Morgunblaðið - 12.09.1942, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.09.1942, Blaðsíða 7
Laugardagur 12. sept. 1942. MORGuNBLAÐIt) i 7 Þriðja fiokks móíið I þriðja flokki vann K. R. I. K. R .II. með 6 :0, og Hafnfirðing- ar unnu Fram með 1:0. Stendur nú baráttan um bikarinn milli K. R. I. og Hafnfirðinga, og Verð- ur næst leikið á sunnudagsmorg- uninn kemur. Á mánudagskvöld keptu Yalur og Yíkingur í III. flokki, og fóru leikar svo, að Víkingur vann með einu marki gegn engu. Walterskepnin. Walterskepnin, útsláttarképni meistaraflokka um Waltersbikar- inn befst á morgun. Blaðið hefir frjett, að Valur og Fram muni þá leiða sarnan hesta sína einu sinni enn. Frá Noregi: Fimm norskir prestar í fangelsi Meðal þeirra presta í Há- logalands- og Niðaróss- biskupsdæmi, sem hafa verið eru enn í fangelsi eru þeir sókn arprestarnir Petersen, Vardö, Johannes Halten, Kistrand, Sig vard Strömmo, Snaasa, Gunnar Hauge, Levanger og Gunnar Trana, prófestur í Kolvereid. I norðurhluta Þrændalaga hafa svo að segja allir prestar lagt niður embætti sín. SJÓ3ÞURÐ HJÁ S. S.-FORINGJA 1 Holmestrand hefir Storm- sveitarforingi verið handtekinn vegna stórkostlegrar sjóðþurð- ar. Hann situr nú í fangelsi í Akershuskastala. í þessu fangelsi eru nú sem stendur rúmlega 600 fangar. — Helmingur þeirra eru Þjóðverj- ar og tveir Norðmenn, sem eru fylgjandi Quisling. HÓTANABRJEF Fyrir skömmu síðan fjekk lögreglan í Hönefoss einkenni- legt mál til meðferðar. Bóndi nokkur fekk nafnlaust brjef, þar sem sagt var frá því að brjefritaranum væri kunn- ugt um, að bóndinn seldi mjólk á óleyfilegan hátt. Brjefritar- inn kvaðst ekki mundu kæra hann, ef hann vildi leggja all- mikla peningaupphæð á vissan stað, sem hann tiltók. Bóndinn gerði þetta, en sagði lögreglunni líka frá öllu saman og þegar brjefritarinn kom til þess að sækja peningana, var hann tekinn fastur. En brjefritarinn var enginn annar en ákafur meðlimur N. S. í Norderhov, frú Eleonor Bure. 70 ára er í dag Davíð Jónsson hreppstjóri og sýslunefndarmaður á Kroppi í Evjafirði. Hjónaband. í dag verða gefin saman á Seyðisfirði ungfrú Hulda Meiron Eyjólfsdóttir frá Sevðis- firði og Halldór B. Ólafsson, Ein- holt II, Rvík. Hjúskapur. í dag verða gefin saman í hjónaband Zanný, dóttir Axels Clausen kaupm. og Magn- ús, sonur Steingríms Magnússonar, Fiskhöllinnj, Heimili þeirra er Ný- lendugötu 19 B. Nokkrar samþvktir fulitrúapinos S. I. B. 1 frjettum frá fulltrúaþingi * S. í. B., sem birtust hjer í blaðinu í fyrradag, var ekki hægt að geta um nokkur atriði, af því að ekki var búið að ganga endanlega frá öllum ályktunum. Hjer verður skýrt frá þessum atriðum. 1. Til viðbótar um launmál: a) 7. fulltrúaþing S. f. B. lýsir ánægju sinni yfir ákvörðun Al- þingis um endurskoðun launamála opinberra starfsmanna. b) Skorað á ríkisstjórnina að láta fara fram endurskoðun á grundvelli þeirn, er útreikningar verðla gsvísitölunnar byggist á. R-eisa hana á víðtækari grundvelli eftirleiðis. 