Morgunblaðið - 02.09.1942, Page 2
2
MORGUN BLAÖiÐ
Miðvikudagur 2. sept. 1942
Norræn I
samvinna I
NORRÆN SAMVINNA hefir verið
efst á baugi mörg undanfarin ár. —
Mót hafa veritS haldin, fögur fvrir-
heit gefin við skálaræður boðsgesta,
en enn sem komið er hefir norræn
samvinna veri,ð að mestu leyti á
pappírnum. — Þó er ekki hægt að
segja, að hún hafi verið einskis
virði. Fjársöfnun til handa Finnum
í hitteðfyrra, og nú síðar fyrir Norð
menn í þrengingum þeirra, er fagurt
dæmi um samhug hinna norrænu
þjóða.
I þessu blaði hefir áður
verið vikið að afstöðu Finna og skal
því ekki fjÖlyrt um þau mál hjer.
Tíminn einn sker úr, hver verður
framtíð ættlands þeirra Runebergs
og Sibeliusar.
Norræn samvinna í framtíðinni
byggist algerlega á því, hver sigrar
í styrjöldinni. — Ýmislegt kann að
koma fyrir, sem ekki er unt að spá
um nú í bili. En þó er okkur ís-
lendingum holt að gera okkur grein
fyrir hlutnnum einS og þeir geta
orðið.
★
ALLlR VITA, að hugsjónir Quisl-
íngs eiga ehgan hljómgrunn í sál
norsku þjóðarinnar, og það er al-
kunna, hvemig hafn hans er orðið
sámheiti þeirra, sem svíkja land sitt
á örlagastundu þess. Quisling hefir
orðið að grípa til þess að reyna
að vjela þjóðina norsku með marg-
háttuðum og glannalegum ráðagerð-
um, sem eiga sjer enga stoð í hinum
blákalda veruleika. Quisling reikar
um í þeirri vímu, sem hann ef til
vill á enga sök á sjálfur, að nýtt
ríki eigi eftir að rísa upp, germanskt
ríki, sem svo er nefnt, og hinn „nýi
Noregur" verði einn af hornsteinum
þessa ríkis-
★
EKKI ALLS fyrir löngu var útvarpað
frá Osló þeim boðskap, að hin glæsi-
legasta framtíð biði Noregs, að sjálf-
sögðu undir stjórn Quislings, að
landið myndi endurheimta sín fyrri
lönd og nýlendur, eins og það var
orðað. Saxnkvæmt því átti Noregur
að fó ísland og Grænland, Færeyj-
ar, Hjaltlandseyjar og Man.
★
J>ETTA VAR tilkynt í boðskap
Gudbrands Lunde, útbreiðslumála-
ráðherra Quislings, og með þessu
átti að fá norsku þjóðina til þess
að aðhyllast ofbeldisstefnu Quisl-
inga. Reynt var að æsa þjóðina upp
með hliðsjón af Grænlandsdeilu
Norðmanna og Dana 1931. En þá
sýndu þessar þjóðir, hvers menning
og drenglyndi eru megnug: Þær
skutu máli sínu til alþjóðadóm-
stólsins í Haag, og dómurinn fjell,
eins og kunnugt er, Dönum í vil. —-
Norðmenn hlíttu þeim dómi, og
aldrei hefir verið minst á þetta mál
síðan. Þessi tvö lönd gáfu hinum
mentaða heimi fagurt fordæmi,
hvemig r^ett er að skipa alþjóða-
málum.
★
ÞAÐ ER VONANDI að norræn sam-
vinna geti hafist að nýju, og að
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Aukin hætta fyrir Rússa
yið Stalingrad
Sókn Þjóóverja úr suð-
vestri ber árangur
Nýjir fleygar reknir
í víglínu Rússa
Einkaskeyti til Morgunþlaðsins frá Reuter í gærkveldi.
SAMKVÆMT fregnuip frá Rússlandi í gærkveldi
er svo að sjá, sem meginþunga sóknar Þjóð-
verja til Stalingrad sje beint að borginni úr
suðvestri, hjá Kotelnikovo, og hafi Þjóðverjum tekist að
reka þar nýja fleyga í víglínu Rússa, þrátt fyrir harðvít-
uga vörn þeirra.
