Morgunblaðið - 14.03.1943, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 14.03.1943, Qupperneq 7
Sunnudagur 14. mars 1943, MORGUNBLAÐIÐ 9 Minningarorð um sira Jón Jakobsson Marga þunga fóm hefir þjóð vor þurft að færa Ægi fyrr og síðar, en ein hin átakanleg- asta, sem menn muna til, var sú, er vjelskipið Þormóður fórst þann 17. þ. mán. og Ægir heimt- aði í skatt 31 mannslíf, karla, kvenna og jafnvel barna, flest af því fólk, sem aldrei kom á sjó nema sem farþegar. Einn þeirra, sem þar fór í hina votu gröf, var vinur minn og gamall skólabróðir, síra Jón Jakobsson prestur á Bíldudal, einn hinn mesti gæðadrengur og prúð- menni, sem jeg hefi þekkt. Jón var fæddur að Galtafelli í Hrunamannahreppi 10. mars 1903, og voru foreldrar hans sæmdarhjónin Jakob Jónsson bóndi og trjesmiður í Galtafelli og kona hans Guðrún Stefáns- dóttir frá Ásólfsstöðum, sem eiga nú heima í Reykjavík, bæði hnígin að aldri. Bræður Jakobs eru þeir þjóðkunnu menn: Ein- ar myndhöggvari Jónsson og Bjarni bióstjóri, en þeir eru syn- ir Jóns bónda í Galtafelli Bjarna- sönar frá Bolafæti, Jónssonar, og Gróu Einarsdóttur frá Bryðju- holti, Éinarssonár. Guðrún, kona Jakobs í Galtafelli,' er systir Páls bónda á Ásólfsstöðum, en þau eru börn Stefáns bónda á Ásólfsstöðum Ilöskuldssonar þar, Höslculdssonar í Haga, Sverris- sonar, og Helgu Jónsdóttur prests á Stóra-Núpi Eiríkssonar. Systir Helgu er Kristín, móðir dr. Jóns sál. Ófeigssonar. Voru þeir nafnar dr. Jón og síra Jón á Bíldudal að Öðrum og þriðja að frændsemi. Má af þessari stuttu ættfærslu sjá, að síra Jón var af mjög góðu bergi brotinn, ! og stóðu honum ið næsta óvenju- legir hæfileikamenn um list-. hneigð og gáfur, samfara dreng- skap og mannkostum. Jón ólst upp á hinu góðkunna hpimili foreldra sirma að Galta- felii. Hugur hans stóð snemma tii mennta, og gekk hann íyrst í Elensborgarsivólánn og síðar í Menntaskólann í Reykjavík og lauk stúdentsprófi þaðan vorið 1926. Á þessum árum kynntist jeg Jóni mjög náið, því að við vorum sambýlismenn í 3 vetur. Reyndi jeg hann jafnan sem hinn ágætasta fjelaga og góðan vin. Ilann var enginn áhlaupa- maður til náms, en sóttist það þó ætíð farsællega, því að hann var reglusamur og iðinn. Þó tók hann ýmiss konar þátt í fjelagslífi skólabræðra sinna og var oft hrókur alls fagnaðar í vina hópi. Hann var söngmaður góður og í þá daga spöruðú menn ékki rödd- ina, glaðværir skólapiltar. Jón. var einnig ágætur dansmaður, og vár ekki laust við, að sumir Öf- unduðu hann af þeirri list. Eftir- tektarvert var eitt þá þegar í fari Jóns, sem fylgdi honum alla tíð, en það var snyrtimennskan. Lýsti hún sjer jafnt í klæðaburði hans sem framkomu hans allri. Það var eitthvað kynborið í fram göngu hans, viðmótið hlýtt og hjartanlegt, hatternið prúðmann- legt og fágað. Jafnan var hann boðinn bg búinn til að gera fje- Dagbók lögum sínum greiða, enda var hjartalag hans þannig, að hann vildi hvers manns nauðsyn bæta. Sjálfur komst jeg enn betur að raun um það við ákveðið tæki- færi síðar, hver drengur hann var, er á reyndi. Að stúdentsprófi loknu sneri