2. Þingið telur brýna nauðsyn á góðu upptökuheimili og athugun- arstöð í Reykjavík fyrir vand- ræðaunglinga og dvalarheimili í sveit fvrir vandræðadrengi. Skor- ar á ríkisstjórn að hefjast handa nú þegar um að koma upp þess- um stofnunum samkv. heimild í lögum um eftirlit með ungling- um. 3. Stjórn S. í. B. falið að beita sjer fvrir því að ríkið' styrki nokkra keúnara til þess að ferðast milli skóla innanlands og kvnnast því í' kennslustarfi annara skóla, sem best er. 4. Samþýkkt mótmæli gegn þeirri ráðstöfun að ýmsir barna- skólar hafa verið látnir hætta störfum löngu áður en starfstíma átti að vera lokið og tafðir frá að hefja störf á rjettum tíma, án þess að brýn nauðsyn hafi verið sýnileg. 5. Fulltrúarþingið telur æskilegt að stofna íþróttafjelög í fjölmenn- ustu barnaskólum landsins, er sjái nemendum fyrir þeirri íþrótta- kennslu er þeir óska, til viðbóta'’ fastri íþróttakennslu skólanna. — Ennfremur að stofnað sje sam- band slíkra fjelaga er sjái meðal annar um skólaíþróttamál. 6. Þingið lætur ánægju í ljós yfir því að byrjað hefir verið á skólaeftirliti. Beinir þeirri ósk til Alþingis og ríkisstjórnar, að í næstu fjárlögum verði veitt fje til fullrar framkvæmdar þess starfs, eins og núgildandi fræðslulög gera ráð fyrir, að 6 mönnum sje ætlað þetta sem aðalstarf. T.Skólabyggingar. Skorað á Al- þingi og ríkisstjórn: a) að sam- þykkja að framlag til barnaskóla- bygginga verði framvegis veitt úr ríkissjóði að % híutum til heima- vistarskóla og að V> til heima- gönguskóla utan kaupstaða. b) að þegar á þessu hausti verði ákveðið að byggja svo fljótt, sem bygg'- ingarefni fæst öll skólahús, sem reisa ber samkvæmt 7. gr. gildandi fræðslidaga og verði í þessu skyni lagðar í sjóð um 7 milj. króna. Willkie í Jerúsalem Wendell Willkie, persónuleg- ur sendiboði Roosevelts, kom í gær til Palestínu. Wiilkie ferðaðist loftleiðis. Hann fór þeg- ar í stað til Jerusalem og tók landsstjórinn á móti honum. REUTER. QuisliDgabiskup visiterar K egar quislingabiskupinn Fröyland í Oslo kom í prestaköll nokkur, til þess að visitera, vildu prestarnir ekk- ert við hann tala, og neituðu algerlega að sýna honum kirkju bækurnar. Hann hótaði þá að kalla á lögregluna, en prest- arnir ljetu það ekki á sig fá. Fröyland kallaði þá á ríkis- lögregluna, sem kom og hafði á burt með sjer kirkjubækurn- ar, þrátt fyrir mótmæli prest- anna. Dagbóh Næturlæknir er í nótt Pjetur Jakobsson, Rauðarárstíg 37. Sími 2735. Næturvörður er í Laugavegs Apóteki. Messað í dómkirkjunni á morg- un kl. 11, sr. Bjarni Jónsson. Hallgrímsprestakall. Messað í Austurbæjarskóla kl. 2, sr. Ing- ólfur Ástmarsson. Laugarnesprestakall. Messað í Laugarnesskóla á morgun kl. 2, sr. Garðar Svavarsson. Fríkirkjan í Reykjavík. Kl. 5, sr, Árni Sigurðsson. f kaþólsku kirkjunni í Reykja- vík hámessa kl. 10 og í Hafnar- firði kl. 9. Messa í Hafnarfjarðarkirkju á morgun kl. 2, sr. Garðar Þorsteins- son. Lágafellskirkja. Barnaguðsþjón usta á morgun kl. 12.30, sr. Hálf- dán Helgason. 