Stokkhólmsfrjettaritari Reuters greinir frá því, að
ekki sje unnt að segja til um hernaðarlega þýðingu þess,
að Þjóðverjum hefir tekist að greikka sóknina til Stalin-
grad, enn sem komið er, en líklegt er talið, að borgin verði
ekki tekin nema með öflugri tangarsókn, enda sjeu varnir
Rússa mjög öflugar.
Hinsvegar hefir Þjóðverjum orðið lítið ágengt á Kertskaya-
vígstöðvunum og hafa Rússar gert skæð gagnáhlauþ þar óg tekið
nokkur bygð svæði. Þar eru ítalskar hersveitir til varnar. og hafa
þær orðið fyrir svo gífurlegu tjóni und,anfai*ná dága, að Þjóð-
verjar hafa orðið að senda þýskar hersveitir ítöium til aðstoðar.
I KÁKASftl.
Á Kákasíu - vígstöðvunum
benda fregnir til, að Rússum
hafi tekist að hefta framsókn
Þjóðverja. Þjóðvérjar segja þó,
að þeim hafi tekist að ná á sitt
vald hafnarborginni Anapa, um
50 km. norður af flotastöðinni
Novorossisk, og að rússneskar
hersveitir, sem þar eru til varn-
ar, sjeu nú án sambands við
meginherinn.
Þá benda líkur til þess, að
sókn Þjóðverja til hinna mikil-
vægu olíulinda í Grozny hafi
verið heft. Suður af Krasnodar
sækja Rússar á og sömuleiðis
við Prokiadnaya. Er svo að sjá,
sem þeim hafi tekist að stöðva
sókn Þjóðverja, að minsta kosti
í'bili, til flotahafnanna Novor-
ossisk og Tuapse við Svartahaf.
VIÐ
Árásum Rommels
vísað á bug
Lofther Bandamanna
athafnasamur
JllllllllllllltllllllllHIIIIMIUIMIIKilllliliniMIMmiHIIIHIiMlIlirtr
Stjórnar Banda- I
! mönnum í Egypta- I
landi
Þjóðveríar fara varlega
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ARÁSUM Afríkuhersveita Rommels hefir verið
hrundið, segir í einkaskeyti til Morgunblaðs-
ins frá Reuter í gærkveldi. Hermenn Rommels
fóru varlega í þessari sókn sinni og virðast þeir þreifa
fyrir sjer, hvar Bandamenn sjeu veikastir fyrir.
I nánari fregnum um þetta segir, að veður hafi verið
gott er Rommel hóf sókn sína. Öflug þýsk hersveit rjeðist
gegn Bandamönnum á suðurhluta vígstöðvanna á mánu-
dagsmorgun, en árangur varð lítill. Þá var og áhlaupum
Þjóðverja á miðvígstöðvunum hrundið.
Flugher Bandamanna hefir mjög látið til sín taka og að-
stoðað landherinn í yörninni. Hefir verið ráðist á birgðalestir og
liðsamdrátt Þjóðverja með spirengjukasti og vjelbyssuskothríð
og mikið tjón orðið af. 1 gær mistu Þjóðverjar 7 flugvjelar í
loftbardögum. Á einum stað tefldu Þjóðverjar fram 40 steypu-
flugvjelum, sem voru varðar 50 Messerchmitt-orustuflug-
vjelum, en breskum flugvjelum tókst að hrekja þær á brott.
SVARTAHAF.
í tilkynningum Þjóðveffja
segir frá því að þeim verði vel
ágengt við Svartahaf, og hafi
rússneskum hersveitum tekist
að ná barg einni á þeim slóðum
á sitt vald. Þetta hefir þó ekki
verið viðurkent í rússnóskum
tilkynningum. Sjóliðar í Svarta-
hafsflota Rússa veita landhern-
um mikilvæga aðstoð í bardög-
unum í Kákasíu.
framvarða-
SVEITIR ÞJÓÐVERJA
í KLlPU.
Fyrir norðvestan Stalingrad
geisa harðar orustur. Eru fram-
sveitir Þjóðverja í mikilli klípu
þarna. Reyndu þeir að senda
þangað bifreiðalestir, sem voru
í fylgd með skriðdrekum, en
Rússar sáu við þessu, og segir í
tilkynningum Rússa, að engin
bifreiðanna hafi komist á
áfangastað.
