski herrj etturinn, sem
haldinn hefir verið í Englandi
lauk störfum í fyrsta máli sínu
á fimtudag með sýknunar-
dómi. Travis P. Hammond, 23
árá gamall óbreyttur hermað-
ur hafði verið kærður fyrir af-
brot gegn 16 ára gamalli stúlku
— fyrir brot þetta hefði mátt
dæma manninn til dauða, eða
lífstíðarfangelsisvistar.
Hammond neitaði að ákæran
væri rjett í dómnum áttu sæti
11 amerískir liðsforingjar. —
Rjetturinn sýknaði Hammond.
*
Það mun vekja athygli ísl
lesenda, að í Ennglandi skuli
dómar amerísks herrjettar birt-
ir strax og þeir hafa verið upp
kveðnir, því hjer á landi virðist
herinn því miður fylgja annari
reglu. Hefir t. d. ekkert heyrst
enn um úrslit þriggja mála, er
íslendingar munu láta sig miklu
skifta: Banaskotið í Hafnarfirði
í fyrra; banaskotið við Háloga-
land og banaskotið á Hallveig-
arstíg.
íslenskir blaðamenn hafa
nokkrum sinnum spurt um úr-
slit þessara mála á blaðamanna
fundum hjá amerísku herstjórn
inni, en jafnan fengið þau svör,
að beðið væri eftir samþykt frá
Washjngton á dómunum.
Golfkeppni
FRAMH. AF FIMTU «lÐO
Reykvíkingar mimu að sjá'lf-
sögðu fylgjast af áhuga með
þessu fyrsta landsmóti kylfinga,
enda hjer um alveg sjerstakt
tækifæri að ræða til að kynnast
golfíþróttinni, sem allir ljúka
hinu mesta lofsorði á, er reynt
hafa.
Morgunnblaðið mun fram-
vegis birta frjettir af kepninni
og skýra frammistöðu og úrsliti
í mótinu.
Sextíu ára er í dag frú Þór-
Istína 'Gúnnarsdóttir í Borgarnesi,
sem áður bjó lengi á Lindargötu
18 bjer í bæ.
Launagreiðslur
Hafnarfjarðar
samræmdar
Reykjavík
Frá frjettaritara vorum
í Hafnarfirði:
TT afnarfjarðarbær hefir nú
■* samræmt launagreiðslur
til starfsmanna bæjarins við
það, sem Reykjavíkurbær greið
ir sínu starfsfólki. Voru laun
starfsmanna Hafnarf jarðarbæj
ar allmiklu lægri áður, en þau
laun, sem Reykjavíkurbær
greiðir.
Þorleifur Jónsson bæjarfull-
trúi, sem skýrði mjer frá þessu,
sagði að aðeins tveir starfs-
manna Hafnarfjarðarbæjar,
þeir Friðjón Skarphjeðinsson
bæjarstjóri og rafveitustjórinn,
hafi fengið launabætur, er sjeu
hærri en greitt er hjá Reykja-
víkurbæ.
Hafnfirðingar voru undrandi
er þeir sáu hvernig Alþýðubl.
sagði frá þessum launabótum
starfsmanna Hafnarfjarðarbæj-
ar, þar sem frjettin var notuð
til að hnýta í bæjarstjórn
Reykjavíkur algerlega að tilefn
islausu.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki.
Hús brennur
á Sigiufirði
Frá frjettaritara vorum
á Siglufirði.
m kl. 7 í gærkvöldi kom upp
eldur í húsinu nr. 14 við
Grundargötu á Siglufirði. Húsið
brann alt að innan á svipstundu.
Húsið var gamalt timburhús,
einlyft, innanþiljað, strigaklætt
og málað.
Eldurinn læsti sig um alt húsið
á svipstundu. Slökkviliðið kom
þegar á vettvang og tókst því að
slökkva eldinn, en þá var húísið
með öllu, sem í því var, gereyði-
lagt.
Húsið var vátrygt hjá Bruna-
bótafjelagi Islands, en eigandinn,
Meyvant Meyvantsson, sem var
nýfluttur í húsið, varð samt fyrir
tilfinnanlegu tjóni.
Eldsupptök eru enn óupplýst.
■ •••■MMPSaSft ■•••••••»•—
Dagbók
MMMMifaaaw •••••••••••S
Næturlæknir er í nótt Jóhann-
es Björhsson, Sólvallagötu 2. —
Sími 5989.
Messað í Dómkirkjunni á morg-
un kl. 11, síra Bjarni Jónsson.
Hallgrímsprestakall. Messa í
Austurbæjarskólanum kl. 2 á
morgun, síra Sigurbjörn Einars-
son.
Messað í Hafnarf jarðarkirkju á
morgun kl. 2, síra Garðar Þor-
steinsson.
Fimtíu ára hjúskaparafmæli eiga
í dag Aðalheiður Jóhannsdóttir og
Guðmundur Sigurgeirsison, Hóla-
braut 17, Akureyri. — Þau hjón
bjuggu yfir 30 ár að Bæli í
Fnjóskadal. Þau eignuðust 8 börn,
3 syni og 5 dætur, sem öll eru á
lífi.
Hjúskapur. í dag verða gefin
saman í hjónaband af síra Bjarna
Jónssyni ungfrú Jónína R. Þor-
finnsdóttir og Ragnar Edvards-
son. Heimili þeirra verður Samtúh.
10.
Hallgrímskirkja í Reykjavík.
„Hin almenna fjársöfnunarnefnd^
kirkjunnar biður þess getið, að
gjöfum til kirkjunnar sje veitt
móttaka daglega frá kl. 1—6 e. h.
á skrifstofu Hjartar Hanssonar í
Bankastr. 11 (annari hæð). Sími
4361.
tJtvarpið í dag:
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Norræn lög,
leikin og sungin.
20.30 Leikrit: „Ferhyrnmgurimi“
eftir Ellen Kirk (Haraldur
Björnsson, Svava Jónsdóttir,
Dóra Haraldsdóttir og Jón Sig-
urðsson).
21.10 Útvarpshljómsveitin: Gömul
og vinsæl danslög.
21.30 Hljómplötur; Vínarvalsar o.
fl.
21.50 Frjettir.
Þingfrjettir.
AUGLÝSENG er gulls ígildi,
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
fráfall og jarðarför unnustu minnar
DOROTHY ELSIE MARROW.
Kjartan Bjamason.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hluttekningu og samúð við
andlát 0g jarðarför
ÁRNA JÓNSSONAR frá Litlu-YaUá.
Sjerstaklega þökkum við Guðm. R. Oddssyni bakarameistara
fyrir mikla alúð og rausnarlega gjöf.
Vandamenn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför sonar míns
EGILS.
Kristófer Egilsson.
Inhilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarð-
arför systur okkar, og mágkonu minnar,
KRISTÍNAR KJARTANSDÓTTUR.
Ingunn Kjartansdóttir. Ástríður Thorarensen.
Halldór Kjartansson. Skúli Thorarensen.