73 ára verður í dag merkis-| konan Guðrún Sigurðardóttir, Ránargötu 33. Hjónaband. í dag verða. gefin saman í hjónaband af síra Árna Sigurðssyni Steinunn Snorradótt- ir frá Akureyri og stud. oecon. Bragi Kristjánsson, Hringbraut 159. Heimili ungu hjónanna verð- ur á Hringbraut 159. Hjónaband. í dag verða gefin saman í hjónaband í háskólakap- ellunni, af síra Sigurbirni Á. Gíslasvni, ungfrú Kristjana Sig- urz og Lárus Pjetursson stud. jur. Heimili þeirra verður að Hofi við Sólvallagötu. Hjónaefni. I gær opinberuðu trúlofun sína ungfrú Sveina Vig- fúsdóttir hárgreiðsludama og Vil- hjálmur Schröder veitingaþjónn. Gjöf til stúdentagarðsins. Her- bergi Theódórs Jakobssonar. — Nokkrir vinir Theódórs Jakobsson- ar skipamiðlara, sem mýlega er lát inn, hafa ákveðið að gefa eitt her- bergi — tíu þvisund krónur — til minningar um hann. Theódór Jakobsson var mjög vinsæll maður og upni háskólanum og stúdenta- lífinu af heilum hug. Vinum hans hefir þótt fara vel á því að varð- veita nafn hans meðal stúdenta með því að eitt herbergi í nýja stúdentagarðinum beri nafn hans. Verður mvnd hins látna heiðurs- manns hengd upp í herbergi því, er ber nafn hans, og munu ungir stúdentar, er fá dvöl í þessu her- bergi á ókomiT^^tímum, minnast hins sviphr^fna og lífsglaða dreng- skaparmanns, er hnje í valinn í miðju lífsstarfi sínu. Minning Theódórs Jakobssonar mun á þenna Iiátt lifa meðal íslenskra stúdenta á ókomnum öldum. Jeg flyt hinum veglvndu gefendum, er vilja ekki láta nafna sinna get- ið, alúðarfvlstu þakkir. 10. sept. 1942 Alexander Jóhannesson. >000000000000000000000000000000000000 ó 1 DAG OPNUM VIÐ 2 | Úrsmíðavinnustofu ogverslunl 0 á Hverfisgötu 64. <> x Magnús Ásmundsson. Jón Kr. Jónsson. ð 0 Eggert Hannah. o >000000000000000000000000000000000000 Austurbæjarskólinn Öll börn á aldrinum 7—10 ára, sem sækja eiga skólann n.k. skólaár, mæti í skólanum þriðjudaginn 15. sept. n.k. sem hjer segir: 10 ára börn (fædd 1932) kl, '8 9 ára böm (fædd 1933) kl. 9 8 ára börn (fædd 1934) kl. 10 7 ára börn (fædd 1935) kl. 14 Geti börnin ekki mætt sjálf, verða vandamenn þeirra að láta mæta fyrir þau. SKÓLASTJÓRINN. Saumur í heildsölu Mjólkurffelag Reykjavíkur I Unglinga vanlar til þess að bera Morgunblaðið til kaupenda í Austurbænum. Jíllo rBttnMaöið Lokafl í dag. lakk-OB mðlningarve ksmiðjan Harpa h.f. Konan mín SIGRÚN SíMONARDÓTTIR andaðist að VífiIsstöSum aðfaranótt 11. þ. m. Þórðnr Eiríksson og börn. Hjartkær dóttir okkar BRYNDÍS andaðist 11. þ. mán. Sesselja Guðmundsdóttir. Bjöm Gnnnlangsson. Maðurinn minn, faðir og bróðir KARL MATTHÍASSON andaðist á Vífilsstöðum 10. þ. m. Lúllý Matthíasson. Sverrir Karlsson. Ásgeir Matthíasson. Þökkum hjartanlega auðsýnda hluttekningu við andlát og jarðarför sonar okkar og bróðnr. BJARNA HALLDÓRSSONAR. Margrjet Þórðardóttir, Halldór Auðunsson og hörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.