Myndin sýnir Alexander hers-
höfðingja Bandamanna í Egypta-
landi, sem nú hefír tekið við her-
stjórninní af Auehinleck. Alex-
ander var áður yfirmaður Breta
í Burma.
Fimmta herdeild
í Sviþjóð
IT omist hefir upp um árpS-
ursstarfsemi í sænska
hernum og lögregluliðinu.
Skiöld hermálaráðherra hefir
birt tilkynningu vegna þessa og
skýrt frá gagngerðum ráðstöf-
unum, er teknar verði í þessu
sambandi.
í tilkynningunni segir, að
þegar hafi verið gripið til þeirra
ráðstafana, sem miði að því, að
ónýta undirróðursstarfsemi í
her og lögreglu. Þá er og tekið
fram, að hinir seku sjeu fáir, og
að ráðuneytið viti öll deili á
þeim.
í tilkynningu herstjórnarinn-
ar frá Kairo segir ennfremur,
að amerískar flugvjelar hafi
gert harða hríð að flugvöllum
Þjóðverja og bifreiðalestum. —
Sprengjur sáust koma niður
hjá flugvjelum Þjóðverja, sem
voru á flugvöllum. Margir eld-
ar komu upp og vitað er, að
margar vörubifreiðir eyðilögð-
ust. —
Sprengjum var einnig varpað
á hafnarmannvirki í Tobruk og
varð mikið tjón af. Þó verður
ekki sagt með vissu, hver ár-
angur varð af árásunum, vegna
þess, hve lágskýjað var.
Flugvjelar, sem höfðu tund-
urskeyti meðferðis, rjeðust í
fyrradag á ítölsk kaupför á
Miðjarðarhafi. Eitt olíuskip af
miðlungsstærð varð fyrir tund-
urskeyti og sprakk í loft upp.
Önnur skip urðu fyrir vjelbyssu
skothiríð og eijri orustuflugvjel
var skotin niður.
Meiri harðindi
ÞJöOverJa
— Hitler
Eden Iofar
Póíverja
Igær voru liðin 3 ár síðan Þjóð-
verjar rjeðust inn í Pólland
og heimsstyrjöldin hófst. í tilefni
af því hefir Anthony Eden, utan-
ríkisráðherra Breta, sent pólsku
stjórninni í London ávarp, þar sem
hann lofar frammistöðu Pólverja
og þrautseigju.
Eden sendi Raclynzki greifa,
sendiherra Pólverja í London og
núverandi utanríkisráðherra á-
varpið. Segir þar ineðal annars,
að Pólverjar hafi verið fyrsta þjóð
in til þess að verða fyrir ofbeldi
framh. á sjöundu síðu.
Adolf Hitler birti í fyrradag
þjóð sinni boðskap frá að-
albækistöð sinni, þar sem hann
hvatti hana til aukinna átaka og
fórna í baráttunni við hinar sam-
einuðu þjóðir.
Var þetta í tilefni af starfsemi
vetrarhjálparinnar þýsku, sem nú
fer. í hönd. Sagði Hitler meðal
annars á þessa leið: Þetta er í 10.
skifti, sem jeg ávarpa þýskn þjóð-
ina til þess að leggja fram af
frjálsum vilja krafta sína til
styrktar vetrarhjálpinni.
Hermenn okkar, sagði Hitler,
leggja nú heilsu sína og líf í
hættu á geysilega langri víglínu.
Fjandmenn, sem einu sinni voru
andvígir viðreisnarbaráttu okkar í
innanlandsmálum, eru nú enn einu
sinni sameinaðir gegn okkur. En
meirihluti hinna fjarlægu Austur-
Asíuþjóða hafa gert samning við
okkur, sem mun gera fjandmönn-
nnum ókleift að Þýskaland falli
fyrir villimennsku bolsjevismans
og arðráni hinna engilsaxnesku
auðkýfinga.
Ef Bretar og Bandaríkjamenu
halda því fram, að þeir þrái þetra
skipulag í heiminum, hvers vegna
var það þá nauðsynlegt fyrir þá
að ráðast á Þýskaland, þar sem
verið vrar að leysa þjóðfjelagsleg
vandaiyál. í hinum hrikalegustu
átökum liafa Þjóðverjar og handa
menn þeirra aukið liagsmuna-
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.