Jón sjer þegar að guðfræðinámi, sem hann hafði snemma á skóla- árum sínum ákveðið að'.stunda. Sóttist honum vel námíð og lauk guðfræðiprófi vorið 1930 með I. einkunn. Árið eftir vígðist hann prestur að Bíldudal og þjónaði því brauði síðan. Sama ár kvænt- ist hann eftirþfandi konu sinni, Margrjeti, dottur Björns Þor- lákssonar á Hvammstanga og frú Ingibjargar Jónasdóttur, systur Guðmundar Illíðdals póst- og símamálastjóra. Var hjónaband þeirra ástúðlegt mjög, og varð þeim þriggja barna auðið, og eru þau öll á lífi. . , , Um síra Jón sem prest er jeg ekki fullbær að dæma vegna ókunnugleika míns, en jeg þekkti hann svo vel sem mann, að jeg veit, að hann var vel til prests- starfs fallinn. Jeg sá hann einu sinni vinna prestsverk, og hann gerði það fallega. Jeg hygg, að ræður hans hafi verið skynsam- legar og huggunarríkar, og jeg veit, að dagfar hans var til fyr- irrnyndar. I-Iann hafði áhuga fyr- ir starfi sánu, og jeg hygg, að Ilann hafi verið éinlægur trú- maður. Sumarið 1939 dvaldist hann í Englandi til þess að kynna sjer kirkjumál þar í landi, eink- um mannúðarstarfsemi ýmsa innan safnaðanna. Það var í hans anda að gleyma ekki hinum minnstu bræðrum. Það er þungt að sjá á bak þeim góða dreng, síra Jóni Jakobssyni, í broddi lífsins, þungt fyrir frændur hans, vensla menn og vini, þungt fyrir sókn- arbörn hans, sem nú eiga mörg um sárt að binda, en þyngst fyr- ir eiginkonu hans og börn og aldraða foreldra. Megi nú herra sorgar og, gleði blessa þeim minn. ingu hans og veita þeim huggun í harmi þeirra. Svo kveð jeg þig, vinur, með þökk fyrir samveruna og kynnin. Guðni Jónsson. Hallgrímskirkja í Revkjavík. Gjöfum og áheitum til kirkjunn- ar er veitt móttaka á skrifstofu Hjartar Hanssonar, Bankastræti 11 (miðhæð) frá kl. 1—6 e. h. daglega. □ Edda 5943ýl67 — 6. Atkv. L O. O. F. 3 3 1243!58 = G. H. Næturlæknir: Kristján Hann- esson, Mímisvegi 6. Sími 3836. Næturakstur: Litla bílstöðin. Nesprestakall. Messað í kap- ellu háskólans kl. 5 í dag. Leikfjelag Reykjavíkur sýnir Fagurt er á fjöllum í kvöld kl. 8. Óla smaladreng átti að leika kl. 5 í dag, en hætta varð við það vegha þess, að mörg börnin, sem leika, voru veik. Knattspyrnudómaranámskeið mun hefjast hjer í bænum í lok þessa mánaðar. Umsóknir um þátttöku ber að senda til for- manns Knattspyrnudómarafje- lags Reykjavíkur, hr. Gunnars Axelsson, pósthólf 822, sími 5968, og gefur hann allar upp- lýsingar viðvíkjandi námskeið- inu. Umsóknarfrestur er til 20. þ. m. , Söfnun Ög gjafir til nýja Stú- dentagarðsins. — 1. Áður birt kr. 393.200.32. 2. Ilerbergj agj af- ir: Olíuversluh íslands 10 þús. kr. Samband ísl. saftivinnuf jelaga 10 þús. kr., Geir G. Zoega o. fl. 10 þús. kr., Norðmenn í Rvík 10 þús. kr., Sig. Árnason frá Höfnum 10' þús. kr., Kveldúlfur h.f. 10 þús. kr., Hafnarstúdentar í Rvík 10' þús. kr. Beinteinn Bjarnason, Hafnarfirði 10 þús. kr.. 3. Gj,afir kaupsýslumanna: Friðrik Magn- ússon 300 kr., Jónsson & Júlíus- són 150 kri, Önefndur 5 þús. kr., O. Johnson & Kaaber 1 þús. kr., Óriefndur 500'kr., Helgi Mágnús son & Co. 500 kr., O. Ellingsen 300 kr., Ónefndur 2 þús. kr., M. Th. S. Blöndahl 300 kr., Ingólfs Apótek 500 kr. 4. Gjafir akadam.l borgara kr. 2.974.00. Hagnaður af skemtunum 1. des. síðastliðinn 10 þús. kr. — 6. Ýmislegt kr, I. 316.65. Alls kr. 498.040.97. Hallgrímskirkja í Reykjavík. Áheit og gjafir til kirkjunnar, afhent skrifstofu „Hinnar alm. fjársöfnunarnefndar“, Bankastr. II, af sjera Sigurbimi Einars- syni: Frá nýgiftum hjónum 50. kr. Áheit „tapað fundið“ 20 kr„' Frá sjúklingí 10 kr. Frá J. E. 10 j kr. Éftirstöðvar af tómbólufje 100 kr„ Áheit „dropatal“ 5 kr.,j Áheit „fyrir frijði“ 100 kr„ Aheitj R, G. 5 kr„ Áheit frá Þ. 50 kr. I Frá Ftef. Krist. 50 kr„ Áheit „krossmark á ræðubretti“ 100 kr. Gjöf „skírn og feming“ 40 kr„ Áheit frá L. II. 10 kr„ Áheit frá konu 10 kr„ „Hallgrímskvöld“ j 20 kr„ Áheit E. S. 50 kr„ Áheit; frá Kristínu Gífladóttur 20 kr„' Oddný Inga skírð 100 kr„ Finn, bogi Jósefsson 50 kr„ Áheit I., G. 5 kr„ Áheit Guðmundur Sig- urjónsson 100 kr., Gjöf frá Rúnu 2 kr. Áheit N. N. 100 kr„ Mar- grjet Jóhannesdóttir, Sandvík 20 kr„ Þorkell 1 kr„ Gestur á: Rauðamel, áheit 20 kr„ Áheit' L. D. 20 kr., Björt 2 kr„ Frá Sandi 20 kr„ Áheit frá M. J. 25 kr„ Áheit sent í pósti 15 hr„ Áheit „Guð blessi Ilallgríms- kirkju“ 10 kr. Skímardagur 20 kr„ Áheit frá Geirmundi Júlíus- syni, Atlast. 50 kr„ Söfnun úrj Geirdal, ?end af Ingibjörgu Sum- arliðadóttir, Valshamri 485 kr. j Kærar þakkir, f. h. ,IIinnar alm. fjársöfnunarnefndar", Hjörtur Hansson, Bankastræti 11. Sfldarnót 09 bðtar með öllu tilheyrandi, í ágætu standi, til sölu. Upplýsingar gefur ólafur Á. Kristjánsson Sími 67 Vestmannaeyjum. r;> SkiftafunÖir í neðangreindum þrotabúum verða haldnir í bæjarþing- stofunni í Reykjavík n.k. föstudag svo sem hjer segir: Rl. 1014 f. hád. í þrotabúi firmans Perlubúðin. Kl. 11 f. hád. í þrotabúi firmans Sportvörugerðin.: Kl. II14 f. hád. í þrotabúi firmans Windsor Magasin. Á fundunum verður gerð grein fyrir eignum búanna og tekin ákvörðun um meðferð þeirra. • Skiftaráðandinn í Reykjavík 13. mars 1943 KRISTJÁN KRISTJÁNSSON settur. verða lokaðar mánndag* Inn 15. mars, allan da^inn, wegna (arðarfarar ICIKHjG Anslurnfrœfl 12 Lau^ave^ »3a COr. Jarðarför konu minnar og móður ojkkar GUÐRÚNAR SIGRÍKSÐÓTTUR fer f;*amrfrá dómkirkjunni þnðjudag-inn 16. þ. mán. og hcfst rneð bæn að heiinili okkar Lrndargöfu 22 A 1.30. JarðaS verður í Fossvogskirkjugarði. Guðm. Þórðarson og dætur. Jarðarför konunnar minnar GUÐÚNAR Þ. KRISTJÁNSDÖTTUR fer fram mánuaginn 15. þ. mán. og hefst að heimili okkar Þórsgötu 21 A kl. 2 e: hád. Jarðað verður frá dómkirkjunni. Kristján Sig. Kristjánsson. Best að auglýsa í Morgunbi&ðinu. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR frá Miðdalskoti. Einnig vottum við Laugdælingum okkar besta þakklæti fyrir hjálp og hlýjar viðtökur á greftnuiar- degi hermar. Aðstandendur. Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim, sem á einn eða annan hátt auðsýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför INGIBJARGAR JÓNSDÓTTUR frá Hafnardal. Aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.